Morgunblaðið - 23.07.2020, Page 39

Morgunblaðið - 23.07.2020, Page 39
til áratuga, Þórð, breytast í þjónustulipran verslunarmann sem vildi hvers manns vanda leysa og virtist takast vel upp á nýjum vettvangi. Þá var einnig mjög sérstakt að sjá, hvernig hann tileinkaði sér nýja siði á vett- vangi tölvutækninnar og jók stöð- ugt við þá þekkingu þótt aldur færðist yfir. Á seinni árum fækkaði sam- fundum samhliða færri norður- ferðum. Engu að síður hittumst við af og til, bæði norðan og sunn- an heiða. Sérstaklega er minnis- stæð heimsókn norður í maí 2018 þar sem haldið var upp á aldar- afmæli Þórðar og afmælisbarnið lék á als oddi. Komið er að kveðjustund. Við Anna mín kveðjum Þórð Árna með virðingu og þökk fyrir ánægjuleg kynni og hlýhug í okk- ar garð. Fjölskyldunni allri send- um við einlægar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Þórðar Árna Björgúlfssonar. Guðmundur Jóelsson. Það eru ekki allir sem gátu sagt að þeir ættu öldung sem vin en þannig varð það hjá mér. Ég kynntist Þórði fyrst var ég barn og hann fullorðinn maður. Ég var þá strákpjatti og sendill á bíla- verkstæði en hann járniðnaðar- maður á öðru verkstæði þar sem ýmislegt var unnið fyrir bíla- verkstæðið. Brosmildi hans og glaðvær og vinarleg framkoma eru mér minnisstæð frá þessum barndómsárum. Þá var ég skóla- bróðir og jafnaldri Bjargar dóttur hans og kynntist einnig fljótlega sonum hans Friðriki og Björgúlfi og með börnum hans og mín skap- aðist góð vinátta sem varað hefur fram á þennan dag. Þórður var vinmargur og átti mjög auðvelt að eignast góða félaga. Hann var í Skíðastaðafélaginu þar sem ungt og duglegt fólk byggði skíðaskála ofan og norðan við Fálkafell. Þetta var á sínum tíma glæsilegur skáli og mikið notaður af þeim sem byggðu hann. Þarna iðkuðu menn skíðaíþróttina í sól eða tunglsljósi á Súlumýrunum og í brekkum Súlna. Skálinn varð síð- an eign skáta en er nú horfinn en þó má sjá tóftir hans ennþá. Ég gerðist félagi í Frímúrarareglunni fyrir tæpum fimmtíu árum og þá var Þórður einn af þeim góðu bræðrum sem tóku á móti mér og óskuðu mér velfarnaðar á þeim vegum. Þórður var rúm sextíu ár í því félagi og stundaði sitt starf þar allt fram til þess að hann varð eitt hundrað ára og heilsan var þá far- in að gefa sig. Björgúlfur sonur hans sagði mér stuttu fyrir andlát hans að þá virtistist lífið vera að fjara út en húmorinn alltaf í lagi. Þórður fylgdist alltaf mjög vel því sem var að gerast í kring um hann og á efri árum lærði hann á tölvu og gat verið í sambandi við alla sína ættingja og vini úti um allt land og út um allan heim. Hann sagði mér eitt sinn að hann talaði við eitthvert þeirra og stundum mörg á hverjum degi. Það er mik- ið lán að eiga öldung að vini sem hægt er að spjalla við og fræðast um liðna tíma því svo sannarlega hefur maður eins og Þórður heit- inn lifað tímana tvenna svo og mjög mikið breytingartímabil. Nú er hann farinn yfir móðuna miklu og hefur hafið nýtt líf á nýjum vettvangid, nú við hlið konu sinn- ar sem hann unni svo mikið og dáði. Þessi stóri og glæsilegi mað- ur maður gengur ekki lengur hnarreistur um götur bæjarins og ekki er hann lengur að finna á fundum okkar frímúrara. Við hugsum til hans með söknuði og fyrir hönd okkar bræðranna þökkum við góð kynni og mikla vináttu. Þórður hvaddi þetta líf rúmlega hundrað og tveggja ára og saddur lífdaga. Það er mín ein- læga ósk að hinn hæsti höfuð- smiður haldi sinni verndarhendi yfir börnum Þórðar svo og fjöl- skyldum þeirra um alla framtíð. Far