Morgunblaðið - 23.07.2020, Page 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Húðslípun
Gerir áferð
húðar fallegri
og sléttari
Húðslípun er mjög
áhrifarík og örugg
húðmeðferð sem
hreinsar vel óhreinindi
úr ysta lagi húðar.
60 ára Hjörtur er
Reykvíkingur. Hann er
sagnfræðingur að
mennt og er markaðs-
og kynningarstjóri hjá
Staðlaráði Íslands.
Hjörtur situr í stjórn
Stjórnarskrárfélagsins.
Maki: Guðný Þórarinsdóttir, f. 1956,
grafískur miðlari.
Sonur: Þórarinn, f. 1991, og stjúpdóttir
er Guðrún Dalía Salómonsdóttir, f. 1981.
Barnabörnin eru orðin tvö.
Foreldrar: Ævar Karlsson, f. 1937, d.
1970, sjómaður á Húsavík, og Ágústa
Sigurðardóttir, f. 1933, d. 2012, hús-
móðir og framkvæmdastjóri. Kjörfaðir
var Hjörtur Guðmundsson, f. 1918, d.
2009, leigubílstjóri. Ágústa og Hjörtur
voru búsett í Reykjavík.
Hjörtur Hjartarson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú munt leggja þig verulega fram
við það að fá vilja þínum framgengt í dag og
finnur fyrir miklum áhuga og eldmóði.
Taktu tíma í að hugsa um þær frá sjónar-
horni hins fullorðna.
20. apríl - 20. maí
Naut Látið ekki reyna á vináttuna í ein-
hverjum fíflagangi því slíkt kann að koma í
bakið á ykkur. Frelsi þitt nær nefnilega ekki
lengra en að þeim rétti.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Fjármálin eiga eftir að batna veru-
lega þetta árið og eyðsla þín mun að sjálf-
sögðu aukast í kjölfarið. Stattu undir þeirri
ábyrgð sem þú tókst að þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Notaðu nú tækifærið og jafnaðu
ágreining þinn við gamlan vin. Hittu vin
sem alltaf fær klikkuðustu hugmyndirnar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér finnst erfitt að sýna aðila innan
fjölskyldunnar hreinskilni í dag. Notaðu
tækifærið á meðan þú ert í skapi til þess.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er bráðnauðsynlegt að lesa vel
allt smáa letrið á þeim skjölum sem þú
skrifar undir. Láttu ekki ánægjuna af því að
vera í góðum félagsskap gera þig óhóflega
örlátan.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú skapar listaverk sem gæðist lífi.
Hlýlegt trúnaðarsamtal við vin er akkúrat
það sem þú þarft á að halda. Reyndu að
týnast ekki.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú munt á einhvern hátt verða
í sviðsljósinu í dag. Notaðu tækifærið og
komdu þínum hjartans málum á framfæri.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Láttu verða af hugmyndum um
að taka til hendinni heima fyrir. Breyttu nú
um og skrifaðu hjá þér það sem þér dettur í
hug.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Takmarkið er hreint ekki svo
langt undan sem þér sýnist. Snúðu þér að
þeim sem þú getur treyst hafirðu þörf fyrir
það.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú bókstaflega ljómar þessa
dagana og vekur eftirtekt hvar sem þú
kemur. Í einkalífinu mun gamall vinur koma
þér til hjálpar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Sýndu börnum þolinmæði í dag.
Reyndu að sjá hlutina í réttu ljósi áður en
þú lætur til skarar skríða.
Háskóla Íslands þar sem hún tók
BA-próf í ensku og frönsku og ég
fyrrihlutapróf í byggingarverkfræði.
Á þeim árum var HÍ með samning
við háskólana í Kaupmannahöfn og
Þrándheimi um síðari hluta námsins.
legur námsmaður, náði þar nokkrum
mannvirðingum og varð fyrir rest in-
spector scholae. Á menntaskóla-
árunum kynntist ég eiginkonunni og
bekkjarsystur minni Ólöfu Birnu frá
Siglufirði. Við vorum síðan saman í
S
veinn Þórarinsson fæddist
23. júlí 1940 á Eiðum.
Faðir Sveins var íþrótta-
frömuður í anda alda-
mótamanna, vinsæll og
vel metinn og hlaut ýmsar við-
urkenningar fyrir störf sín. Um ára-
bil var hann aðaldriffjöðrin í íþrótta-
málum Austfirðinga. Fyrir
landsmótin var stundum harðsnúinn
flokkur frjálsíþróttamanna í þjálfun
hjá honum á Eiðum og að meira eða
minna leyti inni á heimilinu. Árang-
ur þeirra var sérstaklega glæsilegur
á landsmótinu á Hvanneyri 1943, þar
sem lið ÚÍA varð stigahæst.
Heimilishald í Þórarinshúsi á Eið-
um var sérstakt og bar líklega keim
af stórfjölskyldum fyrri tíma. Fóst-
urforeldrar Stefaníu, móður Sveins,
voru á heimilinu á efri árum meðan
þeim entist aldur. Stúlkur voru til
hjálpar við heimilisstörfin enda oft
fjölmennt í borðstofunni. Ekkert
munaði um þótt einhverja gesti bæri
óvænt að garði.
