Morgunblaðið - 23.07.2020, Qupperneq 14
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Selfosslaug Besti staður bæjarins.
Dagamunur verður gerður í Sundhöll
Selfoss á morgun, föstudaginn 24.
júlí, í tilefni þess að þá eru liðin 60 ár
frá opnun sundlaugarinnar. Boðið
verður upp á veitingar í anddyri sund-
laugarinnar, sem hefur verið stækkuð
og breytt mikið á þeim sex áratugum
sem liðnir eru frá opnuninni. Árið
1978 var tekið í gagnið útisvæði með
25 metra laug og heitum pottum og
2015 bygging með nýrri afgreiðslu,
búningsklefum og líkamsrækt.
Afmælisdagskrá í sundlaugargarð-
inum hefst kl. 16 með ávarpi fulltrúa
bæjarstjórnar. Þá taka sundsprett
þeir Pétur Kristjánsson og Marteinn
Sigurgeirsson, en þeir voru ungir
drengir þegar þeir tóku sundtökin í
lauginni fyrstir manna árið 1960.
Hátíð á Selfossi á morgun
Synt í 60 ár
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020
ALVÖRU
VERKFÆRI
145
EITTRAFHLÖÐUKERFI
YFIR VERKFÆRI
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is
vfs.is
Söngvararnir Stefán Hilmarsson og
Eyjólfur Kristjánsson halda tvenna
tónleika á Hótel KEA á Akureyri nú um
helgina, föstudag og laugardag. Tón-
leikarnir hefjast kl. 21:00 bæði kvöldin
og er forsala aðgöngumiða hafin á
Hótel KEA og í síma 460-2020.
Eftir að hafa þurft að fresta árlegum
páskatónleikum á Hótel KEA storma
félagarnir norður yfir heiðar. Með í för
verður Þórir Úlfarsson píanóleikari og
munu bestu og þekktustu lög þeirra
kumpána hljóma ásamt gríni og öðru
góðu. Meðal laga sem þeir félagar hafa
flutt eru til dæmis Góða ferð, Draumur
um Nínu, Þín innsta þrá og svo mætti
áfram telja.
Stebbi og Eyvi á Akureyri
Syngja á KEA
Söngvarar Stebbi og Eyvi alltaf góðir.
Á vegum markaðsstofa landshlutanna
verður í dag opnað vefsvæðið upp-
lifdu.is; gagnvirkur upplýsingabrunnur
um fjölmörg svið ferðaþjónustu á Ís-
landi. Vefurinn er einfaldur í notkun;
virkar þannig að
fólk velur sér upp-
hafspunkt ferða-
lags. Getur svo
séð hvað er í boði
á hverjum þeim
stað sem heillar
og hvað skuli
heimsækja. Hægt
er að velja þrjár sí-
ur til að auðvelda
skipulagningu
ferðar; staði, afþreyingu og þemu. Sí-
an staðir nær til að mynda yfir kirkjur,
fornminjar, útsýni, gil og gljúfur, jökla
og hella. Afþreying yfir baðstaði,
hvalaskoðun, matarupplifanir, hjóla-
ferðir, golfvelli, dýragarða og fleira.
Þessir efnisflokkar endurspegla svo
tegund ferðar, fjölskylduferð, ævin-
týraferð, söguslóðir, afslöppun, menn-
ingu, dýralíf eða náttúru. Þróun vefs-
ins hefur verið í höndum framleiðslu-
stofunnar Tjarnargötunnar. Efnið sem
prýðir síðuna er unnið úr einum
stærsta myndabanka sem safnað hef-
ur verið til á Íslandi.
Þegar búið er að velja eru óskir
ferðalangsins dregnar saman og úr
verður heildstæð ferðaáætlun á mynd-
bandi og í skjali sem bæði býr til
spennandi ferðalag – auk þess sem
birtar eru ýmsar hagnýtar upplýs-
ingar.
„Það er frábært að geta nú ýtt
þessu verkefni úr vör með stuðningi úr
Sóknaráætlunum landshlutanna. Fyrst
var uppsetning þessa vefs ætluð er-
lendum markaði en stóraukin eftir-
spurn Íslendinga eftir áreiðanlegum
upplýsingum um ferðatækifæri varð
til þess að ákveðið var að byrja á að
setja síðuna í loftið á íslensku. Allt er
þetta er hluti af endurskipulagningu
íslenskrar ferðaþjónustu sem stendur
yfir. Í haust fer þessi sami vefur svo í
loftið á ensku – og svo verður þetta
þróað áfram með nýjum og meiri upp-
lýsingum,“ segir Arnheiður Jóhanns-
dóttir, framkvæmdastjóri Markaðs-
stofu Norðurlands.
Gagnvirkur upplýsingbrunnur opnaður í dag
Upplifun á Íslandi á nýjum vef
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skógafoss Vinsæll viðkomustaður
á Suðurlandi. Falleg náttúruperla.
