Morgunblaðið - 22.06.2020, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2020
Á göngu Margir hafa nýtt blíðviðrið síðustu daga til göngu. Þessi röltu um Hólavallagarð.
Kristinn Magnússon
Verslunin fór
ekki varhluta af
afleiðingum
samkomubannsins
sem sett var þegar
útbreiðsla kór-
ónuveirunnar stóð
sem hæst. Veru-
legur samdráttur
mældist í einka-
neyslu bæði í mars
og apríl miðað við
sömu mánuði árið
áður. Þetta kom
engan veginn á
óvart enda lá þjóð-
félagið meira og
minna í dvala á
þessum tíma.
Það er þess
vegna ánægjulegt
að sjá hversu við-
snúningurinn er
afgerandi nú þeg-
ar slakað hefur
verið á samkomub-
anni og lífið að verulegu leyti að sækja í eðli-
legt horf. Velta innlendra greiðslukorta í maí
sýnir svo ekki verður um villst að áfram er
sterkur kaupmáttur meðal þorra almennings-
.Við Íslendingar höfum áður sýnt hvað í okk-
ur býr þegar á móti blæs og bendir allt til að
við ætlum einnig að sýna það núna. Við erum
ólmir í að mála húsin okkar og smíða palla við
sumarbústaðina og svo þykir okkur áfram
gott að gera vel við okkur í mat og drykk.
Allt þetta lýsir íslenskri þjóðarsál vel og sýnir
að sennilega erum við einfaldlega sterkust
þegar mest á reynir.
Það er ljóst að vilji landans til að ferðast til
útlanda verður takmarkaður á þessu ári.
Önnur hagkerfi munu því ekki njóta einka-
neyslu okkar íslendinga í sama mæli og áður.
Þetta hjálpar vissulega til. Það breytir hins
vegar ekki þeirri staðreynd að sú aukning
sem greinilega er að verða í einkaneyslunni,
skiptir miklu við endurreisn efnahagslífsins.
Öflug íslensk verslun mun gegna þar lyk-
ilhlutverki.
Eftir Jón Ólaf
Halldórsson
» Við Íslend-
ingar höfum
áður sýnt hvað í
okkur býr þegar
á móti blæs og
bendir allt til að
við ætlum einn-
ig að sýna það
núna.
Jón Ólafur Halldórsson
Höfundur er formaður Samtaka verslunar
og þjónustu.
Ánægjulegur
viðsnúningur
Reykjavík hefur setið eftir í sam-
göngumálum. Framkvæmdafé til
vega hefur verið afþakkað og ve-
gafé farið í meira mæli á lands-
byggðina. Borgarstjórnarmeiri-
hlutinn hefur tafið úrbætur og
þrengt að umferð í stað úrbóta.
Umferðartafir hafa lengt vinnuvik-
una í reynd. Sjálfstæðismenn í
borgarstjórn vilja flýta fram-
kvæmdum og fara í snjallvæðingu
umferðarljósa. Í stað þess hefur
meirihlutinn boðað borgarlínu sem
lausn fyrir allt og alla. Hún á að kosta 70 milljarða
en kannski þarf að margfalda þá tölu með pí.
Hver borgar?
Reykjavíkurborg er að tvöfalda útgjöld sín til
borgarlínu. Það er gert án þess að fjármögnun
verkefnanna liggi fyrir. Án þess að endanleg fjár-
festingaráætlun sé til. Án þess að rekstraráætlun
sé gerð. Þjóðvegir í þéttbýli eru á herðum rík-
isins. Eins og háskólarnir. Og hjúkrunarheimilin.
Hér er Reykjavíkurborg að leggja fram milljarð í
þessi verkefni án þess að hafa fast land. Er þetta
óvissuverkefni meira forgangsmál en ný hjúkr-
unarheimili? Í aðdraganda borgarstjórnarkosn-
inga boðaði borgarstjóri og heilbrigðisráðherra
hundruð nýrra rýma umfram þau sem þegar
höfðu verið. Þetta var í apríl 2018. Síðan þá hefur
lítið gerst. Reykjavíkurborg gæti riðið á vaðið og
fjárfest í þessum verkefnum án þess að hafa mót-
framlag ríkisins í hendi. Hannað hús og grafið
grunna. Borgin gæti greitt fyrir nýjar há-
skólabyggingar á eigin spýtur með sama verklagi.
Fjármögnun borgarlínu í samgöngusáttmála er
ekki í hendi. Veggjöld eru ekki á dagskrá. Banka-
sala ekki heldur. Alþingi hefur langan óskalista í
samgöngumálum þar sem jarðgöng, hafnir og
flugvallarmál eru fyrirferðarmikil.
Þéttar umferðasultur
Borgin sjálf hefur ákveðnar
skyldur samkvæmt samgöngu-
sáttmálanum. Hún á að skipuleggja
Keldnalandið. Það hefur ekki verið
gert. Hún á að flýta fyrir Sunda-
braut. Það hefur heldur betur ekki
verið gert. Henni ber að flýta fyrir
skipulagi fyrir gatnamót við Bú-
staðaveg og Arnarnesveg. Það hef-
ur tafist og flækst hjá borginni. Það
er erfitt fyrir ríkið að treysta við-
semjanda sem stendur ekki við sitt.
