Morgunblaðið - 23.07.2020, Page 40

Morgunblaðið - 23.07.2020, Page 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020 ✝ Lára Hafliða-dóttir fæddist á Garðstöðum við Ísafjarðardjúp 17. desember 1930. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Droplaugarstöðum 7. júlí 2020. Hún var dóttir hjónanna Hafliða Ólafssonar, f. 1900 á Strandseljum í Ögursveit, d. 1969, og Líneikar Árnadóttur, f. 1902 á Ísafirði, d. 1980. Systkini Láru voru Hall- dór, f. 1933, d. 2009, Guðríður, f. 1934, d. 1956, Drengur, f. 1936, d. 1936, Ragnhildur, f. 1937, d. 2018, Erla, f. 1940, d. 2015, og Ása, f. 1941, d. 1998. Lára giftist Sveini H. Brynj- ólfssyni, f. 1930, d. 1997. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Kol- brún, f. 1951. Börn hennar eru Arnar Hjartarson, f. 1975, d. 2019, og Hjördís Ísabella Hjör- leifsdóttir Kvaran, f. 1981. 2) Svanhvít Matthildur, f. 1955, gift Smára Tómassyni, f. 1954. Dætur þeirra eru Vilborg, f. 1980, Helena, f. 1987, sambýlis- maður hennar er Hallgrímur Pálmi Stefánsson, f. 1987, og Björk, f. 1992. 3) Brynjólfur Már, f. 1956, d. 2015, giftur Jó- hönnu Fjeldsted, f. 1953. Sonur þeirra var Brynjólfur Rafn, f. 1981, d. 2017. Son- ur Jóhönnu og fóst- ursonur Brynjólfs er Hjörtur Þór Fjeldsted, f. 1975, giftur Önnu Han- sen Davíðsdóttur, f. 1986, börn þeirra eru sjö. Barna- barnabörn Láru eru fimm. Lára ólst upp á Garðstöðum í Ögursveit til 12 ára aldurs, en þá flutti fjölskyldan yfir í Ögur í sömu sveit. Hún lauk gagn- fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Ísafjarðar. Hún fluttist ung til Reykjavíkur og vann m.a. hjá Steindórsprenti. Fyrstu búskaparár sín bjó hún í Kópa- vogi. Þegar börnin voru orðin þrjú, árið 1956, veiktist hún af lömunarveikinni sem þá gekk og í kjölfarið voru börn hennar send í fóstur innan fjölskyld- unnar. Þegar hún hafði náð nokkrum bata árið 1958 fékk hún starf í félagsmálaráðu- neytinu og var skipuð deild- arstjóri þar frá 1978 til starfs- loka. Þar sá hún m.a. um úthlutun úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Síðasta árið dvaldi Lára á hjúkrunarheim- ilinu Droplaugarstöðum. Lára var jarðsungin frá Foss- vogskirkju hinn 20. júlí 2020. Ég byrgist við runnalimið lágt. Í lognkyrrð öll hlíðin glitrar. Sólin sér hallar frá hádegisátt. Ég hlusta á skógarins andardrátt og ilmbylgjan um mig titrar. (Einar Benediktsson) Fyrir hönd fjölskyldunnar á Vík í Mýrdal, Svanhvít. Lára Hafliðadóttir ✝ Gunnar M. Erl-ingsson fædd- ist á Blönduósi 3. apríl 1960. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 11. júlí 2020. Foreldrar hans eru hjónin Kolbrún Gunnarsdóttir, f. 9. desember 1939, og Erling Jón Sigurðs- son, f. 23. mars 1938. Systkini Gunnars eru: 1) Erla Jóna, f. 7. apríl 1957, maki Einar Hjálmar Jónsson. Þau eiga þrjú börn og fjögur barna- börn. 2) Sigurður Kristinn, f. 23. ágúst 1961. Hann á fjögur börn og fjögur barnabörn. 3) Dreng- ur, f. 23. ágúst 1961, dó sama dag. 4) Elín Íris, f. 24. nóvember 1963, búsett í Bandaríkjunum, maki James Lee. Þau eiga tvö börn og á Íris son frá fyrra hjónabandi og tvö stjúpbörn. 5) Drengur, f. 11. maí 1966, dó sama dag. 6) Ásdís Ósk, f. 20. október 1967, maki Sigurður stúdentspróf frá Verzl- unarskóla Íslands 1980, með cand. oecon.