Arnheiður
Jóhannsdóttir
Á nokkrum vikum fyrri partársins gerbreyttist starf-semi Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins. Heimsfaraldur af
skæðri veirusýkingu kallaði á nýja
starfshætti, forgangsröðun verk-
efna, önnur vinnubrögð. Á Íslandi
hefur gengið vel að hemja út-
breiðslu veirunnar og árangurinn
hefur vakið verðskuldaða athygli,
þar komu margir að. Starfsfólk
heilsugæslunnar hefur staðið í
fremstu víglínu með ráðgjöf og
sýnatökur hjá fólki með minnsta
grun um Covid. Ráðgjöf vegna
Covid-19 hefur verið mjög um-
fangsmikil á heilsugæslustöðvum,
heilsuveru og síma 1700. Símtöl á
hverri heilsugæslustöð skipta tug-
um og hundruðum á dag og síma-
listar allra, sér í lagi hjúkrunar-
fræðinga, þétt bókaðir.
Á hverjum degi eru tekin hundr-
uð sýna úr fólki með væg einkenni
frá efri loftvegum eða önnur ein-
kenni sem geta samrýmst sýkingu
af kórónuveiru. Meirihluti sýna
sem hingað til hefur verið rannsak-
aður á Landspítalanum, fleiri þús-
und sýni, eru tekin af starfsfólki
heilsugæslunnar. Vinna í hlífðar-
búningi með andlitsgrímur og
hanska er hversdagslegt í dag en
var áður nánast óþekkt.
Sýna biðlund og skilning
Hefðbundin starfsemi hefur
þurft að víkja, en verkefnin hverfa
ekki og nú þarf að sinna fjölmörgu
sem hefur beðið. Nefna má marg-
víslega heilsuvernd, ungbarna-
vernd, mæðravernd, heilsuvernd
aldraðra, skólahjúkrun. Í stað við-
tala hjá læknum og sálfræðingum
komu oft símtöl, það reyndist vel
en hentar ekki alltaf. Viðtal við
skjólstæðing er og verður mikil-
vægur þáttur í starfi heilsugæslu-
læknis. Við sjáum þó nýja tækni
svo sem myndsímtöl í heilsuveru
sem án efa verður meira nýtt í
framtíðinni.
Flæði af upplýsingum hefur ver-
ið mjög mikið. Tölvupóstar til
starfsfólks heilsugæslunnar skipta
tugum ef ekki hundruðum, tíma
þarf til að lesa og fara yfir nýjustu
tilmæli sóttvarnayfirvalda hverju
sinni. Samræma þarf viðbrögð inn-
an starfsstöðvar og milli starfsein-
inga, allir þurfa að fylgjast með og
takast á við ný verkefni, oft með
mjög litlum fyrirvara.
Við biðjum skjólstæðinga okkar
að sýna biðlund og skilning á álagi
á starfsfólk. Það reynir á að starfa
undir miklu álagi um langan tíma
eins og hefur verið reyndin með
starfsfólk heilsugæslunnar um allt
land.
Einvalalið starfsfólks með
fjölþættan bakgrunn
Skimun ferðamanna sem koma
til landsins hófst í júní og hefur
vaxið hratt en gengið vel en skipu-
lagningin er á ábyrgð Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins. Ferðamenn
koma víða að, fljúgandi eða sigl-
andi, og bera niður víðs vegar um
landið. Öllum þarf að sinna, veita
ráðgjöf, taka sýni og tryggja að
svarið berist fljótt og vel. Einvala-
lið starfsfólks með fjölþættan bak-
grunn frá mörgum vinnustöðum
hefur verið samstíga í að leysa
þessa miklu áskorun. Finna lausnir
á skömmum tíma. Ekkert hafði
verið reynt áður.
Mikilvægt er að starfsfólk heilsu-
gæslunnar fái tíma til að hvílast og
jafna sig eftir annasama mánuði.
Við notum sumarið til þess, jafnvel
með breyttri þjónustu stöðva yfir
hásumarið. Þegar haustar verður
vonandi hægt að opna stöðvar aftur
eins og var með öflugri dagvakt,
bráðum erindum sinnt án tímabók-
unar og opnað fyrir tímabókanir á
heilsuvera.is. Til þess að svo verði
þurfum við að treysta okkar skjól-
stæðingum með sóttvarnir. Hringja
og fá ráð, ekki koma án þess að
hafa samband, ef eru einkenni frá
efri loftvegum. Á öllum stöðvum
eru einnig maskar og hanskar við
innganginn fyrir alla með kvef-
einkenni. Gætum að fjarlægð og
eigin sóttvörnum. Við viljum hafa
gott aðgengi á öllum stöðvum allan
daginn en þurfum jafnframt að
gæta öryggis okkar starfsfólks.
Aðlagast breyttum tímum
Fátt er eins og það var áður og
erfitt er að ráða í framtíðina. Við
erum að horfa á breytta tíma, það
sem við þekktum sem venjulegt og
eðlilegt er það ekki lengur. Hegðun
okkar breytist, samskipti og sam-
skiptaform. Við í Heilsugæslunni
þurfum að aðlaga okkur breyttum
tímum og öðru starfsumhverfi en
við erum vön. Það mun án efa tak-
ast vel með öflugu starfsfólki og í
góðri samvinnu við skjólstæðinga
okkar.
Álag og breytt vinnubrögð
Morgunblaðið/Eggert
Sýnataka Gjörbreyta þurfti starfsháttum heilsugæslunnar á tímum veirunnar en nú er eðlilegt ástand að komast á.
Heilsuráð
Sigríður Dóra Magnúsdóttir
Framkvæmdastjóri lækninga
hjá Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.