Morgunblaðið - 22.06.2020, Page 32
Verk Kristjáns Ingimundarsonar, ROOM 4.1 LIVE , verð-
ur flutt í Borgarleikhúsinu á komandi leikári en í því
segir af Vincent nokkrum sem hefur fengið nóg af
áreiti hversdagsins og lætur leggja sig inn á sjúkrahús í
von um langþráðan frið. Þar er þó lítinn frið að finna og
í sýningu Borgarleikhússins er áhorfendum boðið á
tökustað þar sem verið er að taka upp þætti um Vin-
cent og upptökunum varpað á stóra skjái. Þar má sjá
hvernig brögðum og brellum er beitt þegar sviðsmynd-
inni, þ.e. sjúkrastofunni, er snúið til að framkalla frum-
legar hugmyndir leikstjórans. Áhorfendur
verða á leiksviðinu með leikurunum og
dragast hægt og rólega inn í atburða-
rásina.
ROOM 4.1 LIVE byggir á þáttaröð-
inni ROOM 4.1 þar sem Kristján
Ingimarsson Company hefur gefið
sviðslistum vettvang á netinu.
Verkið verður frumsýnt 17.
október.
Áhorfendur með leikurum á sviði
og dragast inn í atburðarásina
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Útfararþjónusta Borgarfjarðar og
Stranda varð til fyrir skömmu þegar
eigendur Stranda útfararþjónustu á
Hólmavík, tónlistarmaðurinn Viðar
Guðmundsson, bóndi í Miðhúsum í
Kollafirði, og Ingibjörg Sigurðar-
dóttir á Hólmavík, keyptu Útfarar-
þjónustu Borgarfjarðar. Starfs-
stöðvarnar eru nú tvær, í
Borgarnesi og á Hólmavík, en fyrir-
tækið sinnir kalli hvaðan sem það
kemur, að sögn Viðars.
Fyrir um 13 árum flutti Viðar með
fjölskyldu sinni úr Borgarfirði í
Kollafjörð, fyrst og fremst með bú-
störf í huga. Hann hélt áfram að
sinna tónlistinni og ekki leið á löngu
þar til þau Ingibjörg byrjuðu að
hjálpa fólki á Ströndum í sambandi
við útfarir. Í kjölfarið stofnuðu þau
Strandir útfararþjónustu fyrir fjór-
um árum til að sinna eftirspurn.
„Hér var engin slík þjónusta en
þörfin fyrir hendi og tilgangurinn
var bara að þjónusta íbúa á Strönd-
um,“ segir Viðar. „Þetta vatt upp á
sig og varð í raun meiri þjónusta en
við gerðum ráð fyrir,“ heldur hann
áfram. „Þegar María Jóna Einars-
dóttir hringdi og bauð okkur að
kaupa Útfararþjónustu Borgar-
fjarðar ákváðum við að slá til enda
sáum við fyrir rekstrarvænni ein-
ingu með kaupunum. Auk þess rann
mér blóðið til skyldunnar þar sem ég
er úr Borgarfirði, þekki marga á
svæðinu og gott er að geta orðið þar
að liði á þennan hátt.“
Stjórnar fjórum kórum
Viðar lærði píanó- og orgelleik á
sínum tíma, hefur starfað töluvert í
tónlist og stjórnar meðal annars
þremur kórum í Borgarfirði og ein-
um á Hólmavík um þessar mundir.
Hann kynntist útfararþjónustu
vegna tónlistarstarfsins og vissi því
að hverju hann gekk. „Ég hef spilað
við útfarir í tuttugu ár og oft að-
stoðað útfararstjóra við eitt og ann-
að,“ bendir hann á.
Viðar segir að í raun séu fjarlægð-
irnar ekki miklar þegar á reyni og
það komist upp í vana að keyra í
Borgarfjörðinn, en vegna kóranna
fer hann þangað tvisvar í viku.
„Aksturinn er ekkert mál í góðu
veðri og góðri færð,“ segir hann.
„Við sjáum tveir um tvo kórana og
þess vegna þarf ég ekki alltaf að
mæta, en annars hefur veður sjaldan
sett strik í reikninginn.“
Borgfirðingurinn er frá Kaðal-
stöðum í Borgarfirði. Hjónin Viðar
og Barbara Ósk Guðbjartsdóttir,
sem vinnur sem þroskaþjálfi á
Hólmavík, ákváðu að færa sig um
set og 2007 keyptu þau Miðhús, þar
sem þau eru með um 500 kindur og
nokkra nautgripi.
Bústörfin taka sinn tíma en Viðar
segir að fjölskyldan taki fullan þátt í
þeim og auk þess sé gott fólk til taks
þegar á þarf að halda í útfararþjón-
ustunni. „Við eigum fjögur börn á
aldrinum tíu til átján ára og þau
ganga í öll verk auk þess sem for-
eldrar mínir búa líka hérna og eru
alltaf tilbúnir að aðstoða okkur,“
segir hann. „Það eru sveiflur í útför-
um en ekkert fyrirtæki á þessu sviði
er á milli Borgarness og Hólmavíkur
og því fannst okkur rétt að grípa
gæsina þegar hún gafst, stækka við
okkur með hagræðingu samfara
aukinni þjónustu í huga,“ áréttar
hann.
Útfararstjórar Ingibjörg Sigurðardóttir og Viðar Guðmundsson eiga Útfararþjónustu Borgarfjarðar og Stranda.
Fjarlægð vefst ekki fyrir
Útfararþjónusta Borgarfjarðar og Stranda á stóru svæði
SÆKTU APPIÐ
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store og Google Play
Sæktu appið frítt
á AppStore
eða Google Play
Hreyfils
appið
Pantaðu
leigubíl
á einfaldan
og þægilegan
hátt
Með Hreyfils appinu er fljótlegt
og einfalt að panta leigubíl.
Þú pantar bíl, færð SMS skilaboð
þegar bíllinn er mættur á staðinn.
Þú getur fylgst með hvar bíllinn er
staddur hverju sinni.
Ef þú ferðast á vegum fyrirtækis
getur þú valið viðskiptareikning
og opnað aðgang.
Hreyfils-appið er ókeypis.
MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 174. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Stjarnan, Breiðablik og FH eru með fullt hús stiga í
þremur efstu sætum Pepsi Max-deildarinnar í fótbolta
eftir sigra í gær. Stjarnan hafði betur gegn Fjölni á úti-
velli, 4:1, Breiðablik lagði Fylki af velli á útivelli, 1:0 og
FH vann 2:1-heimasigur á ÍA. HK og Valur unnu sína
fyrstu sigra á laugardag. Valur vann nýliða Gróttu
örugglega, 3:0 og HK kom á óvart og skellti Íslands-
meisturum KR á útivelli, 3:0. Þá skildu Víkingur Reykja-
vík og KA jöfn, 0:0 á Akureyri. Fylkir og Grótta eru einu
liðin sem eru án stiga eftir tvo leiki. »27
Nágrannarnir með fullt hús stiga
í þremur efstu sætunum
ÍÞRÓTTIR MENNING