Morgunblaðið - 22.06.2020, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Tvær sam-gönguáætl-anir eru nú
til umræðu á Al-
þingi, annars vegar
fimm ára áætlun
fyrir tímabilið 2020
til 2024 og hins veg-
ar áætlun fyrir
næstu fimmtán árin. Þetta er
mikilvæg umræða og miklir
hagsmunir undir, hvort sem
mælt er í fjármunum eða þæg-
indum og öryggi landsmanna
þegar þeir ferðast um landið,
jafnt í sinni heimabyggð og á
lengri leiðum.
Þegar ekið er um landið líkt
og óvenjulega margir lands-
menn gera líklega þetta sum-
arið, má sjá að gríðarlegar
framfarir hafa orðið í vega-
málum á liðnum árum og ára-
tugum. Þeir sem komnir eru um
og yfir miðjan aldur muna vel
malarvegina sem voru nánast
reglan hvert sem ekið var. Nú
er hægt að aka hringinn um
landið og miklu víðar án þess að
fara nokkru sinni á malarveg.
Þessu hefur fylgt að vegir hafa
breikkað og hækkað, til að
greiða fyrir samgöngum að
vetrarlagi, auk þess sem brýr
hafa batnað og jarðgöng eru
komin víða.
Allt eru þetta miklar framfar-
ir en þeir sem aka um landið sjá
líka að víða er enn verk að
vinna. Fjöldi hættulegra vega-
kafla finnst enn og enn er að
finna brýr sem þarf að bæta og
fjöll sem betra væri að fara í
gegnum en aka yfir.
En samgönguáætlun snýr
ekki aðeins að samgöngum á
landsbyggðinni, hún fjallar
einnig um samgöngur á höf-
uðborgarsvæðinu og í henni eru
meðal annars ákvarðaðir fjár-
munir til svokallaðrar borg-
arlínu. Þar kárnar gamanið, því
að borgarlína er ólík flestum
öðrum samgönguverkefnum að
því leyti að litlar líkur eru á að
hún muni skila þeim árangri að
greiða fyrir umferð og gæti
þvert á móti orðið til að þrengja
enn frekar að umferðinni í
Reykjavík, sem má alls ekki við
slíku.
Á laugardag vék Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson að þessu í
umræðum um samgönguáætlun
á Alþingi og benti á að Borg-
arlína myndi hafa þau áhrif að
taka eina akrein af einkabílnum.
Augljóst er að fjölgi þeim leið-
um þar sem slíkt er gert mun
það gera umferð á höfuðborg-
arsvæðinu enn erfiðari en nú er.
Þá benti hann á að tilkoma
Borgarlínu þýddi ekki að strætó
hyrfi af sjónarsviðinu, því að
áfram þyrfti strætisvagna til að
flytja fólk til og frá Borgarlín-
unni, enda á Borgarlínan að
verða kerfi risavagna sem ekki
komast fyrir á hefðbundnum
götum og þurfa sérstakar ak-
reinar og aðra umgjörð. Þetta
verður því tvöfalt
almennings-
samgöngukerfi á
ekki fjölmennara
svæði, sem segir
sitt um hve afleit
hugmyndin er.
Sigmundur Davíð
sagði enn fremur að
líkur væru á að framkvæmdir
við Borgarlínuna færu fram úr
áætlun og að auki lægi ekkert
fyrir um áætlaðan rekstrar-
kostnað. Þetta er vitaskuld stór-
kostlegur galli á áformunum,
ekki síst í ljósi þess að búið er í
tæpan áratug að setja heilan
milljarð aukalega á ári í rekstur
strætisvagnakerfisins á höf-
uðborgarsvæðinu án þess að það
hafi skilað nokkrum árangri.
Hversu háa fjárhæð þarf til við-
bótar á hverju ári þegar þung-
lamalegu og ofvöxnu Borg-
arlínukerfinu verður bætt við?
