Morgunblaðið - 04.07.2020, Qupperneq 48
Útsalan er eingöngu í Kringlunni
552 2201
Kringlunni 552 8600
útsala
40%
afsláttur af öllum
útsöluvörum
Hljómsveitin ADHD kemur fram í stofunni á Gljúfra-
steini á morgun, sunnudag, og hefjast tónleikarnir
klukkan 16. Á undanförnum áratug hefur hljómsveitin
komið fram á tónleikum víða um lönd og alls staðar
vakið athygli fyrir einstakan stíl og tónleikaflutning.
Hljómsveitin gaf á síðasta ári frá sér sjöundu breiðskíf-
una, ADHD 7, og hefur hún hlotið mikið lof. Hljómsveit-
ina skipa bræðurnir Óskar og Ómar Guðjónssynir, á
saxófón og gítar, Matthías M.D. Hemstock á trommur
og Tómas Jónsson á alls kyns hljómborð.
ADHD kemur fram á tónleikum
á Gljúfrasteini á morgun
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 186. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Skagamenn unnu óvæntan en sanngjarnan sigur á
Valsmönnum, 4:1, þegar liðin mættust í fyrsta leik
fjórðu umferðar Pepsi Max-deildar karla í fótbolta á
Hlíðarenda í gærkvöld. Viktor Jónsson var í aðal-
hlutverki hjá Skagamönnum, en hann skoraði fyrsta
markið og lagði upp hin þrjú. »41
Magnaður sigur Skagamanna
gegn Val á Hlíðarenda
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Eyjafjallajökull hefur sterkan svip
og tekur sífelldum og endalausum
breytingum. Þar ráða veðráttan og
birta miklu; stundum lítur jökullinn
talsvert öðruvísi út um miðjan dag
en að morgni. Fyrst eftir eldgosið
fyrir tíu árum voru fannir hans ösku-
svartar í langan tíma og gáfu í kjöl-
farið talsvert eftir vegna bráðnunar.
Mér finnst áhugavert að fylgjast
með þessari framvindu,“ segir Sig-
rún Jónsdóttir, myndlistarkona á
Ásvelli í Fljótshlíð.
Kemur af sjálfu sér
Úr birturíkri vinnustofu Sigrúnar
blasa við Fljótshlíðin, Eyjafjalla-
jökull og Vestmannaeyjar. Teikn-
ingin í þessu umhverfi er sterk og
listakonan segir hana í rauninni búa
í undirmeðvitund sinni. „Ég er frá
Lambey, sem er hér næsti bær, og
hef búið nánast alla tíð. Jökullinn
var áberandi þegar litið var út um
gluggann á herberginu á æsku-
heimili mínu og ég hef hann enn fyr-
ir augunum alla daga. Eðlilega hefur
þetta áhrif. Margar myndanna sem
ég mála eru einmitt af keilulaga jökl-
inum eða skírskota til hans á ein-
hvern hátt. Þetta kemur nánast af
sjálfu sér,“ segir Sigrún.
Á fallegri mynd Sigrúnar sem hún
kallar Stuðningur eru faðir og sonur
saman að gróðursetja og hvað annað
en Eyjafjallajökull er í baksýn.
„Reyndar var myndin talsvert öðru-
vísi í fyrstu drögum. Bakgrunnurinn
var hlutlaus blár himinn og staðsetn-
ingin óráðin. Þegar á leið fannst mér
hins vegar sem eitthvað vantaði og
þá smellti ég jöklinum þarna inn,
sem kemur vel út,“ segir Sigrún.
Pýramídinn er framar
„Svo er hér önnur mynd þar sem
horft er til jökulsins en framar er
Stóri-Dímon; pýramídinn hér á aur-
unum. Í mörgum myndum birtast
heimahagarnir svona og ég flý þá
ekki. Mér finnst líka alltaf skemmti-
legast að mála land, umhverfi og
myndir með náttúrustemningu.“
Flestar myndir sínar vinnur Sig-
rún í akrýl, þó að hún grípi líka
stundum í olíulitina. „Akrýllinn er
fljótari að þorna og af því ræðst
valið. Já, mér finnst ákaflega gott að
eiga athvarf hér á vinnustofunni,
þetta er besta hugleiðsla sem hugast
getur,“ segir Sigrún, sem lauk námi
frá Myndlistar- og handíðarskóla Ís-
lands árið 1997 og starfar sem
grunnskólakennari á Hvolsvelli.
Myndlistin hefur þó jafnan verið
hennar hálfa líf, en faðir hennar Jón
Kristinsson, gjarnan nefndur Jóndi í
Lambey, var þekktur myndlistar-
maður á sinni tíð.
List í blóði systkina
„Systur mínar tvær, Þórhildur og
Katrín, sem báðar búa á höfuð-
borgarsvæðinu, hafa verið í mynd-
list. Einhverju sinni ræddum við að
halda saman sýningu – þá jafnvel
með Þorsteini bróður okkar sem er
garðyrkjumaður á Hvolsvelli og hef-
ur lagt sig eftir því að höggva mynd-
ir í stein. Listin er í blóði okkar
allra,“ segir Sigrún að síðustu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Listakona Sigrún Jónsdóttir í trjálundi sínum í Fljótshlíðinni hér með tvö falleg málverk úr nærumhverfi sínu.
Teikningin er sterk
Eyjafjallajökull í undirmeðvitund listakonu í Fljótshlíð