Morgunblaðið - 22.06.2020, Side 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2020
✝ Finnbogi SævarKristjánsson
fæddist á Patreks-
firði 21. júní 1956.
Hann lést á blóð- og
krabbameinslækn-
ingadeild Landspít-
alans við Hring-
braut 14. júní 2020.
Foreldrar hans eru
Kristján Pétur
Þórðarson, f. 14.
maí 1925, og Val-
gerður Kristjánsdóttir, f. 5. nóv-
ember 1932, fyrrverandi bændur
á Breiðalæk á Barðaströnd.
Systkini hans eru: Snæbjörn, f.
1954, Gísli, f. 1957, Þórhildur
Guðbjörg, f. 1964, Steinunn Jóna,
f. 1965, og Erla Bryndís, f. 1968.
Eftirlifandi eiginkona Finn-
boga er Ólöf Sigríður Pálsdóttir,
f. 6. mars 1961, dóttir hjónanna
Páls Jakobssonar og Guðrúnar
Jónu Jónsdóttur á Hamri á
Barðaströnd. Börn þeirra eru: 1)
Guðrún, f. 1978, maki hennar er
Steinar Ríkharðsson, dætur
þeirra eru Sesselja Bjarney og
Ólöf María. 2) Páll, f. 1982, maki
hans er Dagný Helga Ísleifs-
dóttir, börn þeirra eru Almar
Máni, Hafdís Lilja og Maren
Birta. 3) Kristján, f. 1988, maki
hans er Elín Eyjólfsdóttir, sonur
þeirra er Hafsteinn
Finnbogi. 4) Hafþór,
f. 1991, maki hans
er Ólöf Ósk Guð-
mundsdóttir, börn
þeirra eru Agnes
Heiða og Guð-
mundur Ari.
Finnbogi ólst upp
í foreldrahúsum á
Breiðalæk og gekk í
barnaskólann á
Barðaströnd. Hann
lauk gagnfræðaprófi frá Héraðs-
skólanum á Laugarvatni. Finn-
bogi stundaði nám í Bændaskól-
anum á Hvanneyri veturinn
1974-1975 og útskrifaðist þaðan
sem búfræðingur.
Hann bjó á Breiðalæk ásamt
konu sinni og börnum og stund-
aði í fyrstu sauðfjárbúskap í fé-
lagi við foreldra sína en kúabú-
skap seinna meir. Síðar keyptu
þau Ólöf jörðina af þeim. Á átt-
unda áratugnum stofnaði Finn-
bogi smábátaútgerð ásamt föður
sínum og Gísla bróður sínum og
stunduðu þeir grásleppuveiðar
og seinna einnig þorskveiðar. Á
síðari árum kom Páll sonur hans
inn í útgerðina.
Útför Finnboga fer fram frá
Guðríðarkirkju í dag, 22. júní
2020, klukkan 13.
Ég minnist þess sem unglingur
að ég var alveg búin að ákveða
hvernig tilvera mín yrði í framtíð-
inni. Ég myndi búa í sveit, í litlu
hvítu húsi með rauðu þaki og ætti
alveg fullt af dýrum. Ég ætlaði
líka að verða saumakona eins og
Tobba frænka og klippa hár
þeirra sem kærðu sig um. Auðvit-
að var einnig eiginmaður í dæm-
inu og börnin áttu að verða fjög-
ur. Ég man að tvö þeirra áttu að
bera nöfnin Guðrún og Páll.
15 ára gömul var ég einnig búin
að ákveða mannsefnið mitt. Það
var sveitungi minn, fimm árum
eldri en ég. Já, einmitt þú, elsku
Finnbogi. Og þó ég væri bæði
feimin og óframfærin reyndi ég
ýmislegt, oft með aðstoð vin-
kvenna minna, til að vekja athygli
þína á mér. En eftir slakan árang-
ur í þeim efnum, ákvað ég að gefa
þig upp á bátinn.
Svo leið ár og ég varð 16 ára.
Þá skyndilega snerust málin við.
