Morgunblaðið - 22.06.2020, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2020
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐ
ÞÉR AÐ
KOSTNAÐAR-
LAUSU
Ertu að byggja eða þarf að
endurnýja gamla glerið?
Það skiptir miklu máli að velja einangrunargler sem
reynist vel við íslenskar aðstæður.
Fáið tilboð hjá Glerborg í Mörkinni 4 eða
á heimasíðunni okkar WWW.GLERBORG.IS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Skoðanakannanir um stöðuna í
bandarísku forsetakosningunum, sem
birtust í síðustu viku, benda til þess að
bilið sé enn að breikka á milli Joe Bi-
den, fyrrverandi varaforseta og fram-
bjóðanda Demókrataflokksins, og Do-
nalds Trump Bandaríkjaforseta.
Þannig sýndi könnun Fox News-
sjónvarpsstöðvarinnar, sem þykir
íhaldssöm í áherslum sínum, á
fimmtudaginn að bilið á milli Bidens
og Trump væri orðið tólf prósentu-
stig, Biden í vil. Þannig mæltist vara-
forsetinn fyrrverandi með um 50%
fylgi þeirra, á meðan 38% sögðu að
þeir myndu styðja Trump.
Niðurstöður Fox-könnunarinnar
þykja nokkurt áfall fyrir forsetann, en
í sambærilegri könnun stöðvarinnar
fyrir maímánuð var bilið á milli fram-
bjóðendanna 8%, þar sem Biden var
með 48% fylgi á móti 40% sem studdu
Trump.
Forsetinn brást við könnuninni á
föstudaginn á samfélagsmiðlinum
Twitter með því að gagnrýna Fox-
stöðina fyrir að hafa bara látið kanna
fylgið meðal „hatursmanna“ sinna, og
sagði Trump jafnframt í tísti sínu að
Fox-stöðin væri hræðileg, sem vakti
nokkra athygli, þar sem hún hefur
jafnan stutt vel við Trump.
Reiði forsetans má ef til vill skýra
með því, að niðurstöður Fox-könnun-
arinnar eru ekki einsdæmi, en flestar
þær kannanir sem gerðar voru í síð-
ustu viku hafa sýnt að um helmingur
þeirra sem svara könnunum segja að
þeir hyggist kjósa Biden frekar en
Trump.
Hefur bilið í þeim könnunum sem
gerðar hafa verið í júní rokkað á bilinu
6 og upp í 14 prósentustig, en þar var
um að ræða könnun CNN, en Trump
hefur krafið stöðina um afsökunar-
beiðni á þeim grunni að ekkert sé að
marka könnunina.
Stjórnmálaskýrendur vestanhafs
segja, að rót fylgistaps forsetans megi
að miklu leyti rekja til viðbragða hans
við morðinu á George Floyd og þeim
óeirðum sem fylgdu í kjölfarið. Það
hafi til að mynda ekki mælst vel fyrir
þegar Trump hótaði að senda banda-
ríska hermenn á götur bandarískra
borga til þess að kveða mótmælin nið-
ur.
Fyrir sitt leyti hefur Trump bundið
vonir við að hann geti snúið taflinu við
með því að hefja aftur fundaherferð
um allt land, en sá fyrsti þeirra frá
upphafi heimsfaraldursins var hald-
inn í Tulsa á laugardaginn.
Upphaflega átti að halda fundinn á
föstudag, en honum var frestað, þar
sem föstudagurinn er sérstakur hátíð-
ardagur fyrir blökkumenn, og Tulsa
er alræmd fyrir eitt versta fjöldamorð
sem framið hefur verið á blökku-
mönnum í Bandaríkjunum.
Það þótti því vera enn eitt merkið
um það hvernig Trump skildi illa
áhyggjur blökkumanna af ástandinu í
Bandaríkjunum.
Syrtir í álinn fyrir Trump
AFP
Fundur Donald Trump hélt fyrsta kosningafund sinn síðan í mars á laugardaginn í borginni Tulsa.
Kannanir fyrir helgi sýna rúmlega 50% stuðning við Joe Biden á landsvísu
Forsetinn reynir að endurræsa kosningavél sína með framboðsfundum
Landamæri Dan-
merkur verða
opnuð fyrir
ferðamönnum
frá öllum Evr-
ópusambands- og
Schengen-
ríkjum, fyrir ut-
an Svíþjóð og
Portúgal, 27.
júní, næstkom-
andi laugardag. Sérstakar reglur
hafa þó verið settar um norræn
ríki, sem sérstaklega eru sniðnar að
Svíum, og gera það að verkum að
heimilt verður að ferðast til lands-
ins frá tilteknum svæðum Svíþjóð-
ar, Skáni, Suðurmannalandi og
Vesturbotni, þar sem lítið er um
kórónuveirusmit. Stjórnmálamenn
á Skáni hafa fagnað ákvörðuninni.
