Morgunblaðið - 04.07.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020
Viðskiptablaðið sagði frá því áfimmtudag að 330 dagar væru
liðnir frá því að blaðið hefði óskað
eftir að fá afhentar fundargerðir
stjórnar Ríkisútvarpsins. Nú væri
svo komið að úr-
skurðarnefnd um
upplýsingamál
hefði sent stjórn
Ríkisútvarpsins
bréf og farið fram
á að stjórnin svar-
aði beiðni Viðskiptablaðsins eigi
síðar en 15. þessa mánaðar. Einnig
kom fram að 223
dagar væru liðnir
frá því að úr-
skurðarnefndin
hefði beðið Ríkis-
útvarpið að af-
greiða málið!
Hrafnar Viðskiptablaðsins voruekki sáttir við þennan seina-
gang og sögðu að úrskurðar-
nefndin væri „búin að fá sig full-
sadda og sendi stjórninni erindi
sem á sér líklega engin fordæmi.
Verði stjórnin ekki búin að afgreiða
málið á næstu tveimur vikum
hyggst nefndin gera Alþingi, sem
og Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og
menningarmálaráðherra, grein
fyrir málinu og vekja athygli á
óhóflegum töfum. Þetta þykir
hröfnunum merkilegt enda leggur
RÚV mikla áherslu á það hlutverk
sitt að starfa í almannaþágu.“
Það er reyndar ekki svo að Ríkis-útvarpið leggi áherslu á að
starfa í almannaþágu heldur er það
eina ríkisstofnunin sem hefur þenn-
an tilgang sérstaklega tilgreindan í
lagaheiti sínu, sbr. lögin sem um
það gilda, „Lög um Ríkisútvarpið,
fjölmiðil í almannaþágu“.
En hvers vegna skyldi þessióvenjulega yfirlýsing hafa
verði sett í nafn fyrirtækisins?
Getur verið að það stafi af slæmri
samvisku?
Slæm samviska
í almannaþágu?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Útvarpsmessur hafa átt sinn fasta tíma
klukkan 11 á sunnudagsmorgnum á
Rás 1 á RÚV. Langoftast eru þær flutt-
ar í beinni útsendingu.
Undanfarin sjö sumur hefur sá hátt-
ur verið hafður á að taka fyrir fram upp
messur sem fluttar eru yfir hásumarið.
Hljóðupptökubíll Ríkisútvarpsins hefur
farið út á landsbyggðina og tekið upp
messurnar. Margrét Bóasdóttir, söng-
málastjóri þjóðkirkjunnar, hefur séð
um skipulagið og Einar Sigurðsson
hljóðmeistari séð um upptökur.
„Allt er breytingum háð. Kórónu-
veiran gerði margvíslegan usla sem
öllum er kunnur. Það stóð til að taka
upp ellefu messur í Austurlandspró-
fastsdæmi en veiran var snöggtum
þéttari en Austfjarðaþokan og setti
það strik í reikninginn svo að þeim
upptökum varð að fresta um ár,“ segir
í frétt á heimasíðu kirkjunnar.
Þess í stað hlupu Suðurnesjamenn í
skarðið og voru hljóðritaðar fimm
messur í Sandgerðiskirkju. Síðasta
sunnudag var útvarpað messu frá
Keflavíkurprestakalli. Á morgun,
sunnudag, verður útvarpað messu frá
Útskálaprestakalli. 12. júlí er messa
frá Njarðvíkurprestakalli, 9. júlí er
messa frá Tjarnaprestakalli: 9. ágúst
er svo messa þriggja prestakalla eða
Keflavíkur-, Njarðvíkur- og Útskála-
prestakalla. sisi@mbl.is
Suðurnesjamenn hlupu í skarðið
Veiran kom í veg fyrir að hægt væri
að taka upp messur á Austurlandi
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Útskálakirkja Messu safnaðarins
verður útvarpað á sunnudag.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta hefur gengið svakalega
vel. Nýtingin virðist skiptast
mjög jafnt á milli geira,“ segir
Þórhildur Gunnarsdóttir, ráðgjafi
hjá Parallel. Fyrirtækið vinnur
með Stafrænu Íslandi að útfærslu
ferðagjafar stjórnvalda.
Nokkur reynsla er nú komin á
ferðagjöfina og síðdegis á fimmtu-
dag höfðu alls
um 10.400
manns nýtt sér
ferðagjöfina.
Tæpar 43 millj-
ónir króna hafa
samanlagt kom-
ið í kassa ferða-
þjónustufyrir-
tækja af
þessum sökum.
Líklegt má þó
telja að nýt-
ingin sé rétt að fara af stað enda
mesti sumarleyfismánuðurinn rétt
hafinn. Um 55 þúsund Íslend-
ingar hafa þegar sótt sér ferða-
gjöfina.
Eins og komið hefur fram í fjöl-
miðlum fá allir einstaklingar 18
ára og eldri með lögheimili á Ís-
landi ferðagjöfina sem er að and-
virði 5.000 kr. Gjöfin er liður í því
að styðja við bakið á íslenskri
ferðaþjónustu í kjölfar kórónu-
veirufaraldursins. Hægt er að
kynna sér ferðagjöfina á vefsíð-
unni ferdalag.is og sjá hvaða
fyrirtæki taka þátt.
Fjölbreytti þjónusta í boði
„Þetta eru að nálgast 1.000
fyrirtæki sem hafa skráð sig. Allt
frá bændum með litla gistingu
upp í stór hótel og afþreyingar-
fyrirtæki,“ segir Þórhildur.
Tíu þúsund hafa
nýtt sér ferðagjöf
43 milljónir í kassa ferðaþjónustunnar
30% 30% 28%
12%
Nýting ferðagjafar
stjórnvalda
Veitingar Gisting Afþreying Bílaleigur
o.fl.
Heimild: Parallel ráðgjöf
Margir nýta sér
ferðagjöfina.