Morgunblaðið - 04.07.2020, Page 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020
Eins og staðan er í dag eru
fjögur úrvalsdeildarlið í sóttkví
vegna kórónuveirufaraldursins.
Þrjú kvennalið, Breiðablik, Fylkir
og KR og eitt karlalið, Stjarnan.
Maður breytir ekki því liðna,
eins og apinn Rakifi sagði svo
eftirminnilega í Disney-myndinni
Konungi ljónanna árið 1994.
Maður veltir því fyrir sér, því
það er alltaf hægt að vera vitur
eftir á, hvort hlutirnir hefðu ver-
ið gerðir öðruvísi ef fólk hefði
verið meðvitað um útkomuna.
Ég gef mér það að svarið við
þessari spurningu sé einfalt já
enda ekki beint óskastaða hjá
neinu liði.
Það verður einnig áhugavert
að sjá hvernig liðin munu koma
út á völlinn eftir tveggja vikna
hlé. Fyrstu leikir tímabilsins eru
ekki síst mikilvægir enda tekur
alltaf tíma að koma sér í gang
og finna taktinn. Kvennalið
Breiðabliks mun berjast við
Valskonur um titilinn og að
missa Hlíðarendaliðið sex stig-
um fram úr sér getur ekki verið
þægilegt snemma móts.
Gróttumenn sýndu frábært
frumkvæði í gær þegar þeir
lýstu því yfir að nýjasti leik-
maður þeirra myndi fara beint í
sóttkví við komuna til landsins.
Hann verður í sóttkví eitthvað
fram á næstu viku og missir því
af næstu tveimur leikjum liðs-
ins. Allir leikir eru úrslitaleikir
fyrir Gróttuna og því er þetta
einstaklega fagmannlega gert.
Þau lið sem fengu til sín er-
lenda leikmenn í glugganum
eiga að sjálfsögðu að gera slíkt
hið sama og Grótta er að gera,
annað er fásinna. Það er allt of
mikið undir til þess að taka ein-
hverja óþarfa áhættu því að það
þarf ekki nema eitt smit til þess
að setja allt á hliðina eins og
dæmin hafa sýnt.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Vivaldi-völlur: Grótta – HK................... L14
Extra-völlur: Fjölnir – Fylkir ............... L14
Meistaravellir: KR – Víkingur R .......... L17
Greifavöllur: KA – Breiðablik................ S16
1. deild karla, Lengjudeildin:
Olísvöllur: Vestri – Grindavík ............... L14
2. deild karla:
Fjarðab.höll: Fjarðabyggð – Víðir........ L13
3. deild karla:
Fagrilundur: Augnablik – Höttur/Hug L13
Vopnafjarðarv.: Einherji – Reynir S L13.30
Sindravellir: Sindri – Elliði.................... L16
Sauðárkróksv.: Tindastóll – KFG ......... S19
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Vodafonev.: Völsungur – Fjölnir........... L16
2. deild kvenna:
Vilhjálmsvöllur: FHL – HK................... S14
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Meistaramót Íslands fyrir 11-14 ára fer
fram á Sauðárkróki um helgina. Keppni
hefst klukkan 9 í dag og lýkur um kl. 16 á
morgun. Á þriðja hundrað keppendur eru
skráðir til leiks.
UM HELGINA!
FÓTBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
ÍA vann afar sannfærandi 4:1-sigur
á meistaraefnunum í Val er liðin
mættust í fyrsta leik 4. umferðar
Pepsi Max-deildar karla í fótbolta á
Hliðarenda í gærkvöld.
Viktor Jónsson skoraði fyrsta
mark ÍA strax á fjórðu mínútu og
þegar flautað var til leiksloka var
hann búinn að leggja upp þrjú til við-
bótar á Tryggva Hrafn Haraldsson,
Bjarka Stein Bjarkason og Steinar
Þorsteinsson. Patrick Pedersen
minnkaði muninn í 3:1 með eina
marki Vals snemma í seinni hálfleik.
Eru bæði lið með sex stig; tvo sigra
og tvö töp. Valsmenn, sem flestir
spáðu Íslandsmeistaratitlinum, hafa
þar með tapað báðum heimaleikjum
sínum til þessa. Sigurinn var sá
fyrsti á útivelli hjá ÍA í sumar.
„Skagamenn voru afar klókir í
fyrri hálfleik, pressuðu vörn Vals-
manna á hárréttum augnablikum og
þegar þeir unnu boltann voru þeir
beinskeyttir og sóttu hratt á ráð-
þrota vörn Valsmanna. Fótbolti
snýst fyrst og fremst um það að nýta
færin sín og það gerðu leikmenn ÍA
á meðan Valsmenn voru úti á túni
fyrir framan markið,“ skrifaði
Bjarni Helgason um leikinn á mbl.is.
Landsliðsmarkvörðurinn Hann-
es Þór Halldórsson lék 350. deildar-
leik sinn á ferlinum. Af þeim eru 170
í efstu deild hér á landi.
Birkir Már Sævarsson, félagi
Hannesar í landsliðinu til margra
ára, lék 100. leik sinn í efstu deild, en
þeir hafa allir komið með Val.
Viktor Jónsson skoraði tíunda
mark sitt í efstu deild. Fimm af þeim
hafa komið fyrir Víking Reykjavík
og fimm fyrir ÍA.
Skagamenn völtuðu
yfir ráðþrota Valsara
Viktor skoraði eitt og lagði upp þrjú Valur án stiga á heimavelli í sumar
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Burst Sindri Snær Magnússon úr ÍA lætur Danann Patrick Pedersen hjá
Val finna fyrir því á Hlíðarenda í gærkvöld í 4:1-sigri Skagamanna.
Tindastóll gerði góða ferð í Foss-
voginn og vann þar 2:1-sigur á Vík-
ingi Reykjavík í Lengjudeild
kvenna í fótbolta í gærkvöld. Tinda-
stóll er með sjö stig, eins og topplið
Keflavíkur, tveimur stigum á undan
Haukum og Gróttu. Aldís María Jó-
hannsdóttir kom Tindastóli yfir á
27. mínútu en Rut Kristjánsdóttir
jafnaði fyrir Víking tíu mínútum
síðar og var staðan í hálfleik 1:1. Í
seinni hálfleik voru gestirnir hins
vegar sterkari og Murielle Tiernan
og Laufey Harpa Halldórsdóttir
tryggðu þeim góðan sigur.
Tindastóll upp að
hlið toppliðsins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Toppurinn Tindastóll fór upp að
hlið Keflavíkur í toppsætinu.
Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir
Annerud hafnaði í öðru sæti á
Leichtathletik-mótinu í Luzern í
Sviss í gær. Ásdís kastaði lengst
61,32 metra, tæpum þremur metr-
um styttra en þýski Evrópumeist-
arinn Christin Hussong sem bar
sigur úr býtum. Ásdís keppti á
Bottnarydskastet-mótinu í Svíþjóð
síðastliðinn sunnudag og kastaði þá
62,66 metra en Íslandsmet hennar
er 63,43 metrar. Það setti hún árið
2017. Annika-Marie Fuchs frá
Þýskalandi varð þriðja með kast
upp á 59,03 metra.
Í öðru sæti á eftir
Evrópumeistara
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Spjót Ásdís varð önnur á eftir
Evrópumeistaranum í Sviss.
VALUR – ÍA 1:4
0:1 Viktor Jónsson 4.
0:2 Tryggvi Hrafn Haraldsson 29.
0:3 Bjarki Steinn Bjarkason 38.
1:3 Patrick Pedersen 51.
1:4 Steinar Þorsteinsson 73.
MM
Viktor Jónsson (ÍA)
Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA)
M
Steinar Þorsteinsson (ÍA)
Sindri Snær Magnússon (ÍA)
Aron Kristófer Lárusson (ÍA)
Bjarki Steinn Bjarkason (ÍA)
Stefán Teitur Þórðarson (ÍA)
Marcus Johansson (ÍA)
Patrick Pedersen (Val)
Sigurður Egill Lárusson (Val)
Sebastian Hedlund (Val)
Dómari: Egill Arnar Sigurþórss. – 6.
Áhorfendur: 922.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl
og grein um leikinn – sjá mbl.is/
sport/fotbolti.
Fjölnir gæti teflt fram ungverska
knattspyrnumanninum Péter Zac-
hán gegn Fylki í Pepsi Max-deild
karla í dag en hann fékk leikheim-
ild með Grafarvogsliðinu í gær.
Zachán er 22 ára gamall miðvörður
sem kemur frá Paksi í efstu deild
Ungverjalands en hann á að baki
leiki með 21-árs landsliði þjóðar
sinnar. Viðureign Fjölnis og Fylkis
hefst klukkan 14 á Extra-vellinum í
Grafarvogi.
Ungverji til
Fjölnismanna
Framarar eru með fullt hús stiga í
Lengjudeild karla í fótbolta eftir 1:0-
sigur á Aftureldingu á Framvelli í
gærkvöld. Albert Hafsteinsson, sem
kom frá ÍA fyrir tímabilið, skoraði
sigurmark Fram á 56. mínútu.
Afturelding er enn án stiga. Fram
lék síðast í efstu deild árið 2014 en
þá féll liðið ásamt Þór Akureyri. Þór
er einnig með fullt hús stiga eftir
sigur á Þrótti á fimmtudag.
Eyjamenn eru sömuleiðis með
fullt hús stiga eftir 2:0-sigur á Vík-
ingi Ólafsvík. Enski framherjinn
Gary Martin skoraði bæði mörk
Eyjamanna í seinni hálfleik. Hefur
Martin skorað níu mörk í fimm leikj-
um í sumar, sex af þeim í tveimur
bikarleikjum og þrjú í deildinni.
Martin hefur alls skorað 22 mörk í
28 leikjum í 1. deildinni, en hann lék
þar fyrst með ÍA frá 2010 til 2011.
Víkingur Ólafsvík er með þrjú stig.
Þá var gærkvöldið afar gott fyrir
Leiknisliðin tvö. Leiknir Fáskrúðs-
firði vann fyrsta sigur sinn í deild-
inni í sumar er liðið gerði góða ferð
til Grenivíkur og vann 2:0 gegn
Magna. Fyrirliðinn Arkadiusz Jan
Grzelak gerði bæði mörk Leiknis.
Það fyrra kom úr víti á 15. mínútu og
það síðara á 58. mínútu er hann inn-
siglaði góðan sigur. Magni er enn án
stiga. Leiknir kom upp úr 2. deild-
inni síðasta sumar og er sigurinn sá
fyrsti hjá liðinu í 1. deild síðan 2017.
Leiknir úr Reykjavík er með sjö
stig eftir góða ferð til Keflavíkur.
Dagur Austmann Hilmarsson kom
Keflavík yfir með sjálfsmarki á 35.
mínútu en tvíburabróðir hans Máni
Austmann Hilmarsson jafnaði á 55.
mínútu. Aðeins fimm mínútum síðar
skoraði Daníel Finns Matthíasson
sigurmarkið, 2:1. Er Leiknir eina
taplausa lið deildarinnar sem ekki er
með fullt hús og því í fjórða sæti.
Keflavík er með sex stig, en liðið var
með fullt hús stiga fyrir gærkvöldið.
Lokaleikur umferðarinnar fer fram
á Ísafirði í dag klukkan 14 er Vestri
og Grindavík mætast.
Þrjú lið með fullt hús stiga
Fram og ÍBV upp fyrir Þór Akureyri
á markatölu Leiknisliðin unnu bæði
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Kassinn Magnús Þórðarson úr Fram tekur við boltanum með brjóstkass-
anum. Kristján Atli Marteinsson úr Aftureldingu fylgist með í gærkvöld.