Morgunblaðið - 04.07.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Útsalan er hafin
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgið okkur á facebook
NÝTT
NETVERSLUNLAXDAL.IS
SUMAR
YFIRHAFNIR
HEILSÁRSYFIRHAFNIR
ALLT AÐ 50% AFSL.
ÚTSALA - ÚTSALA
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
38-52
ÚTSALAN ER HAFIN
30-50%
URAFSLÁTT
Stærðir
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Hlýtt var á landinu í nýliðnum júní og tíð hagstæð.
Júlí hefur einnig farið vel af stað og spáð er ágætu
veðri næstu daga.
Samkvæmt yfirliti Veðurstofunnar um tíðarfar
í júní var hlýjast á Norðausturlandi en tiltölulega
svalara suðvestanlands. Vindur og úrkoma voru
víðast hvar nærri meðallagi.
Meðalhiti í Reykjavík í júní var 10,2 stig og er
það 1,2 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990,
en 0,1 stigi yfir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akur-
eyri var meðalhitinn 11,1 stig, 2,0 stigum yfir með-
allagi áranna 1961 til 1990, en 1,1 stigi yfir með-
allagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðal-
hitinn 9,4 stig og 10,0 stig á Höfn í Hornafirði.
Í Reykjavík raðast hitinn í júní í 24.-25. sæti af
mælingum 150 síðustu ára. Á Akureyri raðast
mánuðurinn í 11. sæti af 140 júnímælingum og á
Stykkishólmi í 25. sæti af 175 mælingum. Hæsti
hiti mánaðarins mældist 24,2 stig á Mörk í Landi
þann 28. júní.
Úrkoma í Reykjavík mældist 49,6 millimetrar í
júní sem er rétt undir meðallagi áranna 1961 til
1990. Á Akureyri mældist úrkoman 31,1 mm sem
er 10% umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Í
Stykkishólmi mældist úrkoman 54,8 mm og 113,2
mm á Höfn í Hornafirði.
Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meira
í Reykjavík voru 13, tveimur fleiri en í meðalári. Á
Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 10
daga sem er fjórum fleiri en í meðalári. Sólskins-
stundir í Reykjavík mældust 167,4 sem er 6,1
stund yfir meðallagi áranna 1961 til 1990. Á Akur-
eyri mældust sólskinsstundirnar 222,4, sem er
45,8 stundum fleiri en í meðalári.
Meðalhiti í Reykjavík fyrstu sex mánuði ársins
var 3,7 stig sem er 0,7 stigum ofan meðallags ár-
anna 1961 til 1990 en 0,5 stigum undir meðallagi
síðustu tíu ára, samkvæmt yfirlitinu. Meðalhitinn
raðast í 39. sæti á lista 150 ára. Á Akureyri var
meðalhiti mánaðanna sex 3,1 stig. Það er 1,2 stig-
um ofan meðallags áranna 1961 til 1990 en 0,2
stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhit-
inn þar raðast í 29. sæti á lista 140 ára. Úrkoman
hefur verið 17% umfram meðallag í Reykjavík, en
33% umfram meðallag á Akureyri.
Morgunblaðið/Eggert
Á Langasandi Mikil veðurblíða hefur verið síðustu daga. Börnin á Akranesi hafa svo sannarlega kunnað að meta það og léku sér í sjónum við Langasand.
Júní var hlýr og júlí byrjar vel
Hiti á landinu í júní víðast hvar vel yfir meðallagi Hlýjast var á Norðaustur-
landi en svalara suðvestanlands Fyrri helmingur ársins er hagfelldur
Hæstaréttardómararnir Greta Bald-
ursdóttir og Þorgeir Örlygsson hafa
sótt um lausn frá embætti. Þetta var
kynnt á ríkisstjórnarfundi gær.
Þau verða fjórðu og fimmtu dóm-
ararnir við réttinn sem láta af störf-
um þar á innan við einu ári. Hinir
eru Markús Sigurbjörnsson, Viðar
Már Matthíasson og Helgi Ingólfur
Jónsson.
Greta varð 67 ára í mars síðast-
liðnum. Hún starfaði hjá yfirfógeta í
Reykjavík og var settur borgarfóg-
eti áður en hún hóf störf við Héraðs-
dóm Reykjavíkur. Árið 2011 var hún
skipuð í Hæstarétt.
Þorgeir, sem einnig er 67 ára, er
núverandi forseti Hæstaréttar hvar
hann hefur átt sæti frá 2011. Áður
starfaði hann við embætti yfir-
borgardómara, var aðstoðarmaður
hæstaréttardómara og síðar borgar-
dómari í Reykjavík. Einnig prófess-
or við HÍ og dómari við EFTA-
dómstólinn 2003-2011.
Þorgeir
Örlygsson
Greta
Baldursdóttir
Tvö hætta í
Hæstarétti
Neyðarlínan vinnur nú að því að
gera úrbætur á 64 fjarskiptastöðv-
um víða um land með auknu vara-
afli og að fjölga færanlegum vara-
rafstöðvum. Þar af eru 36 fastar
vararafstöðvar en annars staðar
eru rafgeymar eða tenglar fyrir
færanlegar rafstöðvar. Tilgangur-
inn er að tryggja rekstraröryggi í
fjarskiptum eftir mikil óveður sem
gengu yfir landið í vetur.
Mun verkefnið fá 125,5 milljóna
kr. fjárveitingu á þessu ári á vegum
fjarskiptasjóðs.
Úrbætur á 64 fjar-
skiptastöðvum