Morgunblaðið - 04.07.2020, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Lögin eru orðin úrelt að því er snert-
ir Íslendinga með erlenda maka og
falla ekki að nútímalifnaðarháttum
fólks. Við erum önnum kafin við að
sigra heiminn og reglurnar þvælast
fyrir okkur að óþörfu,“ segir Ásgeir
Ingvarsson blaðamaður, sem búsett-
ur er í Istanbúl í Tyrklandi. Hann
hefur fyrir hönd
Íslendinga sem
búsettir eru er-
lendis sent Ás-
laugu Örnu Sigur-
björnsdóttur
dómsmálaráð-
herra erindi þar
sem óskað er eftir
breytingum á lög-
um um ríkis-
borgararétt sem
ganga út á það að
auðvelda mökum Íslendinga að fá ís-
lenskan ríkisborgararétt.
Hindranir fyrir maka
„Íslendingar eru þjóð á ferðinni og
við erum sérstök að því leyti hversu
margir eru búsettir erlendis, eða um
það bil áttundi hver landsmaður. Við
förum út til að mennta okkur, fá góð
störf, stofna öflug fyrirtæki og sumir
finna sér erlenda maka, eignast börn
og stofna heimili. Ef Íslendingur bú-
settur erlendis á Evrópubúa fyrir
maka mæta þeim fáar hindranir, en
ef makinn kemur frá landi utan Evr-
ópska efnahagssvæðisins geta málin
flækst allverulega þegar kemur að
því að grípa bestu náms- og starfs-
tækifæri, flytja og ferðast, og virðast
vandamálin verða þeim mun flóknari
eftir því sem makinn kemur lengra
að,“ segir Ásgeir.
Nefnir hann sem dæmi um óvissu
og hindranir að hann og eiginmaður
hans, sem er frá Marokkó, voru á sín-
um tíma að velta því fyrir sér að flytja
til Sviss. Þá kom í ljós að eigin-
maðurinn gat ekki sótt um störf þar
fyrr en hann hefði trygga landvist,
sem þýðir að þeir hefðu þurft að flytja
þangað og athuga síðan með tækifæri
á vinnumarkaði. Það hefði sett áætl-
anir þeirra úr skorðum og fjárhaginn
í óvissu.
„Ég sé að fjölskyldufólk óttast ekki
síst hvað verður um erlenda makann
og börnin ef eitthvað kemur fyrir ís-
lenska makann. Getur komið upp sú
staða að erlendi makinn getur sig
varla hreyft með börnin falli íslenska
foreldrið frá,“ segir Ásgeir.
Fari eftir lengd hjónabands
Til að fá íslenskan ríkisborgararétt
þarf maki Íslendings að hafa búið á
Íslandi í fjögur ár, hið minnsta. Tíma-
bilið var fyrr á þessu ári lengt úr
þremur árum með lagabreytingu.
Makar fá ótímabundið dvalarleyfi eft-
ir þriggja ára búsetu og þótti óeðli-
legt að ríkisborgararétturinn fengist
á sama tíma.
Reglurnar hér eru mun strangari
en í öðrum Evrópulöndum, sam-
kvæmt könnun Ásgeirs. Víða er
heimilað að veita fólki sem hefur ver-
ið í hjónabandi með íbúa viðkomandi
lands ríkisborgararétt, óháð búsetu. Í
stað búsetu er þá litið til þess hversu
lengi hjónabandið hefur varað, allt
frá þremur árum og upp í tíu.
Telur Ásgeir að reglurnar á Íslandi
ættu ekki að vera jafn strangar og
raun ber vitni í ljósi þess hversu
margir Íslendingar búa erlendis og
þess fordæmis sem lög annarra þjóða
veita. Stingur hann upp á því við
dómsmálaráðherra að erlendur maki
geti sótt um íslenskan ríkisborgara-
rétt eftir sex ára hjónaband, óháð bú-
setu, en öðrum skilyrðum verði haldið
óbreyttum. Ef þetta reynist vel
mætti lækka viðmiðunartímann.
Ásgeir segir að þær hindranir sem
núgildandi ákvæði skapa bitni hvað
harðast á íslenskum fjölskyldum þar
sem erlendi makinn kemur frá Mið-
og Suður-Ameríku, Afríku og Asíu.