Í nefndaráliti frá Bergþóri
Ólasyni, formanni umhverfis- og
samgöngunefndar, og Karli
Gauta Hjaltasyni, sem saman
skipa 2. minnihluta nefnd-
arinnar, er komið inn á sam-
göngusáttmálann sem ríkið og
sveitarfélögin á höfuðborg-
arsvæðinu gerðu sín á milli. Sá
sáttmáli snýst að stórum hluta
um Borgarlínu en svarar til
dæmis ekki spurningunni um
hvernig, hvenær eða jafnvel
hvort Sundabraut verður að
veruleika. Um sáttmálann og
borgarlínu segja Bergþór og
Karl Gauti meðal annars: „Ann-
ar minnihluti gerir alvarlegar
athugasemdir við áætlanir um
þau framlög til samgöngu-
sáttmálans sem snúa að Borg-
arlínu. Þrátt fyrir að vilja
greiða fyrir fjölbreyttum sam-
gönguháttum, þar á meðal al-
menningssamgöngum, telur 2.
minnihluti ekki verjandi að ætla
áformum um Borgarlínu svo
mikilvægan sess að ríki og
sveitarfélög verji tæplega 50
milljörðum kr. fram til ársins
2033 til Borgarlínu. Ekki hefur
verið sýnt fram á að ekki sé
unnt að ná þeim markmiðum
sem að er stefnt með Borgarlínu
með hagkvæmari hætti en að
verja til þess 50 milljörðum kr.
á umræddu tímabili. Engin
haldbær kostnaðaráætlun ligg-
ur fyrir um framkvæmdir vegna
Borgarlínu auk þess sem arð-
semismat og rekstraráætlun
liggja ekki fyrir, og óljóst hver á
að bera kostnað af rekstrinum
að framkvæmdum loknum.“
Það er dapurlegt þegar jafn
mörg brýn verkefni í samgöngu-
málum og raun ber vitni liggja
fyrir um allt land, þar með talið
á höfuðborgarsvæðinu, skuli
þingið nú vinna að því að sóa
tugum milljarða, eða jafnvel enn
hærri fjárhæðum, í framkvæmd
sem í besta falli gerir ekkert
gagn en verður að líkindum til
að tefja umferð á svæðinu enn
frekar.
Þingið á ekki að
sóa takmörkuðu
fé skattborgara í
gagnslaus
gæluverkefni}
Mikilvægar umræður
um samgöngumál
N
ú hafa tekið gildi nýjar reglur
um komu fólks til Íslands
vegna Covid-19-faraldursins.
Síðastliðinn mánudag, 15.
júní, bættist við sá valmögu-
leiki að fara í sýnatöku við landamæri ef
skilyrði fyrir sýnatöku eru uppfyllt en áður
höfðu allir sem komu til landsins þurft að
fara í sóttkví í 14 daga. Sóttvarnareglur
þarf að hafa í huga og mikilvægt er að við
hlöðum öll niður smáforritinu, Rakning
C-19. Á heimasíðunni covid.is er að finna
góðar leiðbeiningar fyrir ferðalanga sem ég
mæli með að sem flest kynni sér. Fyrir viku
tók líka gildi frekari tilslökun á samkomu-
banni. Fjöldamörk á samkomum hækkuðu
úr 200 í 500 og takmarkanir á gestafjölda
sundlauga og líkamsræktarstöðva féllu nið-
ur.
Með þessum nýjum reglum höldum við áfram að
draga úr samkomutakmörkunum og tökum varfærin
skref í átt að því að opna landið. Það er mikilvægt fyrir
samfélagið að vera opið, öflugt og virkt, en að við gætum
þess á sama tíma að Covid-19 blossi ekki upp aftur. Nú
munu ferðamann geta komið til landsins án þess að
þurfa að vera í sóttkví og þannig gerum við landið okkar
að eftirsóknarverðari áfangastað. Við sjáum að löndin í
kringum okkur eru flest smám saman að opna sín landa-
mæri og að mati sóttvarnalæknis er þessi leið sem við
höfum ákveðið að fara, að taka sýni á landamærum
landsins, skynsamleg í ljósi sóttvarnaráðstaf-
ana.