þú í friði kæri vinur og bróðir og hafðu þökk fyrir allt og allt. Ólafur Ásgeirsson. MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020 ✝ Þórný ÁstaÞorsteins- dóttir fæddist í Reykjavík 24. september 1966. Hún lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 13. júlí 2020 eftir langvarandi veikindi. Foreldrar henn- ar eru Þórdís Þor- geirsdóttir, f. 1941, og Þorsteinn Magn- ússon, f. 1933, d. 2016. Systk- ini Þórnýjar eru: Þórrún Sig- ríður, f. 1962, gift Reyni Sigurðssyni, f. 1963. Börn: Þórdís, Helga María og Reynir Tómas; Þórður Geir, f. 1969, giftur Önu Mörthu Helenu, f. 1979. Börn: Þorsteinn Máni með fyrri konu sinni, Björgu Loftsdóttur, og Klara María Hel- ena. Þórný var í sambúð um nokk- ura ára skeið á Akranesi með Jóni Sólmundarsyni, f. 1962, og saman eignuðust þau son- inn Sólmund Erni árið 1991. Þórný ólst upp í Vesturbæ Reykjavíkur og stundaði nám í Ísaksskóla, Melaskóla og Hagaskóla. Lauk síðar námi frá Lýðháskólanum í Skálholti og Húsmæðraskól- anum á Varmalandi. Hún sinnti ýmsum störfum á meðan heilsan leyfði. Útför Þórnýjar hefur farið fram í kyrrþey. Ég kom í heiminn á eftir tveimur eldri systrum, þremur árum á eftir Þórnýju. Sem barn og unglingur hafði ég takmark- aðan skilning á þeim erfiðleikum og þeirri fötlun sem hún bjó við og virtist að einhverju leyti hafa fylgt henni frá því í barnæsku. Ég ólst upp við að hún stamaði talsvert og fannst mér það ekk- ert óvanalegt, en ég gerði mér síðar meir grein fyrir því að á þessum tíma hefur þetta verið mikil byrði að bera fyrir unga stúlku og átt þátt í og valdið henni félagslegri einangrun. Við áttum hins vegar oft góða tíma sem systkini og lékum okkur saman og man ég vel eftir þykka ljósa hárinu hennar og hversu vel prjónaskapur lá fyrir henni sem hún lærði hjá móðurömmu okk- ar. Hún var dugleg og vinsæl barnapía í hverfinu. Þá gat hún verið mikill húmoristi og var oft sérlega hnyttin í tilsvörum. Börn af hennar kynslóð sem ekki fylgdu hinu hefðbundna normi samfélagsins fengu ekki þann stuðning sem slík börn fá í dag. Ekki er ólíklegt að Þórnýju hefði farnast betur í nútímanum í skóla án aðgreiningar og líf henn- ar þá hugsanlega farið á annan veg. Það er sérstaklega fallegt að sjá þegar litið er til baka hvað faðir okkar var alltaf góður og skilningsríkur við hana og hafði gott innsæi í þá félagslegu erf- iðleika sem hún átti við að etja. Hann reyndist henni afskaplega vel á meðan hans naut við. Örlögin höguðu því þannig að Þórný kynntist Jóni Sólmundar- syni og bjó með honum um nokk- urra ára skeið á Akranesi. Var það góður tími í hennar lífi og eft- ir langa meðgöngu og erfiða fæð- ingu eignaðist hún son þeirra, Sólmund Erni. Var hann frá þeim tíma sólargeislinn í hennar lífi, en hann greindist nokkurra ára gamall með einhverfu og sein- færni. Skilur leiðir á milli hennar og Jóns og sálrænir og félagsleg- ir erfiðleikar Þórnýjar verða aug- ljósari. Flutti hún í kjölfarið aftur til Reykjavíkur og fékk í fyrsta skipti einhvers konar greiningu og stuðning gagnvart sinni van- líðan. Stóð hún sig afskaplega vel sem einstæð móðir með fatlaðan son og bjó þeim gott heimili. Og hún naut ávallt mikils stuðnings frá foreldrum okkar. Ekki er öllum gefið að ná starfsframa, mikilli athygli eða efnahagslegum árangri í lífinu. Má segja að Þórný hafi á sinni lífsleið oft verið hornreka í sam- félagi okkar og rekist utan í marga veggi þess. Hún var hins vegar heiðarleg í því sem hún tók sér fyrir hendur og skipti þar Sólmundur hana öllu máli og síð- ar meir kötturinn Lubbi sem kom inn í líf þeirra. Til viðbótar við aðra erfiðleika og byrðar sem á hana voru lögð á lífsgöngu hennar fór líkamleg heilsa niður á við fyrir nokkrum árum. Var hún í byrjun maí síðastliðins greind með alvarlegan lungna- sjúkdóm eftir innlögn á A-6 á Landspítalanum í Fossvogi. Þar fékk hún sérstaklega fallega og aðdáunarverða umönnun hjá starfsfólki deildarinnar. Það fjar- aði smám saman undan lífskraft- inum og eftir rúmlega tíu vikna sjúkrahúslegu gaf líkaminn loks eftir og Þórný dró síðasta and- ardráttinn, södd lífdaga í faðmi sinna nánustu. Minningarljós hennar mun þó áfram loga á með- al okkar sem næst henni stóðum. Þórður Geir Þorsteinsson. Mikið var ég glöð þegar þú komst inn í líf mitt sem litla syst- ir mín. Gleðin var þvílík að ég hljóp niður af 4. hæð og niður á götu til að segja tíðindin í óspurð- um fréttum. Nokkrum árum seinna eignuðumst við saman lít- inn bróður. Síðar fór það svo að ég varð litla systirin og þú sú stærri. Það eru margar góðar minn- ingar sem koma upp í hugann um samverustundir okkar. Fyrstu árin ólumst við upp í úthverfum Reykjavíkur en síðan lá leiðin vestur í bæ, á æskustöðvar pabba, á Víðimel. Þar áttum við góða bernsku, umvafðar fjöl- skyldu og vinum. Myndaalbúm fjölskyldunnar bera þess vitni nú á þessum tímamótum þegar litið er yfir farinn veg. Síðan leið tím- inn og margt bar á daga þína og þú fékkst að reyna ýmislegt. Þú varst mikil barnagæla, hafðir un- un af börnum og fengu systkina- börn þín að njóta þess. Handa- vinna lék í höndum þér. Sérlega natin, vandvirk og þrautseig við handverkið og óspör á að rekja upp ef ekki var nógu vel gert. Þið pabbi áttuð vel saman, brölluðuð margt og var hann allt- af fús að skutlast og gera og græja ef þess þurfti. Þú fórst með honum og hópum hans í margar ferðir innan lands sem utan. Í einni slíkri ferð, á hesta- slóðum í Evrópu, kynntist þú ungum manni frá Akranesi sem síðar varð barnsfaðir þinn. Síðar kom Sólmundur Ernir í líf þitt, sólargeislinn sjálfur, kær einka- sonur, stolt þitt og gleðigjafi. Þið hafið ýmsa ölduna stigið saman og staðið í ströngu en átt hvert annað að. Þú bjóst ykkur Sól- mundi Erni fallegt heimili í Vesturbænum, þar sem sólar- lagsins nýtur út um eldhúsglugg- ann á sumarkvöldum. Kötturinn Lubbi var félagi þinn og bjó á heimili ykkar í 16 ár. Oft beið hann eftir þér út við götu þegar þú hafðir farið af bæ. Síðan fylgdust þið að, samferða, hlið við hlið inn í íbúðina þína. Lubbi sat við hliðin á þér í rauða sófanum og þið horfðuð saman á sjónvarpið, og svo svaf hann til fóta hjá þér á nóttunni. Minningarnar eru margar og hver minning er dýrmæt perla. Missirinn er mikill þó mestur fyr- ir son þinn, Sólmund Erni. Á fallegum sumardegi kvaddir þú þetta líf í faðmi fjölskyldunnar og lagðir af stað í þitt síðasta ferðalag, á vit föður okkar og for- feðra. Ég þakka samfylgdina kæra systir og mun varðveita minningu þína. Þórrún Sigríður Þorsteinsdóttir. Mig langar að minnast mág- konu minnar, Þórnýjar Ástu Þor- steinsdóttur, nú þegar hún hefur kvatt þennan heim. Við kynnt- umst þegar hún var unglingur og ég var farinn að venja komur mínar á Víðimel fyrir tæplega 40 árum, fyrst sem leynigestur í heimsókn til systur hennar og síðar sem fullgildur meðlimur fjölskyldunnar. Ég hef því fylgst með og tekið þátt í lífi hennar jafnt í gleði sem sorgum. Það var mikil gleði þegar sonur hennar Sólmundur fæddist og var hann sólargeislinn í lífi hennar. Það var fyrir tíma farsíma