Vika er síðan fyrstu erlendu
ferðamönnunum var hleypt til
landsins, en Íslendingar, Norðmenn
og Þjóðverjar hafa mátt ferðast til
Danmerkur frá því 15. júní.
Sumir Svíar fá að
ferðast til landsins
Mette Frederiksen
DANMÖRK
Hnífaárás í al-
menningsgarði í
Reading á Eng-
landi á laugardag
er rannsökuð sem
hryðjuverk. Áður
hafði lögregla
gefið út að svo
væri ekki. Þrír
létu lífið og þrír
særðust alvar-
lega í árásinni og
hefur 25 ára karlmaður að nafni
Khairi Saadallah verið handtekinn
grunaður um árásina. Saadallah er
frá Líbíu og hefur hann áður setið í
fangelsi á Englandi fyrir minni hátt-
ar brot. Samkvæmt heimildum BBC
var athygli leyniþjónustunnar MI5
vakin á máli Saadallah þegar hann
var sagður á leið úr landi, hugs-
anlega í þeim tilgangi að fremja
hryðjuverk eða ganga til liðs við
hryðjuverkasamtök. Samkvæmt nið-
urstöðum rannsóknar MI5 hafi hins
vegar ekkert bent til þess að hætta
stafaði af Saadallah.
Árásin er rannsökuð
sem hryðjuverk
BRETLAND
Lögreglumenn
í Reading
Hópur fólks braut rúður og fór
ránshendi um verslanir í miðborg
Stuttgart í Þýskalandi í fyrrinótt.
Lögregla í borginni segir á annan
tug lögreglumanna hafa hlotið
áverka í baráttunni við óeirð-
arseggi en óeirðirnar brutust út
eftir afskipti lögreglu af meintum
fíkniefnaviðskiptum ungs fólks í
götupartíi.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur
fram að sumir óeirðarseggjanna
hafi kastað hellum í lögreglubíl á
ferð, og að á tímabili hafi lögregla
misst stjórn á ástandinu en talið er
að um 500 manns hafi tekið þátt.
Yfir 200 lögreglumenn af bak-
vakt voru kallaðir út til miðborg-
arinnar þar sem múgurinn réðst á
verslunarhúsnæði, að því er virtist
af handahófi.
Fritz Kuhn, borgarstjóri Stutt-
gart úr flokki Græningja, sagði á
Twitter að hann væri í áfalli yfir of-
beldinu, árásum á lögreglu og eyði-
leggingu í borginni. „Þetta er sorg-
legur sunnudagur fyrir Stuttgart,“
sagði borgarstjórinn. „Við erum að
rannsaka vandlega hvað gerðist.
Eitt er víst: Engin stjórnlaus svæði
eiga heima í Stuttgart“.
alexander@mbl.is
AFP
Óeirðir Fólk braut sér leið inn í verslanir og fór þar um með ránshendi.
Skemmdarverk og
ofbeldi í Stuttgart
Venju samkvæmt snýst kosn-
ingabaráttan í Bandaríkjunum
einkum um svonefnd „sveiflu-
ríki“, það er ríki þar sem báðir
flokkar telja sig eiga möguleika
á sigri.
Þegar horft er til skoð-
anakannana í þeim ríkjum sem
flestir telja að geti ráðið úrslit-
um að þessu sinni sést að Biden
leiðir í þeim flestum. Þannig er
munurinn um 6 prósentustig í
Flórída, um 10 í Michigan og
rúmlega 5 prósentustig í bæði
Pennsylvaníu og í Wisconsin,
sem Trump vann síðast með 0,7
stiga mun.
Þá vekur athygli að munurinn
í Texas-ríki, sem Trump vann
með 9% mun árið 2016, sýnir að
einungis munar um 1 prósentu-
stigi milli frambjóðendanna.
Trump verður þó enn að teljast
sigurstranglegri í ríkinu, en það
hefur ekki stutt demókrata í for-
setakosningum frá árinu 1976.
Biden með örugga forystu
STAÐAN Í SVEIFLURÍKJUNUM