Með góðri vinnu og dugnaði undirbúnings-
aðila gekk vel að skipuleggja og koma verkefn-
inu um sýnatöku á landamærum af stað. Sýna-
takan, greining sýna, samskipti við ferðamenn
og allt það fjölmarga sem þarf að huga að í
þessu samhengi hefur gengið ótrúlega vel og
þau sem hafa komið að þessari vinnu eiga þakk-
ir skildar.
Hvert skref í tengslum við opnun landsins
þarf að stíga af varfærni og yfirvegun svo síður
verði bakslag. Hvert og eitt okkar þarf að muna
að gæta áfram að sínum eigin sóttvörnum með
því að virða eftir atvikum fjarlægð milli fólks,
þvo hendur, spritta, vera heima ef einkenni
gera vart við sig og fara sérstakalega varlega í
nálægð við fólk sem er viðkvæmt fyrir veirunni.
Þrátt fyrir að nú sé veiran á algjöru undanhaldi hér-
lendis megum við ekki gleyma því að hún getur blossað
upp aftur. Með því að passa upp á einstaklingsbundnar
sóttvarnir drögum við úr líkunum á því að það gerist.
Verkefninu er langt í frá lokið, og við verðum að vanda
okkur áfram og sýna þolinmæði eins og við höfum gert
hingað til. Við ætlum að opna samfélagið á varfærinn
hátt og gæta þannig að því að sá góði árangur sem hefur
náðst í baráttunni við veiruna glatist ekki. Hér eftir sem
hingað til gerum við það saman.
Svandís
Svavarsdóttir
Pistill
Opið og öruggt samfélag
Höfundur er heilbrigðisráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Ég fæ ofboðslega mikið afábendingum frá for-eldrum vegna rafskútna.Reglugerð er flókin,
tryggingaumhverfi óljóst og slysa-
hætta er mikil,“ segir Herdís Storga-
ard, forstöðumaður Miðstöðvar slysa-
varna barna.
Það hefur vart farið fram hjá
neinum að umferð rafhlaupahjóla,
svokallaðra rafskútna, hefur aukist
mikið síðasta árið. Fyrsta raf-
skútuleigan var sett á fót síðasta
haust og algengt er að sjá ungmenni
þeysast um göngustíga á þeim. Tíðar
fréttir hafa borist af slysum tengdum
rafskútum að undanförnu og spurn-
ingar vakna um hvar ábyrgð liggur ef
tjón hlýst af.
Rafskútur eru flokkaðar sem
reiðhjól C og leyfilegt er að aka þeim
á göngu- og hjólastígum á allt að 25
kílómetra hraða. Mismunandi aldurs-
takmörk geta verið á notkun skútn-
anna samkvæmt viðmiðunum frá
framleiðendum. Í skilmálum raf-
skútuleigunnar Hopp er aldurs-
takmarkið 18 ár en það virðist ekki
stoppa unga krakka í að nýta sér
þjónustu þeirra.
„Vandamálið er að ung börn eru
með debetkort og geta leigt sér skút-
ur. Það vita ekki allir foreldrar að
þetta er bannað innan 18. Maður sér
krakka á fleygiferð á gangstéttum og
úti á götum. Mörg af þessum börnum
eru hjálmlaus. Ég hef séð þrjá
krakka saman á skútu. Það er alveg
ljóst að slysum á eftir fjölga af þess-
um sökum enda eru ungir krakkar
ekki að spá í hvað er handan við horn-
ið eða í gróður sem byrgir sýn,“ segir
Herdís. Hún kveðst telja að raf-
skútuleigur þurfi að vera gagnrýnni
varðandi notkun ungra barna. „Af
hverju er ekki eitthvað í tækinu sem
stoppar það ef debetkort viðkomandi
sýnir að hann hefur ekki aldur til að
leigja það? Tæknin ætti að koma í veg
fyrir að það fari í gang.“
Herdís lýsir sömuleiðis áhyggj-
um af því hvað gerist ef barn undir 18
ára veldur slysi á rafskútu sem það
hefur leigt. „Hvað gerist ef viðkom-
andi verður fyrir því að aka niður og
stórslasa einhvern á gangstétt? Þetta
gæti verið erfitt lagalega séð. Mér
finnst ekki ljóst hvernig tekið yrði á
því en það mun koma að slíkum mál-
um.“
Karlotta Halldórsdóttir, verk-
efnastjóri forvarna hjá Sjóvá, segir að
bæta þurfi reglukerfið um rafskútur.
„Þetta er algjör frumskógur í dag og
misvísandi upplýsingar á lofti, til
dæmis milli tryggingafélaga. Hjá okk-
ur eru þessi hlaupahjól tryggð undir
fjölskylduvernd og þangað er hægt að
sækja í ábyrgðartryggingu ef slys
verða. Ef slysið telst vítavert gáleysi
er möguleiki af okkar hendi að skerða
bætur en það þarf að vera mikið gá-
leysi.“
Tryggingamál áhyggjuefni
Ómar R. Valdimarsson lögmaður
segir að þótt leigutaki á rafskútu sé
ekki orðinn lögráða geti hann verið
bótaskyldur ef hann veldur tjóni.
Hægt sé að gera kröfu á hann og for-
eldra hans ef heimilistrygging borgar
ekki tjónið. „Ég rek mig reyndar oft
og iðulega á það að fólk er ekki með
heimilistryggingu. En ef það er með
slíka tryggingu er ekki öruggt um að
hún nái utan um frítímaslys,“ segir
hann. Ómar segir enn fremur að auð-
velt geti verið fyrir tryggingafélög að
færa rök fyrir gáleysislegri hegðun ef
fólk undir lögaldri veldur slysum. Ald-
urinn einn og sér brjóti í bága við skil-
mála rafskútuleiga og oft séu fleiri en
einn á skútunni hverju sinni.
„Ég held að það væri skynsam-
legt ef leigusalar á þessum tækjum
myndu hafa einhverja grunntrygg-
ingu inni í leigunni. Þá væri fólk ekki
of berskjaldað ef leigutaki veldur
tjóni á þriðja aðila. Það ætti ekki að
kosta of mikið fyrir leigusala að
kaupa slíka tryggingu.“
Eyþór Máni Steinarsson, rekstr-
arstjóri Hopp, segir að besta leiðin til
að fyrirbyggja slys sé að bæta að-
stöðu og aðgengi fyrir fólk á hjólum
og rafhjólum. Réttast væri að lækka
hámarkshraða í umferðinni og bæta
þverun á götum.
„Það er enginn lagarammi í
kringum rafskúturnar. Þær eru
flokkaðar sem reiðhjól C og skil-
greindar svipað og önnur reiðhjól en
mega samt ekki vera á götunum eins
og þau. Við viljum að þetta verði end-
urskilgreint enda eiga skúturnar vel
heima á götum þar sem hámarks-
hraði er 30 kílómetrar svo lengi sem
fólk er með hjálm,“ segir Eyþór og
bætir við að svokölluð örflæðifarar-
tæki séu greinilega framtíðin svo rétt
sé byggja innviði fyrir þau.
Hann staðfestir að í skilmálum
Hopp sé það skýrt að fyrirtækið beri
ekki ábyrgð á tjónum sem leigutakar
kunna að valda, rétt eins og hjá bíla-
leigum. Huga þurfi að löggjöf varð-
andi tryggingar en ýmis grá svæði
séu um ábyrgð í tjónamálum.
„Þetta er klassískt dæmi þar
sem tæknin er á undan löggjöfinni.
Nú er greinilega tímabært að endur-
skoða skilgreiningar á ökutækjum og
hvar þessi tæki passa inn. Þau eru
ekki að fara neitt.“
Kallað eftir skýrari
reglum um rafskútur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Rafskútur Algengt er að ungmenni undir 18 ára séu á leiguskútum, oftar
en ekki tvö eða fleiri í einu. Margir óttast að alvarleg slys geti hlotist af.