Morgunblaðið - 22.06.2020, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Hreyfimyndahópurinn Stilla vinnur
nú hörðum höndum að stillustutt-
myndinni Eldhús eftir máli, eftir
sögu Svövu Jakobsdóttur. Hópinn
skipa Atli Arnarsson og Sólrún Ylfa
Ingimarsdóttir. Þriðji liðsmaðurinn
í Stillu-hópnum er Bergþóra Krist-
ínardóttir sem smíðar leikmyndina.
Þau eru hluti af Skapandi sumar-
störfum í Kópavogi.
Áhugi Sólrúnar á stillumyndum
(e. stop motion) hófst fyrir nokkrum
árum, í verkfalli menntaskólakenn-
ara. „Ég gerði stillumynd mér til
dægrastyttingar. Þetta var mjög
ófagmannleg mynd en eitthvað sem
mig langaði bara allt í einu að
prófa,“ segir Sólrún. Myndina, sem
var hálf mínúta að lengd, segir Sól-
rún hafa verið upphafið að stillu-
myndaævintýrinu.
Sólrún var svo hluti af tríói sem
nefndist Kollektív í Skapandi sum-
arstörfum árið 2017. Þá varð Marg-
lita marglyttan til, sem var fyrsta
hreyfimyndin þeirra Atla, sem var
þá farinn að hjálpa henni við stillu-
myndagerðina.
Alltaf að bæta sig
„Mig langaði svo að skipta mér af
að ég tróð mér inn í verkefnið,“ seg-
ir Atli og hlær. „Hann er svo klár í
tæknilegu hliðinni svo það var mjög
gott að fá hann með mér í lið,“ bæt-
ir Sólrún við. „Myndin varð miklu
gæðalegri eftir að hann fór að vinna
með mér og við unnum bara svo vel
saman. Eftir það vorum við komin á
kaf í stillumyndagerð og vorum með
fullt af hugmyndum sem okkur
langaði að prófa. Þannig við urðum
bara að gera annað verkefni en við
erum enn að læra og æfa okkur í
þessu.“
Atli tekur undir: „Mann langar
alltaf að bæta sig og gera betur. Við
hverja mynd höfum við tekið mikl-
um framförum.“
Vinnan að Eldhús eftir máli hófst
síðasta sumar. Sólrún segir inn-
blásturinn vera kominn frá systur
hennar. „Hún skrifaði BA-
ritgerðina sína í bókmenntafræði
um Svövu Jakobsdóttur og vakti
áhuga minn á henni. Ég hef alltaf
verið hrifin af súrrealískum sögum
og þær passa svo vel fyrir stillu-
myndir, því þar er hægt að gera
hvað sem er. “
„Þetta eru ótrúlega myndrænar
sögur sem hún skrifar, súrrealískir
kaflar inni í raunsæjum heimi, sem
er mjög gaman að búa til,“ segir
Atli. „Við reynum að vera eins trú
sögunni og við getum þótt auðvitað
þurfi að útfæra viss atriði þegar þau
eru sett í mynd.“ Sólrún lýsir því að
það sé gaman að taka súrrealískum
textanum svolítið bókstaflega og
túlka það á skjánum.
Svava Jakobsdóttir hefði orðið ní-
ræð í október næstkomandi og Sól-
rún nefnir að þeim þyki gaman að
geta haldið upp á það með stilli-
myndinni. „Það er spennandi fyrir
okkur að vera að gefa út þessa
mynd um svipað leyti.“
Krefst mikils undirbúnings
Sólrún segir sögu Svövu fjalla um
hlutverk kynjanna. „Aðalpersónan,
Ingólfur, fær þá góðu hugmynd að
sníða hið fullkomna eldhús fyrir
eiginkonu sína, allt út frá lögun
hennar, hæð og breidd.“ Það séu
hins vegar skiptar skoðanir um
þetta uppátæki Ingólfs, um það
hvort konan þurfi á þessu sérsniðna
eldhúsi að halda. Hún segir margt
af því sem kemur við sögu hjá
Svövu um samskipti kynjanna sé
keimlíkt því sem gerist í dag þótt
sagan sé orðin yfir fimmtíu ára.
Það er tímafrekt að gera stilli-
mynd og það krefst mikils undir-
búnings. „Þegar við erum í tökum
höfum við verið að ná einni sekúndu
á dag upp í kannski fimmtán,“ segir
Atli. Myndin verður um tíu mínútur
að lengd. Hann áætlar að tökuferlið
sé þó álíka langt og á tveimur
stórum sjónvarpsþáttaröðum.
„Við höfum lært það að þessari
mynd hvað það er ótrúlega tíma-
frekt að búa sviðsmyndina til. Þetta
er mjög nákvæm handavinna,“ held-
ur Atli áfram. Hann segir að margir
hafi lagt hönd á plóg. „Við erum bú-
in að sanka að okkur góðum hóp af
listafólki. Við erum til dæmis með
klæðskera og húsgagnasmið.“
Stillumyndin verður talsett og
munu Björn Thors og Dominique
Gyða Sigrúnardóttir fara með aðal-
hlutverkin. Með aukahlutverk fer
meðal annars Arnar Jónsson og
Bogi Ágústsson talar fyrir leir-
útgáfu af sjálfum sér. Atli skýtur
því að að Steindi Jr. (Steinþór Hró-
ar Steinþórsson) sjái svo um geltið í
hljóðmyndinni.
Stillustuttmynd Atli Arnarsson og Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir skipa hreyfimyndahópinn Stillu, ásamt Bergþóru
Kristínardóttur. Þau vinna að stuttmynd eftir smásögu Svövu Jakobsdóttur í sumar.
Tímafrekt „Þetta er mjög nákvæm handavinna,“ segir Atli.
Nákvæmni Hópurinn reynir að vera eins trúr sögunni og hægt er.
Hlutverk kynjanna í
súrrealískri hreyfimynd
Framleiða stillustuttmynd eftir sögu Svövu Jakobsdóttur