Morgunblaðið - 23.07.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020
Eitt mikilvægasta fyrirtækilandsins nálgast bjargbrúnina.
Fari slík illa að ráði sínu með fyrir-
hyggjuleysi og oflæti er björgun
hæpin, hversu mikilvægt sem það
er. Ríkisvaldið horfir til heildar-
hagsmuna umbjóð-
enda sinna og veru-
leikans á sam-
keppnismarkaði.
Hvarvetnaákveða stjórn-
völd að skerast í
leik. Ekkert fyrir-
tæki sem yrði eftir á
alþjóðlegum ber-
angri ætti lífsvon.
Þetta skilja allirnema þeir sem
ættu að hafa putta á
púlsinum, forsvarsmenn „nýrrar
verkalýðshreyfingar“. Það er þó
ekkert nýtt við hana. Það er öfug
nýjungasækni að sópa skarnalagi af
öskuhaugum sögunnar og glápa úr
sér augu á gjaldþrota sósíalisma.
Páll Vilhjálmsson segir:
Efling sækir fyrirmynd til Vene-súela, VR til gulvestunga í
Frakklandi. ASÍ smitast af róttækni
Eflingar og VR, enda annars hætta
á að Sólveig Anna og Ragnar Þór
taki höndum saman um hallarbylt-
ingu.
Á hinn bóginn. Herskár sósíalismiber dauðann í sér fyrir verka-
lýðshreyfinguna. ASÍ náði völdum
og áhrifum í samfélaginu á síðustu
öld með samvinnu við hægrimiðjuna
sem er ráðandi í íslensku samfélagi.
Ef ASÍ segir sig frá þeirri sam-vinnu er úti um verkalýðs-
hreyfinguna. Útlenskir ismar ná
aldrei árangri á Íslandi. Sögulega er
isma-fólkið eins og Gísli á Upp-
sölum. Skrítið, sniðugt en ómark-
tækt.“
Drífa Snædal
Berjaferð á hauga
STAKSTEINAR
Sólveig Anna
Jónsdóttir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Tilkynnt hefur verið að hönnun nýja Herjólfs hafi
hlotið svonefnd Shippax-verðlaun fyrir hönnun
minni ferja.
Í rökstuðningi er vakin athygli á því að hönnun
skili sér í skipi sem auðvelt sé að stjórna við mjög
erfiðar aðstæður gegn opnu hafi og í siglingu inn í
grunna Landeyjahöfn, þar sem búast megi við
háum öldum og hörðum straumum. Þetta kemur
fram í frétt á heimasíðu Vegagerðarinnar. Af-
henda átti verðlaunin á ráðstefnu í apríl en það
frestast fram í september vegna Covid-19.
Það er Jóhannes Jóhannesson hjá JJohannes-
son ApS sem hlýtur hönnunarverðlaunin ásamt
skipasmíðastöðinni CRIST S.A. í Póllandi og
Vegagerðinni sem eiganda Herjólfs. Shippax-
tímaritið, sem veitir verðlaunin, sérhæfir sig í um-
fjöllun um ferjur, skemmtiferðaskip og bílferjur.
Tímaritið, sem er með höfuðstöðvar í Halmstad í
Svíþjóð, hefur verið gefið út í áratugi.
„Það er mjög ánægjulegt að hönnun Herjólfs
hljóti þessi verðlaun enda hefur ferjan reynst
mjög vel í siglingum milli lands og Eyja,“ segir í
frétt Vegagerðarinnar.
Einnig er bent á að Herjólfur mun sigla alfarið
með rafmagni milli Landeyjahafnar og Vest-
mannaeyja þótt lagt hafi verið upp með annað.
Þetta sé fyrsta ferjan sem siglir með 3MWh raf-
hlöðum fyrir opnu hafi. sisi@mbl.is
Hönnun Herjólfs verðlaunuð
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Herjólfur Auðvelt er að stjórna skipinu við mjög
erfiðar aðstæður, segir í rökstuðningi Shippax.
Fyrr í mánuðinum tóku gildi breyt-
ingar á gjaldskrá bifreiðastæða-
stjóðs Akureyrar. Eigendur bif-
reiða sem lagt er ólöglega verða nú
sektaðir um 20 þúsund krónur. Er
það níu þúsund krónum meira en
fyrra gjald sem var 11 þúsund
krónur.
Er hækkun sekta hluti af átaki
sveitarfélagsins sem miðar að því
að fækka bifreiðum sem lagt er
ólöglega. Jafnframt á að leggja
aukna áherslu á að upplýsa öku-
menn um reglur og þannig auð-
velda þeim að komast hjá sektum.
Með umræddri hækkun eru gjöldin
nú í samræmi við sektir sem lög-
reglan leggur á fyrir sams konar
brot.
Gjöld vegna svokallaðra klukku-
brota haldast óbreytt. Á það við um
þar til gerð „klukku-stæði“ í bæn-
um. Breytingin á hins vegar við um
almenn stöðubrot. Undir almenn
stöðubrot fellur til dæmis lagning á
gangstétt, við gangbraut eða á móti
umferð.
aronthordur@mbl.is
Nær tvöfalda sektir
vegna stöðubrota
Morgunblaðið/Hari
Stöðubrot Akureyrarbær hefur ákveðið að hækka sektir vegna stöðubrota.
Baðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Sumaropnun:
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga LOKAÐ
2
0
0
0
—
2
0
2
0