Morgunblaðið - 07.07.2020, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2020
Eins og gefur að skilja hefur
mikið verið rætt og ritað um
dómara hér á landi eftir við-
burðaríka leiki í Pepsi Max-deild
karla í fótbolta um helgina.
Á Akureyri voru dæmdar
tvær vítaspyrnur í uppbótartíma
hjá KA og Breiðabliki, þar sem
mér fannst sú fyrri afar furðuleg.
Ég horfði á atvikið aftur og aftur
og var litlu nær hvers vegna
nafni minn Jónsson gaf KA víta-
spyrnu. Mínútu síðar gerði hann
hins vegar vel þegar hann dæmdi
víti á KA.
Í Vesturbænum gekk enn
meira á þar sem Helgi Mikael
Jónsson tók sig til og gaf þremur
leikmönnum Víkings í Reykjavík
beint rautt spjald í leik gegn Ís-
landsmeisturum KR.
Ég hef smá samúð með Kára
Árnasyni sem var óheppinn í bar-
áttu við Kristján Flóka Finn-
bogason og var vikið af velli þar
sem framherjinn var að sleppa
einn í gegn. Kristján viðurkenndi
eftir leik að hann hafi farið auð-
veldlega niður um leið og hann
fann smá snertingu.
Sölvi Geir Ottesen var næstur
til að fjúka út af fyrir að slá Stef-
án Árna Geirsson. Vissulega var
Sölva ýtt af Pablo Punyed en ég
held Sölvi hefði getað sleppt því
að rekast í Stefán, ef hann lang-
aði virkilega til þess.
Þá fékk Halldór Smári Sig-
urðsson síðasta rauða spjaldið
fimm mínútum fyrir leikslok fyrir
að tækla Kennie Chopart. Við
fyrstu sýn sýndist mér það vera
réttur dómur en því oftar sem ég
horfi á það, þá er ég meira á því
að gult spjald hefði mátt duga.
Vissulega fer Halldór af miklum
krafti í tæklinguna, en hann fer í
boltann, ekki með sólann á und-
an og ekki er um tveggja fóta
tæklingu að ræða.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.isHinn sautján ára gamli Ísak Berg-
mann Jóhannesson skoraði sitt
fyrsta meistaraflokksmark í gær
þegar Norrköping sigraði Gauta-
borg 3:1 í sænsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Ísak kom liði sínu yfir
með fallegu skoti á 26. mínútu, 1:0.
Gautaborg jafnaði metin á 72. mín-
útu en þremur mínútum síðar var
Skagastrákurinn aftur á ferðinni
þegar hann sendi boltann á Lars
Krogh Gerson sem kom Norrköp-
ing yfir á nýjan leik, 2:1. Með sigr-
inum er Norrköping komið með
fimm stiga forskot í deildinni.
Ísak lykilmaður
og liðið er efst
Ljósmynd/Nörrköping
Efnilegur Ísak Bergmann Jóhann-
esson vekur athygli í Svíþjóð.
Haukar komust í kvöld í efsta sætið í
1. deild kvenna í knattspyrnu,
Lengjudeildinni, með því að sigra
Aftureldingu á Varmá, 2:1.
Haukar eru með átta stig eftir
fjóra leiki en Keflavík og Tindastóll
eru bæði með sjö stig eftir þrjá leiki.
Katrín Rut Kvaran kom Aftureld-
ingu yfir eftir hálftíma leik og stað-
an var 1:0 í hálfleik. Melissa Alison
Garcia jafnaði fyrir Hauka eftir tíu
mínútur í síðari hálfleik og aðeins
tveimur mínútum síðar bætti Vienna
Behnke við marki en það reyndist
vera sigurmarkið.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sigurmark Vienna Behnke tryggði
Haukum stigin þrjú í Mosfellsbæ.
Haukakonur
á toppinn
VALUR – STJARNAN 3:0
1:0 Hlín Eiríksdóttir 5.
2:0 Ída Marín Hermannsdóttir 16.
3:0 Ásdís Karen Halldórsdóttir 60.
M
Sandra Sigurðardóttir (Val)
Guðný Árnadóttir (Val)
Ásdís Karen Halldórsdóttir (Val)
Elín Metta Jensen (Val)
Hlín Eiríksdóttir (Val)
Dóra María Lárusdóttir (Val)
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (Val)
Birta Guðlaugsdóttir (Stjörnunni)
Ingibjörg Lúcía Ragnarsd. (Stjörnunni)
Hildigunnar Ýr Benediktsd. (Stjörn.)
Betsy Hassett (Stjörnunni)
Dómari: Aðalbjörn H. Þorsteinsson – 6.
Áhorfendur: 160.
FH – ÞRÓTTUR R. 1:2
0:1 Stephanie Riberio 1.
1:1 Hrafnhildur Hauksdóttir 37.
1:2 Stephanie Riberio 45.
MM
Stephanie Riberio (Þrótti)
M
Maddy Gonzalez (FH)
Taylor Sekyra (FH)
Rannveig Bjarnadóttir (FH)
Mary Alice Vignola (Þrótti)
Laura Hughes (Þrótti)
Rautt spjald: Guðni Eiríksson (þjálfari
FH) 44.
Dómari: Guðmundur Friðbertsson – 7.
Áhorfendur: Um 150-200.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þegar leikjum Breiðabliks og Fylkis
í fjórðu og fimmtu umferð Pepsi
Max-deildar kvenna var frestað
vegna kórónuveirusmits blasti sá
möguleiki við Valskonum að ná af-
gerandi forskoti á keppinauta sína í
toppbaráttunni.
