Morgunblaðið - 07.07.2020, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2020
www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi
HITABLÁSARAR
Þegar aðeins
það besta kemur
til greina
PON er umboðsaðili
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður
Sími 580 0110 | pon.is
Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna!
GÆÐI OG ÞJÓNUSTA
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, hefur tilkynnt að stjórn-
völd muni setja allt að einn og hálfan
milljarð punda, um 260 milljarða
króna, í að halda lista- og menn-
ingarlífi þjóðarinnar á floti á tímum
Covid-19.
Fjölmiðlar á Bretlandi segja
ákvörðunina hafa komið listaheim-
inum ánægjulega á óvart, þar sem
skilaboðin frá fjármálaráðuneytinu
hafi frekar verið á þann veg að lítið
yrði að gert. Háum upphæðum verð-
ur deilt milli listasafna, gallería, leik-
húsa og tónleikastaða. Stjórnvöld
segja þetta umfangsmestu fjárfest-
ingu hins opinbera í bresku menn-
ingarlífi sem um getur.
Vikum saman hafa talsmenn
menningarstofnana varað við hruni í
geiranum, þar sem innkoma hefur
verið nánast engin og til að mynda
lögðust sviðslistir nánast af. Ráð-
herrar sem útskýrðu hvað fælist í
úthlutun fjárins segja markmiðið
vera að sjá til þess að menningar-
stofnanirnar geti lifað faraldurinn af
og haldið starfsfólki.
Í The Guardian er vitnað í leik-
skáldið James Graham, sem hefur
verið ötull baráttumaður fyrir stuðn-
ingi hins opinbera á þessum óvissu-
tímum, og segir hann upphæðina
vera hærri en flesta í menningar-
geiranum hafi dreymt um. Haft er
eftir Boris Johnson forsætisráð-
herra um stuðninginn að listir og
menning séu „sál þjóðarinnar“.
Háar upphæðir í
breska menningu
AFP
Innpökkun Sjálfboðaliðar á vegum hreyfingarinnar #MissingLiveTheatre
tóku fyrir helgi þátt í að pakka Breska þjóðleikhúsinu inn í bleikt límband
sem á stendur að fólk sakni lifandi leikhúss. Fjölda leikhúsa var pakkað inn.
Meira en flestir vonuðust eftir
Nýr sjóður hefur verið stofnaður
undir hatti Styrktarsjóða Háskóla
Íslands og nefnist Íslenskusjóður-
inn. Samkvæmt frétt á vef HÍ bygg-
ist sjóðurinn á rausnarlegu fram-
lagi Elsu Sigríðar Jónsdóttur og
Tómasar Gunnarssonar, en þau
undirrituðu skipulagsskrá sjóðsins
ásamt Jóni Atli Benediktssyni,
rektor Háskóla Íslands, á dögunum.
Elsa Sigríður er fyrrverandi lektor
við Kennaraháskóla Íslands, áður
við Fósturskóla Íslands, og beind-
ust rannsóknir hennar ekki síst að
fjölmenningu og leikskólastarfi.
Markmið sjóðsins er að stuðla að
varðveislu íslenskrar tungu og er
stofnfé sjóðsins 50 milljónir króna.
Tilgangurinn með stofnun sjóðs-
ins er að efla vald fólks á íslensku
máli, einkum fjöltyngdra barna af
erlendum uppruna og foreldra
þeirra. Styrkir verða veittir til
verka sem styðja við og efla notkun
á íslensku máli, svo sem þróunar-
verkefna á leikskóla- og grunn-
skólastigi, námskeiða, bókaskrifa,
bókaþýðinga og bókaútgáfu, vef-
síðna, efnis fyrir snjalltæki og ann-
ars sem álitlegt þykir til að ná
markmiði sjóðsins.
Sjóðurinn er stofnaður í minn-
ingu foreldra þeirra Tómasar og
Elsu Sigríðar, en þau voru öll af
ungmennafélagskynslóðinni, þar
sem fullveldi Íslands og sjálfstæði
voru meginmál. Íslensk tunga var
þeim hjartfólgin og vildu þau veg
hennar sem mestan.
Íslenskusjóður við Háskóla Íslands
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Undirritun Elsa Sigríður og Tómas ásamt
Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskólans,
og stjórn styrktarstjóðsins.
Bókauppboð
Foldar og Bókar-
innar að þessu
sinni, á upp-
bod.is, er til-
einkað Halldóri
Laxness og kenn-
ir ýmissa grasa.
Í tilkynningu
segir að til að
mynda sé boðið
upp fyrsta verk
Halldórs, Barn náttúrunnar, sem
kom út árið 1919. Um er að ræða
fyrstu útgáfu, sem er sjaldséð á
markaði. Þannig eru á uppboðinu
margar sérvaldar 1. útgáfur verka
skáldsins. Til að mynda er boðinn
upp Vefarinn mikli frá Kasmír,
heill og góður en þarfnast bands.
