Morgunblaðið - 23.07.2020, Side 1
F I M M T U D A G U R 2 3. J Ú L Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 172. tölublað 108. árgangur
Blómkál og spergilkál
300 gr - tvenna
349KR/PK
ÁÐUR: 499 KR/PK
-30%
ALLT Í ÚTILEGUNA Í NETTÓ!
Grísakótilettur
Grill
1.139KR/KG
ÁÐUR: 1.899 KR/KG
Lambagrillleggir
Í gyros
839KR/KG
ÁÐUR: 1.399 KR/KG
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 23. - 26. júlí
-40%
-40%
KEYPTI BÁTINN
AÐ LOKNUM
GRUNNSKÓLA
SYNGJA
SAMAN Í
FYRSTA SINN
VILDI Í FYRSTU
BARA KOMAST Í
BYRJUNARLIÐIÐ
FEÐGAR Í REYKHOLTI 48 LEIKMAÐUR 7. UMFERÐAR 47RÆR ALLTAF EINN 12
Rio Tinto lagði í gær fram form-
lega kvörtun til Samkeppniseft-
irlitsins vegna „misnotkunar
Landsvirkjunar á yfirburðastöðu
fyrirtækisins gagnvart ISAL. Í til-
kynningu frá álframleiðandanum
segir að láti Landsvirkjun ekki „af
skaðlegri háttsemi sinni“ hafi það
ekki annan kost en að íhuga að
segja orkusamningu sínum upp og
virkja áætlun um lokun. Um 500
manns starfa hjá álverinu. Hörður
Arnarson, forstjóri Landsvirkj-
unar, segir kæruna hafa komið
verulega á óvart. Þá segir hann
erfitt að tjá sig efnislega um málið
þar sem Rio Tinto neiti að aflétta
trúnaði á samningnum. „Það er
mjög sérstakt að leggja fram þessa
kæru og tjá sig efnislega um samn-
inginn með þessum hætti en vera
svo ekki tilbúnir að leggja hann á
borðið,“ segir Hörður. Hann segir
að fyrirtækið telji sig að öllu leyti
fara eftir samkeppnislögum á Ís-
landi og í Evrópu og skoða verði
framhaldið. »2
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Deilumál Álver Rio Tinto í Straumsvík.
Sérstakt að kæra og
ekki birta samning
Um 270 manns voru viðstaddir
innsetningarathöfn Guðna Th. Jó-
hannessonar í embætti forseta Ís-
lands árið 2016. Í ár verða þeir
aðeins um áttatíu talsins, en
vegna hættu á smiti kórónuveiru
hefur verið ákveðið að haga at-
höfninni með öðrum hætti.
„Það yrði gríðarlegt áfall ef
upp kæmi sýking,“ segir Ágúst
Geir Ágústsson, skrifstofustjóri
skrifstofu yfirstjórnar forsæt-
isráðuneytisins. „Við munum
gera allt til að halda þessu í lág-
marki. Það eru ýmsir embættis-
menn sem ekki fá boð að þessu
sinni og það sama á við um for-
menn margra félagasamtaka.
Þessu er skipt niður í nokkra
flokka.“ »4
Mun færri viðstaddir
innsetningu forseta
Liverpool tók í gærkvöld við sigurlaununum í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir sigur á
Chelsea, 5:3, í síðasta heimaleik sínum á keppnis-
tímabilinu. Þar með er þrjátíu ára bið Liverpool
formlega lokið en síðast tók félagið við meist-
arabikarnum vorið 1990. » Íþróttir
AFP
Langri bið Liverpool-manna er loksins lokið
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Sautján þolendur kynferðisofbeld-
is hafa leitað á neyðarmóttöku þol-
enda kynferðisofbeldis það sem af
er júlímánuði. Í sama mánuði í
fyrra leituðu sjö þolendur til neyð-
armóttökunnar. Alls hafa 39 mál
komið inn á borð neyðarmóttök-
unnar í maí, júní og júlí en málin
voru mun færri á fyrstu fjórum
mánuðum ársins; níu í janúar, tvö í
febrúar, níu í mars og níu í apríl,
alls 29 talsins.
Í fyrra voru málin 34 frá maí til
júlí en Hrönn Stefánsdóttir, verk-
efnastjóri neyðarmóttökunnar,
segir erfitt að spá fyrir um það
hvort fleiri mál komi upp í júlí-
mánuði.
Eins og tölurnar bera með sér
hefur álagið aukist talsvert síðan
slakað var á takmörkunum vegna
kórónuveiru.
Þrátt fyrir að skemmtistöðum sé
einungis heimilt að hafa opið til
ellefu á kvöldin eru brotin, eins og
áður, flest skemmtanatengd, að
sögn Hrannar Stefánsdóttur, verk-
efnastjóra neyðarmóttökunnar.
Þrátt fyrir að vera skemmtana-
tengd eiga flest brot sér stað í
heimahúsum en einungis 5% þol-
enda sem til móttökunnar leita
koma þangað vegna kynferðisof-
beldis á skemmtistað.
Málum sem koma inn á borð
neyðarmóttökunnar hefur fækkað
frá árinu 2017, þegar brotin höfðu
aldrei verið fleiri eða 187 talsins.
Þannig voru þau 147 í fyrra en það
sem af er ári eru brotin 68 talsins.
Úr sjö brotum í sautján
Fleiri þolendur kynferðisofbeldis leituðu til neyðarmóttöku eftir tilslakanir
Flest skemmtanatengd
» Einungis 5% brota eiga sér
stað á skemmtistöðum.
» Samt eru flest brot skemmt-
anatengd en eiga sér oftast
stað í heimahúsum.
» Færri leituðu á bráða-
móttöku á meðan harðari tak-
markanir voru á samkomum
fólks en eftir tilslakanir.
MÁlag á neyðarmóttöku ... »4