Það hafa þær nú gert með tveimur
góðum sigrum, fyrst í Eyjum og svo
3:0 gegn Stjörnunni á Hlíðarenda í
gærkvöld. Þetta þýðir að Valur er
sex stigum á undan Breiðabliki og
átta á undan Fylki, enda þótt tvö síð-
arnefndu liðin séu með níu og sjö
stig af níu mögulegum.
„Eftir að Valskonur voru komnar
tveimur mörkum yfir var í raun aldr-
ei spurning hvernig leikurinn myndi
fara,“ skrifaði Bjarni Helgason m.a.
um leikinn á mbl.is.
Ída Marín Hermannsdóttir
gerði sitt fyrsta mark fyrir Val þeg-
ar hún kom liðinu í 2:0.
Hlín Eiríksdóttir skoraði eitt
mark og lagði annað upp og er kom-
in með fimm mörk í deildinni.
Strax betri en 2015 og 2013
Þróttarkonur unnu FH í nýliða-
slag í Kaplakrika, 2:1, og innbyrtu
sinn fyrsta sigur á meðan Hafn-
arfjarðarliðið situr eftir án stiga á
botni deildarinnar.
Þróttarliðið hefur nú þegar fengið
fjögur stig sem er meira en það fékk
tvö síðustu tímabil sem það lék í
deildinni. Þróttarar náðu aðeins í tvö
stig árið 2015 og þrjú stig árið 2013,
en þetta Þróttarlið er í raun það
fyrsta í sögunni sem gerir sig líklegt
til að halda velli á sínu fyrsta ári í
efstu deild. Það verður fróðlegt að
fylgjast með framhaldinu.
„Verðskuldaður sigur hjá Þrótt-
arkonum, sem voru betri heilt yfir
þrátt fyrir mikið hark í báðum lið-
um,“ skrifaði Þorgerður Anna
Gunnarsdóttir m.a. í grein sinni um
leikinn á mbl.is.
Stephanie Ribeiro hefur heldur
betur reynst Þrótturum happafeng-
ur. Hún er búin að skora fimm mörk
í fyrstu fjórum umferðum deild-
arinnar, af þeim átta mörkum sem
nýliðarnir úr Laugardalnum hafa
skorað. Með þessu er hún þegar orð-
in næstmarkahæsti leikmaður
Þróttar í efstu deild frá upphafi, jöfn
Fanny Vágó sem skoraði fimm mörk
árið 2011. Aðeins Margrét María
Hólmarsdóttir hefur skorað meira
en hún gerði samtals 8 mörk fyrir
Þrótt í deildinni 2011 og 2013.
Hrafnhildur Hauksdóttir skor-
aði fyrsta og eina mark FH til þessa
á tímabilinu í Kaplakrika í gærkvöld.
Guðni Eiríksson þjálfari FH
fékk rauða spjaldið fyrir mótmæli
þegar Hafnfirðingar töldu sig eiga
að fá vítaspyrnu og verður í banni
gegn Þór/KA í næstu umferð.
Valskonurnar
nýta frestanir
til hins ýtrasta
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skoraði Ásdís Karen Halldórsdóttir í baráttunni á Hlíðarenda en hún inn-
siglaði sigur Valskvenna með marki í seinni hálfleik.
Komnar með gott forskot á keppi-
nautana Þróttur vann nýliðaslaginn
Knattspyrnu-
deild Víkings í
Reykjavík sendi í
gær frá sér yf-
irlýsingu vegna
dómgæslunnar í
leiknum gegn
KR í Pepsi Max-
deild karla á
laugardaginn en
þar voru þrír
leikmenn Vík-
ings reknir af velli.
Í yfirlýsingunni lýsa Víkingar yf-
ir furðu sinni með framgöngu dóm-
arans og skora á dómaranefnd KSÍ
að fara rækilega yfir málin. Um leið
er framkoma Sölva Geirs Ottesen
fyrirliða í kjölfar rauða spjaldsins
sögð óásættanleg.
Sölvi sendi sjálfur frá sér yfirlýs-
ingu þar sem hann harmar fram-
göngu sína eftir brottvísunina. Þar
segir hann að það hafi verið óvilja-
verk þegar handleggur hans lenti í
andliti KR-ings sem lá á vellinum.
„Þrátt fyrir öll málsatvik á leik-
maður með mína reynslu, og fyr-
irliði Víkings, hins vegar að vita
betur og viðbrögð mín í hita leiks-
ins voru mér, liðsfélögum og Knatt-
spyrnufélagi Víkings ekki til
sóma,“ segir Sölvi í yfirlýsingunni
en hann, Kári Árnason og Halldór
Smári Sigurðsson verða allir í
banni gegn Val á morgun.
Sölvi Geir
Ottesen
Viðbrögð
mín voru
ekki til sóma
Tottenham náði í mikilvæg stig í
slagnum um Evrópusæti í gærkvöld
þegar liðið lagði Gylfa Þór Sigurðs-
son og samherja í Everton að velli á
heimavelli sínum í London, 1:0, í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Tottenham komst með sigrinum í
áttunda sætið en miklar líkur eru á
að áttunda sætið gefi keppnisrétt í
Evrópudeild UEFA.
Sigurmarkið var sjálfsmark á 24.
mínútu leiksins en Giovani Lo Celso
skaut þá að marki, boltinn hefði farið
framhjá en fór í Michael Keane mið-
vörð Everton og þaðan í netið.
Gylfi lék á miðjunni hjá Everton
en var skipt af velli á 67. mínútu
leiksins.
Tottenham
styrkti stöð-
una talsvert
AFP
London Ben Davies varnarmaður Tottenham stöðvar Dominic Calvert-Lewin framherja Everton í leiknum í gær.