Morgunblaðið - 04.07.2020, Side 38
Hefur setið í fjölda annarra stjórna
og nefnda.
Jóhann hefur skrifað tugi greina í
erlend vísindatímarit sem skiptast að-
allega í greinar um rákótta vilja-
stýrða vöðva, slétta vöðva melting-
arvegar, slétta vöðva æða,
faraldsfræði áhættuþátta hjarta- og
æðasjúkdóma og áhrif umhverfis- og
erfðaþátta á tíðni skammdegisóyndis
(SAD) á Íslandi og í Kanada. Jóhann
var sæmdur riddarakrossi hinnar ís-
lensku fálkaorðu árið 2004, fyrir vís-
indastörf.
þróun rannsókna og kennslu í lífeðlis-
fræði á Íslandi.
Jóhann var í kennslunefnd lækna-
deildar 1966-72, í deildarráði 1971-76,
deildarforseti 1972-74 og gegndi að
auki ýmsum öðrum trúnaðarstörfum í
þágu deildarinnar. Í nefnd til undir-
búnings BA-náms í líffræði, landa-
fræði og jarðfræði 1967. Ráðgjafi um
undirbúning BS-náms í hjúkrunar-
fræðum við HÍ og ráðgjafi HA um
það nám. Hann var forseti 17. þings
norænna lífeðlis- og lyfjafræðinga,
sem haldið var í Reykjavík 1982.
U
m komu sína í heiminn
hefur Jóhann Axelsson
skemmtilega sögu að
segja: „Það var sólskin
á Siglufirði þennan
dag fyrir 90 árum þegar Inga ól son í
Lækjargötu og lagði í vöggu.
Pabbinn, Axel, var þá í róðri á
Draupni. Þegar hann var kominn að
landi og hafði snyrt sig og kysst konu
sína, staðnæmdist hann við vögguna,
leit á son sinn og mælti: „Mikið ertu
ljótur vinur, þú ert víst líkur mér.“ Ég
kom ekki niður á bryggju að ég væri
ekki spurður: „Ert þú ekki sonur
hans Axels?““
Jóhann ólst upp á Siglufirði fram á
menntaskólaár, en þá flutti fjöl-
skyldan til Akureyrar. Hann lauk
stúdentsprófi frá MA 1950 og kenndi
við barna- og unglingaskólann á
Seyðisfirði veturinn 1950-51.
Á árunum 1951-55 var Jóhann við
nám í Ósló og Kaupmannahöfn og
lauk mag.scient.-prófi í lífeðlisfræði
frá Farmakologisk Institut í Ósló
1956. Framhaldsnám stundaði hann
við Centre Etude du Physiologie
Nerveuse et Electrophysiologi í París
1957 og lauk licentiat-prófi í lífeðlis-
fræði frá Zoofysiologiska Institut-
ionen í Lundi 1958 og doktorsprófi í
þeirri grein frá sömu stofnun 1962.
Jóhann hlaut svo hinn eftirsótta Ri-
ker-styrk við Department of Pharma-
cology í Oxford 1959 og vann að rann-
sóknum og kennslu við þá stofnun til
1962 og lauk þaðan doktorsprófi 1964.
Jóhann var settur prófessor við há-
skólann í Gautaborg 1962- 3, dósent
og síðan rannsóknadósent við sama
háskóla 1964-5. Jóhann var svo pró-
fessor við læknadeild HÍ frá 1965 og
veitti jafnframt forstöðu og hafði
frumkvæði að stofnun Rannsóknar-
stofnunar HÍ í lífeðlisfræði.
Prófessor Jóhann Axelsson er sá
íslenski lífeðlisfræðingur sem oftast
hefur verið vitnað í í ritrýndum tíma-
ritum. Rannsóknir hans hafa snert
margvísleg svið taugalífeðlisfræð-
innar og lífeðlisfræði vöðva og hefur
hann átt mikilvægt frumkvæði að
Jóhann hlaut einnig Stúdenta-
stjörnuna sem stúdentar veittu, 1.
desember 1971, fyrir framúrskarandi
störf á sviði raunvísinda.
Hvatningarverðlaun Jóhanns
Axelssonar eru verðlaun sem Félag
íslenskra lífeðlisfræðinga veitir efni-
legum vísindamanni fyrir verkefni á
sviði lífeðlisfræði eða skyldra greina.
Jóhann hefur alla tíð verið áhuga-
maður um listir og hefur gegnum tíð-
ina kynnst mörgum listamönnum og
eignast verk eftir þá. Má þar nefna
Erró, Sverri Haraldsson, Karl Kvar-
an, Kristján Davíðsson og fleiri. Hann
hefur fylgst vel með listalífinu og sótt
sýningar og tónleika og eignast
marga góða vini úr hópi listafólks.
Fjölskylda
Jóhann kvæntist Guðrúnu Frið-
geirsdóttur, lífefnafræðingi og skóla-
stjóra í Reykjavík, f. 1.6. 1930, en þau
skildu. Með Guðrúnu eignaðist Jó-
hann soninn Axel, f. 15.1. 1951, bú-
settan í Ástralíu. Axel á fimm börn:
Ellu, Alexöndru, Christopher, Matth-
ias og Selmu, og þrjú barnabörn.
Með Kristínu Valdimarsdóttur sál-
fræðingi, f. 9.9. 1947, eignaðist Jó-
Jóhann Axelsson prófessor emeritus í lífeðlisfræði við læknadeild HÍ – 90 ára
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jöfur Jóhann Axelsson er mikill áhugamaður um listir og sá íslenski líf-
eðlisfræðingur sem oftast hefur verið vitnað í í ritrýndum tímaritum.
Hefur leitt rannsóknir
og kennslu í lífeðlisfræði
Kátur Jóhann fimm ára gamall.
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020
50 ára Guðbjörg
fæddist í Reykjavík og
býr þar í dag. Hún út-
skrifaðist með BSc. í
líffræði frá Háskóla Ís-
lands í júní 1993. Vann
tvö ár á Rannsókna-
stofu í lífeðlisfræði hjá
Háskóla Íslands. Útskrifaðist með
Cand.Sci í líffræði frá Kaupmanna-
hafnarháskóla í nóvember 1997. Starfaði
hjá Íslenskri erfðagreiningu frá janúar
1998 til mars 2012 en hóf þá störf hjá
Lyfjastofnun.
Maki: Í sambúð með Gunnari Ásbirni
Bjarnasyni verkfræðingi, f. 16.3. 1962.
Foreldrar: Ingigerður Gissurardóttir
húsmóðir, f. 2.4. 1944, og Örlygur Bene-
diktsson vélvirkjameistari, f. 28.1. 1943.
Guðbjög Þuríður
Örlygsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Dagurinn í dag er kjörinn til þess
að eyða í hópi góðra vina og njóta þess að
slappa af. Fólk er umfram allt mannlegt og
þú getur ekki búist við að það geri of mikið.
20. apríl - 20. maí
Naut Það getur reynst nauðsynlegt að
taka smávægilega áhættu til þess að hlut-
irnir gangi upp eins og best verður á kosið.
Hafðu það í huga.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Færni þín kemur að góðum not-
um, og það er góð tilfinning. Hugsaðu um
hvernig þú vilt bæta samskipti þín við fjöl-
skylduna.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú sérð einhvern í nýju ljósi í dag,
hugsanlega manneskju sem þú berð mikla
virðingu fyrir. Fátt gefur þér meira en ný
upplifun.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ef þú kannt að meta það sem þú hef-
ur, gera aðrir það líka. Taktu mark á því
sem vel er meint.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Samræður við maka þinn skipta
óvenju miklu máli þessa dagana. Sumar
skipta þig litlu máli, en aðrar geta hjálpað
þér verulega.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert ekki til stórræðanna árdegis en
munt bæta það upp síðdegis. Láttu ekki
koma þér úr skorðum, þú þarft bara að
eyða svolitlum tíma í að leysa vandamálin.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Notaðu daginn til þess að
leiða hjá þér hvað öðrum finnst. Notaðu
tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur
á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Samskipti þín við fólk eru svo
nákvæm og næm að þú þarft næstum
aldrei að hækka röddina til að leggja
áherslu á mál þitt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ástvinir eiga það til að láta öll-
um illum látum bara til að fara í pirrurnar á
þér. Hver sem stefnan er, fylgdu henni
alltaf.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þar sem þú hefur lagt hart að
þér að undanförnu er nú kominn tími til að
þú dekrir svolítið við sjálfan þig og þína
nánustu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þeir eru margir sem vilja ræða mál-
in við þig. Reyndu að einbeita þér að færri
hlutum sem þú getur þá klárað.
50 ára Örn fæddist á
Ísafirði og á lögheimili
þar í dag. Hann er
menntaður sjóntækja-
fræðingur, skipstjóri
og vélstjóri.
Maki: Áslaug Sif
Gunnarsdóttir viður-
kenndur bókari, f. 18.2. 1969.
Börn: Matthildur vélaverkfræðingur, f.
1990, Guðrún hagfræðingur, f. 1995,
Dýrfinna nemi, f. 1998, Bára Sif við-
skiptafræðingur, f. 1992, Gunnar Þór
nemi, f. 2001, Embla Laufey nemi, f.
1997. Hann á eitt barnabarn, Elínu Odd-
geirsdóttur, f. 2019 (dóttur Matthildar).
Foreldrar: Torfi Björnsson skipstjóri, f.
30.11. 1927 og Sigríður Kroknes, f. 9.8.
1933.
Örn
Torfason
Til hamingju með daginn
BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
sumarútsala
allt að 40% afsláttur
af útsöluvörum
Shea flip tungusófi 233cm kr. 176.000
Færanleg tungueining
Nú kr. 132.000
-25%
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is