Morgunblaðið - 04.07.2020, Blaðsíða 12
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þessi bíll er mikið fágæti. Það eru ekkimargir svona bílar eftir á götunni.Hann er í toppstandi, enda hef éghugsað vel um hann í þessi fjögur ár
sem liðin eru frá því ég keypti hann. Mér finnst
þetta flottasti BMW sem til er, hann er stór og
með fallegar línur,“ segir Hilmar Bragi Krist-
jánsson sem ekur um á 31 árs bíl, nánar tiltekið
BMW af gerðinni 735, árgerð 1989.
„Talan 7 í talnarununni 735 stendur fyrir
lúxus og fyrir vikið eru þessar týpur stærstu
fólksbílar sem BMW framleiðir. Talan 35 í
rununni stendur fyrir að í bílnum sé 3,5 lítra
vél. Bíllinn minn er beinskiptur sem er afar
sjaldgæft, því langflestir þessir bílar voru
framleiddir sjálfskiptir. Hann er með boddí
sem heitir E32 en það var framleitt á árunum
1987 til 1994,“ segir Hilmar sem hefur mikla
ástríðu fyrir gömlum bílum, en hvað finnst
honum eftirsóknarvert við að eiga nákvæm-
lega svona bíl?
„Þetta eru eðalbílar frá Suður-Þýska-
landi, enda hafa Þjóðverjar lengi verið
fremstir í bifreiðasmíðum. Þetta eru bílar
sem eldast einstaklega vel, vegna góðrar
hönnunar. Mér og mörgum öðrum finnst
þetta verulega töff bílar, þeir eru með flottum
framenda með hringlóttum ljósum og sér-
stöku grilli. Þeir búa yfir einstaklega fallegu
retró-útliti. Þeir eru sem sagt bæði flottir
bílar og góðir bílar. Bíllinn minn vekur þó
nokkra athygli hjá þeim sem hafa vit og
áhuga á bílum,“ segir Hilmar sem hefur verið
félagi í BMW-samfélaginu frá því hann var 16
ára.
„Hér á Íslandi og í raun um allan heim er
mikil menning í kringum BMW, hittingar,
spjall og Facebook-hópar. Margir eru að
braska með bíla í þessu samfélagi, kaupa bíla
og eiga þá kannski í mánuð, breyta þeim og
selja síðan aftur.“
Líka hrifinn af hippafötum
Hilmar var aðeins 11 ára þegar áhugi
hans á gömlum bílum kviknaði.
„Í hverfinu mínu var gamall Chevrolet
Camaro sem mér fannst geggjað nettur og þá
opnuðust augu mín fyrir þessu. Þegar ég var
13 ára fór ég til Bandaríkjanna og Kanada og
var heillaður af öllum gömlu bílunum sem ég
sá þar, en áhugi minn á bandarískum bílum
dalaði fljótlega og ég var orðinn rosalega hrif-
inn af BMW áður en ég fékk bílpróf. Hið sjón-
ræna skiptir öllu máli fyrir mig þegar kemur
að gömlum bílum, þeir verða að líta vel út. Ég
er reyndar heillaður af fallegum hlutum yfir
höfuð og líka arkitektúr. Mér finnst gamal-
dags herramannsklæði æðisleg og ég hef allt-
af verið hrifinn af fötum sem fást í verslun
Kormáks og Skjaldar,“ segir Hilmar, sem
keypti sér auðvitað tweed-jakkaföt hjá þeim.
„Ég er hrifinn af mismunandi stefnum
þegar kemur að fatnaði, ég er til dæmis líka
mjög hrifinn af hippafötum.“
Meiri sál og hjarta í rokki en poppi
Áhugi Hilmars á því sem gamalt er nær
einnig til tónlistar og hann safnar vínylplötum.
