Morgunblaðið - 23.07.2020, Síða 46
46 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2020
Pepsi Max-deild karla
FH – KA.................................................... 0:0
KR – Fjölnir ........................................... (2:2)
Ekki lokið þegar blaðið fór í prentun.
Staðan fyrir leik KR og Fjölnis:
KR 6 5 0 1 11:5 15
Valur 7 4 1 2 15:7 13
Fylkir 7 4 0 3 11:9 12
Breiðablik 7 3 2 2 14:11 11
Víkingur R. 7 3 2 2 14:11 11
FH 7 3 2 2 13:12 11
Stjarnan 4 3 1 0 10:3 10
ÍA 7 3 1 3 17:14 10
KA 7 1 4 2 6:10 7
HK 7 1 2 4 12:19 5
Grótta 7 1 1 5 7:17 4
Fjölnir 7 0 2 5 5:17 2
Lengjudeild karla
Vestri – ÍBV.............................................. 3:3
Leiknir F. – Keflavík................................ 1:1
Þór – Magni............................................... 3:0
Leiknir R. – Víkingur Ó........................... 5:0
Staðan:
Leiknir R. 7 5 1 1 19:9 16
ÍBV 7 4 3 0 15:8 15
Keflavík 7 4 2 1 21:9 14
Fram 7 4 2 1 13:10 14
Þór 7 4 1 2 12:7 13
Vestri 7 3 2 2 8:8 11
Afturelding 7 3 1 3 18:11 10
Grindavík 7 2 4 1 13:12 10
Leiknir F. 7 2 1 4 6:12 7
Víkingur Ó. 7 2 0 5 6:17 6
Þróttur R. 7 0 1 6 3:14 1
Magni 7 0 0 7 3:20 0
2. deild karla
Kári – Dalvík/Reynir................................ 1:0
Haukar – ÍR.............................................. 3:1
Selfoss – Kórdrengir................................ 1:0
Þróttur V. – Fjarðabyggð........................ 0:0
Njarðvík – Víðir........................................ 3:0
Völsungur – KF........................................ 2:3
Staðan:
Kórdrengir 7 5 1 1 15:3 16
Haukar 7 5 0 2 16:9 15
Njarðvík 7 4 1 2 11:8 13
Selfoss 7 4 1 2 10:8 13
Fjarðabyggð 7 3 3 1 14:6 12
Þróttur V. 7 3 3 1 7:5 12
Kári 7 3 2 2 13:8 11
KF 7 3 0 4 11:13 9
ÍR 7 2 1 4 10:13 7
Víðir 7 2 0 5 4:21 6
Dalvík/Reynir 7 1 1 5 8:15 4
Völsungur 7 0 1 6 10:20 1
3. deild karla
Augnablik – Sindri ................................... 2:2
Tindastóll – Elliði ..................................... 3:1
Leikjunum Reynir S. – KFG og Höttur/
Huginn – Vængir Júpíters var ekki lokið
þegar blaðið fór í prentun.
Lengjudeild kvenna
Afturelding – Keflavík ............................. 1:1
Staðan:
Tindastóll 6 5 1 0 16:2 16
Keflavík 6 4 2 0 18:3 14
Grótta 6 3 2 1 6:4 11
Afturelding 6 2 2 2 7:5 8
Haukar 6 2 2 2 8:8 8
Víkingur R. 6 2 1 3 9:11 7
Augnablik 5 2 1 2 6:9 7
ÍA 6 1 3 2 11:10 6
Fjölnir 6 1 0 5 3:16 3
Völsungur 5 0 0 5 1:17 0
England
Manchester United – West Ham............ 1:1
Liverpool – Chelsea ................................. 5:3
Staðan:
Liverpool 37 31 3 3 82:32 96
Manch. City 37 25 3 9 97:35 78
Manch. United 37 17 12 8 64:36 63
Chelsea 37 19 6 12 67:54 63
Leicester 37 18 8 11 67:39 62
Wolves 37 15 14 8 51:38 59
Tottenham 37 16 10 11 60:46 58
Sheffield United 37 14 12 11 38:36 54
Burnley 37 15 9 13 42:48 54
Arsenal 37 13 14 10 53:46 53
Everton 37 13 10 14 43:53 49
Southampton 37 14 7 16 48:59 49
Newcastle 37 11 11 15 37:55 44
Crystal Palace 37 11 9 17 30:49 42
West Ham 37 10 8 19 48:61 38
Brighton 37 8 14 15 37:53 38
Aston Villa 37 9 7 21 40:66 34
Watford 37 8 10 19 34:61 34
Bournemouth 37 8 7 22 37:64 31
Norwich 37 5 6 26 26:70 21
B-deild:
Millwall – Huddersfield .......................... 4:1
Jón Daði Böðvarsson kom inná hjá Mill-
wall á 69. mínútu og skoraði á 80. mínútu.
Lokastaða efstu liða:
Leeds 46 28 9 9 77:35 93
WBA 46 22 17 7 77:45 83
Brentford 46 24 9 13 80:38 81
Fulham 46 23 12 11 64:48 81
Cardiff 46 19 16 11 68:58 73
Swansea 46 18 16 12 62:53 70
Leeds og WBA eru komin upp en hin
fjögur fara í umspil um eitt sæti.
Barnsley, Charlton og Hull falla í C-
deildina en í stað þeirra koma Coventry,
Rotherham og Wycombe Wanderers.
Tyrkland
Umspil, undanúrslit, fyrri leikur:
Karagümrük – Akhisarspor .................. 3:3
Theódór Elmar Bjarnason lék fyrstu 69
mínúturnar með Akhisarspor.
Hörður Björgvin Magnússon og
Arnór Sigurðsson, landsliðsmenn í
knattspyrnu, voru teknir út úr leik-
mannahóp CSKA Moskva fyrir leik
liðsins gegn Tambov í lokaumferð
rússnesku úrvalsdeildarinnar í
gær. Í yfirlýsingu sem CSKA birti
kom fram að smit hefði greinst hjá
íslensku leikmönnunum við reglu-
bundna skimun innan liðsins og
sagt að þeir hefðu verið settir í ein-
angrun og væru undir eftirliti
lækna. Þeir verði prófaðir aftur á
næstu dögum. Engir aðrir í hópn-
um greindust með smit.
Í einangrun
eftir skimun
Ljósmynd/CSKA Moskva
Moskva Arnór Sigurðsson og
Hörður Björgvin Magnússon
Leiknir úr Reykjavík er á toppi 1.
deildar karla í fótbolta eftir stór-
sigur á Víkingi frá Ólafsvík, 5:0, í
gærkvöld. Hinn ungi Vuk Oskar Di-
mitrijevic skoraði fyrsta markið og
lagði annað upp.
Frans Elvarsson tryggði Keflavík
stig gegn Leikni F. fyrir austan,
1:1, þegar hann jafnaði á fimmtu
mínútu í uppbótartíma. Nacho Gil
skoraði þrennu fyrir Vestra í 3:3
jafntefli gegn ÍBV á Ísafirði og Ál-
varo Montejo gerði sitt fimmta
mark fyrir Þór í deildinni í 3:0 sigri
gegn Magna á Akureyri.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Efstir Leiknismenn úr Breiðholti
eru á mikilli siglingu í 1. deild.
Stórsigur og
Leiknir efstur
FH – KA 0:0
M
Gunnar Nielsen (FH)
Hörður Ingi Gunnarsson (FH)
Guðmundur Kristjánsson (FH)
Steven Lennon (FH)
Þórir Jóhann Helgason (FH)
Kristijan Jajalo (KA)
Mikkel Qvist (KA)
Rodrigo Gómez (KA)
Almarr Ormarsson (KA)
Brynjar Ingi Bjarnason (KA)
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 7.
Áhorfendur: 912.
KR – FJÖLNIR (1:1)
0:1 Jóhann Árni Gunnarsson 17.
1:1 Pálmi Rafn Pálmason 20.
2:1 Atli Sigurjónsson 62.
2:2 Ingibergur Kort Sigurðsson 65.
Leiknum var ekki lokið þegar blaðið
fór í prentun í gærkvöld. Sjá nánar
mbl.is/sport/fotbolti. M-gjöfin og ein-
kunn dómara verða í blaði morgundags-
ins.
Áhorfendur: Um 700.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
Stórir áfangar KR-inga
Þar sem Morgunblaðið er prentað
snemma á miðvikudagskvöldum var
viðureign toppliðs KR og botnliðs
Fjölnis ekki lokið þegar vinnslu
blaðsins lauk. Ítarlega er fjallað um
leikinn á mbl.is en sumt var þó kom-
ið á hreint.