Öllum til undrunar fórst þú að
sækja böll á Þingeyri sumarið
sem ég vann þar. Og þegar ég var
í Iðnskólanum á Patró haustið
eftir, áttir þú ófáa rúntana þang-
að. Eftir þetta breyttist nú ald-
eilis lífið. Við vorum hringtrúlofuð
eftir þriggja mánaða samveru og
ég flutti til þín að Breiðalæk. Inn-
an árs var hún Gunna okkar kom-
in í heiminn og svo fæddust þeir
Palli, Kristján og Hafþór eins og
áætlað var. Ég gleymi því aldrei
hvað þú varst hamingjusamur og
stoltur pabbi þegar þú fékkst
börnin nýfædd í fangið. Þú elsk-
aðir þau meira en allt annað þó
ekki værir þú mikið fyrir að tjá
það með orðum.
Tíminn hefur liðið svo ótrúlega
hratt en okkar samvera varði í
nær 43 ár. Þótt framtíðaráform
mín hafi að miklu leyti gengið eft-
ir þá getum við ekki alltaf stjórn-
að gangi lífsins. Það höfum við
sannarlega fengið að reyna síð-
ustu mánuði. Ég á eftir að sakna
þín óendanlega mikið og það
verður erfitt að geta ekki leitað til
þín með allt á milli himins og jarð-
ar. En eins og þú sagðir sjálfur þá
á ég góða að og lífið heldur áfram.
Við verðum víst að taka því sem
að höndum ber, sama hvað það er
sárt og óréttlátt. Það verður
ómetanlegt að geta yljað sér við
minningarnar um þig. Guð geymi
þig, elsku vinur.
Þín Lóa.
Ólöf Sigríður Pálsdóttir.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
Ó, elsku pabbi, ég enn þá er
aðeins barn, sem vill fylgja þér.
Þú heldur í höndina mína.
Til starfanna gekkstu með glaðri lund,
þú gleymdir ei skyldunum eina stund,
að annast um ástvini þína.
Þú farinn ert þangað á undan inn.
Á eftir komum við, pabbi minn.
Það huggar á harmastundum.
Þótt hjörtun titri af trega og þrá,
við trúum, að þig við hittum þá
í alsælu á grónum grundum.
Þú þreyttur varst orðinn og þrekið
smátt,
um þrautir og baráttu ræddir fátt
og kveiðst ekki komandi degi.
(Hugrún)
Þín dóttir,
Guðrún (Gunna).
Mikið ofboðslega finnst mér líf-
ið óréttlátt núna pabbi minn! Við
ætluðum að vera saman að draga
grásleppunet inn við eyjar núna,
en örlögin ætluðu þér annað. En í
staðinn fyrir að gráta það sem
ekki varð þá ætla ég að reyna að
temja mér sama æðruleysi og þú
hafðir þegar þú varst búinn að
átta þig á að þetta mein yrði ekki
sigrað og þakka frekar fyrir allar
góðu stundirnar og minningarnar
sem ég á um þig.
Frá því að ég man eftir mér þá
ætlaði ég mér að verða eins og þú,
ég ætlaði að verða bóndi og sjó-
maður og ég man hvað ég var
svekktur yfir því að vera ekki örv-
hentur eins og þú varst og æfði ég
mig oft í að skrifa með vinstri
hendi í von um að kannski yrði ég
örvhentur einn daginn.
Ég var ekki gamall þegar ég
vildi helst alltaf fá að fara með þér
og afa á sjó og þegar ég fékk ekki
að fara með þá grenjaði ég og
grenjaði yfir því óréttlæti að vera
skilinn eftir. En þú varst samt
duglegur að leyfa mér að fara
með og það varð til þess að það
komst ekkert annað að hjá mér
en sjómennska og veiðiskapur.
Útgerðin var okkar sameingin-
lega ástríða, ég er svo þakklátur
fyrir vertíðina okkar síðasta sum-
ar, þá fóru saman góðu v-in þrjú,
veiði, verð og veður. Mig hefði
aldrei grunað að þetta ætti eftir
að verða okkar síðasta vertíð
saman. Þú varst ekki bara pabbi
minn, heldur líka vinnufélagi og
besti vinur minn.
