Morgunblaðið - 07.07.2020, Qupperneq 26
Í dag birtum við úrvalslið Morgunblaðsins úr
bæði 3. og 4. umferð Pepsi Max-deildar karla í
fótbolta. Til stóð að bíða með það þar til frestaðir
leikir Stjörnunnar hefðu farið fram en þeir hafa
nú verið settir á það seint á tímabilinu að Morg-
unblaðið telur rétt að birta úrvalsliðin strax, án
leiks Stjörnunnar og KA í 3. umferð og án leiks
FH og Stjörnunnar í 4. umferð. Þegar frestuðu
leikirnir fara fram verða þeir reiknaðir með þeim
umferðum sem eru leiknar um svipað leyti.
Aðeins einn leikmaður sem var valinn í úrvals-
liðin tvö úr 3. og 4. umferð var valinn í 1. eða 2.
umferð, en það er Kennie Chopart, hægri bak-
vörður KR-inga. Allir hinir sem eru í úrvals-
liðunum voru valdir í fyrsta sinn.
Efstu menn í M-gjöfinni hafa fengið 4 M en það
eru Kennie Chopart úr KR, Valdimar Þór Ingi-
mundarson og Aron Snær Friðriksson úr Fylki og
Valgeir Valgeirsson úr HK. Með 3 M eru Pablo
Punyed úr KR, Viktor Karl Einarsson og Thomas
Mikkelsen úr Breiðabliki, Steven Lennon og Jón-
atan Ingi Jónsson úr FH, Haukur Páll Sigurðsson,
Sebastian Hedlund, Sigurður Egill Lárusson, Kaj
Leo i Bartalsstovu og Patrick Pedersen úr Val,
Óttar Magnús Karlsson og Ágúst Eðvald Hlyns-
son úr Víkingi, Ásgeir Eyþórsson úr Fylki, Birkir
Valur Jónsson úr HK, Stefán Teitur Þórðarson,
Bjarki Steinn Bjarkason, Tryggvi Hrafn Haralds-
son, Steinar Þorsteinsson og Viktor Jónsson úr
ÍA og Axel Sigurðarson úr Gróttu.
3. umferð
í Pepsi Max-deild karla 2020
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
23-4-3
Anton Ari Einarsson
Breiðabliki
Ágúst Eðvald
Hlynsson
Víkingi
Aron Bjarnason
Val
Valdimar Þór
Ingimundarson
Fylki
Viktor Karl
Einarsson
Breiðabliki
Gísli Eyjólfsson
Breiðabliki
Patrick Pedersen
Val
Kennie Chopart
KR
Valgeir Lunddal
Friðriksson
Val
Óttar Magnús Karlsson
Víkingi
Kristinn Jónsson
KR
2
Aðeins einn leikmaður af 22 hefur verið valinn áður
4. umferð
í Pepsi Max-deild karla 2020
3-5-2
Aron Snær Friðriksson
Fylki
Tryggvi Hrafn Haraldsson
ÍA
Brynjar Ingi Bjarnason
KA
Marcus Johansson
ÍA Aron Kristófer Lárusson
ÍA
Kristján Flóki Finnbogason
KR
Brynjólfur
Willumsson
Breiðabliki
Viktor Jónsson
ÍA
Arnþór Ari
Atlason
HK
Axel Sigurðarson
Gróttu
Pablo Punyed
KR
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2020
4. UMFERÐ
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Ég vaknaði um morguninn og var
alltaf með góða tilfinningu fyrir
þessum leik. Það var eitthvað í loft-
inu,“ sagði Viktor Jónsson, sókn-
armaður ÍA, í samtali við Morg-
unblaðið. Viktor átti stórleik í
4:1-útisigri ÍA á Val í Pepsi Max-
deildinni í fótbolta á föstudaginn var
og skoraði eitt mark og lagði upp
þrjú til viðbótar. Fékk Viktor tvö M
fyrir frammistöðu sína í leiknum.
„Þetta fór kannski örlítið fram úr
vonum en ég vissi að við myndum
standa okkur vel í þessum leik.
Stemningin í liðinu var búin að vera
mjög góð og þetta var frábær leikur
hjá okkur. Það small eiginlega allt
hjá okkur, við vorum samstíga í öllu
og vorum búnir að fara vel yfir það
hvernig við ætluðum að spila þennan
leik og það gekk fullkomlega upp.
Vinnusemin var til fyrirmyndar og
við vorum að vinna vel fyrir hver
annan. Við náðum að pressa þá hátt
á vellinum og það setti þá undir
mikla pressu og við komumst á lagið
með það sem við ætluðum að gera,“
sagði Viktor.
Besti leikurinn hjá sókninni
Viktor kom til ÍA frá Þrótti
Reykjavík fyrir síðasta sumar og
skoraði fjögur deildarmörk í átján
leikjum á síðustu leiktíð. Hann segir
leikinn gegn Val þann skemmtileg-
asta í Skagatreyjunni til þessa.