Pálmi Rafn Pálmason skoraði
sitt 50. mark í efstu deild hérlendis
þegar hann jafnaði fyrir KR í 1:1.
Óskar Örn Hauksson fyrirliði
KR komst í leiknum við Fjölni upp í
fimmta sæti yfir leikjahæstu leik-
menn í öllum deildum Íslandsmóts-
ins. Óskar lék sinn 365. leik í fjórum
efstu deildunum og aðeins Gunn-
leifur Gunnleifsson, Gunnar Ingi
Valgeirsson, Mark Duffield og
Hjörtur Hjartarson hafa spilað fleiri
leiki. Óskar er næstleikjahæstur í
efstu deild með 316 leiki og nálgast
þar óðum met Birkir Kristinssonar
sem er 321 leikur.
Finnur Orri Margeirsson
miðjumaður KR lék sinn 250. deilda-
leik á ferlinum, með KR, Lillestrøm
og Breiðabliki. Allir leikir Finns eru
í efstu deild.
Arnór Sveinn Aðalsteinsson
varnarmaður KR lék sinn 200. leik í
efstu deild hér á landi. Af þeim eru
139 með Breiðabliki og 61 með KR
en Arnór hefur alls leikið 266 deilda-
leiki á ferlinum.
Nýju þjálfar-
ararnir áfram
ósigraðir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kaplakriki Guðmundur Steinn Hafsteinsson framherji KA og Daníel Haf-
steinsson, miðjumaður FH og fyrrum KA-maður, í baráttunni í Krikanum.
FH-ingar ósáttari en KA-menn með
markalaust jafntefli í Kaplakrika
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Nýir þjálfarar FH og KA, annars
vegar Eiður Smári Guðjohnsen og
Logi Ólafsson og hins vegar Arnar
Grétarsson, eru ósigraðir eftir tvær
umferðir með sín nýju lið eftir
markalaust jafntefli liðanna í Kapla-
krika í gærkvöld. Hvorugt liðanna
hefur heldur fengið á sig mark undir
stjórn nýrra þjálfara og það er meiri
breyting hjá FH-ingum sem höfðu
fengið á sig mörk í öllum fimm leikj-
unum undir stjórn Ólafs Kristjáns-
sonar, tólf talsins.
Það er hins vegar nokkuð ljóst að
þeir Eiður og Logi eru ósáttari við
úrslit gærkvöldsins en Arnar, enda
nýtti FH ekki tækifæri til að koma
sér upp í þriðja sæti deildarinnar.
„Í stuttu máli má segja að varn-
armenn beggja liða hafi spilað mun
betur en sóknarmennirnir og að FH-
ingar séu svekktari, þar sem þeir
eru taldir sterkari fyrir fram. Þeir
sýndu ekki hvers vegna í kvöld og
voru bæði lið föst í öðrum gír,“ skrif-
aði Jóhann Ingi Hafþórsson m.a. um
leikinn á mbl.is.
Atli Guðnason kom inn á sem
varamaður hjá FH og varð fimmti
leikmaðurinn frá upphafi til að spila
280 leiki í efstu deild hér á landi.
Englandsmeistarar Liverpool fögn-
uðu Englandsmeistaratitilinum
með stæl þegar Chelsea kom í
heimsókn á Anfield í Liverpool í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
í gær en leiknum lauk með 5:3-sigri
Liverpool. Eftir leik fór bikarinn á
loft í Kop-stúkunni sögufrægu en
leikmenn liðsins vildu lyfta bik-
arnum þar til þess að heiðra stuðn-
ingsmenn félagsins sem gátu ekki
verið viðstaddir bikarafhendinguna
vegna kórónuveirufaraldursins.
Þegar bikarinn fór á loft hljóm-
aði lagið A Sky Full Of Stars með
bresku popphljómsveitinni
Coldplay en það var engu til sparað
þegar kom að bikarafhendignunni
og kostaði hún í kringum 40.000
pund en það samsvarar tæplega sjö
milljónum íslenskra króna.
Þetta var fyrsti Englandsmeist-
aratitill Liverpool í þrjátíu ár en
liðið tryggði sér sigur í deildinni
þann 25. júní síðastliðinn.
Bikarinn á loft í Kop-stúkunni frægu
AFP
Meistarinn Jürgen Klopp með meistarapeninginn um hálsinn og Kenny Dalglish stendur hjá bikarnum.