Þegar ég var að keyra heim áð-
an þá leit ég tárvotum augum í
baksýnisspegilinn og sá spegil-
mynd mína og þá mundi ég eftir
atriði í myndinni um konung ljón-
anna sem við horfðum nú oft á í
gamla daga, þegar Simbi leit í
vatnið og sá pabba sinn í sér.
Þannig verður það hjá mér, þú
munt lifa í mér og verða með mér
meðan ég lifi.
Eftir dimma daga og sára,
gaf mér draumur von eitt sinn.
Þá ég hitti þig á himnum
hálfa nótt.
Gegnum móðu gleðitára,
sá ég glitta í vangann þinn.
Þig ég hitti
elsku hjartans pabbi minn.
Ég um tilurð sálar spyr nú.
Sofnar hún um leið og við?
Eða lifum við í ljósi
lengri tíð?
Veitir styrk að velja guðstrú?
Velja að lifa slíkan sið?
Skyld’ það hjálpa
til að finna innri frið?
Rætist kannski þessi draumur minn?
Vonin róar huga minn um sinn.
Kvölin kennir mér að hlúa
að þeim kærleik sem ég finn.
Það að þakka fyrir allt
sem áttum við.
Því ég verð að vona og trúa
að við sjáumst eitthvert sinn,
að ég hitti þig á himnum
pabbi minn.
Að ég hitti þig á himnum, pabbi
(Þórunn Lárusdóttir)
Guð geymi þig elsku pabbi!
Þinn
Páll (Palli).
Nú þegar Finnbogi bróðir
minn er fallinn frá langt um aldur
fram hrannast upp minningar frá
uppvaxtarárum okkar á Breiða-
læk.
Við brölluðum margt saman
um leið og við gátum staðið upp á
endann. Við eyddum mörgum
stundum við bátapollana sem við
gerðum við bæjarlækinn og síðar
upp í króknum, það var sífellt ver-
ið að breyta og bæta. Síðan smíð-
uðum við bát úr sléttajárnsplötu
og var hann það stór að við gátum
siglt á honum en stundum komum
við blautir heim eftir veru okkar
þar.
Það er annað sem við eyddum
miklum tíma í og það var drátt-
arvélin, Farmall Cub. Við fengum
ekki að keyra hana en við ýttum
henni um allar jarðir og þegar við
lentum í torfærum var sett í gír
og vélinni snúið með sveif þar til
við komum henni þangað sem við
ætluðum okkur en lítið var um að
við gæfumst upp enda báðir dálít-
ið þrjóskir hef ég heyrt.
Þegar við vorum litlir áttir þú
erfitt með að vera langt frá
mömmu og pabba. Einu sinni að
hausti þurftu þau að huga að
kindunum úti í fjárhúsum, sem
voru í innri helmingnum á hlöð-
unni. Úti var mikil rigning og rok
þannig að við áttum að vera inni á
meðan og tel ég mig hafa átt að
passa þig þar sem ég er eldri.
Fljótlega eftir að þau voru farin
út hljópst þú á eftir þeim og man
ég þegar þú hvarfst út í myrkrið
og rigninguna. Ég fór á eftir þér
og fann þig fastan í drullusvaði á
leiðinni út í fjárhús, en þetta
bjargaðist allt og við komumst í
fjárhúsin.
Einu sinni varð ég mjög
hræddur um þig en þá var pabbi
að gera sléttuna innan við veginn
niður túnið. Pabbi var á dráttar-
vélinni með slóðann aftan í og til
að þyngja hann niður fórum við
upp á hann þegar átti að skafa of-
an af hólum. Í eitt skiptið dast þú
inní aftara hólfið á slóðanum,
slóðinn var rammi úr plönkum og
einn í miðjunni sem við áttum að
sitja á, þú varst lengi hlaupandi á
fjórum fótum inn í rammanum en
fórst síðan undir aftasta plankann
með fæturna og síðan hoppaði
hann yfir þig en þú stóðst bara
upp og dustaðir af þér moldina
eins og ekkert hefði gerst. Þessi
sýn dettur mér seint úr minni.
Hugur þinn var trúlega alltaf
að gerast bóndi og fékk ég það
hlutverk að keyra þig á Bænda-
skólann á Hvanneyri sem hafðist
eftir að hafa villst aðeins í Borg-
arfirðinum.
Þetta er aðeins brot minninga
frá uppvaxtarárum okkar, en því
miður er ekki lengur möguleiki á
fleiri samverustundum þar sem
þú varðst að láta í minni pokann
fyrir krabbameininu.
Ég vil þakka þér og Lóu fyrir
allt sem þið gerðuð fyrir foreldra
okkar á meðan þau voru á Breiða-
læk en þau hefðu ekki geta verið
þar síðustu árin án ykkar aðstoð-
ar.
Einnig vil þakka fyrir tímann
sem börnin mín áttu með þér,
þegar þau voru í sveit hjá ömmu
sinni og afa.
Mig langar að setja hér vísu
eftir Steinþór föðurbróður okkar.
Er ég héðan hverf á braut
Og hjá er liðin öll mín þraut
Ég kýs að lenda Kristur minn
Í kærleksríka faðminn þinn.
Hjartans þakkir fyrir allar
stundirnar sem við áttum saman.
Við Sigurlaug sendum innilegar
samúðarkveðjur til Lóu, Gunnu,
Palla, Kristjáns, Hafþórs og fjöl-
skyldna þeirra.
Þinn bróðir
Snæbjörn
Kveðja frá systur.
Elsku bróðir, ég óskaði þess
svo heitt að þú kæmist heim í
sveitina fyrir afmælið þitt en ég
veit í hjarta mínu að þú ert þar
núna, jafnvel kominn út á sjó á
Breiðafirði.
Guð, heit eg á þig,
að græðir mig,
minnst, mildingur, mín,
mest þurfum þín.
Ryð þú, röðla gramur,
ríklyndur og framur,
hölds hverri sorg
úr hjartaborg.
(Kolbeinn Tumason)
Steinunn (Steina).
Finnbogi mágur minn var kall-
aður burtu allt of snemma. Við
sem vorum samferðafólk hans
kveðjum góðan dreng. Hann var
alltaf hress og kátur, hjálpsamur
og úrræðagóður og gat næstum
allt. Ég held að hann hafi ekki
þekkt orðið vandamál. Hann gekk
til allra verka af æðruleysi og
fann alltaf fljótlegustu og bestu
lausnirnar á öllum verkefnum.
Finnbogi var sívinnandi, ef
Finnbogi Sævar
Kristjánsson
✝ Kristín FjólaÞorbergsdóttir
fæddist í Reykjavík
22. júní 1924. Hún
lést á Hjúkr-
unarheimilinu
Sunnuhlíð 18. októ-
ber 2019. Foreldrar
hennar voru Jósef-
ína Katrín Magn-
úsdóttir, f. 11.jan
1900, d. 14. ágúst
1989, og Þorbergur
Gunnarsson, f. 1. nóv. 1887, d. 27.
júlí 1959.
Alsystkini hennar voru Magn-
ús Pétur, f. 25. júní 1920, d. 30.
nóv. 2002, Bergur Thorberg, f.
21. júlí 1921, d. 25. jan. 2009,
drengur, f. 22. sept. 1922, d. 18.
nóv. 1922, Gunnar Bergmann, f.
30. des. 1925, d. 29. nóv. 2005, og
Stella Ester, f. 30. mars 1927, d.
19. sept. 2011. Samfeðra voru
Elsa Sigurbjörg, f. 29. maí 1914,
d. 3. okt. 1994, Gunnar, f. 4. sept.
1927, d. 11. okt. 2013, Ingibjörg,
f. 14. sept. 1928, d. 16. apríl 2019,
og Þorbergur Ágúst, f. 17. júní
1930, d. 23. okt. 2013.
Kristín Fjóla giftist
Hermanni St. Björg-
vinssyni 9. nóvember
1943. Dætur þeirra
eru 1) Katrín, f. 1943,
2) Unnur, f. 1945, 3)
Stella, f. 1951, 4) Sig-
urrós f. 1958, fyrir
átti Hermann Sigurð
Ágúst, f. 1940, d.
1988, sem Fjóla gekk
í móðurstað, albróðir
Sigurðar var Björg-
vin, f. 1938, d. 2012, hann ólst upp
hjá föðurforeldrum sínum en var
í góðum tengslum við fjölskyld-
una. Ömmubörn hennar eru 16,
langömmubörnin 37 og langa-
langömmubörnin 17.