Það er leitt að þessi leikur borg-
arinnar hafi farið í þetta far. Löngu tímabært er
að fara í stórátak í samgöngumálum á höfuðborg-
arsvæðinu. Reykjavík hefur setið eftir og fjár-
magn farið annað. Borgin hefur afþakkað fram-
kvæmdafé. Sjálfskipað framkvæmdastopp var
formfest í svonefndu 10 ára tilraunaverkefni um
þar sem mikilvægar framkvæmdir voru settar á
ís hefur búið til samgönguvanda. Þar átti að tvö-
falda hlutdeild almenningssamgangna en það hef-
ur algerlega brugðist. Algert vanmat á þörf á
lausnum hefur búið til þéttar umferðarsultur líkt
og í stórborg. Snjallar lausnir eins og ljósastýr-
ingar og umferðarmódel hafa setið á hakanum hjá
borginni. Í staðinn er farið í verkefni sem á að
kosta meira en 70 milljarða og alger óvissa er um.
Þetta er gert á sama tíma og tekjur skreppa sam-
an vegna kóvídkreppu. Væri ekki nær að fara í
það sem er árangursríkt, fyrirsjáanlegt og skyn-
samlegt?
Óvissuferð
Eftir Eyþór Arnalds
Eyþór Arnalds
» Löngu tímabært er að fara í
stórátak í samgöngumálum
á höfuðborgarsvæðinu.
Höfundur er oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórn-
arinnar var lögð rík áhersla á að
efla menntun í landinu með hags-
muni nemenda og þjóðarinnar
allrar að leiðarljósi. Efla bæri ný-
sköpun og þróun enda er menntun
kjarninn í nýsköpun til framtíðar.
Mikilvægt væri að stuðla að við-
urkenningu á störfum kennara,
efla faglegt sjálfstæði þeirra og
leggja áherslu á skólaþróun á öll-
um skólastigum. Bregðast þurfti
við kennaraskorti og tryggja
þurfti framhaldsskólum meira frelsi og fjár-
magn.
Sérstök áhersla var lögð á listnám og aukna
tækniþekkingu sem gerði íslenskt samfélag
samkeppnishæfara á alþjóðavísu. Iðnnám og
verk- og starfsnám yrði einnig eflt í þágu fjöl-
breytni og öflugra samfélags.
Meginmarkmið ríkisstjórnarinnar voru jafnt
aðgengi að námi óháð búsetu og öðrum að-
stæðum. Lögð var áhersla á framhaldsfræðslu,
að Ísland nái meðaltali OECD-ríkjanna og
Norðurlanda varðandi fjármögnun háskólastigs-
ins, efling Vísinda- og tækniráðs og ráðist í upp-
byggingar skólabygginga. Auk þess yrði ráðist í
heildarendurskoðun námslánakerfisins.
Það má með sanni segja að þau fyrirheit hafi
raungerst á undanförum árum.
Sumar tækifæranna
Skráning í sumarnám framhaldsskólanna og
háskólanna hefur slegið öll met. Rúmlega 5.100
nemendur hafa skráð sig í slíkt nám og 330 í
sumarnám framhaldsskólanna. Markhópur
sumarnáms á háskólastigi er mjög fjölbreyttur, í
þeim hópi eru m.a. nemendur sem ljúka námi úr
framhaldsskóla á vorönn og vilja undirbúa sig
fyrir háskólanám, aðrir framtíðarháskólanemar,
núverandi háskólanemar og einstaklingar sem
vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði, brúa
færnibil eða skipta um starfsvettvang. Háskól-
arnir bjóða upp á yfir 200 námsleiðir sem mæta
þessum markhópum með fjölbreyttum hætti.
Alls var 800 milljónum kr. varið til að efla sum-
arnámið.
Aðsóknin er vonum framar enda margir
spennandi námskostir í boði hjá framhalds- og
háskólum. Það gleður mig sérstaklega hversu
mikil aðsókn er í íslenskunámskeið hjá Háskóla
Íslands. Íslenska sem annað mál er orðið vinsæl-
asta einstaka fagið þar, nú þegar eru yfir 400
nemendur skráðir. Búist er við allt að 70% aukn-
ingu frá fyrri árum. Þetta er afar ánægjuleg þró-
un!
Nám á næstu mánuðum
Aðsóknin í sumarnám gaf okkur
vísbendingar um hvernig haust-
námið myndi líta út. Háskóla Ís-
lands barst til að mynda metfjöldi
umsókna í grunnnám, eða um
6.720 umsóknir sem er tæplega
21% aukning frá síðasta ári. Um-
sóknir í framhaldsnám eru tæp-
lega 5.000 og heildarfjöldi um-
sókna því vel á tólfta þúsund. Á
sama tíma hafa aldrei fleiri sótt
um nám við Háskólann í Reykja-
vík. Skólanum bárust 3.900 umsóknir um skóla-
vist fyrir næsta skólaár. Það er um 13% fjölgun
frá síðasta ári. Umsóknum um meistaranám
fjölgar í öllum deildum háskólans, um þriðjung
að jafnaði. Mest er fjölgun í umsóknum um
grunnnám, annað árið í röð, í iðn- og tæknifræði-
deild og sálfræðideild, eða um 34%.
