Morgunblaðið - 04.07.2020, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020
Ríkiskaup
Allar útboðsauglýsingar eru birtar á
utbodsvefur.is
Utbodsvefur.is er sameiginlegur auglýsingavettvangur opinberra
útboða. Á vefsvæðinu eru birtar auglýsingar og eða tilkynningar
um fyrirhuguð innkaup opinberra aðila sem falla undir lög og
reglugerðir um opinber innkaup.
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík
Sími 563 9300 | www.landsnet.is
ÚTBOÐ
Landsnet óskar eftir
tilboðum í jarðvinnu,
byggingu og fullnaðar-
frágang tengivirkja
á Hólasandi og
Rangárvöllum.
Opnun tilboða verður fimmtudaginn
13. ágúst 2020 kl. 14:00 hjá Landsneti
að Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar eru á
útboðsvef Landsnets, utbod.landsnet.is
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Auglýsing um
sveitarstjórnarkosningar
Sveitarstjórnarkosningar í sameinuðu
sveitarfélagi Borgar fjarðar hrepps,
Djúpavogs hrepps, Fljótsdalshéraðs og
Seyðisfjarðar kaupstaðar 19. september
2020
Samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðuneytið hefur, með vísan til
125. gr. sveitarstjórnarlaga nr.
138/2011, ákveðið að boða skuli til
sveitarstjórnarkosninga í sameinuðu
sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps,
Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs
og Seyðisfjarðarkaupstaðar, hinn 19.
september 2020. Jafnframt fer fram
kosning í fjórar heimastjórnir hins
sameinaða sveitarfélags.
Frestur til að skila framboðslistum
til yfirkjörstjórnar í hinu sameinað
sveitarfélagi er til kl. 12 á hádegi
laugardaginn 29. ágúst 2020.
Sveitarstjórnarmenn sem hyggjast
skorast undan endurkjöri skulu tilkynna
þá ákvörðun til yfirkjör stjórnar fyrir lok
framboðsfrests.
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla hefst
25. júlí 2020.
Þetta auglýsist hér með samkvæmt
2. mgr. 1. gr. laga um kosningar til
sveitarstjórna nr. 5/1998.
Dómsmálaráðuneytinu, 3. júlí 2020.
Reykja vík ur borg
Innkaupaskrifstofa
Borg artún 12-14, 105 Reykja vík
Sími 411 1042 / 411 1043
Bréfsími 411 1048
Netfang: utbod@reykjavik.is
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Uppsetning og rekstur hleðslustöðva fyrir rafbíla í
Reykjavík, útboð 14923
• Hverfið mitt 2020 - austur. Almenningssalernihús í
Gufunesi, útboð nr. 14921.
• Skógarhús við Funaborg – Alútboð nr. 14831
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
ÚTBOÐ
Tilkynningar
Umsjónarþroskaþjálfi
Vestmannaeyjabær óskar eftir að ráða
umsjónarþroskaþjálfa í 80% starf.
Umsjónarþroskaþjálfi starfar á fjölskyldu- og fræðslusviði
og hefur umsjón og ábyrgð með verkefnum sem yfir-
maður felur honum og eru meðal annars tengd þjónustu
við fólk með fötlun. Starfið felur í sér bein áhrif á vellíðan
og velferð fólks með fötlun og aðstandenda þeirra. Ums-
jónarþroskaþjálfi hefur umsjón og eftirlit með þjónustu
sveitarfélagsins og stofnana þess á þjónustu við fatlað
fólk í samstarfi og samráði við sinn yfirmann.
Helstu verkefni:
• Umsjón og eftirlit með þjónustu sveitarfélagsins við fatlað
fólk í samstarfi við framkvæmdastjóra sviðs og forstöðu-
menn stofnana.
• Sinnir greiningu og ráðgjöf ásamt fræðslu, leiðsögn og
stuðningi við þjónustunotendur og starfsmenn.
• Hefur yfirlit yfir þjónustuþega og þá þjónustu sem veitt er
og vinnur þjónustumat í samstarfi við aðra sérfræðinga.
• Umsjón m.a. með SIS mati, notendasamningum, umönnun-
argreiðslum og þjónustu stuðningsfjölskyldna.
• Tengiliður við greiningarstofnanir og aðra þjónustuaðila
fatlaðs fólks.
• Vinna með reglur, gæðamarkmið og nýsköpun innan mála-
flokks fatlaðs fólks í samvinnu við framkvæmdastjóra sviðs.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Starfsréttindi sem þroskaþjálfi.
• Framhaldsnám á háskólastigi sem nýtist í starfi.
• Víðtæk stjórnunarreynsla sem nýtist í starfi.
• Góð samskipta- og samstarfshæfni.
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
• Skipulögð vinnubrögð og faglegur metnaður.
• Góð tölvukunnátta.
• Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn sendist á jonp@vestmannaeyjar.is merkt
„Umsjónarþroskaþjálfi“. Ekki er sótt um á sérstökum
eyðublöðum en umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá,
rökstuðningi fyrir ráðningu auk annarra gagna er málið
varðar.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn sendist á jonp@vestmannaeyjar.is merkt
„Umsjónarþroskaþjálfi“. Ekki er sótt um á sérstökum
eyðublöðum en umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá,
rökstuðningi fyrir ráðningu auk annarra gagna er málið
varðar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitafélaga og Þroskaþjálfafélags Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 24. júlí 2020. Nánari
upplýsingar um starfið veitir Jón Pétursson framkvæm-
dastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs í síma 488-2000 eða í
gegnum netfangið jonp@vestmannaeyjar.is.
www.vestmannaeyjar.is
Raðauglýsingar 569 1100
Skjól hjúkrunarheimili óskar eftir
hjúkrunarfræðingi í stöðu
forstöðumanns hjúkrunar.
Skjól hjúkrunarheimili er samrekið með Eir
hjúkrunarheimili og Hömrum hjúkrunarheimili og
lýtur sameiginlegri yfirstjórn. Starfsmenn Skjóls eru
150 og heyrir forstöðumaður hjúkrunar beint undir
framkvæmdastjóra hjúkrunarsviðs Eirar, Hamra og
Skjóls og er jafnframt staðgengill hans. Æskilegt að
viðkomandi geti hafið störf 14. september 2020.
Starfs- og ábyrgðarsvið
– Forstöðumaður hjúkrunar leiðir og ber ábyrgð á
daglegum rekstri heimilisins.
– Hann er forsvarsmaður hjúkrunar á Skjóli og ber
faglega ábyrgð á hjúkrunarþjónustu heimilisins.
– Hann kemur að stefnumótun og
skipulagsmálum og vinnur náið með forstjóra
og framkvæmdastjórum Eirar, Hamra og Skjóls
á sviði áætlunargerðar, eftirlits, rekstrar og
starfsmannamála sem og öðrum málum sem
varða fjármál og rekstur heimilanna.
Hæfnikröfur
– B.Sc. próf í hjúkrunarfræði og leyfisbréf frá
Embætti landlæknis
– Reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi skilyrði
– Æskilegt að hafa lokið framhaldsnámi í stjórnun
eða annarri menntun sem nýtist í starfi
– Reynsla af öldrunarhjúkrun er kostur
Umsóknarfrestur er til og með 19. júlí 2020
og hvetjum við alla áhugasama sem uppfylla
ofangreindar hæfnikröfur til að sækja um starfið.
Umsókn þarf að fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt
afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Umsóknir skulu
berast rafrænt gegnum heimasíðu heimilisins www.
skjol.is. Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Högnadóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunarsviðs á Eir, Hömrum og
Skjóli í síma 522-5757 eða á kristinh@eir.is.
Skjól hjúkrunarheimili – Kleppsvegi 64, 104 Reykjavík – Sími 522 5600
Forstöðumaður
hjúkrunar óskast
Tilboð/útboð
Raðauglýsingar