Morgunblaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020 VERTU NÁTTÚRULEGUR. VERTU ÞÚ SJÁLFUR. LÁTTU KRAFTA CADE VERNDA HÚÐ ÞÍNA Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is Hjólreiðahátíð Hjólreiðafélags Akureyrar og veitingastaðarins Greifans verður haldin næstu daga á Akureyri og þar um kring. Keppt verður í fjölda greina hjólreiða, bæði innan- og utanbæjar. Mótið hófst í gærkvöldi á tímatöku í Eyja- firði. Hjólað var frá Akureyri út á Hrafnagil og til baka. Hátíðin mun standa yfir til sunnudags, en þétt dagskrá verður alla daga. Mótið er hluti af stigamótamóti Hjólreiðasambands Íslands (HRÍ) og því þurfa keppendur að vera skráðir í hjólreiðafélag. Þarf slíkt félag jafnframt að vera með aðild að HRÍ til að keppendur geti tekið þátt í mótinu. Sem fyrr segir fór tímataka fram í Eyjafirði í gær- kvöldi, en hún telur til stiga í móta- röðinni „Hjólreiðagreifi/Hjólreiða- greifynja“. Keppt verður eftir keppnisreglum HRÍ. Hins vegar verður öllum frjálst að skrá sig í almenningsflokk í Gangamóti Greifans í dag, en í flokknum gilda rýmri reglur. Ræst verður frá Sigló Hóteli á Siglufirði klukkan 18 og hjólað til Akureyrar. Endamarkið verður við skíðahótel í Hlíðarfjalli og á svæði Bílaklúbbs Akureyrar. Þó er endamarkið eilít- ið misjafnt eftir flokkum. Á morgun og um helgina verður sömuleiðis mikið um að vera. Á morgun fer fram Íslandsmót í fjallahjólreiðum yngri flokka. Þá verða sex keppnir um helgina, þar á meðal brekkusprettur í Listagili, stigamót í Criterium og kirkju- tröppubrun. Sökum þess að mótið verður víða á Akureyri má búast við talsverðum töfum og takmörkunum á umferð. Einhverjar götur verða tímabundið lokaðar fyrir bílaumferð auk þess sem umferð verður stýrt á stöku stað. aronthordur@mbl.is Morgunblaðið/Hari Hjólreiðar Mikið verður um að vera á Akureyri um helgina. Hjólakeppni fyrir norðan um helgina  Umferðartafir í nágrenni Akureyrar Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Átak hefur verið gert í markaðssetn- ingu á Reykjanesi með það fyrir aug- um að trekkja að ferðamenn. Er þetta gert til að bregðast við sam- drættinum sem orðið hefur í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. Hekl- an, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja, stendur fyrir átakinu. Átakinu verður beint að bæði inn- lendum og erlendum ferðamönnum og verður þeim kynnt allt það helsta sem til boða stendur á svæðinu. Markaðsstofan hefur unnið að verk- efninu, en hún tók á dögunum þátt í átaki Ferðamálastofu þar sem Ís- lendingar eru hvattir til að ferðast innanlands í sumar auk þess að kaupa vörur ferðaþjónustufyrir- tækja. Auglýsingastofan Branden- burg hefur haldið utan um framan- greint verkefni, en það mun nýtast aðilum í öllum landshlutum. Mark- aðsstofan hefur farið fyrir fram- leiðslu á kynningarefni fyrir Reykja- nes og eru vonir bundnar við að svæðið njóti góðs af því. Hluti af efn- inu er komið í birtingu og annað er í framleiðslu. Þá er fleira í bígerð sem tilkynnt verður síðar. Nú þegar eru nokkur verkefni far- in af stað, þar á meðal ný auglýsing frá markaðsstofu Reykjaness. Þar eru kynntar náttúruperlur og fjöl- breytt afþreying á Suðurnesjum. Heimamenn fóru með aðalhlutverk í auglýsingunni, en meðal þess sem sýnt var frá voru fjórhjólaferðir, sjóstöng, Bláa lónið og sjósund. Ferðaþjónustufyrirtæki á Reykja- nesi komu einnig að verkefninu. Þá hefur verkefni sem ber yfir- skriftina „Góður dagur á Reykja- nesi“ verið í gangi um nokkurt skeið. Um eins konar ímyndarátak er að ræða þar sem góðum sögum af Reykjanesi er deilt með fólki. Þannig hefur átakið verið unnið í samstarfi við áhrifavalda sem sótt hafa Reykjanesið heim að undanförnu. Hafa þeir jafnframt deilt upplifun sinni með fylgjendum, en mikil ánægja hefur verið með hvernig til hefur tekist. Reykjanes í forgrunni í nýrri markaðsherferð  Áhrifavaldar deila jákvæðri upplifun með fylgjendum Ferðamenn Átak í markaðssetningu á Reykjanesi hefur farið vel af stað. Næstkomandi laugardag, 25. júlí, kl. 15 flytur Friðrik Erlings- son rithöfundur fyrirlestur að Kvoslæk í Fljóts- hlíð sem ber yfir- skriftina Fingra- för Sæmundar fróða - Hverjar eru helstu vís- bendingar um ritstörf Sæmundar Sigfússonar í Odda? Þar fer Friðrik yfir heimildir um og tilvitnanir í Sæ- mund í fornum bókum, sem ýmsir fræðimenn hafa velt fyrir sér. „Eng- in heildarúttekt hefur verið gerð á mögulegum verkum Sæmundar, en þau gætu verið þó nokkur ef grannt er skoðað. Til dæmis hef ég hvergi séð minnst á að Sæmundur muni hafa skrifað eða þýtt sögu af heil- ögum Nikulási, en það er útilokað annað en að hann hafi sett saman slíkt verk fyrir kirkjuna í Odda. Við vitum með vissu að hann samdi Noregskonungatal og langfeðgatal Skjöldunga, það er Danakonunga, og við vitum að hann á sinn hlut í Tíundarlögum og Kristnirétti,“ seg- ir Friðrik Erlingsson og enn frem- ur: „Svo er spurningin hversu stóran þátt hann á í sköpun eða söfnun þeirra fræða sem Snorri Sturluson nýtir sér við gerð Snorra-Eddu, tæpri öld eftir dauða Sæmundar. Það er vitnað til Sæmundar í Land- námu, um komu Naddodds til lands- ins, og í þessum frásögnum af komu fyrstu norrænu mannanna til lands- ins má finna fingraför hins lærða manns þegar grannt er skoðað.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Oddi Hér sat Sæmundur forðum tíð. Segir frá Sæmundi  Friðrik á Kvoslæk Friðrik Erlingsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.