Sömuleiðis eru boðnar upp Alþýðu-
bókin og Íslandsklukkan í nokkrum
fallegum útgáfum og Gerska ævin-
týrið í frumútgáfu. Þá er getið um
bókina Af menningarástandi, en
hún sést sjaldan. Allra fágætasta
bókin er þó Nokkrar sögur, sem
kom út í litlu upplagi. Um er að
ræða glæsilegt eintak. Bækurnar
má skoða í Fold á afgreiðslutíma.
Bjóða upp bækur Halldórs Laxness
Halldór Kiljan
Laxness
Kvikmynd Hlyns Pálmasonar, Hvít-
ur, hvítur dagur, er sýnd í breskum
streymisveitum um þessar mundir
og hefur hlotið lofsamlega dóma í
þarlendum fjölmiðlum. Gagnrýn-
endur bæði The Times og The
Guardian gefa kvikmyndinni fjórar
stjörnur. Í fyrrnefnda blaðinu segir
að kvikmyndin byrji sem tregafull
og listræn hugleiðing um sorg en
breytist smám saman í hægbrenn-
andi trylli um lögreglumann, lista-
vel leikinn af Ingvari E. Sigurðs-
syni, sem sé í leyfi eftir andlát
eiginkonu sinnar en taki að gruna
að það hafi borið að með saknæm-
um hætti. Leikstjórinn er sagður
leyfa sér listræna sérvisku en hann
missi þó aldrei sjónar á markvissri
uppbyggingu verksins, sem ljúki
með frábærum hætti.
Í The Guardian er leikstjórinn
sagður byggja upp kraftmikla frá-
sögn með heillandi og markvissum
hætti. Hæg framvindan framan af
sé eins og kveikur að brenna og síð-
ustu 20 mínúturnar séu sannkölluð
sprengja. Þá er frammistöðu Ingv-
ars hrósað mjög.
Góð Ída Mekkín Hlynsdóttir og Ingvar E.
Sigurðsson í hlutverkum sínum í myndinni.
Hvítur, hvítur dag-
ur fær mikið hrós
Hið framan af nafnlausaDuo Concordia var stofn-að 1986. Það er ef að lík-um lætur hið fyrsta og
eina sinnar tegundar hér á landi.
Enda ber ekki mikið á klassískum
samleik gítars og fiðlu utan úr heimi.
Sennilega fyrir þá sök hversu seint
spænska þjóðarhljóðfærið komst til
vegs og virðingar í tónleikasölum.
Það gerðist
nefnilega ekki
fyrr en á öld-
inni sem leið;
ekki sízt þökk
sé snillingum á
við Andrés Se-
govia.
Eiginlega
synd og skömm hvað það dróst lengi,
því þrátt fyrir nokkurn styrkrænan
yfirburð fiðlunnar fellur strok-
hljómur hennar furðuvel að strengja-
plokki gítarsins, nánast eins og álf-
konusöngur við epískan harpslátt.
Frómt frá sagt bjóst ég við minna
en raun bar vitni, sumpart fyrir fyrr-
nefndan styrkrænan samvægisvanda
hljóðfæranna. En með góðri upp-
tökutækni má jafna það sem annars
kann að týnast í náttúruómvist lifandi
hljómflutnings. Og það heyrist manni
einmitt hafa tekizt svo af ber í þess-
um vönduðu upptökum, er auk þess
nýta ágætan enduróm Áskirkju í bak-
grunni.
Auk hinnar óvenjulegu áhafnar
vekur diskurinn athygli fyrir smekk-
lega valið sýnishorn af íslenzkri nú-
tímakammertónlist 1986-2013, er
tjaldar meiri fjölbreytni en vænta
mætti. Mér er persónulega engin
launung á að hafa kunnað bezt við
ljóðræna launklassík Þorkels Sigur-
björnssonar í Vappi (1993). En hvað
sem má um hin verkin segja hafa þau
öll sinn sjarma þótt ólík séu. Þar við
bætist innblásin og ofursamstillt túlk-
un þeirra Laufeyjar og Páls sem
maður fær ekki betur heyrt en að
standist jafnvel skæðustu alþjóða-
kröfur með glans.
Innblásin túlkun
í fágætri tvennd
Geisladiskur
Duo Concordiabbbbn
Tryggvi M. Baldvinsson: Sónata (2006).
Hilmar Þórðarson: Gefjun (2000). Þor-
kell Sigurbjörnsson: Vapp (1993). John
A. Speight: Samtvinna (2013); Bergmál
Orfeusar f. einleiksgítar (1986). Magnús
Blöndal Jóhannsson: Sonorities VI f.
einleiksfiðlu (1990).
Duo Concordia: Laufey Sigurðardóttir
fiðla, Páll Eyjólfsson gítar. Upptaka (Ás-
kirkju ág. 2014) og meistrun: Halldór
Víkingsson, Fermata Recordings.
Lengd: 55:21. ODRCD394, 2020.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Flytjendur Rýnir segir verkin hafa „sinn sjarma þótt ólík séu. Þar við bætist
innblásin og ofursamstillt túlkun þeirra Laufeyjar og Páls sem maður fær
ekki betur heyrt en að standist jafnvel skæðustu alþjóðakröfur með glans“.