Morgunblaðið - 22.06.2020, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2020
Pepsi Max-deild karla
KA – Víkingur R....................................... 0:0
Grótta – Valur........................................... 0:3
KR – HK.................................................... 0:3
Fjölnir – Stjarnan .................................... 1:4
Fylkir – Breiðablik................................... 0:1
FH – ÍA ..................................................... 2:1
Staðan:
Stjarnan 2 2 0 0 6:2 6
Breiðablik 2 2 0 0 4:0 6
FH 2 2 0 0 5:3 6
HK 2 1 0 1 5:3 3
Valur 2 1 0 1 3:1 3
ÍA 2 1 0 1 4:3 3
KR 2 1 0 1 1:3 3
Víkingur R. 2 0 2 0 1:1 2
KA 2 0 1 1 1:3 1
Fjölnir 2 0 1 1 2:5 1
Fylkir 2 0 0 2 1:3 0
Grótta 2 0 0 2 0:6 0
Lengjudeild karla
Fram – Leiknir F ..................................... 3:0
ÍBV – Magni.............................................. 2:0
Víkingur Ó. – Vestri ................................. 2:0
2. deild karla
Haukar – Fjarðabyggð ............................ 2:1
Dalvík/Reynir – Þróttur V....................... 1:1
Njarðvík – Völsungur .............................. 3:1
Víðir – Kórdrengir ................................... 0:3
ÍR – KF ..................................................... 1:0
Pepsi Max-deild kvenna
Þór/KA – ÍBV ........................................... 4:0
Staðan:
Þór/KA 2 2 0 0 8:1 6
Breiðablik 2 2 0 0 5:0 6
Valur 2 2 0 0 5:1 6
Fylkir 2 2 0 0 4:1 6
Stjarnan 2 1 0 1 4:4 3
ÍBV 2 1 0 1 4:7 3
Þróttur R. 2 0 0 2 4:6 0
Selfoss 2 0 0 2 0:3 0
KR 2 0 0 2 1:6 0
FH 2 0 0 2 0:6 0
Lengjudeild kvenna
Völsungur – Keflavík ............................... 0:4
England
Everton – Liverpool ................................ 0:0
Gylfi Þór Sigurðsson lék síðasta hálftím-
ann með Everton.
Watford – Leicester ................................. 1:1
Brighton – Arsenal................................... 2:1
West Ham – Wolves ................................. 0:2
Bournemouth – Crystal Palace............... 0:2
Newcastle – Sheffield United ................. 3:0
Aston Villa – Chelsea ............................... 1:2
Staðan:
Liverpool 30 27 2 1 66:21 83
Manch.City 29 19 3 7 71:31 60
Leicester 30 16 6 8 59:29 54
Chelsea 30 15 6 9 53:40 51
Manch.Utd 30 12 10 8 45:31 46
Wolves 30 11 13 6 43:34 46
Sheffield Utd 30 11 11 8 30:28 44
Tottenham 30 11 9 10 48:41 42
Crystal Palace 30 11 9 10 28:32 42
Arsenal 30 9 13 8 41:41 40
Burnley 29 11 6 12 34:40 39
Everton 30 10 8 12 37:46 38
Newcastle 30 10 8 12 28:41 38
Southampton 30 11 4 15 38:52 37
Brighton 30 7 11 12 34:41 32
Watford 30 6 10 14 28:45 28
West Ham 30 7 6 17 35:52 27
Bournemouth 30 7 6 17 29:49 27
Aston Villa 30 7 5 18 35:58 26
Norwich 30 5 6 19 25:55 21
B-deild:
Millwall – Derby ...................................... 2:3
Jón Daði Böðvarsson lék síðustu 16 mín-
úturnar með Millwall.
Þýskaland
Düsseldorf – Augsburg........................... 1:1
Alfreð Finnbogason kom inn á hjá Augs-
burg á 79. mínútu.
Paderborn – Mönchengladbach ............ 1:3
Samúel Kári Friðjónsson kom inn á hjá
Paderborn á 87. mínútu.
Leverkusen – Köln .................................. 3:1
Sandra María Jessen lék allan leikinn
með Leverkusen.
Rússland
CSKA Moskva – Zenit Pétursborg........ 0:4
Arnór Sigurðsson lék fyrstu 65 mínút-
urnar með CSKA. Hörður Björgvin Magn-
ússon lék seinni hálfleikinn.
Grikkland
PAOK – OFI Krít ..................................... 3:1
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK.
Tyrkland
Yeni Malatyaspor – Göstepe Izmir........ 2:1
Viðar Örn Kjartansson kom inn á sem
varamaður á 56. mínútu og skoraði sigur-
mark Yeni Malatyaspor.
Þýskaland
8-liða úrslit, seinni leikur:
Alba Berlín – Göttingen ..................... 88:85
Martin Hermannsson skoraði 19 stig og
átti 7 stoðsendingar hjá Alba Berlin.
