Morgunblaðið - 07.07.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2020
Alls voru 366 á biðlista eftir varan-
legri búsetu í hjúkrunarrými á
fyrsta ársfjórðungi ársins sam-
kvæmt samantekt sem embætti
Landlæknis hefur birt. „Á síðasta
degi ársins 2019 voru 404 ein-
staklingar á biðlista en biðlisti hefur
lengst mikið á síðustu 10 árum.
Flestir voru á biðlista á síðasta árs-
fjórðungi 2018 en á fyrri hluta ársins
2019 dró í fyrsta sinn úr fjölgun á
biðlista. Þróunin snerist aftur við í
lok árs og á fjórða ársfjórðungi 2019
voru að meðaltali 395 á biðlista,“
segir í úttekt Landlæknis.
Fram kemur að fyrir tæpum ára-
tug eða á árinu 2011 voru allir þeir
sem náð höfðu 67 ára aldri að með-
altali 34.348 talsins en 44.508 árið
2019. Meðalfjöldi á biðlista á hverja
tíu þúsund aldraða var 46 á fyrsta
ársfjórðungi árið 2011 en hlutfallið
hafði aukist í 89 af hverjum tíu þús-
und á fjórða ársfjórðungi í fyrra og á
fyrsta ársfjórðungi 2020 var að með-
altali 81 á móti hverjum tíu þúsund á
biðlista.
76% fjölgun frá 2011
„Fjölgun á biðlista frá fyrsta árs-
fjórðungi 2011 til fyrsta ársfjórð-
ungs 2020 nemur 76% þegar tekið er
tillit til mannfjölda en 132% þegar
eingöngu er horft á fjölda ein-
staklinga,“ segir í samantektinni.
Fram kemur að sá fjöldi sem er á
biðlista hverju sinni sýni aðeins
hluta af heildarmyndinni. Mikilvægt
sé að skoða hversu lengi fólk þarf að
bíða eftir að það fær samþykkt
færni- og heilsumat. Ef litið er á
þann fjölda sem fékk hjúkrunarrými
á hverju ári á umliðnum áratug og
hversu stórt hlutfall þeirra þurfti að
bíða lengur en 90 daga eftir rýminu
kemur í ljós að á síðasta ári biðu 46%
lengur en 90 daga eftir rými. Af
þeim sem fengu hjúkrunarrými á
fyrstu þremur mánuðum yfirstand-
andi árs biðu um 40% lengur en 90
daga og var miðgildi biðtímans 73
dagar. Þannig biðu 60% í níutíu daga
eða skemur en markmið stjórnvalda
er að 65% fái hjúkrunarrými innan
90 daga á árinu 2020.
Bent er á að á síðasta ári bættust
við ný hjúkrunarrými á Seltjarn-
arnesi og í Hafnarfirði. „Fjölgun á
hjúkrunarrýmum á höfuðborgar-
svæðinu virðist hafa haft jákvæð
áhrif á fjölda á biðlista á fyrri hluta
árs 2019 en aftur fjölgaði á biðlista á
síðari hluta ársins. Eftir opnun á
nýju hjúkrunarheimili með 99 hjúkr-
unarrýmum á Sléttuvegi í Reykjavík
hinn 28. febrúar á þessu ári hefur
einstaklingum á biðlista aftur fækk-
að. Einstaklingar sem lágu á Land-
spítala fengu forgang í þessi nýju
rými vegna viðbúnaðar á Landspít-
ala í tengslum við heimsfaraldur
COVID-19.
Alls er áætlað að opna 568 ný rými
á landsvísu til ársins 2023.“
Fæst rými á Vestfjörðum
Staðan er mismunandi eftir lands-
hlutum. Hlutfallslega fæst hjúkr-
unarrými á hverja 1.000 aldraða eru
á Suðurnesjum. Á Vestfjörðum hef-
ur hlutfall fólks sem beið lengur en
90 daga verið svipað og á landsvísu.
Opnun nýrra hjúkrunarrýma á höf-
uðborgarsvæðinu hefur haft jákvæð
áhrif, en einstaklingum á biðlista
hefur fækkað umtalsvert á fyrstu
þremur mánuðum ársins. Á síðustu
árum hefur aðgengi að hjúkrunar-
rýmum á Vesturlandi verið betra en
víða annars staðar á landinu. Biðlist-
ar hafa hins vegar lengst umtalsvert
frá árinu 2017. omfr@mbl.is
Biðlistar hafa
lengst mikið á
síðustu 10 árum
366 á biðlistum eftir hjúkrunarrým-
um á fyrsta ársfjórðungi ársins 2020
Malbikið sem nú er verið að endur-
leggja á kafla Vesturlandsvegar á
Kjalarnesi er eins og til er ætlast,
samkvæmt upplýsingum Vegagerð-
arinnar. Sömu sögu er að segja um
mælingar á viðnámi kafla sem end-
urnýjaður var á Gullinbrú sl.
fimmtudag.
Framkvæmdir við að leggja nýtt
malbik á Vesturlandsveg á milli
Grundarhverfis á Kjalarnesi og
Hvalfjarðarganga hófust í gær. Lagt
var á akreinina sem liggur norður að
göngum og var búist við að verkið
stæði fram á kvöld. Í dag verður lagt
á akreinina sem notuð er til aksturs í
suður og á því verki að ljúka í kvöld.
Þessa tvo daga verður því önnur ak-
reinin ávallt lokuð á kafla og umferð-
inni handstýrt á meðan. Er því lík-
legt að nokkrar umferðartafir verði.
Banaslys á hálu malbiki
Ástæða þess að nýlagt malbik var
fræst upp og nýtt lagt yfir er að
fyrra yfirborð stóðst ekki kröfur um
viðnám. Það sýndu mælingar Vega-
gerðarinnar sem gerðar voru eftir
að þar varð alvarlegt slys á sunnu-
daginn fyrir rúmri viku. Tveir létust
og einn var fluttur til aðhlynningar á
sjúkrahúsi vegna meiðsla.
Skýringar hafa ekki fengist á
ástæðum þess að slitlagið varð hálla
en til var ætlast en ljóst að veðurað-
stæður hjálpuðu ekki til. Sýni voru
tekin fyrir helgi og verða þau send
til rannsóknar til Svíþjóðar og Ný-
sköpunarmiðstöðvar Íslands í vik-
unni. Sólveig Gísladóttir, sérfræð-
ingur hjá samskiptadeild
Vegagerðarinnar, á von á því að
fyrstu niðurstöður berist í þessari
eða næstu viku en niðurstöður úr
sérhæfðari rannsóknum berist þó
ekki fyrr en síðar.
Sólveig segir að lagning malbiks-
ins í gær hafi gengið vel og gæði þess
verið eins og lagt hafi verið upp með.
Sama sýni viðnámsmælingar sem
Vegagerðin hafi gert á malbiki sem
sami verktaki, Loftorka, endurlagði
á Gullinbrú sl. fimmtudag. Búið er
að fræsa fáeina kafla á höfuðborg-
arsvæðinu sem verktakinn hafði lagt
sem ekki stóðust kröfur en ekki búið
að malbika þá að nýju. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Kjalarnes Búast má við umferðartöfum á meðan nýtt malbik er lagt. Lagt var á akreinina í norður í gær.
Nýja malbikið er
eins og til var ætlast
Nýtt malbik lagt á slysakaflann á Kjalarnesi í gær og dag
Reglugerð menntamálaráðherra um
fyrirkomulag við úthlutun 400 millj-
óna króna sérstaks rekstrarstuðn-
ings við einkarekna fjölmiðla til að
mæta efnahagslegum áhrifum kór-
ónuveirufaraldursinsiggur nú fyrir
og hefur verið birt.
Úthluta á samtals 400 milljónum
króna til einkarekinna fjölmiðla
vegna þessa. Stuðningurinn verður
að hámarki 25% af stuðningshæfum
rekstrarkostnaði umsækjenda en
stuðningur til hvers umsækjanda
getur ekki orðið hærri en sem nem-
ur 25% af þeirri fjárveitingu sem
Alþingi hefur úthlutað til sérstaks
rekstrarstuðnings.
Mat á umsóknum verður í
höndum fjölmiðlanefndar
Undir stuðningshæfan rekstrar-
kostnað fellur beinn launakostnaður
fjölmiðils til blaða- og fréttamanna,
ritstjóra og aðstoðarritstjóra,
myndatökumanna og ljósmyndara á
árinu 2019 vegna miðlunar á frétt-
um og fréttatengdu efni og beinar
verktakagreiðslur til sambærilegra
aðila.
„Fari svo að heildarfjárhæð sam-
þykktra umsókna um stuðningshæf-
an rekstrarkostnað verði umfram
fjárveitingar Alþingis skerðist
stuðningurinn til allra umsækjenda
í jöfnum hlutföllum,“ segir í frétt
um málið á vefsíðu stjórnarráðsins.
Fram kemur að umsjón með um-
sóknarferli og mat á umsóknum
verður í höndum fjölmiðlanefndar
og mun hún skila tillögum um út-
hlutun stuðningsins til ráðherra.
Umsóknir skulu afgreiddar fyrir 1.
september næstkomandi.
Úthlutun til
fjölmiðla útfærð
Afgreiða á umsóknir fyrir 1. sept.
Morgunblaðið/Eggert
Dagblöð Reglur um úthlutun 400
milljóna kr. stuðnings liggja fyrir.