„Maður hefur spilað marga góða
leiki með ÍA og sérstaklega í upphafi
síðasta sumars, þá áttum við mjög
marga góða leiki þar sem við vorum
að gera það sem við vildum gera.
Þetta var hins vegar besti leikurinn
hvað sóknina varðar, bæði hjá mér
persónulega og allri sóknarlínunni.
Þetta er svo skemmtilegasti leikur
sem ég hef spilað fyrir ÍA.“
Viktor hefur spilað á hægri kant-
inum til þessa í sumar og Tryggvi
Hrafn Haraldsson í framlínunni.
Ánægður á kantinum
Hefur Viktor að mestu spilað sem
framherji á ferlinum, en hann kann
vel við sig í nýju hlutverki.
„Ég kann mjög vel við þessa
stöðu. Ég var aðeins á kantinum hjá
Víkingi árið 2013 en síðan þá hef ég
verið frammi. Jói [Jóhannes Karl
Guðjónsson þjálfari ÍA] er búinn að
skýra þetta hlutverk mjög vel fyrir
mér og ég er að fíla mig vel þarna.
Mér finnst gott að vera ekki alltaf
með bakið við markið og fá að taka
meiri þátt í spilinu. Þetta opnar nýj-
ar hliðar fyrir mig sem fótboltamann
og það er að koma í ljós að ég er ekki
bara einhver gæi sem er að pota
mörkum inn, það býr meira í mér en
það. Ég er mjög sáttur með að vera
á kantinum,“ sagði Viktor, sem hef-
ur skorað tíu mörk í 65 leikjum í
efstu deild og 59 mörk í 84 leikjum í
1. deild.
Hefði viljað stig gegn KR
Hann er nokkuð ánægður með
byrjun Skagamanna á tímabilinu en
liðið er með sex stig í fjórða sæti. ÍA
vann KA í fyrstu umferð en tapaði
síðan fyrir FH og KR fyrir leikinn
gegn Val.
„Þetta er ásættanlegt en miðað
við leikinn á móti KR hefðum við að
minnsta kosti viljað stig út úr þeim
leik, mér fannst við eiga meira skilið
þar. Við höfum mætt erfiðum and-
stæðingum en náð að byggja ofan á
það sem við vorum að gera síðasta
sumar og við tökum alveg sex stig-
um en hefðum að minnsta kosti vilj-
að vera með sjö.“
Skagamenn, þá nýliðar, byrjuðu
gríðarlega vel á síðustu leiktíð og
voru með þriggja stiga forskot á
toppnum eftir sex umferðir. Liðið
endaði hins vegar í tíunda sæti, sjö
stigum á undan Grindavík sem féll.
Lærðu af síðasta tímabili
Viktor segir liðið hafa lært af síð-
ustu leiktíð. „Það er öðruvísi yf-
irbragð á liðinu og við erum farnir að
skilja okkar hlutverk betur. Við
lærðum alveg helling á síðasta tíma-
bili og við verðum að passa upp á að
svona dýfa endurtaki sig ekki en
mér finnst við vera á betri stað í ár
en í fyrra. Við vitum meira hvernig
við getum nálgast leikina með okkar
leikstíl. Ég held það sé bjart yfir
okkur upp á Skaga og það verður
meiri háttar stemning í sumar,“
sagði framherjinn. Hann hefur eng-
in tengsl við Akranes, önnur en að
hann er að spila með knattspyrnuliði
bæjarins. Hann kann samt sem áður
afar vel við sig á Skaganum.
„Mér finnst frábært að vera á
Skaganum og ég segi alltaf að þetta
sé eins og himnaríki svona rétt fyrir
utan borgina, eins og Ólafur Ragnar
í Næturvaktinni sagði. Ég hef engin
tengsl við Skagann, Jói Kalli talaði
bara við mig og sannfærði mig um að
koma upp á Skaga og gaf mér traust.
Ég hef ekkert út á það að setja, ég
finn fyrir miklu trausti, skil mitt
hlutverk og mér finnst þetta frá-
bært. Ég keyri á milli Reykjavíkur
og Skagans 5-6 sinnum í viku og
finnst mjög gott að vera með sjálfum
mér og hlusta á hlaðvarp. Það er
stemning,“ sagði Viktor Jónsson.
Ég er meira en bara gæi
sem potar inn mörkum
Viktor skoraði eitt og lagði upp þrjú gegn Val Kann vel við sig á Akranesi
Ljósmynd/Skagafréttir
Atkvæðamikill Viktor Jónsson var allt í öllu í sóknarleik Skagamanna gegn
Val en hann skoraði fyrsta markið og lagði upp hin þrjú mörkin.