Alba áfram, 181:153 samanlagt.
Spánn
Úrslitakeppnin, B-riðill:
Valencia – Zaragoza ........................... 89:71
Tryggvi Snær Hlinason tók 2 fráköst
fyrir Zaragoza.
ENSKI BOLTINN
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Markalaust jafntefli Everton og
Liverpool mun seint rata í sögu-
bækurnar nema fyrir þær sakir að á
Goodison Park í Liverpool-borg í
gær voru engir áhorfendur. Vana-
lega eru leikir þessara erkifjenda
hressandi og leikmenn fastir fyrir
en í gær má segja að undirbúnings-
tímabilsbragur hafi verið á leik lið-
anna. Enda voru þau að spila sinn
fyrsta deildarleik frá því í byrjun
mars vegna heimsfaraldurs kór-
ónuveiru.
Liverpool er nú fimm stigum frá
því að tryggja sinn fyrsta Eng-
landsmeistaratitil í 30 ár, hefur 23
stiga forskot á Manchester City í 2.
sæti sem leikur gegn Burnley á
morgun og getur þar með minnkað
forskotið í 20 stig. Gylfi Þór Sig-
urðsson þurfti að hefja leik á tré-
verkinu en kom inn á þegar 60 mín-
útur voru á klukkunni.
Raunar voru Gylfi og félagar lík-
legri til stela stigunum undir lok
leiks en Alisson Becker, markvörð-
ur Liverpool, var svo sannarlega
betri en enginn og varði afar vel frá
Dominic Calvert-Lewin er 10 mín-
útur lifðu leiks. „Við eigum ekki að
taka honum [Alisson] sem gefnum.
Hann er algjörlega frábær. Svona
gera aðeins heimsklassa markverð-
ir. Að gera meira og minna ekki
neitt í 90 mínútur og svo er hann
mættur,“ var haft eftir Jürgen
Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool,
á BBC í gærkvöldi.
Dýrmætur sigur Chelsea
Tveir aðrir leikir voru á dagskrá
á Englandi í gær. Chelsea vann afar
sterkan útisigur á Aston Villa. Ko-
urtney Hause kom heimamönnum í
1:0 en gestirnir frá Lundúnum svör-
uðu með tveimur mörkum frá
Christian Pulisic og Olivier Giroud
á tveggja mínútna kafla í síðari hálf-
leik. Chelsea hefur 51 stig í 4. sæt-
inu og leiðir þar kapphlaupið um að
komast í Meistaradeild Evrópu.
Liðið hefur fimm stigum meira en
Manchester United og Wolves í 5.
og 6. sæti.
Newcastle vann öruggan sigur á
Sheffield United í fyrsta leik gær-
dagsins. Þeir svart- og hvítklæddu
léku manni fleiri frá 50. mínútu eftir
að varnarmaðurinn John Egan fékk
að líta sitt annað gula spjald og það
hafði sitt að segja. Newcastle-menn
gengu á lagið með mörkum frá All-
an Sant-Maximin á 55. mínútu, Matt
Ritchie á 69. mínútu og Joelinton á
78. mínútu. Newcastle hefur 38 stig
í 13. sæti en Sheffield United 44 stig
í 7. sæti.
Liverpool fimm
stigum frá titlinum
Alisson stóð vaktina þegar á reyndi
AFP
Traustir Þeir Alisson Becker og Virgil van Dijk hafa verið öflugir í vetur.
Viðar Örn Kjartansson reyndist
hetja Yeni Malatyaspor þegar liðið
fékk Göztepe í heimsókn í tyrk-
nesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
á laugardag. Leiknum lauk með
2:1-sigri Yeni Malatyaspor en Viðar
Örn, sem byrjaði á bekknum, kom
inn á sem varamaður í upphafi síð-
ari hálfleiks og skoraði sigurmark
leiksins á 78. mínútu. Hefur hann
nú skorað tvö mörk í tíu leikjum
með liðinu en hann er þar að láni
frá Rostov í Rússlandi. Viðar og fé-
lagar eru í 14. sæti, tveimur stigum
fyrir ofan fallsæti.
Selfyssingurinn
með sigurmark
Morgunblaðið/Eggert
Mark Viðar Örn Kjartansson skor-
aði sigurmark í Tyrklandi.
Martin Hermannsson og liðsfélagar
hans hjá Alba Berlin eru komnir í
undanúrslit um þýska meistaratit-
ilinn í körfubolta eftir 88:85-sigur á
Göttingen á heimavelli á laug-
ardag. Martin lék afar vel og var
stigahæstur í liði Alba með 19 stig
og gaf hann að auki sex stoðsend-
ingar. Íslenski landsliðsmaðurinn
lék ekki í fyrri leik liðanna vegna
meiðsla en Alba var með þægilegt
25 stiga forskot eftir hann. Martin
og félagar mæta Oldenburg í und-
anúrslitum og fer fyrri leikurinn
fram í kvöld klukkan 18:30.
Martin og Alba
í undanúrslit
Ljósmynd/Euroleague
Undanúrslit Martin Hermannsson
er kominn í undanúrslit.
Axel Bóasson, GK, og Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir, GR, eru Íslandsmeist-
arar í holukeppni í golfi en mótið fór
fram á Jaðarvelli á Akureyri um
helgina. Axel lagði Hákon Örn Magn-
ússon, GR, að velli í úrslitum á með-
an Ólafía Þórunn sigraði Evu Karen
Björnsdóttur, GR. Axel hafði betur
gegn Hákoni Erni, 1:0, í spennandi
viðureign en Axel sló atvinnukylfing-
inn Ólaf Björn Loftsson úr leik í und-
anúrlitum og Andra Þór Björnsson í
átta liða úrslitunum. Þetta var í ann-
að sinn sem Axel fagnar sigri á Ís-
landsmótinu í holukeppni.
Ólafía Þórunn vann 4:3-sigur
gegn Evu Karen í úrslitum en
Ólafía lagði atvinnukylfinginn Guð-
rúnu Brá Björgvinsdóttur að velli í
undanúrslitum og Sögu Trausta-
dóttur, sem átti titil að verja, í átta
liða úrslitum keppninnar. Þetta
var í þriðja sinn sem Ólafía verður
Íslandsmeistari í holukeppni.
Unnu meistararnir tveir allar
sínar viðureignir á mótinu, en þau
fóru í gegnum riðlakeppnina með
fullt hús stiga. Hafa bæði Ólafía og
Axel unnið tvö mót á tímabilinu. Ljósmynd/Golf.is
Meistarar Ólafía Þórunn og Axel Bóasson eru Íslandsmeistarar.
Ólafía og Axel
Íslandsmeistarar
Töpuðu ekki einvígi á Akureyri
Jón Dagur Þorsteinsson stal senunni í ótrúlegum 4:3-
sigri AGF á toppliði Midtjylland í dönsku úrvalsdeildinni
í fótbolta í gær. Jón Dagur gerði sér lítið fyrir og skor-
aði þrjú mörk og lagði upp sigurmarkið í uppbótartíma.
Hefur hann nú skorað átta mörk í deildinni á leiktíðinni,
sem er sú fyrsta hjá AGF. Mikael Anderson var ekki í
leikmannahópi Midtjylland sem er í toppsætinu með 69
stig. AGF er í þriðja sæti með 54 stig. Eggert Gunnþór
Jónsson skoraði fyrra mark SønderjyskE í 2:1 sigri liðs-
ins á Silkeborg. Eggert spilaði fyrstu 76 mínúturnar en
Ísak Óli Ólafsson var allan tímann á varamannabekkn-
um.
Í B-deildinni hafði Vejle betur gegn Hvidovre, 5:3. Kjartan Henry Finn-
bogason lék fyrstu 78 mínúturnar með Vejle og skoraði fjórða mark liðsins.
Vejle er í toppsætinu með 54 stig, níu stigum á undan Fredericia og í afar
góðri stöðu í baráttu um sæti í efstu deild á næsta ári. Kjartan hefur átt
góða leiktíð og skorað fimmtán mörk í 22 leikjum í deildinni.
Þrenna í Íslendingaslagnum
Jón Dagur
Þorsteinsson
Þór/KA er með fullt hús stiga eftir tvo leiki í Pepsi Max-
deild kvenna í fótbolta en liðið vann 4:0-stórsigur á ÍBV
á Akureyri á laugardag. Margrét Árnadóttir skoraði tvö
mörk fyrir Þór/KA og þær Arna Sig Ásgrímsdóttir og
Karen María Sigurgeirsdóttir skoruðu einnig, en öll
mörkin komu í fyrri hálfleik. Byrjar Þór/KA leiktíðina
afar vel, en liðið vann 4:1-sigur á Stjörnunni í fyrstu um-
ferð og er því í toppsætinu með markatöluna 8:1. ÍBV er
í sjötta sæti með þrjú stig.
Fær Þór/KA verðugt verkefni á miðvikudag er það
heimsækir Íslandsmeistara Vals á Hlíðarenda en Valur
er einnig með sex stig. Á sama tíma mætir ÍBV Stjörn-
unni á heimavelli, en Stjarnan er með þrjú stig eftir tvo leiki.
Harpa Jóhannsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Heiða Ragney Viðars-
dóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir, Margrét Árnadóttir og Hulda Ósk
Jónsdóttir fengu M fyrir frammistöðu sína hjá Þór/KA. Auður S. Scheving
og Fatma Kara fengu M hjá ÍBV.
Þór/KA skoraði aftur fjögur
Margrét
Árnadóttir