Morgunblaðið - 07.07.2020, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2020
Hellaskoðun fyrir tvo
í Raufarhólshelli
Gisting fyrir tvo
í standard herbergi
Morgunverðarhlaðborð
Sumartilboðsverð:
20.600 kr.
Skoðaðu glæsilegu sumartilboðin okkar á
hotelork.is/tilbod
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Stjórnvöld í Ástralíu hafa tekið þá
ákvörðun að loka fylkjamörkunum
milli tveggja fjölmennustu fylkja
landsins, Viktoríu og Nýju Suður-
Wales, eftir mikla fjölgun
kórónuveirusmita í Melbourne, höf-
uðborg Viktoríu, sem jafnframt er
næststærsta borg Ástralíu með um
fimm milljónir íbúa.
Mörg hundruð manns hafa smitast
í Melbourne á hálfum mánuði og er nú
svo komið að 95 prósent nýsmita í
Ástralíu koma fram þar í borginni.
Meðal annars kom hópsmit upp í fé-
lagslegu húsnæði á vegum borgarinn-
ar í síðustu viku, alls níu háhýsum
sem eru heimili 3.000 manns, og var
íbúum þar gert að sæta útgöngu-
banni. Í gær greindust 127 ný smit í
Melbourne.
Óvíst hve lengi verður lokað
Lokun fylkjamarkanna hefst á
morgun, miðvikudag, og verður þá
þeim einum heimilt að fara á milli
fylkjanna, sem sérstakt leyfi hafa til
þess, en um þau sækja þeir sem nauð-
synlega verða að fara á milli, svo sem í
atvinnuskyni. Daniel Andrews, fylk-
isstjóri Viktoríu, sagði ákvörðunina
tekna í samráði þeirra Gladys Bere-
jiklian, fylkisstjóra nágrannafylkis-
ins, og Scott Morrison forsætisráð-
herra.
„Þetta er ein af okkar varúðarráð-
stöfunum og ég hugsa að hún muni
nýtast okkur við að hemja útbreiðslu
veirunnar,“ sagði Andrews á blaða-
mannafundi í gær, en sagði ekkert um
hve lengi mætti búast við að lokunin
varði. Áætlunarflug milli höfuðborga
fylkjanna, Sydney og Melbourne, er
að sögn Reuters-fréttastofunnar ein
mest notaða farþegaflugleið heims við
eðlilegar kringumstæður.
Prófa 20.000 á dag
Kórónuveirusmit í Ástralíu voru í
gær 8.586 og hafði veiran þá kostað
þar 106 mannslíf. Þar til nýlega voru
flest kórónusmit í Ástralíu greind hjá
íbúum sem sneru aftur til landsins úr
ferðalögum erlendis, en nú er svo
komið að meira en 80 prósent eru
komin til innanlands.
Hermenn hafa komið til aðstoðar
heilbrigðisstarfsfólki í Viktoríu við að
framkvæma veirupróf og eru 20.000
manns nú prófaðir þar dag hvern.
Enn fremur hefur liðsauki borist frá
heilbrigðisstofnunum annarra fylkja
landsins.
Síðast lokað í spænsku veikinni
Öld er liðin síðan fylkjamörkum
Viktoríu og Nýju Suður-Wales var
síðast lokað, en það var í spænsku
veikinni, sem skall ekki að ráði á Ástr-
alíu fyrr en snemma árs 1919 og er
áætlað að mannfall í þeirri drepsótt
hafi verið á bilinu 12 – 15.000 manns.
Berejiklian fylkisstjóri og Morr-
ison forsætisráðherra höfðu áður gef-
ið það út að ólíklegt væri að til lokunar
kæmi milli þessara fjölmennu fylkja,
enda er hún flókin þar sem aksturs-
leiðir yfir fylkjamörkin eru um 50 auk
þess sem einhverjir bæir beggja
vegna markanna liggja nánast saman.
Beit lögregluþjón
Auk útgöngubannsins í félagslegu
íbúðunum í Melbourne, þar sem 53
eru nú smitaðir, hefur fólki einnig
verið gert að halda sig innandyra í 36
hverfum, flestum þeirra úthverfum,
þar sem mest hefur verið um ný smit.
Hafa þessar aðgerðir mælst misjafn-
lega fyrir og margir lýst yfir óánægju
sinni. Til að mynda beit íbúi í einni fé-
lagslegu íbúðanna lögregluþjón, en
500 lögreglumenn voru settir á vakt
við háhýsin níu til að framfylgja út-
göngubanninu þar. Shane Patton,
lögreglustjóri í Viktoríu, sagði fjöl-
miðlum að lögreglan áliti atvikið al-
varlegt og mætti sá sem beit eiga von
á ákæru fyrir árás á lögreglu og mót-
þróa.
