Morgunblaðið - 04.07.2020, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Sólheimar eiga merka sögu og í
starfinu hér hefur vel tekist til. Þeg-
ar farnar eru nýjar leiðir þvert á
ríkjandi viðhorf hvers tíma verða oft
skiptar skoðanir um slíkt. Sú var
raunin með Sólheima, en áherslur
hér sönnuðu sig og eru í dag hið við-
tekna. Slíkt er góður dómur,“ segir
Sigurjón Örn Þórsson, stjórnar-
formaður Sólheima í Grímsnesi.
Á morgun, sunnudaginn 5. júlí,
verður þess minnst að 90 ár eru liðin
frá stofnun heimilis að Sólheimum í
Grímsnesi. Það var á þessum degi
árið 1930 sem Sesselja Hreindís Sig-
mundsdóttir kom með fimm börnum
á þessa næsta afskekktu jörð austur
í sveitum til að setja þar á laggirnar
heimili fyrir börn sem vantaði at-
hvarf. Hún hafði miklar hugsjónir
um að skapa skjólstæðingum sínum
bærilegt líf og bjarta framtíð. Önnur
fimm börn komu á haustdögum
þetta sama ár, en hugsunin í upphafi
var sú að starfrækja almennt barna-
heimili.
Sjálfbærni, listsköpun
og trúarleg afstaða
Fyrsta þroskahefta barnið, sem
svo var kallað, kom að Sólheimum
árið 1931og í fyllingu tímans varð
þjónusta við þann hóp aðalatriði.
Áður en að Sólheimum kom hafði
Sesselja numið uppeldisfræði,
barnahjúkrun og aðhlynningu
þroskaheftra í Danmörku, Sviss og
Þýskalandi. Var innblásin af kenn-
ingum þýska heimsspekingsins
Rudolf Steiner um mannhelgi; hvar
sjálfbærni, listsköpun og trúarleg
afstaða eru í öndvegi. Hafa þessar
kenningar allt til þessa dags verið
lykilatriði í öllu starfi á Sólheimum.
Raunar má halda því til haga að
Sesselja var frumkvöðull í lífrænni
ræktun á Norðurlöndum, sem eitt
og sér er mjög athyglisvert.
Vefnaður, smíði,
ræktun og jurtagerð
Í tímans rás hefur starfsemin á
Sólheimum orðið fjölbreyttari. Fatl-
aðir íbúar staðarins, sem eru 41 tals-
ins, starfa meðal annars við lífræna
ræktun. Þessa dagana er til dæmis
annatími í gróðurhúsum staðarins
þaðan sem kemur grænmeti sem er
eftirsótt vara í verslunum. Margir
vinna sömuleiðis í listsmiðju Sól-
heima, til dæmis við smíðar, vefnað,
kertakerð, jurtavinnslu og svo fram-
vegis. Einnig er á staðnum verslun,
kaffihús, ferðaþjónusta og fleira
gott. „Það er margt sem gerir Sól-
heima að alveg einstökum stað, sem
margir heimsækja. Afmælið um
helgina er því mikið tilhlökkunarefni
fyrir okkur sem tengjumst þessari
starfsemi, en líka þeim fjölmörgum
velunnurum sem þessi staður á,“
segir Sigurjón Örn.
Íslensk fyrirmynd
Sesselju Sigmundsdóttur þótti
sjálfsagt að fatlað fólk og aðrir
deildu kjörum, sem á hennar tíma
var umdeilt, en þykir nú vera sjálf-
sagt. Sama máli gegnir um áherslur
hennar í umhverfismálum.
„Verndarenglar, gott og velviljað
fólk, var alltaf nærri og fylgdi og
studdi við þessa starfsemi hér, sem
oft var sótt mjög hart að,“ segir
Sigurjón Örn um Sólheima, þangað
sem kemur á hverju ári fjöldi ís-
lenskra grunnskólanema sem og
stúdenta við erlenda háskóla, eink-
um í Bandaríkjunum, til að kynna
sér lífrænar áherslur í sjálfbæru
samfélagi. Að alþjóðlegum sam-
tökum slíkra byggðarlaga eiga Sól-
heimar aðild, en þetta íslenska þorp
er oft tiltekið þar sem fyrirmynd.
Arkitektar eigin lífs
„Fatlaðir íbúar Sólheima eru allt
fólk með þroskahömlun, eftir
ákveðnu mati. Allir hafa sína hæf-
leika og styrk rétt eins og takmörk.
Hingað kemur enginn til búsetu
nema óska þess,“ segir Sigurjón Örn
um þjónustu við íbúana sem veitt er
skv. samkomulagi við byggðasamlag
sveitarfélaga á Suðurlandi.
„Langflestir íbúar hér eru í sjálf-
stæðri búsetu. Nokkrir eru í íbúða-
sambýlum, húsum þar sem hver hef-
ur sína íbúð með aðgengi að
sameiginlegu rými svo sem eldhúsi.
