Morgunblaðið - 04.07.2020, Page 31
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Lára Árnadóttir,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
GÍSLA MATTHÍASAR SIGMARSSONAR
skipstjóra, Vestmannaeyjum,
sem lést laugardaginn 6. júní.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Landspítalans fyrir góða
umönnun og hlýtt viðmót.
Sjöfn Kolbrún Benónýsdóttir
Sigmar Gíslason Ásta Kristmannsdóttir
Katrín Gísladóttir Auðunn Arnar Stefnisson
Benóný Gíslason Jóna Þorgerður Helgadóttir
Grímur Þór Gíslason Ásta María Ástvaldsdóttir
Gísli Matthías Gíslason Jóna Kristjánsdóttir
Sigurður Friðrik Gíslason Berglind Sigmarsdóttir
Frosti Gíslason Ingibjörg Grétarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður
og ömmu,
BERGRÓSAR ÞORGRÍMSDÓTTUR
Bjargslundi 4, Mosfellsbæ,
sem lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi, 6. júní.
Sveinn Sveinsson
Sveinn Þorgrímur Sveinsson Margrét Ragnarsdóttir
Rakel Rós Sveinsdóttir Hrafn Stefánsson
Pétur Hafliði Sveinsson
og barnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við fráfall ástkærs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður og afa,
HENDRIKS SKÚLASONAR
úrsmiðs,
Víðigrund 13, Kópavogi,
sem lést föstudaginn 12. júní sl.
Íris Sigurjónsdóttir
Hjördís Hendriksdóttir Jón Smári Úlfarsson
Anna Bryndís Hendriksdóttir David Dominic Lynch
Agla Elísabet Hendriksdóttir Sigurður Hafsteinsson
Sigurjón Hendriksson Jóhanna Bragadóttir
Erla Hendriksdóttir Bragi Jónsson
og barnabörn
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Mig langar í
nokkrum orðum að
minnast Margrétar.
Ég fór að sækja
samkomur í Hörgshlíð 12 fyrir
rúmum tíu árum síðan. Þetta er
og hefur alltaf verið bænarsam-
félag og boðun Guðs trúar, og
voru í fjölda mörg ár auglýsingar
í Morgunblaðinu undir fyrirsögn-
inni Boðun fagnarerindinsins.
Guðrún Jónsdóttir leiddi þetta
starf og söfnuðinn, sem var í dag-
legu tali kallaður Guðrúnar-söfn-
uðurinn. Fjöldamargir nutu þjón-
ustu Guðrúnar og þeirra
Margrét
Erlingsdóttir
✝ Margrét Er-lingsdóttir
fæddist 19. júlí
1930. Hún lést 8.
júní 2020.
Útför Margrétar
fór fram 29. júní
2020.
hæfileika sem Guð
hafði gefið henni.
Eftir andlát Guð-
rúnar leiddu þær
Margrét og Elín
Bjarnadóttir starfið
í Guðrúnar-söfnuð-
inum.
Þá má með sanni
segja að andi trúar
hafi ríkt í salnum í
Hörgshlíð allt frá
því að hann var
vígður árið 1958. Í síðustu pré-
dikun sinni sagði Guðrún eftirfar-
andi orð: „Það nægir ekkert
nema að heyra kall Drottins og
taka við því.“ Þessi orð Guðrúnar
hljómuðu svo oft í prédikunum
sem Margrét flutti. Það fór ekki á
milli mála hversu mikilvæg trúin
var henni. Inntakið í ræðum
hennar bar þess vott að hún elsk-
aði ekki aðeins Guð heldur elsk-
aði hún fjölskyldu sína og sagði
okkur stolt frá börnum og barna-
börnum sínum, sem öll elskuðu
hana. Margrét var trúföst og
vissi hvað Guð hafði ætlað henni.
Þær Elín báðu daglega fyrir þeim
bænarefnum sem bárust þeim.
Margrét mætti mér með brosi
og hlýju í hvert skipti sem ég
kom á samkomu í Hörgshlíðinni
og ætíð voru þau orð og prédik-
anir sem hún flutti full af boðskap
kærleika, helgun og krafti. Mar-
grét var leiðtogi af Guðs náð.
