Morgunblaðið - 04.07.2020, Síða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Ófáir skipuleggjendur listviðburða
hafa þurft að bregðast við óvæntum
aðstæðum undanfarna mánuði.
Þeirra á meðal eru sýningarstjór-
arnir Jóna Hlíf Halldórsdóttir, safn-
stjóri Gerðarsafns, og Brynja
Sveinsdóttir sem hafa sett saman
samsýninguna Þegar allt kemur til
alls. Sýningin opnar í dag, laugar-
daginn 4. júlí, á Gerðarsafni.
„Þessi sýning kemur eiginlega
upp vegna þess að við lentum
bæði í Covid og verkfalli fyrr í
vetur. Við þurftum að fresta
þremur sýningum. Helmingurinn
af þeim listamönnum sem áttu að
sýna búa erlendis þannig við
þurftum að bregðast skjótt við og
ákváðum að setja upp sýningu
sem er viðbragð við aðstæður í
samfélaginu þessa stundina, hug-
leiðing um það sem máli skiptir
fyrir núið, og innlegg í samtölin
sem eiga sér stað þessa dagana
um hvað drífur samfélagið áfram
og hvað skiptir okkur máli. Við
Brynja settumst niður og völdum
verk út frá því, verk sem sýna
fegurðina í hversdagsleikanum,
léttleika, húmor og leikgleði,“
segir Jóna Hlíf.
Til sýnis verða verk eftir tólf ís-
lenska samtímalistamenn. Það eru
þau Anna Hrund Másdóttir, Arna
Óttarsdóttir, Gjörningaklúbburinn
(Eirún Sigurðardóttir og Jóní
Jónsdóttir), Guðjón Ketilsson,
Haraldur Jónsson, Hildigunnur
Birgisdóttir, Klængur Gunnars-
son, Kristín Dóra Ólafsdóttir, Logi
Leó Gunnarsson, Ragnheiður
Káradóttir, Una Björg Magnús-
dóttir og Þór Sigurþórsson.
Öll verkin hafa verið sýnd áður,
en eru þó nokkuð nýleg, þau elstu
um 11 ára gömul. „Það er gaman
að geta gefið verkum nýtt líf og
sýna þau í nýju samhengi.“, segir
hún.
Að sögn Jónu eru verkin nokkuð
ólík en mörg þeirra tala vel saman.
Hún segir hreyfingu einkenna sýn-
inguna. „Mörg verkanna hreyfast
og fá líkamann til að bregðast við.“
Eitt verkanna sem er í miklu uppá-
haldi hjá Jónu er verk eftir Önnu
Hrund Másdóttur. „Það er dans-
andi hilla með mjög skemmtilegum
og fallegum, hversdagslegum hlut-
um. Það er frábært verk sem fær
öll skynfærin til að gleðjast.“
Opnun sýningarinnar verður
nokkuð óhefðbundin vegna farald-
ursins. Það verður engin formleg
opnun eins og venjan er þegar um
sýningar af þessu tagi er að ræða
heldur verður ókeypis aðgangur
allan daginn í dag og listamanna-
spjall kl. 15. „Við viljum sýna
ábyrgð og ekki taka þá áhættu að
of margir komi saman á þessum
óvissutímum.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sýningarstjórar „Við settumst niður og völdum verk sem sýna fegurðina í hversdagsleikanum, léttleika, húmor og
leikgleði,“ segir Jóna Hlíf (t.h.) um samstarf þeirra Brynju Sveinsdóttur. Til vinstri er verk Gjörningaklúbbsins.
Sýna fegurðina í
hversdagsleikanum
Sýningin Þegar allt kemur til alls opnuð í Gerðarsafni
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Jaðarlistahátíðin Reykjavík Fringe
hefst í þriðja sinn í dag, laugardag-
inn 4. júlí, og verður þétt dagskrá til
12. júlí. Viðburðirnir, sem spanna
allt frá uppistandi, myndlistarsýn-
ingum, kabarettum, dragi og leik-
listarsýningum til gjörninga hvers
konar, eru yfir fimmtíu talsins, ef
með eru talin erlend verk sem sýnd
verða í streymi. Þó segir hátíðar-
stjórinn Nanna Gunnars að hægt sé
að ná að sjá allar sýningarnar sem í
boði verða á hátíðinni ef maður
skipuleggur sig vel og það hyggst
hún sjálf gera.
Viðburðirnir dreifast á nokkra
staði í miðborg Reykjavíkur: The
Secret Cellar, Tjarnarbíó, Hlemmur
Square Hotel, Gallerí Fold og Hard
Rock Café. Auk þess verða einstaka
viðburðir hjá Samtökunum ’78 og
húðflúrstofunni White Hill Tattoo á
Laugaveginum. „Við leggjum
áherslu á að þetta sé allt í göngufæri
og að við séum með tvær aðal-
miðstöðvar, önnur er í Lækjargöt-
unni og hin við Hlemm,“ segir
Nanna.
Streymi frá ýmsum löndum
Brugðið var á það ráð vegna kófs-
ins að sýna verk erlendra listamanna,
sem komast ekki til landsins, í
streymi. Venjulega koma listamenn
víða að á hátíðina en nú verður verk-
um streymt frá ýmsum löndum, með-
al annars Ítalíu, Finnlandi, Svíþjóð,
Bretlandi, Bandaríkjunum og Ísrael.
Opnunarveisla hátíðarinnar fer
fram í kvöld, laugardaginn 4. júlí, á
Hótel Hlemmur Square og hefst með
opnunarsýningunni CRAPSHOOT!
Or Why Al Voted For Trump: A Love
Story sem verður sýnd í streymi frá
San Diego kl. 19. Fleiri spennandi við-
burðir verða þetta kvöld og geta gest-
ir meðal annars séð dragsýningu frá
Drag-súgi og nælt sér í húðflúr hjá
White Hill Tattoo.
Annað kvöld, sunnudaginn 5. júlí,
verður forsýningarkvöld haldið á
Hard Rock Café. „Það er einn af
mínum uppáhaldsviðburðum. Þá
koma allir saman. Fram að því er
maður bara búinn að sjá nöfnin á
blaði en þarna fær maður smá til-
finningu fyrir því hversu fjölbreytt
hátíðin er og hverju maður hefur
áhuga á,“ segir Nanna. Hver lista-
maður fær tvær mínútur til að kynna
sitt atriði. „Það veit í rauninni eng-
inn fyrir fram hvað er að fara að ger-
ast á þessu kvöldi, ekki einu sinni við
skipuleggjendurnir.“
Lærir á nýja miðla
Nanna segir að á hátíðinni í ár sé
lögð áhersla á að koma listafólki aft-
ur af stað eftir faraldurinn. „Það er
meira um verk í vinnslu. Fólk hefur
ekki komist í æfingahúsnæði og hef-
ur þurft að aðlaga verkin sín að
breyttum aðstæðum.“ Nanna nefnir
sem dæmi verk leikhópsins Spindrift
Theatre sem átti að vera sviðsverk
en ein listakonan er búsett í Finn-
landi og önnur í New York, svo þær
komast ekki til þess að sýna verkið.
„Þær eru búnar að gera vídeóverk
og hafa haft rosalega gaman af. Fólk
er að læra inn á nýja miðla og ég
held það verði athyglisvert að sjá
hvernig fólk nýtir sér streymið.
Sumir eru að gera það á mjög
skemmtilegan máta og nota streym-
ið á gagnvirkan hátt.“
Nanna segir skipulagninguna hafa
gengið upp og ofan en nú sé þetta
allt að smella saman. „Við ákváðum
strax að halda hátíðina, ég hélt að
ástandið myndi verða svona allt í lagi
hér á landi og það hefur gengið eftir,
enn betur en maður bjóst við. Við er-
um bara að kýla á þetta en dagskráin
er búin að breytast kannski svona
fimmtán sinnum,“ segir hún og hlær.
Nanna segist halda að þátttak-
endur séu þakklátir fyrir að hátíðin
verði haldin og að þeir fái tækifæri
til að vinna að sýningum. „Ég vona
að áhorfendur taki vel í það líka.“
Trúður Úr The Clown on the Fifth Floor, einu þeirra verka sem verður
streymt á hátíðinni. Yfir 50 verk verða sýnd, sum á sviði og önnur í streymi.
„Erum bara að
kýla á þetta“
Hátíðin Reykjavík Fringe hefst í dag
Fiðluleikarinn Una Sveinbjarnar-
dóttir heldur stofutónleika í Grön-
dalshúsi við Fischersund í dag,
laugardaginn 4. júlí kl. 14. Á efnis-
skrá verða meðal annars tvær af
einleikspartítum Johanns Sebastian
Bachs. Una mun einnig spinna út
frá partítunum á fiðlu Benedikts
Gröndals sem fjölskylda hans gaf
húsinu. Skáldið, lista- og fræðimað-
urinn Benedikt bjó í Gröndalshúsi
síðustu 20 ár ævinnar og þar er sýn-
ing um ævi hans og störf.
Una er vel þekkt fyrir fiðluleik
sinn og tónsmíðar. Hún hefur með-
al annars gefið frá sér plötuna Um-
leikis og samið tónlist fyrir leikhús
og kvikmyndir. Una er meðal stofn-
enda strengjakvartettsins Sigga og
er konsertmeistari Kammersveitar
Reykjavíkur.
Una spilar á fiðlu Benedikts Gröndals
Ljósmynd/Ágúst Atlason
Tónleikar Una Sveinbjarnardóttir
mun flytja partítur í Gröndalshúsi.
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
TENGISTYKKIN
DVERGARNIR R
Skoðið
nýju
heimas
íðuna
islands
hus.is
FÁST Í BYGGINGA-VÖRUVERSLUNUM
Sérsmíðuð tengistykki á dvergana
léttir vinnuna – margar tegundir