Annars eru búsetuform hér mörg
rétt eins og önnur tækifæri sem fólki
bjóðast hér á Sólheimum. Atvinnu-
starfsemin hér er til dæmis öðrum
þræði hugsuð sem valdefling fatl-
aðra íbúa hér, svo þeir geti eins og
annað fólk verið arkitektar eigin
lífs.“
Verndarenglar
alltaf nærri
Sólheimar í Grímsnesi 90 ára Hátíð
um helgina Mannhelgi er í öndvegi
Vinna og valdefling Hæfileikar allra
Morgunblaðið/Eggert
Listasmiðja Starfið er margt, Einar Baldursson íbúi á Sólheimum vinnur í leirgerð og skapar margt fallegt þar.
Torgið Gunnar Einarsson raðar stólum svo að fólk geti tyllt sér niður.
Sólheimar Sesseljuhús, hátt og
reisulegt, setur svip á staðinn.
Í tilefni af 90 ára afmæli Sól-
heima hefur afmælisnefnd verið
að störfum síðustu mánuði. Af-
mælisdagskrá, með leik og list,
er þar í aðahlutverki. Opnuð
hefur verið sögusýning um starf
Sesselju á Sólheimum og fram-
lag Lionsklúbbsins Ægis til
starfsins. Þá verður vígt svo-
nefnt Péturstorg, í miðju
byggðakjarnans. Torgið er nefnt
eftir Pétri Sveinbjarnarsyni,
sem lést á síðasta ári, en hann
var stjórnarformaður Sólheima
í rúm 40 ár og átti afgerandi
þátt í allri uppbyggingu staðar-
ins á þeim tíma. Meðal gesta á
afmælishátíðinni verða Guðni
Th. Jóhannesson forseti Íslands
og Eliza Reid kona hans.
Á torginu verður afhjúpað
listaverk sem er gjöf Sigurðar
Guðmundssonar myndhöggvara
til Sólheima í tilefni afmælisins.
Kristján Björnsson, vígslu-
biskup í Skálholti, mun svo
messa í Sólheimakirkju á sjálf-
an afmælisdaginn 5. júlí að við-
stöddum góðum gestum. Guðs-
þjónustan hefst kl. 14. Þá
stendur til að bjóða öllum íbú-
um í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi í opið hús á Sólheimum
og kynna sér stað og starfsemi.
Þá eru allar helgar í sumar
fjölbreyttir listviðburðir á
staðnum, kynntir sem menn-
ingarveisla og er dagskráin birt
á vefsetrinu Sólheimar.is.
Péturstorg,
menning og
messan
FJÖLBREYTT AFMÆLISDAGSKRÁ
Sigurjón Örn Þórsson kynntist
starfseminni að Sólheimum þeg-
ar hann var aðstoðarmaður fé-
lagsmálaráðherra 2003 til 2006.
Málefni fatlaðra voru á þeim
tíma verkefni ríksins og í ráðu-
neytinu var Sigurjóni falið að
gera þjónustusamning hins opin-
bera við Sólheima.
„Í því starfi tókust kynni og
vinátta með okkur Pétri Svein-
bjarnarsyni og eftir að ráðu-
neytistíma mínum lauk var ósk-
að eftir því að ég tæki sæti í
fulltrúaráði og stjórn Sólheima, sem var árið 2007. Sem formaður tók ég
við árið 2017. Vissulega er formennska í stjórn Sólheima talsvert meira
en tómstundagaman. Er heilmikil vinna jafnhliða öðrum störfum,“ segir
Sigurjón sem er framkvæmdastjóri Kringlunnar. „Starfið hér á Sól-
heimum er gefandi. Heimilisfólk er velviljað. Endurgjöf þess er sterk. Að
vera með því og starfa hefur kennt mér margt. Raunar hefur öll fjölskylda
mín heillast af þessu samfélagi og hingað komum við oft.“
Velvilji og sterk endurgjöf
HEFUR VERIÐ Í STJÓRN Á SÓLHEIMUM FRÁ 2007
Skraf Sigurjón Örn Þórsson og Reynir
Pétur Ingvarsson ræða mál dagsins.
Komdu í BÍLÓ!
S-Line
Nýskráður 12/2018, ekinn 12þkm.
Bang & Olufsen hljómkerfi, S-line ál-
felgur og innrétting ogmargt fleira!
Raðnúmer 380709
Design
Nýskráður 05/2018, ekinn 10þkm.
Glerþak, Rafdrifin sportsæti með
leðri og alcantara, ogmargt fleira!
Raðnúmer 259845
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is – ALLTAF VIÐ SÍMANN 771 8900 –
ÞÚ FÆRÐ LANG FALLEGUSTU
BÍLANA HJÁ OKKUR
HLAÐNIR AUKAHLUTUM, LÍTIÐ EKNIR!
AUDI A3 E-TRON
Stafrænt mælaborð, 18“ álfelgur, akreinavari, bakkmyndavél, blindsvæðisvörn,
leiðsögukerfi, þráðlaus símahleðsla, Matrix LED ljós. Óaðfinnanlegir í útliti!
Fleiri eintök væntanleg, kíktu við!
TILBOÐSVERÐ
4.490.000 kr.
TILBOÐSVERÐ
4.490.000 kr.