-gráðu frá Háskóla Íslands 1984 og varð löggiltur endurskoðandi 1987. Hann rit- stýrði Verzlunarskólablaðinu 1977-1978. Gunnar byrjaði ung- ur að vinna fyrir sér og vann óslitið alla tíð. Hann hóf störf í Matvælabúðinni í Efstasundi hjá Erni og Hjördísi sem barn og vann hjá þeim fram á unglings- ár. Með þeim var góð vinátta og varði Gunnar mörgum stundum með þeim, m.a. í hestamennsku. Næst lá leiðin í Vörðufell í Kópavogi og starfaði hann þar meðfram námi. Gunnar ákvað á unga aldri að starfa sem endur- skoðandi og samhliða há- skólanámi hóf hann starfsnám hjá Endurskoðunarskrifstofu Árna Björns og Reynis í Húsi verslunarinnar 1981-1985. Hann hóf störf á Endurskoð- unarskrifstofu Helga Magn- ússonar 1985. Gunnar og Ragn- ar Bogason keyptu reksturinn af Helga ári síðar og störfuðu þeir saman til 1994. Síðar meir starfaði Gunnar undir formerkj- um DFK Endurskoðunar og var með skrifstofu í Skipholti 50d. Útförin fer fram frá Bústaða- kirkju í dag, 23. júlí 2020, klukkan 13. Sigurbjörnsson. Ás- dís á fjögur börn og þrjú stjúpbörn. Eiginkona Gunn- ars er Lilja Guð- jónsdóttir, f. 10. janúar 1960, snyrti- fræðingur. For- eldrar hennar eru Sigfríður Runólfs- dóttir, f. 28. apríl 1928, og Guðjón Andrésson, f. 24. október 1920, d. 20. júní 2012. Gunnar og Lilja gengu í hjóna- band 23. júlí 1983. Börn þeirra eru: 1) Kolbrún Fríður, f. 26. ágúst 1985. Maki Sigurður Dag- ur Sigurðarson. Þau eiga fjögur börn; Gunnar Örn, f. 5. mars 2006, Björgvin Loga, f. 4. júlí 2011, Lilju Kristínu, f. 8. desem- ber 2018, og Birki Úlfar, f. 4. mars 2020. 2) Andri Örn, f. 9. ágúst 1988. Maki Dagný Jóns- dóttir. Gunnar ólst upp í Langholts- hverfinu og gekk í Langholts- skóla. Hann útskrifaðist með Elsku hjartans engillinn minn! Ég sit hérna á heimilinu okkar og tárin renna. Þau renna af því þú fórst alltof fljótt frá mér. Þú varst nýorðinn sextugur og við búin að ákveða svo margt sem við ætluðum að gera í framtíðinni. Ætluðum að verða gömul og grá saman eins og ég orðaði það alltaf. Ævi okkar hefur verið ótrúlega mikið samtvinnuð. Við erum bæði fædd á Blönduósi árið 1960 og skírð saman í kirkjunni á Skaga- strönd það sama ár. Við lékum okkur saman á fyrstu árum æv- innar. Mamma mín passaði þig og kom okkur alltaf vel saman að hennar sögn. Allavega kom okkur það vel saman að þú sagðir alltaf að þú hefðir beðið mín í sandkass- anum heima á Skagaströnd. Mættir svo tuttugu árum síðar og náðir í kvonfangið. Það er ljúfsárt að jarðarfarar- dagurinn þinn skuli vera á 37 ára brúðkaupsafmælinu okkar og út- förin í sömu kirkju og við giftum okkur í. Það hefur margt drifið á dagana öll þessi ár okkar. Eign- uðumst gullmolana okkar Kollu og Andra og yndislegu barna- börnin okkar Gunnar Örn, Björg- vin Loga, Lilju Kristínu og Birki Úlfar. Ég lofa að passa uppá þau öll eins og þú gerðir alltaf. Þótt sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kölluð á örskammri stundu, í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða, svo gestrisin, einlæg og hlý. En örlög þín ráðin - mig setur hljóða, við hittumst ei framar á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó komin sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Sigríður Hörn Lárusdóttir) Ég elska þig ástin mín. Þín Lilja. Elsku pabbi minn. Þú tókst á móti mér í þennan heim og ég ályktaði að ég myndi einhvern tímann þurfa að fylgja þér út úr honum, en ég vissi ekki að það myndi gerast svona skyndilega, þú áttir að eiga svo mikið eftir. Við sátum saman fram á síðasta augnablik, hönd í hönd, og fórum yfir lífið og tilveruna og hlustuð- um á lögin þín. Þú varst einungis lítill drengur þegar þú varst búinn að ákveða hvað þig langaði að gera í lífinu, þú gerðir það með stæl og meira en það. Þú skapaðir gott líf fyrir aðra í kringum þig, umhverfi þar sem aðrir gátu blómstrað. Þú varst ekki maður margra orða, en þú varst maður margra góðverka og lést margt gott af þér leiða. Hjálpsemi þín, gjafmildi og dugn- aður áttu sér fá takmörk, þú varst ávallt til staðar fyrir þína nánustu og aðra sem minna máttu sín. Þú kenndir okkur að nálgast flókin verkefni lífsins og viðfangsefni hversdagsins af kærleika og æðruleysi, þú varst þeim eigin- leika gæddur að mæta fólki þar sem það var statt, af einlægni og hlýju. Ég hef eytt miklum tíma á skrifstofunni þinni síðastliðnar vikur, þar er allt ósnert, líkt og tíminn standi í stað. Möppurnar á sínum stað, ennþá smá kaffi í boll- anum og reiknivélin sýnir enn þá þinn síðasta útreikning, þína síð- ustu hugsun við ævistarfið. Það er köld og sársaukafull staðreynd að þú sért farinn. Stórt skarð er höggvið í fjölskylduna og við stöndum eftir sorgmædd, en það er ómetanlegt að geta kallað fram þær ljúfu og fallegu stundir sem við áttum saman. Þið mamma vor- uð ávallt stoð og stytta hvort ann- ars, hvort sem það var í sandkass- anum sem börn eða á seinni árum, við munum gera okkar besta til þess að styðja hana. Takk fyrir ferðalagið. Gildi þín og eiginleikar munu vera okkur leiðarljós. Hlakka til að sjá þig einhvern tímann aftur og hlusta saman á lögin þín og sjávarniðinn. Andri Örn Gunnarsson. Elsku besti pabbi minn. Fyr- irmyndin mín, kletturinn minn og besti vinur. Ég trúi ekki að ég sé að skrifa þessi orð til þín. Þú áttir að ganga með mér inn kirkjugólfið eftir mánuð. Ég hef alltaf litið svo mikið upp til þín enda ákvað ég 10 ára gömul að sonur minn ætti að heita Gunnar, sem frumburðurinn minn var svo skírður og þú guð- faðir hans. Þú lifðir fyrir okkur fjölskylduna þína og það skein alltaf í gegn, þú gerðir allt fyrir okkur. Hæðarselið var alltaf opið öllum sem þurftu á því að halda, fullt af ást, kærleika, gestrisni og fullur ísskápur af mat. Ég veit ekki hvernig ég á að geta lifað án þín en eitt máttu vita, pabbi minn, að ég mun varðveita allar okkar yndislegu stundir og deila með börnunum mínum sem þú elskaðir svo heitt og gerðir allt fyrir. Ég, mamma og Andri pössum upp á það og pössum hvert upp á annað. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur öll. Þú ert bestur. Þú ert mér allt. Þín dóttir, Kolbrún (Kolla). Elsku besti Gunni bró. Takk fyrir að hafa alltaf verið til staðar fyrir mig og börnin mín. Takk fyr- ir að hafa alltaf haft heimili ykkar Lilju opið fyrir okkur öll. Takk fyrir hvað þú varst mér alltaf góð- ur bróðir. Ég læt fylgja ljóð sem heitir Bróðurlát sem mér finnst segja svo mikið. Það kom eins og haustnótt um hádag míns hjartkæra bróður lát, þögnin varð þrungin af ekka og þeyrinn af saknaðargrát. Svefninn ei sál mína hvíldi, syrtir í hugarborg. Harmur huga minn gisti, í hjartanu ríkti sorg. Mig grunaði ei áður þá göfgi er gjörvallt í sorginni býr. En nú er ég ríkari af reynslu sem reyndar mér þótti of dýr. Ástin er unaðarbylgja, æskunnar fegursta rós, – en sorgin er gjöf frá Guði sem glæðir vort trúarljós. (Guðrún Auðunsdóttir frá Stóru-Mörk) Ég mun sakna þess svo mikið að fá ekki að hitta þig í bráð elsku bróðir. Takk fyrir ferðalögin okk- ar saman, öll matarboðin, besti Gunna-hryggur var hjá þér og besta lasagne. Takk fyrir allar okkar samverustundir. Megi Guð og allir hans englar taka vel á móti þér. Elska þig. Þín litla sys, Ásdís. Elsku bróðir minn lést á Land- spítalanum hinn 11. júlí síðastlið- inn, langt fyrir aldur fram, en hann var nýlega orðinn sextugur. Gunnar var einstaklega vel gerð- ur og góður drengur. Hann vildi allt fyrir alla gera, hvort sem það var fyrir fjölskylduna sína eða kúnnana í vinnunni. Hann byrjaði ungur að vinna, vann alltaf með námi, hann klár- aði viðskiptafræðina og varð lög- giltur endurskoðandi tæplega þrí- tugur. Hann var ekki hár í loftinu þegar hann byrjaði að vinna í Matvælabúðinni í Efstasundi, fjögurra eða fimm ára. Hann byrj- aði að sópa stéttina og síðan í af- greiðslu og að sendast með vörur til viðskiptavina. Við áttum mjög náið systkinasamband og urðum samferða í gegnum lífið. Hann var næstur mér í aldri, þremur árum yngri en ég. Ég sagði stundum að við værum tvíburar; bæði fædd í apríl og frekar lík í útliti. Við vor- um stóru systkinin og fundum til ábyrgðar gagnvart yngri systkin- um okkar. Við pössuðum stundum þau yngri að kvöldi til þegar for- eldrar okkar brugðu sér frá. Þá svæfðum við krakkana, hituðum okkur kakó og ristuðum brauð og spiluðum lúdó. Þetta voru okkar kósíkvöld fyrir tíma sjónvarps og farsíma. Leiðir okkar lágu saman þegar við fórum bæði í Verslunar- skólann. Gunnar var ritstjóri Verslunarskólablaðsins þegar hann var í Versló og ritstýrði stærsta og flottasta blaði skólans, ég held ég megi segja það. Ég verð að segja frá fallegri minn- ingu úr Versló sem rifjaðist upp fyrir mér. Gunnar ákvað að færa systur sinni malt og snúð í frí- mínútunum. Þar sem hann gekk eftir löngum gangi skólans með tvær maltflöskur í annarri hendi og snúða í hinni hallaðist önnur flaskan og lak malt úr henni út all- an ganginn! Þetta uppskar mikinn hlátur viðstaddra. Þetta var nú frekar vandræðalegt, en það sem við erum búin að segja þessa sögu oft í gegnum tíðina og hlæja mik- ið. Nokkrum árum eftir að hann stofnaði endurskoðunar- skrifstofuna fór ég að vinna hjá honum í afleysingum, en árin urðu þrjátíu. Við vorum flott teymi, unnum vel saman, enda vorum við bæði mjög nákvæm, smámuna- söm og vandvirk. Nú er komið að leiðarlokum, það er með miklum söknuði og sorg í hjarta sem ég kveð minn kæra bróður. Ég bið Guð að styrkja okkur fjölskylduna hans í gegnum þessa miklu sorg og söknuð. Hvíl þú í friði elsku bróðir minn. Þín stóra systir, Erla. Á þessum tímamótum þegar ég er að kveðja Gunna bróður, sem er farinn svo allt of fljótt, reikar hugurinn til barnæskunnar. Við Gunni vorum góðir félagar þegar við vorum litlir, enda bara rúmt ár á milli okkar. Margar góðar minn- ingar koma upp í hugann sem ylja um hjartarætur og ég hugsa með þakklæti til þessara góðu stunda sem við bræður áttum saman. Við vorum frekar uppátækja- samir og hefur eflaust ekki alltaf verið auðvelt að hafa hemil á þess- um ólátabelgjum. Ekki ætla ég að fara að tíunda einhverjar sögur hér, enda af svo mörgu að taka og ekki auðvelt að draga eitthvað sérstakt fram. Eftir situr samt að í öllu því sem við tókum okkur fyr- ir hendur birtust snemma kostir Gunna sem hann tók síðan með sér inn í líf sitt. Hann var allt tíð mjög duglegur, vinnusamur, kær- leiksríkur og hjálpsamur og það birtist í svo mörgu sem við gerð- um. Þegar ég leyfi mér að dvelja á þessum stað minninganna sem streyma fram í hugann koma upp tilfinningar sem bæði vekja hlátur og gleði og ekki síst þakklæti fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Núna síðari ár vor- um við Gunni því miður í litlu sam- bandi, lífið einfaldlega raðaðist þannig saman og einhvern veginn leið tíminn og ekkert varð úr því að það breyttist. Það er ekki auðvelt að líta til baka og hugsa um það sem hefði átt að gera, en í amstri dagsins koma afsakanirnar endalaust um að gera þetta seinna, þegar betur stendur á. Lífið líður hjá, enginn veit sína ævi og „þegar betur stendur á“ kom því miður aldrei. Nú þegar ég kveð Gunna bróð- ur hinstu kveðju, með miklu þakk- læti fyrir allar góðu stundirnar okkar saman, renna tárin líka yfir söknuði um orðin sem ekki voru sögð, tilfinningarnar sem aldrei Gunnar M. Erlingsson Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og útför móður okkar og tengdamóður, BRYNDÍSAR ÞORSTEINSDÓTTUR, sem lengst af bjó á Laugarásvegi 63 í Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Grundar fyrir frábæra umönnun, nærgætni og hlýju. Dagný Helgadóttir Gunnar H. Egilson Árni B. Helgason Rósa Guðný Jónsdóttir Guðrún Helgadóttir Atli Rúnar Halldórsson Þorsteinn Helgason Jónína Á. Steingrímsdóttir og fjölskyldur Móðir mín, dóttir, systir, mágkona og frænka, ÞÓRNÝ ÁSTA ÞORSTEINSDÓTTIR, Seilugranda 4, lést á deild A-6 á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 13. júlí. Þakklæti til starfsfólks deildarinnar sem annaðist hana af alúð og umhyggju. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sólmundur Ernir Jónsson Þórdís Þorgeirsdóttir Þórrún S. Þorsteinsdóttir Reynir Sigurðsson Þórður Geir Þorsteinsson Ana Martha Helena og systkinabörn Kæru ættingjar og vinir. Þökkum öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför yndislegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, BRYNDÍSAR OTTÓSDÓTTUR Kópavogstúni 12, sem varð bráðkvödd fimmtudaginn 2. júlí og jarðsungin frá Hallgrímskirkju 15. júlí. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki gjörgæsludeildar í Fossvogi. Kristján Árni Baldvinsson Ingigerður Guðmundsdóttir Haraldur Eiríksson Edda Guðmundsdóttir Angus Brown Rannveig Ása Guðmundsd. Ármann Davíð Sigurðsson Magnús Ari Guðmundsson Jake Alexander, Goði, Kári, Bryndís Aría og Viktor Breki

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.