Morgunblaðið - 22.06.2020, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2020
Birkir Gunnarsson varði Íslands-
meistaratitil sinn í einliðaleik karla í
tennis með 6:4 og 6:0-sigri á Raj
Bonifacius á Víkingsvöllum í Fossvogi
í gær. Mættust þeir sömuleiðis í úr-
slitaleiknum á síðasta ári. Í kvenna-
flokki stóð Sofia Sóley Jónasdóttir
uppi sem sigurvegari eftir 6:2 og 6:4-
sigur á Heru Björk Brynjarsdóttur.
Sofia lagði ríkjandi Íslandsmeistarann
Önnu Soffíu Grönholm í undan-
úrslitum.
Jan Vertonghen, varnarmaður
enska knattspyrnufélagsins Totten-
ham, verður samningslaus í lok júní en
hann hefur ekki viljað skrifa undir nýj-
an samning við úrvalsdeildarfélagið.
Var hann orðaður við ítalska félagið
Roma um helgina. Þá vill félagið einnig
kaupa Chris Smalling frá Manchester
United en hann hefur leikið sem láns-
maður með liðinu á leiktíðinni.
Joe Hart, fyrrverandi landsliðs-
markvörður Englands í knattspyrnu og
leikmaður Burnley á Englandi, mun yf-
irgefa félagið í lok mánaðarins þegar
samningur hans rennur út. Hart hefur
þurft að verma varamannabekk Burn-
ley á leiktíðinni, en hann hefur leikið
75 landsleiki fyrir England.
Edinson Cavani og Thomas Meu-
nier, leikmenn franska knattspyrnu-
félagsins PSG, eru á förum frá félag-
inu en það er Goal.com sem greinir frá
þessu. Báðir leikmenn verða samn-
ingslausir í lok júní en PSG hefur reynt
að fá þá til þess að skrifa undir
skammtímasamninga í Frakklandi og
klára tímabilið með liðinu í Meist-
aradeildinni án árangurs.
Enska knattspyrnufélagið New-
castle hefur náð samkomulagi við sex
leikmenn um að klára yfirstandandi
tímabil með liðinu, en þeir áttu að
renna út á samning um mánaðamótin.
Andy Carroll, Matty Longstaff, Javier
Manquillo, Danny Rose, Nabil Benta-
leb og Valentino Lazaro munu allir
klára tímabilið með liðinu, en Steve
Bruce, knattspyrnustjóri Newcastle,
staðfesti tíðindin á blaðamannafundi.
Landsliðskonan Sandra María Jes-
sen og stöllur í Bayer Leverkusen
unnu mikilvægan 3:1 sigur á Köln í fall-
baráttuslag í efstu deild þýsku knatt-
spyrnunnar í gær. Liðin voru jöfn að
stigum fyrir leikinn. Með sigrinum fór
Leverkusen í 17 stig og er nú þremur
stigum frá fallsæti en þar situr Köln
með 14 stig og þá hefur Duisburg
einnig 14 stig.
Íslendingar voru áberandi í norska
fótboltanum í gær. Matthías Vil-
hjálmsson tryggði Vålerenga eitt stig
með marki úr víti á 72. mínútu í 2:2-
jafntefli gegn Stabæk. Hólmbert Aron
Friðjónsson skoraði seinna mark Aale-
sund sem fékk risa 7:2-
skell gegn Kristiansund
á útivelli. Hólmbert var í
byrjunarliðinu
en fór af velli á
62. mínútu.
Daníel Leó Grét-
arsson lék allan
leikinn með Aale-
sund. Þá lagði
Viðar Ari
Jónsson
upp tvö
mörk
fyrir
Sandefjord í 2:2-jafntefli á
heimavelli gegn Start. Jó-
hannes Harðarson þjálfar
Start.
Eitt
ogannað
FÓTBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Stjarnan, Breiðablik og FH eru einu
liðin sem eru með fullt hús stiga eftir
tvær umferðir í Pepsi Max-deild
karla í fótbolta. FH vann sann-
gjarnan heimasigur á ÍA, 2:1. Eftir
markalausan fyrri hálfleik skoruðu
Jónatan Ingi Jónsson og Steven
Lennon snemma í seinni hálfleik áð-
ur en Tryggvi Hrafn Haraldsson
klóraði í bakkann fyrir ÍA á 84. mín-
útu með marki úr víti. Eru Skaga-
menn með þrjú stig eftir sigur á KA í
fyrstu umferð.