og vorum við hjónin úti á landi á þeim tíma sem hún lá sængurleguna og þurftum við að hringja á tveggja tíma fresti úr símaklefa til að fá nýjustu fréttir. Á Seilu- grandanum bjó hún sér og Sól- mundi heimili allt þar til að hann flutti að heiman á sitt eigið heim- ili. Heimiliskötturinn Lubbi var gleðigjafi og tók hann oft á móti henni úti á stétt þegar hún kom heim. Við höfum átt margar ánægjulegar samverustundir í gegnum tíðina, hvort sem það voru matarboð, veislur eða ferða- lög nú eða á heimili hennar að spjalla um lífið og tilveruna. Hún stamaði og átti stundum erfitt með að koma skilaboðum sínum á framfæri en hún átti auð- velt með að tjá sig í rituðu máli og var sannarlega mikill húmor- isti. Ég fékk alltaf sms frá henni á afmælisdaginn minn með skemmtilegum kveðjum. Kveðj- ur til mín byrjuðu gjarnan á „Sæll kæri mágur“ eða „Jæja Reynir Sigurðsson“ og enduðu gjarnan á „Þórný og synir (Lubbi líka)“ eða „kveðja Þórný, Lubbi og fjölskylda“. Síðustu skilaboðin sem ég fékk frá henni voru á þessa leið: „Jæja, Reynir Sig- urðsson, þá er maður kominn með hjásvæfu“, þegar hún fékk súrefnisvélina sem nota átti á nóttunni. Allt fram á síðustu stundu gat hún séð spaugilegu hliðina á tilverunni. Síðustu árin voru Þórnýju erf- ið vegna veikinda sem að lokum báru hana ofurliði og nú hefur hún fengið hvíld. Ég kveð hana í anda skilaboða hennar: Kæra mágkona, hvíl í friði. Ég bið að heilsa afa Þorsteini. Kveðja. Reynir og fjölskylda. Þórný Ásta Þorsteinsdóttir Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is Stofnað 1990 Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR kennari, frá Harðbak á Melrakkasléttu, Lindarseli 7, Reykjavík, lést á heimili sínu að morgni 10. júlí. Útför hennar fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi mánudaginn 27. júlí klukkan 13. Vinsamlegast athugið breytta staðsetningu á útförinni. Sæmundur Rögnvaldsson Ingibjörg Axelsdóttir Elín Rögnvaldsdóttir Björgvin Guðmundsson Margrét Rögnvaldsdóttir Magnús H. Ingþórsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA GESTSDÓTTIR Garðatorgi 17, Garðabæ, lést á Landspítalanum 17. júlí. Útför hennar fer fram frá Garðakirkju mánudaginn 27. júlí klukkan 13. Jóhann Þórir Gunnarsson Herdís Hermannsdóttir Gestur Gunnarsson Helga Skúladóttir Elísabet Gunnarsdóttir Guðrún Gunnarsdóttir Einar Sigurður Björnsson Dagmar Gunnarsdóttir Jóhann Áki Björnsson barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæra sambýliskona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA HALLDÓRSDÓTTIR Stella, Hjarðarhaga 38, Reykjavík, lést mánudaginn 20. júlí á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi miðvikudaginn 29. júlí klukkan 13. Magnús Þ. Jónsson Guðmundur Guðbjörnsson Friðbjörg Blöndahl barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, stjúpfaðir og afi, ÖRN GEIR JENSSON Bláhömrum 4, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi þriðjudaginn 14. júlí. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 27. júlí klukkan 13. Þuríður Ingibergsdóttir Halldór Þór Arnarson Jóhanna Geirsdóttir Linda Björg Arnardóttir Guðjón Ágúst Guðjónsson Íris Lind Sæmundsdóttir Sirrý Sæmundsdóttir Berta Björg Sæmundsdóttir og barnabörn Við sendum innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegrar SOLVEIGAR THORARENSEN. Ingunn Ósk Sturludóttir Steinunn Rósa Sturludóttir Sigþór Sigurðsson Óskar Sturluson Þorgerður Jörundsdóttir ömmubörn og langömmubörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.