„Ég hlusta á alls konar gamla tónlist en
mest á rokk. Undanfarið hef ég verið að hlusta
mikið á þungarokk, en ég tek fram að ég hlusta
líka á nýtt rokk. Ég hef lítinn áhuga á miðju-
moði í tónlist eða poppi. Ef við berum saman
við popptónlist, þá eru lagatextar oft miklu
dýpri í rokkinu, þar er sungið um sögulega at-
burði, goðafræði, pólitík og fleira. Laglínurnar
í rokkinu eru líka flóknari. Mér finnst meiri sál
og hjarta í rokkinu en poppinu. Mér finnst
skemmtilegra að hlusta á tónlist sem kemur frá
hljóðfærum en ekki elektrónískum tækjum,“
segir Hilmar, sem spilar sjálfur á gítar.
„Ég er alltaf að uppgötva einhverjar nýjar
hljómsveitir og núna er ég að hlusta á þunga-
rokkshljómsveitir í þyngri kantinum frá 1990.
Mér finnst stefnan í tónlist sem var þá í þunga-
rokkinu flott. Ég elska við þungarokkið að geta
lifað mig inn í það, ég spila tónlistina á fullum
krafti og hverf alveg inn í hana.“
Þegar kemur að framtíðarplönum segist
Hilmar vera að spá í að mennta sig í kvik-
myndahandritsgerð.
„Mig langar að fara í slíkt nám til Van-
couver í Kanada, því ein af mínum dellum er
skíðamennska og ég lærði mikið á skíði í Kan-
ada. Eitt besta skíðasvæði í heimi að mínu mati
er nálægt Vancouver og þar er líka hægt að
fara útfyrir á fjallaskíði. Ég veit fátt betra en
tilfinninguna sem fylgir því þegar maður er bú-
inn að skíða í átta til tíu klukkutíma að smeygja
sér svo í heita pottinn og slaka á.“
Veikur fyrir gömlum eðalvögnum
Hann var aðeins 11 ára þegar
áhugi hans á gömlum bílum
kviknaði og var kolfallinn fyrir
BMW áður en hann fékk bílpróf.
Hilmar er heillaður af gömlu.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Retro Hilmar við BMW-inn sinn í
gamaldags herramannsklæðum.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020
Sirkus er sannarlega eitthvað sem
bæði börn og fullorðnir hafa gaman
af. Nú er lag, því á morgun sunnudag
kl. 13-16 verður sirkus í Árbæjarsafni.
Með honum koma ýmsir kynlegir
kvistir með magnaða hæfileika.
„Hægt verður að berja augum loft-
fimleikafólk, lygilega góðan galdra-
mann, skeggjuðu konuna, ósýnilega
manninn í Suðurgötu, tattoo-konuna
og fleiri skrautlegar persónur sem
verða á ferli um safnið. Hjá sterkasta
manni heims má spreyta sig á kraft-
lyftingum. Á þorpstorginu verður í
boði að fara í lestaferð í nýju krakka-
lest safnsins, kaupa sælgæti af
sirkúsdömu og grilla sykurpúða yfir
glóðum. Einnig verða skemmtileg úti-
leikföng og leikir fyrir krakka, m.a.
ratleikur, og handverksfólk verður í
húsunum og lummur í Árbænum,“
segir í tilkynningu.
Árbæjarsafn býr yfir mörgum
skemmtilegum svæðum og sýning-
um, til dæmis er sívinsæl leikfanga-
sýning í Landakoti þar sem má snerta
og leika með leikföngin. Kindur eru í
haga og landnámshænurnar vappa
frjálsar um safnið. Heitt á könnunni í
Dillonshúsi og veitingar.
Líf og fjör með sirkusi í Árbæjarsafni á morgun sunnudag
Ósýnilegi maðurinn, skeggjaða
konan og fleiri verða á ferli
Gaman Loftfimleikar og fleira skemmtilegt verður í Árbæjarsafni.
„Nú vakna ég útsofinn og hv
Skúli Sigurðsson
Minnkar óþægindi við þvaglát
Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
Brizo™ er fæðubótarefni sérhannað
fyrir karlmenn sem þjást af
einkennum góðkynja stækkunar á
blöðruhálskirtli.
Rannsóknir hafa sýnt að með
þriggja mánaða inntöku á Brizo™ hefur
blöðruhálskirtill minnkað töluvert.
™
íldur“