„FH-ingar voru mun sterkari að-
ilinn í leiknum frá fyrstu mínútu og
fengu fjölda tækifæri til þess að
skora. Þeir fóru illa með þrjú dauða-
færi í fyrri hálfleik og þau voru fleiri í
seinni hálfleik. Eftir að Jónatan Ingi
braut ísinn fyrir þá með frábæru
marki var eins og miklum þunga væri
af þeim létt og allur leikur liðsins
varð einhvern veginn léttari,“ skrif-
aði Bjarni Helgason í umfjöllun sína
um leikinn á mbl.is.
Hörður Ingi Gunnarsson lék í
fyrsta skipti gegn ÍA í gær, en hann
lék með liðinu tímabilin 2018 og 2019
áður en hann skipti yfir í FH.
Það tók Jónatan Inga Jónsson
aðeins tvær umferðir að jafna marka-
skorun sína í fyrra er hann skoraði
aðeins eitt mark í 21 leik.
Fjölbreytt vopnabúr Blika
Breiðablik vann torsóttan 1:0-
sigur á Fylki í Árbænum. Varn-
arjaxlinn Damir Muminovic skoraði
sigurmarkið með skalla eftir horn-
spyrnu á 80. mínútu. Er Fylkir án
stiga eftir tvær umferðir, en liðið tap-
aði fyrir Stjörnunni í fyrstu umferð.
„Breiðablik sýndi á Würth-
vellinum í kvöld að vopnabúr þeirra
er fjölbreytt. Sóknarmenn liðsins
buðu ekki upp á mikla flugeldasýn-
ingnu og þurfti til varnarjaxlinn
Damir Muminovic til þess að sigla
stigunum þremur í Kópavoginn,“
skrifaði Pétur Hreinsson um leikinn
á mbl.is.
Englendingurinn í liði Fylkis
Sam Hewson spilaði sinn 150. leik í
efstu deild hér á landi. Hann kom
hingað fyrst árið 2011 og lék með
Fram. Þá hefur hann einnig spilað
með FH og Grindavík.
Arnór Borg Guðjohnsen lék
sinn fyrsta leik í efstu deild í gær, en
hann kom inn á sem varamaður í
seinni hálfleik. Arnór kom til Fylkis
frá Swansea á dögunum.
Róbert Orri Þorkelsson lék sinn
fyrsta leik í efstu deild er hann kom
inn á í seinni hálfleik í liði Breiða-
bliks. Hann kom til félagsins frá Aft-
ureldingu fyrir sumarið.
Stjörnusýning í Garðabæ
Stjarnan sýndi nýliðum Fjölnis
enga miskunn í Grafarvogi og vann
afar sannfærandi 4:1-sigur. Var stað-
an 1:1 í hálfleik en Stjörnumenn
spiluðu glimrandi vel í seinni hálfleik
og átti Fjölnir engin svör.
„Mörk Stjörnumanna voru falleg
og komu eftir skemmtileg samspil.
Er greinilegt að Ólafur Jóhannesson
og Rúnar Páll Sigmundsson eru að
vinna vel saman. Það er jákvætt
hversu margir leikmenn Stjörnunnar
eru að spila vel og mörkin eru að
dreifast á milli manna. Hinum megin
var Ingibergur Kort Sigurðsson ein-
manna í framlínunni og ógnaði Fjöln-
ir lítið,“ skrifaði undirritaður um leik-
inn á mbl.is.
Fjölnismaðurinn Jóhann Árni
Gunnarsson skoraði sitt fyrsta mark
í efstu deild í fjórða leiknum.
Örvar Eggertsson kom inn á
sem varamaður hjá Fjölni í seinni
hálfleik og spilaði sinn fyrsta leik
með liðinu. Hann kom til Fjölnis frá
Víkingi Reykjavík á dögunum.
Emil Atlason skoraði sitt fyrsta
mark fyrir Stjörnuna en hann kom
inn á sem varamaður í seinni hálfleik.
Halldór Orri Björnsson skoraði
sitt 60. mark í efstu deild í gær og
deilir hann nú 29.-31. sæti á listanum
yfir markahæstu leikmenn deild-
arinnar frá upphafi.