Pepsi Max-deild kvenna
FH – Þróttur R......................................... 1:2
Valur – Stjarnan....................................... 3:0
Staðan:
Valur 5 5 0 0 17:2 15
Breiðablik 3 3 0 0 11:0 9
Fylkir 3 2 1 0 6:3 7
Selfoss 4 2 0 2 6:4 6
Þór/KA 3 2 0 1 8:7 6
Stjarnan 5 2 0 3 6:11 6
Þróttur R. 4 1 1 2 8:9 4
ÍBV 4 1 0 3 5:11 3
FH 4 0 0 4 1:10 0
KR 3 0 0 3 1:12 0
Lengjudeild kvenna
Afturelding – Haukar .............................. 1:2
Staðan:
Haukar 4 2 2 0 7:4 8
Keflavík 3 2 1 0 10:1 7
Tindastóll 3 2 1 0 6:2 7
Grótta 3 1 2 0 2:1 5
Afturelding 4 1 1 2 3:4 4
ÍA 3 0 3 0 4:4 3
Fjölnir 3 1 0 2 3:3 3
Víkingur R. 3 0 1 2 2:6 1
Augnablik 2 0 1 1 1:6 1
Völsungur 2 0 0 2 0:7 0
England
Tottenham – Everton.............................. 1:0
Gylfi Þór Sigurðsson lék fyrstu 67 mín-
úturnar með Everton.
Staðan:
Liverpool 33 29 2 2 72:25 89
Manch.City 33 21 3 9 81:34 66
Leicester 33 17 7 9 63:31 58
Chelsea 33 17 6 10 60:44 57
Manch.Utd 33 15 10 8 56:33 55
Wolves 33 13 13 7 45:36 52
Arsenal 33 12 13 8 49:41 49
Tottenham 33 13 9 11 52:44 48
Sheffield Utd 33 12 12 9 34:33 48
Burnley 33 13 7 13 37:46 46
Everton 33 12 8 13 40:48 44
Newcastle 33 11 10 12 35:45 43
Southampton 33 13 4 16 42:55 43
Crystal Palace 33 11 9 13 28:40 42
Brighton 33 8 12 13 35:44 36
West Ham 33 8 7 18 40:58 31
Watford 33 6 10 17 29:52 28
Aston Villa 33 7 6 20 36:62 27
Bournemouth 33 7 6 20 32:59 27
Norwich 33 5 6 22 25:61 21
Grikkland
Larissa – Panionios ................................. 0:0
Ögmundur Kristinsson varði mark Lar-
issa í leiknum.
Danmörk
B-deild:
Vejle – Roskilde ....................................... 4:1
Kjartan Henry Finnbogason lék allan
leikinn með Vejle sem er með sjö stiga for-
ystu á Viborg þegar fjórar umferðir eru
eftir. Eitt lið fer upp.
Tyrkland
B-deild:
Akhisarspor – Balikesirspor...................3:1
Theódór Elmar Bjarnason lék fyrri hálf-
leikinn með Akhisarspor sem er í fimmta
sæti þegar tvær umferðir eru eftir og á
góða möguleika á að fara upp eða í umspil.
Svíþjóð
Norrköping – Gautaborg ....................... 3:1
Ísak B. Jóhannesson lék í 87 mínútur
með Norrköping, skoraði og lagði upp
mark.
Staða efstu liða:
Norrköping 6 5 1 0 17:6 16
Sirius 6 3 2 1 10:8 11
Varberg 6 3 1 2 10:6 10
Häcken 6 2 4 0 8:4 10
Elfsborg 6 2 4 0 6:4 10
Mjällby 6 3 1 2 6:6 10
Noregur
B-deild:
Kongsvinger – Tromsö ........................... 0:2
Adam Örn Arnarson skoraði annað mark
Tromsö og lék allan leikinn.
Þýskaland
Umspil, seinni leikur:
Heidenheim – Werder Bremen............... 2:2
Samanlagt 3:3 og Bremen heldur sæti
sínu í efstu deild á mörkum á útivelli.
KNATTSPYRNA
1. deild karla, Lengjudeildin:
Fagverksvöllur: Afturelding – Magni ..... 18
Domusnovavöllur: Leiknir R. – ÍBV ....... 18
Ólafsvíkurvöllur: Víkingur Ó. – Fram 19.15
2. deild karla:
Nesfiskvöllur: Víðir – ÍR ..................... 19.15
Húsavík: Völsungur – Fjarðabyggð ... 19.15
Rafholtsvöllur: Njarðvík – Þróttur V . 19.15
Dalvíkurvöllur: Dalvík/Reynir – KF .. 19.15
Ásvellir: Haukar – Selfoss ................... 19.15
Akraneshöll: Kári – Kórdrengir .............. 20
3. deild karla:
Fjölnisv.: Vængir Júpíters – Augnablik.. 20
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Norðurálsvöllur: ÍA – Völsungur............. 18
Extra-völlur: Fjölnir – Keflavík.......... 19.15
Víkingsvöllur: Víkingur R. – Grótta ... 19.15
Sauðárkr.: Tindastóll – Augnablik...... 19.15
Í KVÖLD!