Morgunblaðið - 22.06.2020, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2020
PON er umboðsaðili
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður
Sími 580 0110 | pon.is
Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna!
GÆÐI OG ÞJÓNUSTA
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Ný íslensk gamanmynd, Mentor,
verður frumsýnd á miðvikudaginn,
24. júní. Kvikmyndin er eftir Sig-
urð Anton Friðþjófsson og fjallar
um unglingsstelpuna Betu sem fær
þá hugmynd að taka þátt í uppi-
standskeppni. Hún biður grínist-
ann Húgó, sem vann þessa sömu
keppni fyrir tíu árum, um aðstoð.
„Hún vill í rauninni bara smá leið-
sögn en hann tekur þessu aðeins
of alvarlega,“ segir leikstjórinn
Sigurður Anton kíminn. Í kjölfarið
veikist Húgó af fortíðarþrá, á með-
an Beta reynir að sigrast á óör-
yggi sínu.
Sögusvið myndarinnar er
íslenska uppistandssenan sem er
Sigurði kær. Hann hefur bæði ver-
ið áhorfandi, frá því hann man eft-
ir sér, og sjálfur tekið þátt í þess-
ari senu á Íslandi í sex ár og þekki
marga innan hennar. „Mér fannst
það áhugavert umhverfi fyrir
myndina,“ segir leikstjórinn.
Myndin er þó
ekki byggð á
reynslu Sigurðar
og vina hans úr
uppistandinu að
ráði. „Þetta er
allt uppspuni,
það eru kannski
einhver lítil smá-
atriði sem
byggja á raun-
veruleikanum,
en ekkert að einhverju viti eða
dýpt“.
„Gekk bara eins og í sögu“
Sigurður hefur áður staðið fyrir
gamanmyndunum Webcam (2015)
og Snjór og Salóme (2017). Fyrri
kvikmyndirnar eru, að sögn Sig-
urðar, svokallaðar gamandrama-
myndir en Mentor er hreinræktuð
gamanmynd. „Það er alveg einhver
dýpt, en hún er fyrst og fremst
grínmynd, ekkert of dramatísk.“
Með hlutverk hinnar ungu Betu
fer Sonja Valdín og Þórhallur Þór-
hallsson leikur uppistandarann
Húgó. Anna Hafþórsdóttir, sem
hefur verið í aðalhlutverki í síðustu
tveimur myndum Sigurðar Antons,
skipar eitt af helstu aukahlutverk-
unum. Með önnur hlutverk fara
Jónína Þórdís Karlsdóttir, Júlí
Heiðar Halldórsson, Gunnar
Helgason, Ísgerður Elfa Gunn-
arsdóttir og Álfrún Helga Örnólfs-
dóttir.
Um upptöku sá Aron Bragi
Baldursson sem hefur tekið upp
allar myndir Sigurðar Antons.
Framleiðandi myndarinnar heitir
Jana Arnórsdóttir og er þetta
fyrsta myndin sem þau Sigurður
vinna saman.
Sigurður segir framleiðsluferlið
hafa gengið vel: „Þetta gekk bara
eins og í sögu“. Hann segir það þó
erfitt að framleiða mynd af þessari
stærð án mikils fjármagns, en
bætir við að það sé vel þess virði.
„Það er bara partur af ferlinu“.
Vinna er hafin að næstu kvik-
mynd Sigurðar sem segir áhorf-
endur ekki þurfa að bíða mjög
lengi eftir henni.
Uppistand Þórhallur Þórhallsson og Sonja Valdín í hlutverkum sínum í hinni nýju íslensku grínmynd Mentor.
Fyrst og fremst grín
Íslenska gamanmyndin Mentor frumsýnd á miðvikudag
Leikstjóra þótti uppistandssenan áhugavert sögusvið
Sigurður Anton
Friðþjófsson
Kammerhópurinn Schola cantor-
um flytur áhrifamikil kórverk í
Hallgrímskirkju að aðfarakvöldi
Jónsmessunætur, 23. júní, kl. 21.
Munu þar hljóma verk sem leiða
gesti í hljóðheim slökunar og nú-
vitundar. Stjórnandi kórsins er
Hörður Áskelsson.
Schola cantorum hefur um ára-
bil sérhæft sig í söng án undir-
leiks og unnið til fjölda við-
urkenninga og þeirra á meðal
Íslensku tónlistarverðlaunanna
árið 2016 auk þess að gefa út
fjölda hljómplatna.
Kirkjuturn Hallgrímskirkju
verður opinn fyrir og eftir tón-
leikana, frá kl. 18 til 23 og geta
áhorfendur nýtt sér tilboð og not-
ið útsýnisins yfir alla borgina.
Miðasala fer fram við inngang-
inn frá kl. 20 á tónleikadegi en
einnig er hægt að kaupa miða fyr-
ir fram í verslun Hallgrímskirkju.
Morgunblaðið/Ófeigur
Verðlaunakór Schola cantorum hefur vakið athygli og lof víða.
Leiða gesti í hljóðheim
slökunar og núvitunar
Kvikmyndaframleiðandinn Sigur-
jón Sighvatsson hefur tryggt sér
kvikmyndaréttinn á glæpasögunni
Tíbrá eftir Ármann Jakobsson sem
út kom hjá Bjarti á dögunum. Tíbrá
er þriðja glæpasaga Ármanns og
hefur hlotið góðar viðtökur og setið
á metsölulistanum í Eymundsson
frá fyrsta degi, segir í tilkynningu.
Sigurjón hefur framleitt yfir 40
kvikmyndir og þeirra á meðal Wild
at Heart sem hlaut Gullpálmann í
Cannes og sjónvarpsþætti, þeirra á
meðal Twin Peaks og Beverly Hills
90210.
Ármann er prófessor í íslenskum
miðaldabókmenntum við Háskóla
Íslands og hefur áður sent frá sér
glæpasögurnar Urðarkött og Út-
lagamorðin, auk skáldsagna, bóka
fyrir börn og ungmenni og fræðirit.
Í Tíbrá segir af því er fjórir ungir
menn fara saman á veiðar, misjafn-
lega vanir skotvopnum og nótt eina
sér öldruð kona mann bogra yfir
stóru röri í nágrenni íbúðar hennar
í úthverfi Reykjavíkur. Reynist í
rörinu vera lík vafið inn í teppi og
rannsóknarteymið úr fyrri bókum
Ármanns hefur morðrannsókn.
Sigurjón tryggir sér
réttinn að Tíbrá
Morgunblaðið/Eggert
Framleiðir Sigurjón Sighvatsson hefur framleitt fjölda kvikmynda og þátta.
Í nóvember árið 1888 skrifuðu Vin-
cent van Gogh og Paul Gaugin sam-
an fjögurra síðna bréf sem nýverið
var keypt handa Van Gogh-safninu
í Amsterdam fyrir 210.600 evrur,
ríflega 32 milljónir íslenskra króna.
Bréfið er einstök heimild og verður
á sýningu safnsins: Þinn elskandi
Vincent, bestu bréf Vincent van
Gogh, sem opnuð verður í október.
Bréfið er skrifað listmálaranum
Émile Bernard og þar greina þeir
frá listsköpun sinni og sambúð í
Gula húsinu, kaffihúsi í Arle sem
van Gogh gerði ódauðlegt í mál-
verki. Sambúðinni var ætla að vera
fyrstu skrefin í áttina að draumi
van Gogh um listamannanýlendu.
Draumurinn rættist aldrei en van
Gogh skar af sér af vinstra eyrað í
kjölfar heiftarlegs rifrildis á milli
listamannanna tveggja nokkru síð-
ar og fyrirfór sér átján mánuðum
eftir það.
Bréf van Gogh og
Gaugin á 32 milljónir
AFP
Milljónabréf Bréfið sem listamennirnir
van Gogh og Gauguin skrifuðu árið 1888.