Meistararnir fengu skell
HK gerði sér lítið fyrir og vann 3:0-
útisigur á Íslandsmeisturum KR.
Eftir sterkan sigur á Val í fyrstu um-
ferð eru Íslandsmeistararnir komnir
aftur niður á jörðina eftir óvæntan
skell á heimavelli. Hefur HK nú unn-
ið KR með þriggja marka mun í
tveimur leikjum í röð en HK vann
4:1-sigur þegar liðin mættust í Kórn-
um í ágúst á síðasta ári.
„HK-ingum virðist henta mjög vel
að spila gegn KR-ingum. Í ágústmán-
uði í fyrra vann HK 4:1 sigur á KR í
Kórnum og leikurinn í kvöld var
keimlíkur honum á margan hátt.
Mörkin komu að vísu mun seinna en
HK-ingar vörðust vel á Meist-
aravöllum, gáfu ekki mörg færi á sér
þrátt fyrir að pressa KR væri þung á
köflum, og þeir nýttu síðan vel hraðar
sóknir sínar,“ skrifaði Víðir Sigurðs-
son í umfjöllun sinni um leikinn á
mbl.is. Þá kom hann inn á að ákveðið
spennufall hafi gert vart við sig hjá
KR-ingum eftir sigurinn í fyrstu um-
ferð.
Hinn 17 ára gamli Valgeir Val-
geirsson skoraði fyrsta mark HK og
hefur hann skorað í báðum leikjum
liðsins til þessa.
Markvörðurinn Sigurður
Hrannar Björnsson var í fyrsta skipti
í byrjunarliði í efstu deild og hélt
hreinu hjá HK. Lék hann í staðinn
fyrir Arnar Frey Ólafsson sem
meiddist í 1. umferðinni.
Jón Arnar Barðdal skoraði sitt
fyrsta mark í deildinni síðan hann
skoraði fyrir Stjörnuna gegn Fylki
árið 2015.
Annað þriggja marka tap
Grótta lék sinn fyrsta heimaleik í
efstu deild gegn Val en þurfti að
sætta sig við annað 0:3-tapið í sumar.
Valsmenn voru sterkari frá fyrstu
mínútu og hefði sigurinn getað orðið
enn stærri. Valsmenn hristu af sér
tapið gegn KR og léku mjög vel, gegn
Gróttuliði sem skapaði sér varla færi.
„Valsmenn spiluðu vel og gáfu lítil
sem engin færi á sér. Liðið spilaði
flottan fótbolta og hefði vel getað
skorað mun fleiri mörk. Það er erfitt
að bera saman leikinn í dag og leikinn
gegn KR þar sem leikirnir voru gjör-
ólíkir og styrkleiki andstæðinganna
sömuleiðis. Valsmenn fá hins vegar
fullt af stigum með spilemennsku eins
og í dag,“ skrifaði undirritaður í um-
fjöllun um leikinn á mbl.is.
Gróttumennirnir Patrik Orri
Pétursson, Ágúst Freyr Hallsson og
Dagur Guðjónsson léku allir sinn
fyrsta leik í efstu deild. Karl Frið-
leifur Gunnarsson lék sinn fyrsta leik
með Gróttu en hann er lánsmaður frá
Breiðabliki.
Kaj Leo í Bartalsstovu skoraði
sitt fyrsta mark fyrir Val, en hann lék
sextán deildarleiki í fyrra án þess að
komast á blað. Færeyingurinn hefur
skorað fimm mörk í deildinni, fjögur
þeirra með ÍBV.
Veðrið betra en leikurinn
KA og Víkingur Reykjavík gerðu
markalaust jafntefli á Akureyri.
„Veðurguðirnir buðu upp á sól og 20
stiga hita fyrir leikmenn og áhorf-
endur. Leikurinn var þó alls ekki jafn
góður og veðrið en báðum liðum gekk
afar illa að skapa sér opin færi í leikn-
um,“ skrifaði Baldvin Kári Magn-
ússon um leikinn á mbl.is. KA er með
eitt stig eftir tvo leiki og Víkingur,
sem ætlaði sér stóra hluti í sumar, er
með tvö.
Mikkel Qvist og Guðmundur
Steinn Hafsteinsson spiluðu sinn
fyrsta leik með KA.
Helgi Guðjónsson var í fyrsta
skipti í byrjunarliði í efstu deild en
hann kom til Víkings frá Fram fyrir
sumarið.