Áætlar hann að í þeim hópi séu innan
við hundrað fjölskyldur. Íslendingar
sem eiga maka frá Bandaríkjunum
og Kanada rekast einnig á hindranir,
en minni en í löndum í þeim álfum
sem fyrr voru taldar upp. Áætlar
hann að lagfæring á lögum um ríkis-
borgararétt myndu gagnast nokkur
hundruð íslenskum fjölskyldum í
heildina.
Ásgeir stofnaði Facebook-hópinn
Íslendingar í útlöndum - hagsmuna-
samtök og þar hafa oft orðið miklar
umræður um málefnið. Hópverjar
eru 6.400 talsins.
Reglurnar þvælast fyrir
Íslendingum að óþörfu
Leggur til rýmkun á veitingu ríkisborgararéttar maka
AFP
Japan Margvíslegar hindranir geta mætt íslenskum fjölskyldum þar sem
annar makinn er frá landi utan Evrópu, við nám, störf og búsetu.
Ásgeir
Ingvarsson
Heimili Nýtt og glæsilegt hús sem er auðvitað á besta stað í bænum.
Eftirvænting í
Klettaborginni
Þjónustukjarni á Akureyri opnaður
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Afhent Frá vinstri: Karólína Gunnarsdóttir sviðsstjóri, Kristinn Már Torfa-
son forstöðumaður og Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar.
dóttur, sviðsstjóra búsetusviðs
bæjarins, lyklana að húsinu og í kjöl-
farið var hafist handa að undirbúa að
fólk flytti þar inn.
Tilkoma þjónustukjarnans er lið-
ur í þeirri stefnu að leggja niður
hefðbundin herbergjasambýli en
veita þess í stað einstaklingsmiðaða
þjónustu með áherslu á sjálfstæða
búsetu. Hönnun húsnæðisins tekur
mið af því og á að auka persónulegt
svigrúm íbúa. „Aðstaða fyrir íbúa og
starfsmenn mun gjörbreytast og er
mikil eftirvænting hjá öllum með að
flytja í nýtt húsnæði,“ segir Kristinn
Már Torfason forstöðumaður.
Nýr þjónustukjarni á Akureyri,
heimili fyrir fatlað fólk, var formlega
opnaður nú í vikunni. Sex manns
munu þar eignast heimili, fólk sem
þarf aðstoð í daglegu lífi sínu. Það
flytur inn í húsið á næstu dögum og
fær góða aðstöðu.
Byggingin stendur á nýrri lóð á
horni Klettaborgar og Dalsbrautar
og er hátt í 600 fermetrar að flatar-
máli. Sex íbúðir eru í húsinu en einn-
ig sameiginleg rými, garður sem
nýtist til samveru sem og starfs-
mannaaðstaða. Halla Björk Reynis-
dóttir, forseti bæjarstjórnar Akur-
eyrar, afhenti Karólínu Gunnars-
Páley Borgþórs-
dóttir hefur verið
skipuð í embætti
lögreglustjórans
á Norðurlandi
eystra frá og með
13. júlí næstkom-
andi. Hún var af
sérstakri dóm-
nefnd talin best
til þess að gegna
embættinu af
þeim fimm sem sóttu um.
Páley hefur frá árinu 2015 gegnt
embætti lögreglustjóra í Vest-
mannaeyjum. Hún lauk embættis-
próf í lögfræði árið 2002. Var lög-
lærður fulltrúi hjá sýslumanns-
embættinu í Vestmannaeyjum
2002-2007 en frá því ári og fram til
2014 starfaði hún sem lögmaður.
Umsækjendur um embættið á
Norðurlandi eystra auk Páleyjar
voru þau Arnfríður Gígja Arngríms-
dóttir, sem er aðstoðarsaksóknari
hjá héraðssaksóknara, Halldóra
Kristín Hauksdóttir, lögmaður hjá
Akureyrarbæ, Hreiðar Eiríksson,
lögfræðingur hjá Fiskistofu, og Sig-
urður Hólmar Kristjánsson, en hann
er saksóknarfulltrúi og staðgengill
lögreglustjórans á Norðurlandi
vestra. sbs@mbl.is
Páley á
Norður-
land eystra
Páley
Borgþórsdóttir
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
STAN Model 3035 rafmagn
L 206 cm Áklæði ct. 70 Verð 609.000,-
L 206 cm Leður ct. 10 Verð 729.000,
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.