Morgunblaðið - 22.06.2020, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2020
„HANN VILL BARA AÐ ÉG BÍÐI EFTIR
HONUM Í SOKKASKÚFFUNNI Á MEÐAN
HANN ER Í VINNUNNI.”
„ÉG VEIT AÐ ÞÚ ÁTT BRÁÐUM AFMÆLI, EN
HVAÐ ER HÆGT AÐ KAUPA HANDA KONU
SEM Á ALLT?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að eiga handlaginn
eiginmann.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
BRÁTT SJÁUM VIÐ FYRSTU MERKI
ÞESS AÐ JÓLIN SÉU AÐ NÁLGAST
ÞAÐ ER SVO MIKIÐ
EFTIR AÐ GERA!!
ÞETTA VAR EITT
ÁTTU EITTHVAÐ
VIÐ ÞESSU
SÍRENNSLI Á
HORI?
JÁ!
GÓÐAR FRÉTTIR! ÉG ER EKKI LENGUR
AUMINGI MEÐ HOR!
HJÓNABANDS-
RÁÐGJÖF
kringum Bandaríkin í áföngum og
eigum bara eftir að hjóla frá Chi-
cago til Seattle til að klára hring-
inn. Við ætluðum að fara þá leið í
sumar en í staðinn erum við núna í
fjórða sinn á reiðhjólum hringinn í
kringum Ísland og munum fagna
afmælisdeginum á Hótel Klaustri.“
Fjölskylda
Eiginkona Sigurjóns er Þóra
Hrönn Njálsdóttir, f. 14.4. 1951,
snyrtivörukynnir. Foreldrar hennar
voru Sigrún Magnúsdóttir
Lucchesi, f. 7.11. 1929, d. 27.1. 2005,
tryggingafulltrúi í San Francisco,
BNA, gift Vito Lucchesi, og Njáll
Ingjaldsson, f. 22.2. 1923, d. 19.4.
2000, skrifstofustjóri og bjó á Sel-
tjarnarnesi.
Börn Sigurjóns og Þóru Hrannar
eru 1) Magnús Sigurjónsson, f.
2.7.1977, flugmaður, búsettur í
Reykjavík, maki: Margrét Tryggva-
dóttir forstjóri. Þeirra börn eru
Jochum Magnússon, f. 24.11. 2007
og Jara Magnúsdóttir, f. 26.9. 2011;
2) Pétur Sigurjónsson, f. 18.1. 1981,
læknir, búsettur í Stokkhólmi,
maki: Björn Hrannar Johnson flug-
þjónn; 3) Bára Sigurjónsdóttir, f.
17.12. 1986, lögfræðingur, búsett í
Reykjavík, maki: Ásgeir Pétursson
félagsráðgjafi. Þeirra barn er Þóra
Björt Ásgeirsdóttir, f. 10.7. 2019.
Bróðir Sigurjóns er Guðjón Þór
Pétursson, f. 30.10. 1955, skipstjóri,
búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Sigurjóns voru hjónin
Bára Sigurjónsdóttir, f. 20.2. 1922,
d. 8.6. 2006, danskennari, píanóleik-
ari og stofnandi og eigandi tísku-
vöruverslunarinnar Hjá Báru, og
Pétur Guðjónsson, f. 19.3. 1926, d.
23.7. 1983, framkvæmdastjóri. Þau
voru búsett í Reykjavík.
Sigurjón Pétursson
Jón Bjarnason
bóndi í Búrfellskoti
Ingveldur Gísladóttir
húsfreyja íBúrfellskoti
í Grímsnesi
Guðjón Jónsson
kaupmaður í Rvík
Sigríður Pétursdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Pétur Guðjónsson
framkvæmdastjóri í Rvík
Pétur Pétursson
bóndi á Eyvindarstöðum
á Álftanesi
Málfríður Þorsteinsdóttir
vinnukona á Álftanesi
Einar Ólafsson
sjómaður í Hafnarfirði
Sigríður Jónsdóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Sigurjón Einarsson
togaraskipstjóri og
forstjóri í Hafnarfirði
Rannveig Vigfúsdóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Vigfús Jónsson
bóndi í Bakkabúð neðri
Ragnhildur Gestsdóttir
húsfreyja í Bakkabúð neðri
á Búðum á Snæfellsnesi
Úr frændgarði Sigurjóns Péturssonar
Bára Sigurjónsdóttir
eigandi tískuvöruverslunarinnar
Hjá Báru
Tvær limrur flutu með svari Helga
R. Einarssonar við gátunni á laug-
ardag. Sú fyrri er „Atvinnuauglýs-
ing“:
Kynórasoltnum og sjúkum
sinni ég þurfandi búkum.
Taktu þér tak,
þér tylltu á bak,
um lágnættið þessu við ljúkum.
„Slapp fyrir horn“ er sú síðari:
Sem oftar mín freistaði fjandinn,
sú freisting var kvenfólk og landinn.
En ég innbyrti’ of mikið
og fyrir vikið
áformin runnu’ út í sandinn.
17. júní skrifaði Pétur Stef-
ánsson í Leirinn og kallaði
„Skúffuskáld“: „Hef ákveðið á
þessum fallega degi að segja mig
úr samfélagi hagyrðinga í óákveð-
inn tíma og yrkja eingöngu í skúff-
una“:
Kraftlaus er minn andans fugl,
illa flugið tekur.
Allt mitt bölvað óðar rugl
enga lukku vekur.
Jón Helgi Arnljótsson svaraði:
Öndum býðst nú bara sáld.
Bölvað er að heyra.
Pétur gerist skúffuskáld.
Skæð er þessi veira.
Hjörtur Benediktsson yrkir á
Boðnarmiði í tilefni af því að stór-
bændur héldu veislu:
Ég mætti í veislu á Mýrum
mjólkandi ganga þar kýr um.
Bóndinn hann rakar
og húsfreyjan bakar
og barnanna rúmin hún býr um.
Anton Helgi Jónsson orti „Forn-
bílalimru dagsins. – Gamall trabbi
lítur yfir farinn veg á 17. júní“:
Menn álíta andvörp mín hátíð
því afrekin segja þeir fátíð.
Það álit er hart.
Ég afreka margt
en einkum og langmest í þátíð.
Erlendur Gottskálksson orti:
Ei skal flúa hregg né hel
og hugurinn aldrei falla.
Best er að snúa járni í él
og jötuns beita skalla.
Guðmundur á Sandi segir að þótt
Indriði á Fjalli sé betur staddur en
í versta lagi þá hafi hann þó fundið
til þess að skemmra kemst hann og
lægra í reyndinni en þráin krefur:
Hef ég auga á himni blám
hærra en stjörnur reika.
Fékk ég hundrað heitum þrám
hálfa möguleika.
Páll Ólafsson orti:
Illa fenginn auðinn þinn
áður en lýkur nösum
aftur tínir andskotinn
upp úr þínum vösum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Freistingar og fögur áform