Morgunblaðið - 22.06.2020, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2020
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
NÚ FÁST BOSCH
BÍLAVARAHLUTIR HJÁ KEMI
TUNGUHÁLSI 10
60 ára Magnús Óli er
fæddur í Reykjavík en
ólst upp í Hafnarfirði og
býr þar. Hann er húsa-
smíðameistari að mennt
og er forstjóri Innness.
Magnús Óli er formaður
Félags atvinnurekenda.
Maki: Erla Dís Ólafsdóttir, f. 1961, hús-
móðir.
Börn: Sigríður Þóra, f. 1981, Jenný, f.
1984, Elísabet Rós, f. 1988, d. 1989, Fann-
ey Rós, f. 1989, og Magnús Óli, f. 1992.
Barnabörnin eru orðin fimm.
Foreldrar: Ólafur Kristján Guðmundsson,
f. 1928, d. 2007, húsasmíðameistari og
rak trésmíðaverkstæðið Trévirki, og Sig-
ríður Þóra Magnúsdóttir, f. 1929, d. 2000,
verslunarkona. Þau voru búsett í Hafn-
arfirði.
Magnús Óli
Ólafsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú er lag að gera eitthvað í sínum
heilsumálum. Gerðu hvað þú getur til þess
að víkka sjóndeildarhringinn.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú munt komast yfir upplýsingar
sem þú áttir ekki að fá. Brettið bara upp
ermarnar og hefjist strax handa.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Líklegt er að þú talir meira við
fólk í vinnunni á næstunni en oft áður.
Sinntu þínu og þá munt þú verða ofan á
þegar vinda lægir aftur á vinnustaðnum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Vertu kátur því þú mátt eiga von á
því að eitthvað nýtt og framandi skjóti upp
kollinum í lífi þínu. Láttu rifrildi ekki eyði-
leggja allt. Leggðu þitt af mörkum til að
bæta heiminn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú er ekki tími til að vera með neitt
hangs. Rasaðu ekki um ráð fram á loka-
sprettinum. Hlutirnir eiga eftir að breytast
til betri vegar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er um að gera að njóta líðandi
stundar, því hún kemur aldrei aftur og
betra að hafa hana góða í minningunni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það bendir ýmislegt til þess að gam-
all draumur þinn muni nú rætast. Láttu
meta það á næstu dögum, það verður
hagstætt fyrir þig. Farðu ekki út fyrir þau
mörk sem þú settir þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft á aukinni einveru að
halda til að hugsa um lífið og tilveruna og
til að ná áttum. Njóttu dagsins.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér kann að hugkvæmast ný
leið til tekjuöflunar. Reyndu að koma
skipulagi á hlutina áður en lengra líður á
árið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Óvænt tækifæri berst þér upp í
hendurnar og þér er fyrir bestu að nýta
þér það til hins ýtrasta. Hraðinn í þínu
daglega lífi eykst dag frá degi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert upp á þitt besta og get-
ur nánast samið um hvað sem er því þú
færð fólk svo auðveldlega á þitt band.
Gríptu tækifærið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert hrókur alls fagnaðar um
þessar mundir og færð hvert heimboðið á
fætur öðru. Vertu opin/n fyrir hvers konar
fyrirgreiðslu.
ingasamband sem væri innan ÍSÍ
og lyfjaeftirlitsins. Upp úr því tók
ég við formennsku aganefndar Al-
þjóðakraftlyftingasambandsins og
síðan formennsku lyfjaeftirlitsins
núvirði en þegar landsliðið var búið
að vinna silfur á Ólympíuleikunum
og fjárhagurinn kominn í gott lag
þá hættum við. Eftir það var ég
beðinn um að stofna nýtt kraftlyft-
S
igurjón Pétursson fædd-
ist 22. júní 1950 í
Reykjavík og ólst upp í
Vesturbænum og Hlíð-
unum. „Ég var í sveit á
Brekku í Seyluhreppi í Skagafirði
mörg ár og var mikið í Vatnaskógi,
ég var eiginlega geymdur þar.“
Sigurjón gekk í Ísaksskóla 1956-
1959 og Landakotskóla 1959-1962.
Hann varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1970 og lauk
viðskiptafræðinámi við Háskóla Ís-
lands 1974 og MBA-námi við New
York University 1977. Hann lauk
námi í Leiðsöguskólanum 2014 með
hæstu einkunn og viðurkenningu.
Sigurjón hefur áratuga reynslu
sem stjórnarmaður og fram-
kvæmdastjóri rekstrar, endur-
skipulagningar og sameiningar
fjölda fyrirtækja bæði innanlands
og erlendis. Má þar m.a. nefna
Skýrr, Landsteina Streng, Verk-og
kerfisfræðistofuna og Sjóvá. Á ár-
unum 1995-1998 var hann stunda-
kennari við viðskiptadeild Háskóla
Íslands. „Núna rekum við hjónin
fyrirtækið Photo Tours in Iceland
og höfum aðallega verið að leið-
segja bandarískum ljósmyndurum
um landið.
Sigurjón var formaður Skýrslu-
tæknifélags Íslands 1983-1987, for-
maður Landssambands íslenskra
vélsleðamanna 1986-1988, stjórnar-
formaður Korts hf. 1999-2000, for-
maður Félags viðskiptafræðinga og
hagfræðinga 1990-1995, varafor-
maður Handknattleikssambands Ís-
lands 1996-2009, formaður sóknar-
nefndar Hafnarfjarðarkirkju
1996-2013, formaður Kraftlyftinga-
sambands Íslands 2009-2015 og
hefur verið varaforseti Inter-
national Powerlifting Federation
frá 2015. „Það var mikill ævintýra-
og uppbyggingartími þegar ég var
formaður sóknarnefndarinnar. Við
kláruðum að byggja safnaðarheim-
ilið, gerðum kirkjuna algjörlega
upp og keyptum tvö ný orgel frá
Þýskalandi. Á sama tíma tókum við
Guðmundur Ingvarsson við Hand-
knattleikssambandinu þegar það
var gjaldþrota eftir HM á Íslandi.
Félagið var 400 miljónir í mínus á
hjá sambandinu og er núna vara-
forseti sambandsins.“
Sigurjón er heiðursfélagi Félags
viðskipta- og hagfræðinga og
Skýrslutæknifélags Íslands. Hann
hlaut gullmerki Handknattleiks-
samband Íslands og gullmerki og
heiðurskross Íþrótta-og ólympíu-
sambands Íslands og er heiðurs-
formaður Kraftlyftingasambands
Íslands.
Áhugamál Sigurjóns eru ljós-
myndun, hjólreiðar, útivera, veiðar,
fjallgöngur, kajakróður, fjórhjól,
vélsleðar og sjálfboðaliðastörf í
þágu samfélagsins. Hann ásamt
eiginkonu sinni hefur haldið ljós-
myndasýningar í Færeyjum, Dan-
mörku, Moskvu og víða á Íslandi og
þau hjónin hafa gefið út ljós-
myndabækur, s.s. Aðventa á fjöll-
um sem er byggð á Aðventu Gunn-
ar Gunnarssonar. Þau tóku m.a.
allar myndirnar fyrir Árbók Ferða-
félags Íslands 2019 sem var um
Mosfellsheiði. „Við höfum farið
þvers og kruss yfir Ísland og
Alaska á vélsleðum og tekið þátt í
vélsleðakappakstri þar. Í félagi við
Magnús son okkar gáfum við út
GPS-bókina og Lóranbókina en í
þeim eru staðsetningar tæplega 350
skála og 100 leiða á hálendi Ís-
lands. Bækurnar voru mikið not-
aðar af hjálparsveitarfólki en á
þessum tíma í kringum 1990 voru
engar skráningar yfir staðsetningar
til.
Við hjónin stundum mikið hjól-
reiðar og höfum verið að hjóla í
Sigurjón Pétursson framkvæmdastjóri – 70 ára
Fjölskyldan Pétur, Jochum, Margrét, Jara, Magnús, Þóra Hrönn, Bára, Ás-
geir og afmælisbarnið Sigurjón um síðustu áramót. Á myndina vantar Björn
og nýjasta afkomandann, Þóru Björt.
Í hringferð á reiðhjóli í fjórða sinn
Á Times Square Sigurjón og Þóra Hrönn eftir að hafa hjólað frá Key West í
Flórída til New York, sem er um 3.300 km leið, árið 2018.
Ljósmyndarinn Sigurjón.
40 ára Helena er
Selfyssingur, fædd
þar og uppalin og
hefur alltaf búið á
Selfossi. Hún er við-
skiptafræðingur að
mennt frá Háskól-
anum í Reykjavík,
kennari frá Háskóla Íslands og kunda-
lini-jógakennari. Helena er eigandi og
sölu- og markaðsstjóri Guðmundar
Tyrfingssonar – GTs ehf.
Maki: Bjarni Már Magnússon, f. 1975,
vaktstjóri hjá GTs.
Börn: Sindri Snær, f. 2004, Helga Júlía,
f. 2007, og Patrekur Bjarni, f. 2014.
Foreldrar: Guðmundur Tyrfingsson, f.
1933, stofnandi og eigandi GTs, og Sig-
ríður Benediktsdóttir, f. 1953, eigandi
GTs. Þau eru búsett á Selfossi.
Helena Herborg
Guðmundsdóttir
Til hamingju með daginn
Emilía Sjöfn, Henrika Huld og Saga
Marín bökuðu kókoskúlur og seldu ná-
grönnum sínum í hverfinu sínu í Norð-
lingaholti. Með þessu söfnuðu þær
5.367 kr. til styrktar Rauða krossinum
sem þakkar þeim kærlega fyrir þeirra
framlag til mannúðarmála.
Tombóla