Nýir tímar í starfs- og tækninámi:
Mikil aðsókn í iðnnám
Okkur hefur jafnframt tekist að efla iðnnám
ásamt verk- og starfsnámi. Aðsókn í iðn- og
starfsnám í Tækniskólanum hefur aukist jafnt
og þétt undanfarin ár, bæði úr grunnskóla og frá
eldri nemendum. Sérstök aukning er í bygging-
argreinum og skera pípulagnir sig þar úr með
84% aukningu á umsóknafjölda í dagskóla milli
ára. Aðgerðaáætlun mennta- og menningar-
málaráðuneytisins, Samtaka iðnaðarins og Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga var hrundið af stað
með það að markmiði að auka áhuga ungmenna
á starfs- og tæknimenntun og þar með fjölga
einstaklingum með slíka menntun á vinnumark-
aði. Aðgerðaáætlunin leggur meðal annars
áherslu á að efla kennslu grunnskólanema í
verk-, tækni og listgreinum; jafna stöðu iðn-
menntaðra í framhaldsnámi; einfalda skipulag
starfs- og tæknináms; bæta aðgengi á lands-
byggðinni og styrkja náms- og starfsráðgjöf.
Það er mikilvægt að hver og einn nemandi
geti fundið nám við sitt hæfi. Slíkt eykur ekki
aðeins ánægju nemenda heldur styrkir sam-
félagið okkar til langs tíma.
Kennarar í sókn
Til að mæta áskorunum framtíðar þurfum við
fjölhæfa og drífandi kennara. Aðgerðir voru
kynntar til að fjölga kennurum, í þeim fólust
meðal annars launað starfsnám leik- og grunn-
skólakennaranema á lokaári. Þessar aðgerðir
skiluðu strax árangri en umsóknum fjölgaði um
30% milli ára.
Við sjáum enn meiri fjölgun í haust. Mennta-
vísindasvið Háskóla Íslands fékk 980 umsóknir í
grunnnám eða hátt í 200 fleiri en í fyrra, eða um
26% fleiri. Umsóknir um grunnnám í leikskóla-
kennarafræði og diplómanám í leikskólafræði
nærri tvöfaldast á milli ára, fara úr tæplega 100
í rúmlega 190. Umsóknum í grunnskólakenn-
aranám og kennslufræði eru um 340 í ár eða um
fimmtungi fleiri en í fyrra. Íþrótta- og heilsu-
fræði nýtur einnig mikilla vinsælda og þar hafa
um 150 sóst eftir því að hefja nám eða um
fimmtungi fleiri en í fyrra. Sömuleiðis hefur Há-
skólinn á Akureyri aldrei fengið eins margar
umsóknir í leik- og grunnskólakennaranám.
Þetta eru afar góðar fréttir, enda er öflugt
menntakerfi borið upp af öflugum kennurum.
Menntasjóður og nýsköpun
Það er frábært að sjá hve vel hefur tekist að
styrkja rannsóknarinnviði og efla allt vísinda-
starf. Aukið fjármagn í samkeppnissjóði í rann-
sóknum nær til mannauðs, með auknum styrkj-
um og atvinnutækifærum. Nýsköpunarsjóður
námsmanna styrkir verkefni þar sem ungir vís-
indamenn fá sín fyrstu kynni af þátttöku í vís-
indastarfi sem kveikt hefur áhuga til framtíðar.
Nýsköpunarsjóður námsmanna hefur vaxið úr
55 milljónum í 455 milljónir í ár. Þetta er gert til
að búa til ný tækifæri og virkja þekking-
arsköpun. Mesta framfaraskref í þágu náms-
manna sem hefur verið kallað eftir í mörg ár er
Menntasjóður námsmanna! Sjóðurinn er bylt-
ing fyrir fjölbreyttan hóp fólks sem stundar há-
skólanám hér á landi og fjölskyldur þessa lands.
Með nýju kerfi verður fjárhagsstaða náms-
manna betri og skuldastaða þeirra að námi
loknu ræðst síður af fjölskylduaðstæðum. Auk
þessa nýja kerfis höfum við unnið að því síðustu
ár að bæta hag námsmanna með því að auka
ráðstöfunartekjur þeirra með hækkun fram-
færslu og tekjuviðmiða.
Það er því engum ofsögnum sagt að stórsókn
sé hafin í menntamálum!
Stórsókn í menntamálum í verki
Eftir Lilju Alfreðsdóttur
» Í stjórnarsáttmála ríkis-
stjórnarinnar var lögð rík
áhersla á að efla menntun í
landinu með hagsmuni nem-
enda og þjóðarinnar allrar að
leiðarljósi. Það má með sanni
segja að þau fyrirheit hafi raun-
gerst á undanförum árum.
Lilja Alfreðsdóttir
Höfundur er mennta- og
menningarmálaráðherra.