Morgunblaðið - 04.07.2020, Blaðsíða 4
Ljósmynd/Ómar
Strokkur Ferðamenn eru aftur farnir að sjást á helstu ferðamannastöðum. Þeir koma með hópferðabifreiðum, eins
og lítill hópur sem fylgdist með gosi úr Strokki í fyrradag, en fleiri vilja þó vera út af fyrir sig á bílaleigubíl.
Ferðaþjónustan hefur aðeins verið
að braggast þótt hún sé ekkert í lík-
ingu við það sem verið hefur á þess-
um tíma árs, á undanförnum árum.
Íslendingar á sumarferðalögum
bera uppi eftirspurnina.
Erlendir ferðamenn eru farnir að
sjást á vinsælustu ferðamannastöð-
um landsins. Koma þeir eitthvað
með hópferðabílum en þó aðallega á
bílaleigubílum.
Þórir Garðarsson, stjórnar-
formaður Gray Line á Íslandi, segir
að fyrirtækið fari þrjár ferðir í viku
um Gullna hringinn. Ekki séu marg-
ir farþegar, yfirleitt 10 til 20 á dag,
en á sama tíma undanfarin ár hafi
verið um 150 farþegar á dag í sam-
tals fjórum ferðum. Gray Line fer
tvær ferðir í viku á suðurströndina
og eru gjarnan 10 farþegar í ferð.
Önnur rútufyrirtæki eru með ferðir
á helstu ferðamannastaði, gjarnan á
litlum hópferðabílum. „Við höfum þá
stefnu að hafa frekar stærri bíla
þannig að alltaf sé hægt að hafa ann-
að hvert sæti laust,“ segir Þórir og
bætir því við að ferðirnar séu skipu-
lagðar eftir þróuninni í spurn eftir
skoðunarferðum.
„Þetta fer hægt og rólega af stað
en það er þó eitthvað að gera.
Margir Íslendingar eru á ferðinni.
Þeir nýta þá fjölbreyttu þjónustu
sem hér er, hótel, veitingahús og af-
þreyingu,“ segir Elías Guðmunds-
son, hótelstjóri í Vík í Mýrdal. Hann
nefnir sem dæmi að mikið sé að gera
í zipline-svifbrautinni í Grafargili of-
an við Vík.
Elías segir að bæði hótelin sem
hann rekur í Vík, Hótel Vík og Hótel
Kría, séu opin og þar sé mest að
gera um helgar. Íslendingarnir komi
þar sterkir inn. Aftur á móti sjáist
ekki neinir hópar erlendra ferða-
manna, enn sem komið er, og þess
vegna hafi ekki verið hægt að opna
stóra veitingastaðinn, Ice Cave, en
fjöldi annarra veitingastaða sé
opinn.
Elías segir að mikil óvissa ríki um
þróun ferðaþjónustunnar, meiri en
hann hefur upplifað áður. Segir að
dimmt sé yfir haustinu. helgi@mbl.is
Enn fáir í skoðunarferðum
Íslendingar
bera uppi eftir-
spurnina
Ferðamenn við Gullfoss Mikil óvissa ríkir um þróun ferðaþjónustunnar þótt hún sé aðeins farin að braggast.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020
Sjávarútvegs-
ráðherra fer að
vísindalegri ráð-
gjöf Hafrann-
sóknastofnunar
um leyfilegan
heildarafla í ís-
lenskri fiskveiði-
lögsögu fyrir
næsta fiskveiðiár.
Reglugerð um
heildarafla fyrir
fiskveiðiárið sem hefst 1. september
næstkomandi var gefin út í gær.
Tekið er fram í tilkynningu ráðu-
neytisins að ráðgjöf Hafró byggi á
því að nýta stofna miðað við há-
marksafrakstur að teknu tilliti til
vistkerfis- og varúðarnálgunar.
Minni kvóti
Hafrannsóknastofnun ráðlagði
6% lækkun á aflamarki þorsks
byggt á aflareglu stjórnvalda, úr
272.411 tonnum í 256.593 tonn.
Helsta ástæða lækkunar var lækk-
un í stofnmælingum botnfiska auk
þess sem að þessu sinni voru vísi-
tölur 1 til 14 ára þorsks í stað 1 til
10 ára sem miðað hefur verið við
áður.
Samkvæmt aflareglu verður afla-
mark ýsu 45.389 tonn fiskveiðiárið
2020/2021 sem er 9% hækkun frá
fiskveiðiárinu 2019/2020. Ástæða
hækkunarinnar eru bættar nýlið-
unarhorfur. Gert er ráð fyrir að við-
miðunarstofn ýsu stækki á næstu
tveimur árum en eftir það er líkleg-
ast að hann standi í stað. Sam-
kvæmt aflareglu verður aflamark
ufsa 78.574 tonn sem er minnkun
um 2% frá síðasta ári.
Haft er eftir Kristjáni Þór Júlíus-
syni sjávarútvegsráðherra í tilkynn-
ingu um ákvörðun heildaraflamarks
að ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar
beri með sér að helstu nytjastofnar
séu sterkir. Hins vegar blasi við ný-
liðunarbrestir í nokkrum tegundum
sem Hafró í samráði við ráðuneytið
muni þurfa að mæta með frekari
rannsóknum. helgi@mbl.is
Farið að
ráðgjöf
Hafró
Aflamark þorsks
minnkar um 6%
Kristján Þór
Júlíusson
Þrjú innanlandssmit greindust á Ís-
landi í fyrradag og var tilkynnt um
þau í gær. Tvö smit greindust á landa-
mærunum, þar af einn sem var að
koma með Norrænu. Einn til viðbótar
reyndist smitaður um borð í Nor-
rænu, en hann hafði verið skimaður í
Danmörku áður en hann fór um borð.
Smitið sem greindist í eiginlegri
landamæraskimun af hálfu Íslend-
inga í Norrænu er fyrsta smitið sem
greinist í tengslum við skipið frá því
að það hóf komur sínar til landsins
með farþega á nýjan leik. Farþegarn-
ir voru 643.
Eins og komið hefur fram í um-
ræðunni síðustu daga eru samskipti
ferðamanna við Íslendinga ekki það
sem hefur verið að valda hópsmiti
meðal Íslendinga. Vandinn er Íslend-
ingar með mikið félagslegt tengsl-
anet. Af þessum sökum var staðfest
með auglýsingu heilbrigðisráðherra í
gær það sem þegar hafði verið gefið í
skyn, að sérstakar reglur yrðu inn-
leiddar um Íslendinga sem eru að
koma frá útlöndum. 13. júlí þurfa þeir
að fara í skimun við komu til landsins,
fara svo í sóttkví í 4-5 daga, og fara
svo aftur í skimun við veirunni, ef ske
kynni að nýleg sýking hefði farið
framhjá fyrri skimuninni. Komið
hefur fram að seinni skimunin verði
Íslendingum að kostnaðarlausu.
Sagt er að nýja fyrirkomulagið fyr-
ir Íslendinga eigi að taka gildi „eigi
síður en 13. júlí“, svo að hugsanlegt sé
að það taki gildi fyrr. Í faraldrinum
hingað til hafa ráðstafanir sem
kynntar eru með þessu orðalagi flest-
ar endað á að taka gildi einmitt á
nefndri dagsetningu. Heimildir
Morgunblaðsins herma að svo verði
einnig nú. Ástæðan fyrir því að ekki
var unnt að innleiða þessar nýju regl-
ur strax er að sögn Iðunnar Garðars-
dóttur, aðstoðarmanns Svandísar
Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra,
reglugerðir sem þarf að útfæra og
skipulagning aðgerðarinnar.
Á sama tíma og áhyggjur af hóp-
smiti eru miklar sagði Ragnar Freyr
Ingvarsson umsjónarlæknir á göngu-
deild COVID-19 við mbl.is í gær að
helmingur starfsliðs göngudeildar-
innar væri í sumarfríi. Hann fyndi
ekki fyrir sama samtakamætti í sam-
félaginu og í fyrri bylgju faraldursins
og að deildin hefði þurft andrými á
milli bylgja. snorrim@mbl.is
Níu dagar í nýtt fyrirkomulag
Íslendingar fari í tvær skimanir við komu til landsins Ekki hægt að innleiða þá reglu strax
Fyrsta smitið í Norrænu kom upp í gær Göngudeild COVID-19 illa mönnuð vegna sumarleyfa
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
15. júní Reynslan af skimun og engri sóttkví við komuna til landsins meðal Ís-
lendinga hefur verið slæm. Því þurfa þeir frá 13. júlí að fara í tvær skimanir.
Kórónuveirusmit á Íslandi
Fjöldi jákvæðra sýna frá 15. júní
15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30. 1. 2.
Jákvæð sýni í landamæraskimun
Smitandi
Ekki smitandi
Beðið eftir
niðurstöðum
84.033 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
17.705 sýni438 manns eru í sóttkví
Uppruni smita frá 15. júní, öll sýni
Innanlands
Erlendis
Óþekktur
31 25
11 723
1.855 staðfest smit
13 eru með virkt smit
Landamæraskimun ÍE LSH
Heimild: covid.is
2
1
2 2
1
2
1
3
1 10
3 3 31
1
1
1
1
1 1
2
2
3
1