„Ég er í rauninni alinn upp í
íþróttasalnum á Eiðum og var ef-
laust frekar erfiður krakki, alla vega
framan af ævi, bæði hrekkjóttur og
stríðinn. Ég hafði engan áhuga á
bóklegu námi en hélt mikið til í
íþróttasalnum, dundaði mér við
handverk og smíðar og var mjög
upptekinn við að stríða systkinum
mínum eða hrekkja nágrannana.
Til þess að losna við mig var ég
sendur til ömmu og afa niður á Seyð-
isfjörð. En þar undi ég mér ekki,
fannst fjörðurinn þröngur og gyrtur
háum fjöllum sem byrgðu sólarsýn.
Þaðan vildi ég helst strjúka upp í
sólríkt og víðlent Héraðið. En eitt-
hvað urðu foreldrar mínir að taka til
bragðs svo mér var komið í sveit upp
í Fljótsdal til Jónasar Péturssonar á
Skriðuklaustri. Þar undi ég mér vel í
fjögur sumur, fékk nóg að gera og
var nokkurn veginn til friðs. Ég var
kappsamur við öll verk og laginn að
umgangast vélbúnað þess tíma.
En þegar á leið sá ég að eitthvað
bitastætt yrði ég að leggja fyrir mig,
svo að ég tók landspróf á Eiðum og
fór síðan í Menntaskólann á Akur-
eyri. Þar komst ég að því mér til
furðu að ég var bara alveg þokka-
Ég valdi Þrándheim þar sem við átt-
um tvö eftirminnileg ár. Verkfræði-
árgangurinn okkar varð náinn og
vináttan traust, við fórum saman á
skíði um jól og páska og konurnar
okkar stofnuðu saumaklúbb sem lifir
enn góðu lífi.“
Starfsferill og félagsstörf
Að loknu námi starfaði Sveinn
nokkur ár á mælinga- og gatnadeild
borgarverkfræðings í Reykjavík.
Þegar Lagarfossvirkjun var byggð
tók hann að sér að stýra þar fram-
kvæmdum. Í framhaldinu stofnaði
hann Verkfræðistofu Austurlands,
sem sameinaðist verkfræðistofunni
EFLU fyrir sex árum. Sveinn hefur
komið að verkfræðilegri hönnun
mannvirkja víðs vegar um Austur-
land og annast umsjón fram-
kvæmda. Þar má nefna fjölda bygg-
inga, gatna- og vegagerð, hitaveitur,
vatnsveitur, flugvallargerð á Egils-
stöðum, radarstöðvar á Stokksnesi
og Gunnólfsvíkurfjalli. Síðasta stóra
verkefnið var við Kárahnjúkavirkj-
un þar sem hann var staðarverk-
fræðingur við framkvæmdir Jökuls-
árveitu austan Snæfells.
Sveinn sat þrjú kjörtímabil í bæj-
arstjórn á Egilsstöðum lengst af
sem oddviti. Hann hefur sinnt
stjórnarstörfum í fjölmörgum
nefndum og stjórnum m.a. í Hita-
veitu Egilsstaða og Fella og var
stjórnarformaður í RARIK í áratug.
Í frístundum stundar Sveinn göngu-
ferðir, golf og skíði.
Fjölskylda
Eiginkona Sveins er Ólöf Birna
Blöndal, f. 11.11. 1942, BA í ensku og
frönsku, myndlistarmaður og tón-
listarkennari. Þau eru búsett á
Egilsstöðum. Foreldrar Ólafar
Birnu voru hjónin Óli J. Blöndal, f.
24.9. 1918, d. 26.11. 2005, versl-
unarmaður og bókavörður á Siglu-
firði, og Margrét Björnsdóttir, f. 6.1.
1924, d. 28.9. 2011, húsfreyja.
Börn Sveins og Ólafar Birnu eru:
1) Þórarinn f. 26.6. 1967, tónlist-
armaður og verkfræðingur frá MIT,
framkvæmdastjóri, búsettur í
Frankfurt. Fyrrv. maki: Líney
Sveinsdóttir. Börn: Þórhildur, f.
Sveinn Þórarinsson verkfræðingur – 80 ára
Fjölskyldan Sveinn og Ólöf Birna ásamt börnum sínum.
Verkfræðingur og oddviti
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Staðarverkfræðingur Sveinn við Hraunaveitu Kárahnjúkavirkjunar.
50 ára Gunnar er frá
Akranesi en býr í
Reykjavík. Hann er
tónlistarkennari að
mennt og er
klarinettu- og saxó-
fónkennari hjá Skóla-
hljómsveit Árbæjar og
Breiðholts og einnig hjá Skólahljómsveit
Grafarvogs. Gunnar var skólastjóri Tón-
listarskólans í Grindavík 2001-2008.
Maki: Rósalind Gísladóttir, f. 1971, söng-
kennari í Tónlistarskólanum í Grindavík.
Dætur: Tvíburarnir Kolbrún Júlía og Vikt-
oría Hjördís, f. 2006.
Foreldrar: Kristmann Gunnarsson, f.
1936, vélstjóri, og Elsa Hjördís Hjörleifs-
dóttir, f. 1937, húsmóðir. Þau eru búsett
á Akranesi.
Gunnar Kristmannsson
Til hamingju með daginn
Kópavogur Óliver Ari
Viktorsson fæddist á
Landspítalanum 17. sept-
ember 2019 kl. 14.08.
Hann vó 4.842 g og var
55 cm langur. Foreldrar
hans eru Viktor Davíð
Sigurðsson og Auður
Björk Aradóttir.
Nýr borgari