Liðin úr Kraganum efst
Stjarnan, Breiðablik og FH með fullt hús stiga HK fór illa með KR-inga á
útivelli Fyrsti sigur Valsmanna Nýliðarnir fengu skelli á heimavelli
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Fagn Liðsmenn Stjörnunnar fagna einu marka sinna í Grafarvoginum.
FH – ÍA 2:1
1:0 Jónatan Ingi Jónsson 51.
2:0 Steven Lennon 58.
2:1 Tryggvi Hrafn Haraldsson (víti) 84.
MM
Jónatan Ingi Jónsson (FH)
M
Baldur Sigurðsson (FH)
Gunnar Nielsen (FH)
Guðmann Þórisson (FH)
Daníel Hafsteinsson (FH)
Steven Lennon (FH)
Jón Gísli Eyland (ÍA)
Steinar Þorsteinsson (ÍA)
Viktor Jónsson (ÍA)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 7.
Áhorfendur: 1.547.
KA – VÍKINGUR R. 0:0
M
Aron Dagur Birnuson (KA)
Mikkel Qvist (KA)
Brynjar Ingi Bjarnason (KA)
Bjarni Aðalsteinsson (KA)
Kristall Máni Ingason (Víkingi)
Ingvar Jónsson (Víkingi)
Davíð Örn Atlason (Víkingi)
Halldór Smári Sigurðsson (Víkingi)
Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinsson – 8.
Áhorfendur: 898.
FYLKIR – BREIÐABLIK 0:1
0:1 Damir Muminovic 80.
M
Damir Muminovic (Breiðabliki)
Andri Rafn Yeoman (Breiðabliki)
Brynjólfur Willumsson (Breiðabliki)
Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki)
Kwame Quee (Breiðabliki)
Aron Snær Friðriksson (Fylki)
Ásgeir Eyþórsson (Fylki)
Orri Sveinn Stefánsson (Fylki)
Arnór Gauti Ragnarsson (Fylki)
Valdimar Þór Ingimundarson (Fylki)
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson – 7.
Áhorfendur: 1.440.
FJÖLNIR – STJARNAN 1:4
0:1 Guðjón Baldvinsson 4.
1:1 Jóhann Árni Gunnarsson (víti) 45.
1:2 Halldór Orri Björnsson 54.
1:3 Þorsteinn Már Ragnarsson 63.
1:4 Emil Atlason 79.
M
Jóhann Árni Gunnarsson (Fjölni)
Ingibergur Kort Sigurðsson (Fjölni)
Guðjón Baldvinsson (Stjörnunni)
Halldór Orri Björnsson (Stjörnunni)
Hilmar Árni Halldórsson (Stjörnunni)
Þorsteinn Már Ragnarsson (Stjörn.)
Heiðar Ægisson (Stjörnunni)
Eyjólfur Héðinsson (Stjörnunni)
Alex Þór Hauksson (Stjörnunni)
Dómari: Pétur Guðmundsson – 5.
Áhorfendur: 1.113.
KR – HK 0:3
0:1 Valgeir Valgeirsson 44.
0:2 Birkir Valur Jónsson 57.
0:3 Jón Arnar Barðdal 88.
MM
Valgeir Valgeirsson (HK)
M
Atli Sigurjónsson (KR)
Sigurður Hrannar Björnsson (HK)
Alexander Freyr Sindrason (HK)
Leifur Andri Leifsson (HK)
Hörður Árnason (HK)
Jón Arnar Barðdal (HK)
Birnir Snær Ingason (HK)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 7.
Áhorfendur: 899.
GRÓTTA – VALUR 0:3
0:1 Haukur Páll Sigurðsson 17.
0:2 Kaj Leo í Bartalsstovu 25.
0:3 Sigurður Egill Lárusson 62.
MM
Kaj Leo í Bartalsstovu (Val)
M
Axel Sigurðarson (Gróttu)
Kristófer Melsted (Gróttu)
Haukur Páll Sigurðsson (Val)
Sebastian Hedlund (Val)
Sigurður Egill Lárusson (Val)
Rasmus Christiansen (Val)
Aron Bjarnason (Val)
Dómari: Guðmundur Ársæll Guð-
mundsson – 8.
Áhorfendur: Á að giska 1.000.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti.