Morgunblaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 41
voru tjáðar og samverustundirnar sem aldrei var deilt. Hvíldu í friði kæri bróðir. Sigurður (Siggi). Það er með miklum þunga að ég sest niður og rita þessar minn- ingarlínur um Gunnar mág minn til 25 ára. Horfinn er á braut mað- ur sem stóð ávallt eins og klettur með sínu fólki. Það koma mörg orð upp í hug- ann þegar ég hugsa um Gunnar. Hjartahlýr, úrræðagóður, fjöl- skyldumaður, lausnamiðaður, húmoristi, vinnuþjarkur, staðfast- ur, vinur, gáfaður, ósérhlífinn og einstakur gestgjafi. Maður kom aldrei að tómum kofanum hjá Gunna. Hann gaf manni alltaf tíma, hlustaði af einstakri alúð og lagði sig allan fram við að finna lausnir. Öll mál nálgaðist hann af yfirvegun og æðruleysi. Vinnusemi var Gunnari í blóð borin. Hann byrjaði að vinna fyrir sér strax á barnsaldri og fylgdi þessi dugnaður honum alla tíð bæði gegnum námið í viðskipta- fræðinni og í endurskoðuninni. Á þessum dugnaði byggði hann fyrirtæki sitt og var þá ekki spurt hvaða dagar vikunnar voru undir. Gunni og Lilja byggðu heimili sem stóð öllum opið alla daga. Sama hvenær maður stakk inn höfðinu, alltaf var tekið einstaklega vel á móti manni. Gunni og Lilja tóku utan um börn okkar Ásdísar sem sín eigin, heimili þeirra stóð þeim ávallt opið og fyrir það er ég þeim báðum ævinlega þakklátur. Það er með djúpri sorg í hjarta sem við kveðjum Gunna. Elsku Lilja, Kolla, Andri og fjölskylda, megi Guð vera með ykkur í sorg- inni. Helgi Rúnar Óskarsson. Elsku Gunni mágur minn hefur kvatt okkur nú alltof fljótt. Gunn- ari kynntist ég fyrir um níu árum þegar ég og systir hans Ásdís fór- um að deila saman lífi okkar. Sam- band okkar Gunnars og samskipti áttu eftir að breytast og eflast síð- ustu þrjú árin með nær daglegum samskiptum þar sem ríkti trúnað- ur, traust og heiðarleiki, sem ein- kenndi samband okkar Gunnars. Gunnar var mikill dugnaðar- forkur og á sama tíma mikill nautnamaður, sem elskaði að gera vel við sig og sína, þótt vanafastur væri í þeim efnum. Þannig voru það helst sömu staðir og jafnvel sömu eðalréttirnir sem var notið hjá Gunnari. Hann hafði enda- laust gaman af að ræða allt sem sneri að góðum mat og matar- gerð. Takk Gunnar fyrir allar okkar spjallstundir um fjölskyldu okkar, pólitík, viðskipti og allt annað sem okkur fór á milli. Far- inn er mikill fjölskyldumaður sem elskaði sína fjölskyldu meira en allt. Elsku Lilja, Kolla og Andri og fjölskylda og foreldrar Kolla og Erling, mínar innilegustu samúð- arkveðjur til ykkar allra á þessum sorglegu tímamótum. Með miklum söknuði minn kæri mágur. Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem brast við biturt andsvar, gefið án saka. Hve iðrar margt líf eitt augnakast, sem aldrei verður tekið til baka. (Einar Benediktsson) Með kveðju minn kæri Gunnar. Þinn mágur, Sigurður Sigurbjörnsson (Siggi). Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Gunni var ekki bara besti frændi minn heldur líka besti vin- ur minn. Við kölluðum hvort ann- að uppáhaldsfrændi og uppá- haldsfrænka og ætluðum okkur að eldast saman í flottum eldri- borgaraíbúðum á Spáni, fá okkur mótorhjól með hliðarvagni og njóta efri ára. En allt í einu er þessi draumur farinn. Við Gunni hittumst reglulega síðastliðin fimmtán ár á föstudög- um í Skipholtinu. Föstudagar voru tilhlökkun og algjörlega ómissandi. Öll landsins mál voru rædd og leyst á staðnum. Ég sakna hans uppáhaldsfrænda af öllu hjarta en ylja mér við ljúfar minningar um vináttu, ferðalög og samverustundirnar allar. Við tökum Spánardrauminn einhvern föstudaginn! Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens) Elsku Lilja mín með gullhjart- að, börn, barnabörn, Kolla, Er- ling, systkin, stórfjölskylda og vinir. Guð gefi ykkur og okkur öll- um kraft og styrk á erfiðum tím- um og blessi minningu Gunna sem okkur þótti svo vænt um. Þín Hrafnhildur frænka.  Fleiri minningargreinar um Gunnar M. Erlings- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020 Smáauglýsingar Bækur Biblía Gömul biblía til sölu 180.ára gömul. Verð. 200.000. Uppls. 844-0499 Hljóðfæri Gítarinn ehf. Stórhöfði 27 Sími 552 2125 www.gitarinn.is Gítarar í miklu úrvali erð við allra h Kassagítara r á tilboði Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Bílar Nýr 2020 Renault Trafic langur. Sjálfskiptur. 145 hestöfl. 2 x hliðarhurð. Dráttarkrókur. Klæddur að innan. 519.000 undir listaverði. Okkar verð: 4.100.000 án vsk. www.sparibill.is Hátúni 6 A sími 577 3344 Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryðbletti á þökum og tek að mér ýmis smærri verk. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Til sölu Mercedes Benz SLK 230 árg. ‘97 til sölu. Ek. 137 þús. km. Ný skoðaður. Innfl. nýr af Ræsi. Tilboð Upplýsingar í 777 3838. Blaðberar Upplýsingar veitir  í síma  Morgunblaðið óskar eftir blaðbera    BODYGUARDS Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöður Bodyguards lausar til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 26. júlí 2020. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins: https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/ Umsóknir skulu sendar í gegnum Electronic Recruitment Application (ERA) The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking individuals for the positions of Bodyguards. The closing date for this postion is July 26, 2020. Application instructions and further information can be found on the Embassy’s home page: https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/ Applications must be submitted through Electronic Recruitment Application (ERA) AtvinnuauglýsingarRaðauglýsingar Tilboð/útboð Sláturhúsið Menningarmiðstöð. Fljótsdalshérað óskað er eftir tilboðum í Þakklæðningar og burðarvirki Helstu magntölur eru ca. • Endurnýjun á öllu þakjárni og pappa 725 m² • Endurnýjun á þaksperrum 450 m • Timburklæðningar 550m² • Stálstyrkingar og þakrammar 9500 kg • Steypa 39 m³ Gögn verða afhent rafrænt frá skrifstofu Eflu Frá og með 21.07 2020. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Fljótsdalshéraðs 18.08.2020 kl 14. Upplýsingar veiti Óli Metúsalemsson Sími 412 6530 , netfang oli.metusalemsson@efla.is Verkinu skal vera lokið 1.febrúar 2021 Aflagrandi 40 10.30 Leikfimi með þjálfurum - hreyfisal. kl. 13 kemur til okkar kvíðamiðstöðinn og heldur erindi opið öllum. Erindið fjallar meðal annars um einkenni kvíða, algeng kvíðavandamál og helstu leiðir til að ná tökum á þeim. Veitingasala eftir námskeið. Árskógar Opin handavinnustofa kl. 9-16. Gönguhópur með göngustjóra kl. 10. Hlátur og Húmor kl. 10.30 Bíó e.h. Hádegismatur kl. 11.30 –13. Kaffisala kl. 14:45 –15:30. Allir velkomnir í Félagsstarfið s: 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Blöðin, kaffi og spjall kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Söngur kl. 13.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Við vinnum áfram eftir samfélagssáttmálanum, þvo og spritta hendur, virða 2 metra regluna, við þá sem það vilja. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari upplýsingar í síma 411-2790 Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501.Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 8.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 13.45 -15.15. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Náttúrufræðistofnun Íslands Urriðaholtsstræti 6 – 8 kl. 10. Handv.horn í Jónshúsi kl. 13. Gerðuberg 3-5 Fimmtudagur kl. 8.30-16. Opin handavinnustofa kl. 13-16. Perlusaumur kl. 13-16. Bútasaumur kl. 13-16. Myndlist Hraunsel Ganga í Kaplakrika kl. 8. Billjard kl. 8. Dansleikfimi kl. 9. Qi- gong á Klambratúni kl. 11. Píla Kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8.30-10.30. Opin vinnustofa frá 9-16. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Kennsla í notkun snjallsímatækja frá 10:30 – 11.30. Stólaleikfimi kl. 13.30. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag verður nóg um að vera. Við byrjum daginn snemma og förum saman í morgungöngu um hverfið. Su- marhópurinn kemur til okkar og verður farið í sund í sundhöllinni og Vitabarinn eftir það. Lagt verður af stað frá Vitatorgi klukkan 10.30. Eftir hádegi býður sumarhópurinn upp á ís og tónlist frá Gleðismiðjunni. Verið öll velkomin til okkar. Seltjarnarnes Dagskráin í dag fimmtudaginn 23.júlí. Kl. 7.15 er vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness. Kl. 10.30 er kaffispjall í króknum á Skólabraut. Kl. 13.30 er bingó í salnum á Skólabraut. Hlökkum til að sjá ykkur. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 –16. Heitt á könnunni frá kl. 10 –11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30 –12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. fyrstu tvær vikurnar í júlí. Dans og hláturjóga verður í boði kl. 15. í júlí og ágúst Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl 14 30 15 30 Félagsstarf eldri borgara 200 mílur Þá hefur elsku Vigga amma kvatt eftir stutt veikindi. Alveg erum við vissar um að Didda amma og Gunnar afi hafi tekið vel á móti henni í sumarlandinu enda miklir vinir. Það eru svo margar skemmtilegar og hlýjar minningar um hana ömmu sem er gott að ylja sér við núna. Amma var afar fíngerð kona en með stóran persónuleika. Sterk, ákveðin, dugleg, ramm- pólitísk en fyrst og fremst yndis- leg amma sem við erum svo þakklátar fyrir að hafa haft okk- ur við hlið í öll þessi ár. Velferð afkomendanna skipti hana afar miklu máli og lagði hún sig mikið fram við að fylgjast með okkur öllum, hvar sem við vorum stödd Vigdís Guðmundsdóttir ✝ Vigdís Guð-mundsdóttir fæddist 17. október 1928. Hún lést 6. júní 2020. Útför Vigdísar fór fram 3. júlí 2020. í heiminum, minna okkur á að fara var- lega og hvetja okk- ur áfram. Hún var líka dugleg að klippa út greinar úr blöðum með alls konar ráðum og upplýsingum sem hún taldi eiga við okkur og laumaði svo að okkur við gott tækifæri. Þau Baldur afi hafa í gegnum tíðina byggt upp paradís á Apa- vatni og þaðan eigum við margar dýrmætar minningar um ömmu og afa. Takk elsku amma fyrir allt sem þú kenndir okkur, fyrir bestu kjötbollurnar og skemmti- legu vöffluboðin, veðurspárnar, áhugasemina, samtölin og sím- tölin, þrjóskuna, elskuna og allt þar á milli. Við gætum hans Baldurs afa þar til þið hittist á ný. Þín verður sárt saknað. Þínar ömmustelpur, Helga, Vigdís og Ásthildur (Didda).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.