Hún var hógvær og lítillát en var
einnig ákveðin þegar kom að
trúnni á Guð og öllu sem tilheyrði
henni. Hennar aðalsmerki var
kærleikur og var það einkenni
hennar allsráðandi, hvort heldur
var í ræðustól eða í persónulegu
samtali við kirkjugesti eftir sam-
komu.
Það fóru margar minningar
gegnum hugann er ég sat í jarð-
arför Margrétar og fann ég fyrir
miklu þakklæti fyrir að hafa
kynnst henni. Í jarðarförinni var
afhent sálmaskrá og myndirnar
af henni og fjölskyldunni sem
hana prýddu sögðu meira en þús-
und orð. Þær sögðu sögu konu
sem fæddist ekki með silfurskeið
í munni og þurfti að takast á við
marga erfiðleika á lífsleiðinni en
um leið sögðu þær frá þeim dugn-
aði og áræðninni sem einkenndu
hana allt lífið. Mesta gæfa hennar
var að mínu mati sú að eignast
trú á Guð og að eiga lífsförunaut
sem hún deildi þeirri trú með.
Fallegur sálmasöngur hljómaði í
Bústaðarkirkju þennan hlýja og
sólríka mánudag.
Í unaðarhöllum um endalaus ár
ég elska þig, Jesús í dýrðinni hár.
Úr tindrandi krýning
mín söngdýrð sé sú,
minn sætasti Jesús, best elska ég nú.
(Fjórða erindi sálmsins „Ég
elska þig Jesú“ sem er oft sung-
inn á samkomum í Hörgshlíð).
Ég hugsa með mér er ég minn-
ist þessa lags að kannski hafi
Margrét sungið þetta áður en
hún gaf upp andann og gekk til
fundar við Drottinn sinn og frels-
ara. Eitt er allvega víst, að hún er
farin til að vera með Drottni um
eilífð. Guð gefi að við sem þekkt-
um hana getum hitt hana þar á ný
þegar okkar tími kemur.
Guð blessi minningu hennar.
Stefán Ingi Guðjónsson
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Veiði
Silunganet • Sjóbleikjunet
Fyrirdráttarnet • Bleikjugildrur
Nýtt á afmælisári
Kraftaverkanet • margar tegundir
25% afmælisafsláttur
af Stálplötukrókum fyrir
handfæraveiðar
Að auki fylgja silunganetum
vettlingar í aðgerðinni
Bólfæri
Netpokar fyrir þyngingu
Og eitthvað meira skemmtileg
Heimavík 25 ára
01.05.1995 - 01.05.2020
Tveir góðir úr nýju netunum
Reynsla • Þekking • Gæði
heimavik.is, s. 892 8655
Bílar
Toyota Auris til sölu
Nýskr. 11/2007. Ek. 82 þús. km.
Bensín, beinsk., 5 gíra, 4ra dyra,
dökk blár. 4 ný heilsársdekk/vara-
dekk. Næsta skoðun 2021.
Smurbók(/þjónustubók. Reyklaust
ökutæki. Topp eintak.
Verð kr. 690.000.
Upplýsingar í síma 899 2599.
Til sölu Suzuki Grand Vitara
árgerð 2006, ek. 205.000 km.
Sjálfskiptur. Nýtt púst Góð smurbók.
Fínn bíll. Verð 590.000 kr
Uppl. í síma 824-4184
Til sölu Mercedes Benz SLK 230
árg. ‘97 til sölu. Ek. 137 þús. km.
Ný skoðaður. Innfl. nýr af Ræsi.
Verð kr. 1377 þús.
Upplýsingar í 768 7000.
Húsviðhald
mbl.is
alltaf - allstaðar
Atvinnublað
Morgunblaðsins
fimmtudaga og laugardaga
Er atvinnuauglýsingin þín
á besta stað?
Sendu pöntun á atvinna@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569 1100
Allar auglýsingar birtast í
Mogganum, á mbl.is og finna.is
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra horn-
inu efst og viðeigandi liður,
„Senda inn minningargrein,“ val-
inn úr felliglugganum. Einnig er
hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og hve-
nær sá sem fjallað er um fæddist,
hvar og hvenær hann lést og loks
hvaðan og klukkan hvað útförin
fer fram. Þar mega einnig koma
fram upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn. Ætlast er
til að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður, en
ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Minningargreinar