Morgunblaðið - 23.07.2020, Síða 6

Morgunblaðið - 23.07.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020 Hefurðu smakkað? Meiriháttar ehf. er vel tækjum búið alhliða jarðverktakafyrirtæki Allar nánari upplýsingar eru á, meiriháttar.is í síma S:821 3200 eða með tölvupósti í info@meirihattar.is Við höfum mikla reynslu og erum lausnamiðaðir þegar kemur að húsgrunnum sama hvort sem er í auðveldu moldarlagið eða klöpp sem þarf að fleyga. Við útvegum einnig allskyns jarðvegsefni. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Heyskapur á Suðurlandi er langt kominn og fólk í sveitunum er ánægt með gæði þeirra heyja sem fyrir liggja. „Síðan stytti upp í kring- um 17. júní hefur þetta gengið ljóm- andi vel. Hér á Suðurlandi hefur verið hlýtt í veðri og sprettan því góð. Skúrademb- ur í hóflegum skömmtum hafa hjálpað til svo oft er kafagras á tún- um,“ segir Sigurður Ágústsson, bóndi í Birtingaholti í Hrunamannahreppi. Sigurður rekur stórbú með fjöl- skyldu sinni undir merkjum Foldvegs og á vegum Fögrusteina og Túnfangs sinnir hann heyskap fyrir um tuttugu bændur í uppsveitum Árnessýslu, á Skeiðunum, Flóanum og víðar eftir atvikum. Starfar meðal annars fyrir kúabændur, sem eru með á bilinu 30 til 170 mjólkurkýr. Heyskap þessum fylgir mikil vinna og algengast er í störfum Sigurðar og hans manna að heyjað sé í útistæður, flatgryfjur, stórbagga og útistæður. „Jú, vinnu- dagarnir eru oft langir. En við kvört- um ekki, því starfið er áhugavert og gaman að vera við störf í bjartri sum- arnóttinni,“ segir Birtingaholtsbónd- inn. Langt komið í Landeyjum Í Landeyjunum í Rangárþingi eystra er heyskapur langt kominn. Fyrri slætti er lokið og Jóhann Niku- lásson bóndi í Stóru-Hildisey II lauk annarri yfirferð á túnunum sl. mánu- dagskvöld. Töðuna verkar hann að mestu leyti í stæður og flatgryfjur. „Ég hef verið bóndi í um þrjátíu ár og hef aldrei lokið öðrum slætti jafn snemma og nú. Líðandi sumar hefur verið einstaklega gott og ekki leið nema mánuður frá því fyrri slætti lauk uns við kláruðum annan,“ segir Jóhann sem heyjar á alls um 60 hekt- urum enda með stórt kúabú. Slík eru nokkur í Landeyjunum enda sveitin grösug og góð undir bú. Jóhann reiknar svo með að taka þriðja og síð- asta slátt síðast í júlí eða byrjun sept- ember, eða að minnsta kosti áður en sumarsprettan deyr út. Mikilvægt sé að hafa eitthvað gras á túnum áður en völlurinn fer í vetrardvala og undir snjó. Kal í túnum nyrðra og eystra Heyskapur er langt kominn á Norðurlandi, flestir bændur hafa lok- ið fyrri slætti og nokkrir eru að hefja aðra yfirferð. „Eftir afar harðan vet- ur hefur komið alveg ágætt sprettu- sumar hér í Eyjafirðinum,“ segir Sig- urgeir Hreinsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar. „Okkur veitir ekki af góðri spettum og heyjum. Á Hörgársveit, í Þingeyjarsýslum og alveg austur á land er víða kal í túnum svo ein- hverjir bændur gætu staðið frammi fyrir því í haust að hafa ekki næg hey. Aðrir bændur standa betur, svo menn ættu að geta miðlað heyi sín á milli innan sveita ef þarf.“ Góð spretta og fyrri slætti er víða lokið Morgunblaðið/Eggert Bústörf Fé á túni í Hrunamannahreppi þar sem búið er að slá og binda heyið. Fyrri slætti er víða lokið á Suðurlandi.  Gaman að heyja á bjartri nóttu, segir Birtingaholtsbóndi Sigurður Ágústsson Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Um 2.000 manns hafa farið í skim- un við komu til landsins þegar farið er sjóleiðina til Íslands, að sögn Víðis Reynissonar, yfirlögreglu- þjóns almannavarnadeildar. Flestir koma með flutningaskipum, her- skipum og skútum en öllu færri með skemmtiferðaskipum, þar sem farþegar þeirra fljúga gjarnan til landsins og undirgangast skimun á flugvelli. Skipverjar flutningaskipa, er- lendra sem íslenskra, eru undan- þegnir sóttvarnarreglum, sé stopp- að stutt við á landinu. Hins vegar er áhöfnum, sem undirgangast áhafnaskipti hér á landi, skylt að fara í skimun eins og áhöfn flutn- ingaskipsins Seaboss gerði á mið- vikudaginn í síðustu viku. „Þegar áhöfnin kom í áhafnar- skipti voru tekin sýni og þá voru áhafnarmeðlimir um borð sendir í sóttkví,“ segir Víðir. Allir skipverjar Seaboss fóru í skimun vegna áhafnaskiptanna, þegar skipið lagðist að bryggju við Grundartanga á miðvikudag og reyndust tveir smitaðir af kórónu- veirunni. Alls dvelja fimm úr áhöfn- inni nú í sóttvarnahúsinu. Undanþága skipverja, sem dvelja í skamma stund á landinu, frá sótt- varnareglum felst í því að ekki séu gerðar kröfur um sóttkví. „Það gildir um skipverja sem koma hér, afhenda vöru og eru auð- vitað að stoppa stutt, kannski fara rétt í land og halda síðan aftur um borð og fara. Við höfum ekki sótt á þá,“ segir Víðir og bætir við að ekki væri unnt að afhenda vörur til Ís- lands ef allir skipverjar þyrftu að dvelja í sóttkví. Herskip, sem hafa verið í hafi lengur en í 14 daga, eru undanþeg- in sóttvarnareglum þar sem 14 dag- ar jafngilda sóttkví. „Í flestum löndum hafa menn sett ákveðnar reglur varðandi flug, flutningaskip og flutninga. Sama gildir fyrir íslenskar áhafnir og sem koma erlendis frá og sama með flugáhafnir okkar; þegar það voru sóttkvíarkröfur og menn stoppuðu ekki lengur en sólarhring, þá þurfti ekki að fara í sóttkví.“ Um 2.000 í skimun eftir sjóleiðina  Áhafnaskipti þegar tvö smit greindust hjá Seaboss  Undanþágur algengar Morgunblaðið/Íris Skimun Fjöldi hefur komið sjóleiðina til Íslands og undirgengist skimun. Embætti landlæknis gaf út undanþágureglur um sóttkví 10. júlí fyrir skipaáhafnir. Þurfa áhafnir að uppfylla eftirfarandi kröfur til að eiga rétt á undanþágu:  Eiga sína aðalbækistöð eða vera búsettar hér á landi  „[Áhafnar]meðlimum sem eru þátttakendur í íslensku samfélagi“, sé ekki blandað saman við áhafnir sem dvelja á áhættusvæði  Áhafnir sem berskjaldaðar eru fyrir smiti virði sóttkví- artilmæli sóttvarnalæknis. Áhafnir sem fá undanþágu SÓTTKVÍ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.