Fjóla ólst upp ásamt alsystk-
inum sínum hjá móður sinni í
vesturbæ Reykjavíkur og gekk í
Miðbæjarskólann. Á sínum yngri
árum í starfaði hún í prentsmiðju
en eftir að hún og Hermann
stofnuðu fjölskyldu var hún
heimavinnandi húsmóðir þar til
börnin uxu úr grasi en fór þá aft-
ur út á vinnumarkaðinn.
Útför fór fram í kyrrþey.
Hinsta kveðja til mömmu
Dagsverki lokið, sól að ægi sigin.
Signt hafa vinir brár og laugað tárum.
Leitandi sál að dyrum Drottins stigin.
Drottins vors hönd er lækning hvers
kyns sárum.
Góð var þér sjúkri lausn og léttir
nauða,
ljúft mun að vakna bak við gröf og
dauða.
Marta bjó ytra, María í hjarta.
Merkin þú barst í gleði, sorg og
þrautum.
Ljúft var þér öðrum leið að gera bjarta,
líknarhönd rétta, hvar sem stóðst á
brautum.
Sjúkum að hjúkra, hrelldum færa gleði,
huggun þú varst hjá mörgum
dánarbeði.
Kveðju og þakkir klökkum huga færum.
Kveðja og þökk í hjartastrengjum óma.
Signi þig Guð með geislahöndum
skærum.
Gefi þér eilífð sína helgidóma.
Minning þín hjá oss lifir lífs vors
stundir.
Ljúfir oss síðar verða endurfundir.
(Kristj. Sig. Kristj.)
Megi Guð geyma þig.
Þín dóttir
Unnur.
Í dag 22. júní er afmælisdagur
mömmu, ömmu, langömmu, við
minnumst hennar með þakklæti
og söknuði.
Ljósið flæðir enn um ásýnd þína:
yfir þínum luktu hvörmum skína
sólir þær er sálu þinni frá
sínum geislum stráðu veginn á.
Myrkur dauðans megnar ekki að hylja
mannlund þína, tryggð og fórnarvilja
- eftir því sem hryggðin harðar slær
hjarta þitt er brjóstum okkar nær.
Innstu sveiflur óskastunda þinna
ennþá má í húsi þínu finna
þangað mun hann sækja sálarró
sá er lengst af fegurð þeirra bjó.
Börnin sem þú blessun vafðir þinni
búa þér nú stað í vitund sinni:
alla sína ævi geyma þar
auðlegðina sem þeim gefin var.
Þú ert áfram líf af okkar lífi:
líkt og morgunblær um hugann svífi
ilmi og svölun andar minning hver
- athvarfið var stórt og bjart hjá þér.
Allir sem þér unnu þakkir gjalda.
Ástúð þinni handan blárra tjalda
opið standi ódauðleikans svið.
Andinn mikli gefi þér sinn frið.
(Jóhannes úr Kötlum)
Stella, Karl Fjölnir, Karen,
Víðir Freyr, Hlynur
Finnbogi og Emilía Björk.
Atli Freyr, Moa, Þrándur og
Elmar.
Kristín Fjóla
Þorbergsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓN HJÖRLEIFSSON
athafnamaður,
Hellu, Rangárvöllum,
lést á heimili sínu 18. júní. Útförin verður
auglýst síðar.
Eva María Jónsdóttir Sigurpáll Scheving
Ragna Sara Jónsdóttir Stefán Sigurðsson
Hjörleifur Jónsson Hildur Pétursdóttir
Sigrún Ágústsdóttir
barnabörn
Móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma
og systir,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
frá Deildartungu,
Birkigrund 63,
lést 13. apríl og fór útför hennar fram í
kyrrþey 30. apríl. Minningarathöfn verður haldin í
Langholtskirkju mánudaginn 22. júní klukkan 13.
Jón Finnbjörnsson Erla S. Árnadóttir
Guðrún Hrönn Jónsdóttir Ragnar Steinn Ólafsson
Birna S. Jónsdóttir Einar Ingi Davíðsson
barnabarnabörn
Ragnheiður Jónsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar