Morgunblaðið - 07.07.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2020
Ríkisútvarpið breska, BBC,sagði frá því á dögunum að
það hygðist fara í stórfelldar
hagræðingar-
aðgerðir vegna
tekjusam-
dráttar. Að-
gerðirnar fela í
sér að um 450
manns, sjötta
hverjum starfs-
manni, verður
sagt upp til að
ná fram nauðsynlegum sparnaði.
Breska ríkisútvarpið er ólíktþví íslenska að því leyti að
það breska er ekki á auglýs-
ingamarkaði. Sá mikilvægi tekju-
þáttur fjölmiðla er víðast erlendis
skilinn eftir fyrir einkarekna
miðla, sem hafa þátt fyrir það
einnig þurft að grípa til umfangs-
mikilla hagræðingaraðgerða á
undanförnum misserum.
Hér á landi er það þó ekki að-eins svo að Ríkisútvarpið
moki fé upp af auglýsingamarkaði
og það af miklu óhófi og ákafa
svo ekki sé meira sagt heldur fær
það aukið fé með hverjum manni
sem hingað flytur og hverju fyrir-
tæki sem stofnað er.
Þetta hefur valdið því að Rúv.fær sífellt meira fé og hefur
að auki selt lóðir (í stað þess að
skila þeim eins og réttast hefði
verið) fyrir um tvo milljarða
króna á undanförnum árum.
Hvernig stendur á því að Rúv.fær að starfa algerlega
ónæmt fyrir þeim aðstæðum sem
aðrir búa við, bæði mörg önnur
ríkisfyrirtæki og ekki síst einka-
reknir fjölmiðlar? Allir þeir
helstu hafa þurft að grípa til rót-
tækra aðgerða í rekstri á síðustu
árum en Rúv. fær stöðugt meira
fé.
BBC sker niður,
Rúv. blæs út
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Fyrirspurnir þingmanna til ráðherra
voru yfirgripsmiklar á 150. löggjafar-
þinginu, sem frestað var í fyrri mán-
uði. Þingið var að störfum frá 10.
september til 17. desember 2019 og
frá 20. janúar til 30. júní 2020.
Fram kemur í yfirliti á vef Alþingis
að fyrirspurnir á þingskjölum voru
samtals 514. Fyr-
irspurnir til
munnlegs svars
voru 62 og var 52
svarað en ein var
kölluð aftur. 452
skriflegar fyrir-
spurnir voru lagð-
ar fram og var 304
þeirra svarað en
158 bíða svars er
þingi var frestað. Óundirbúnar fyrir-
spurnir til ráðherra voru 312.
Fram kemur í yfirlitinu að Björn
Leví Gunnarsson Pírati hefur verið
þingmanna ötulastur að bera fram
fyrirspurnir. Þær hafa verið 140 tals-
ins sem af er 150. lögjafarþinginu.
Munar þar mest um raðspurningar
þingmannsins um lögbundin verkefni
stofnana ríkisins og kostnað við verk-
efni þeim tengd. Þegar upp var staðið
voru þær orðnar 109 talsins.
Steingrímur J. Sigfússon forseti
Alþingis spáði því á þingfundi í vetur
að fyrirspurnir þessar gætu orðið alls
60-80 talsins, en þær urðu mun fleiri
þegar upp var staðið.
Næstflestar fyrirspurnir lagði
fram Guðmundur Ingi Kristinsson í
Flokki fólksins eða 42. Þorsteinn Víg-
lundsson í Viðreisn, sem hættur er á
þingi, lagði fram 38 fyrirspurnir og
þeir Andrés Ingi Jónsson utan flokka
og Ólafur Ísleifsson Miðflokki 37 fyr-
irspurnir hvor.
Björn Leví hefur lagt fram samtals
366 fyrirspurnir til ráðherra síðan
hann settist fyrst á þing árið 2014,
langflestar allra þingmanna. Jóhanna
Sigurðardóttir er með næstflestar,
eða 255 alls. sisi@mbl.is
Fyrirspurnir um sama efni 109
Björn Leví
Gunnarsson
Björn Leví hefur
lagt fram 140 fyrir-
spurnir til þessa
Íslenska kvikmyndin Dýrið eftir
Valdimar Jóhannsson hefur fengið
verðskuldaða athygli innanlands
sem utan og hefur kvikmynda-
dreifingaraðilinn New Europe
Film Sales landað samningum við
fjölda Evrópuríkja, þar sem mynd-
inni verður dreift. Á meðal þeirra
eru Pólland, Þýskaland, Danmörk,
Litháen og Ungverjaland, svo fá-
ein ríki séu nefnd. Þá var myndin
sýnd á kvikmyndahátíðinni í Can-
nes vorið 2019 og uppskar mikið
lof.
Hægt er að segja að myndin hafi
einnig vakið athygli vestanhafs þar
sem bandaríski afþreyingarmiðill-
inn Variety gerði henni góð skil í
nýlegri umfjöllun, í tilefni af vel-
gengni hennar í Evrópu.
Hilmir Snær Guðnason og
Noomi Rapace fara með aðal-
hlutverkin í myndinni, sem gefin
var út í framleiðslu Go o Sheep, en
meðframleiðendur koma frá Sví-
þjóð og Póllandi. Handrit er eftir
SJÓN og Valdimar Jóhannsson.
Upplifir söguþráðinn
Variety hefur áður fjallað um
Dýrið, síðast árið 2019. Í greininni
birtist spjall við Noomi Rapace
sem sagðist aldrei hafa tekið þátt í
viðlíka hlutverki áður, og hlakkaði
til að snúa aftur til Íslands, en leik-
konan bjó hér á landi í þrjú ár.
Sagði hún handritið jafnframt
sjaldgæft og sér liði eins og hún
væri sjálf að upplifa söguþráðinn.
Dýrið fjallar um Maríu og Ingv-
ar, sem búa á afskekktum sveitabæ
og upplifa mikla hamingju sem
endist stutt, þegar lítil og óvenju-
leg vera kemur inn í líf þeirra.
Myndin hlaut fjölda styrkja frá
Kvikmyndamiðstöð Íslands, þar á
meðal handritsstyrk, þróunar-
styrki og framleiðslustyrk, samtals
að verðmæti 140 milljónir króna.
Dýrið fær athygli
víða um heim
Myndin selst til fjölda Evrópulanda
Þekkt leikkona Hin sænska Noomi
Rapace fer með aðalhlutverkið.