Algjört útgöngubann í skoðun
Annaliese van Diemen, aðstoðar-
landlæknir Ástralíu, segist óttast að
mörg hundruð manns í íbúðablokkun-
um níu hafi þegar verið í návígi við
smitaða einstaklinga og afleiðingarn-
ar geti orðið skelfilegar.
Paul Kelly, settur landlæknir, segir
áströlsku þjóðina nú standa frammi
fyrir nýjum kafla faraldursins. „Í
fyrsta sinn í Ástralíu gætum við
neyðst til að setja á algjört útgöngu-
bann,“ hefur dagblaðið Sydney Morn-
ing Herald eftir honum. Skrefið yrði
erfitt en nauðsynlegt.
Loka fylkjamörkum vegna
smitbylgju í Melbourne
95 prósent nýsmita í Ástralíu eru þar í borginni Prófa 20.000 manns á dag
AFP
Smitbylgja Sigið hefur á ógæfuhliðina hjá Áströlum og loka Viktoría og Nýja Suður-Wales sín á milli á morgun.
Adel Mohamed Bashaer, lög-
reglustjóri Súdan, hefur verið
leystur frá störfum ásamt fulltrúa
sínum. Það var súdanski forsætis-
ráðherrann Abdalla Hamdok sem
tók ákvörðun um starfslok þeirra
og þótt engin ástæða væri op-
inberlega gefin upp, er talið víst að
hún tengist fjölmennum mótmælum
og óeirðum um allt land með kröf-
um almennings um umbætur í
stjórnmálum þar sem lítið þykir
hafa þokast til betri vegar. Hamdok
forsætisráðherra lofaði því í ávarpi
í síðustu viku, að umbóta væri von
og reyndi með því að kyrra tugþús-
undir mótmælenda sem lagt hafa
fram langa skilmálaskrá.
Lögreglustjóri rek-
inn ásamt fulltrúa
Mótmæli Múgur á götu Khartoum.
SÚDAN
Bítillinn Ringo
Starr er átt-
ræður í dag.
Ringo, öðru
nafni Sir Richard
Starkey, fæddist
7. júlí 1940 í
Liverpool en
skaust upp á
stjörnuhimininn
sem trommuleik-
ari Bítlanna árið 1962.
Ringo hugðist halda upp á stór-
afmælið með stórtónleikum en
vegna kórónuveirunnar munu vinir
hans halda „fjartónleika“ heiman
frá sér og senda þá út yfir netið á
YouTube-rás Ringos. Allur ágóði
fer til góðgerðarmála og hyggst
Paul McCartney, hinn eftirlifandi
Bítillinn, troða upp ásamt öðrum
góðum gestum.
Elsti bítillinn heldur
upp á fjarafmæli
Ringo Starr
BRETLAND
Japanski tæknirisinn Fujitsu hefur
ákveðið að 80.000 starfsmönnum
fyrirtækisins í Japan muni leyfast að
sinna sínum störfum á heimilum sín-
um til frambúðar, kjósi þeir svo.
Hyggst fyrirtækið í kjölfarið losa sig
við allt að helminginn af öllu því hús-
næði sem það nú nýtir.
Sree Sreenivasan, gistifræðimað-
ur á sviði stafrænnar nýsköpunar
við blaðamennskudeild Stony
Brook-háskólans í New York-ríki,
segir ákvörðun Fujitsu undirstrika
þau miklu og langvarandi áhrif sem
kórónuveirufaraldurinn hafi á dag-
leg störf fólks. „Þetta er enn eitt
dæmið um að allri okkar vitneskju
um skrifstofustarfsemi og framtíð-
arvinnumarkað er snúið á hvolf.
Þúsundir vinnuveitenda og milljónir
starfsmanna fá nú að kynnast kost-
um og göllum þessa nýja veruleika.“
Takist vinnandi fólki að sameina
bestu kostina, svo sem minni ferða-
lög til og frá vinnu, minni kostnað og
aukin afköst, og lifa við gallana, svo
sem skort á félagslegu samneyti
vinnustaðarins, segir Sreenivasan
að milljónir ættu að geta vel við un-
að.
Wikipedia
Heimavinna Skrifstofum Fujitsu í Kawasaki verður ef til vill lokað að hluta.
Heimavinna til fram-
búðar hjá Fujitsu
Losnar við helming húsnæðisins