Morgunblaðið - 07.08.2020, Blaðsíða 4
2
1
2
1
2
1
2
11 1
1
1
1
1
1
1 1 100
1
1
1
1
2
2
4
3
2 2 2
3
6
6
2
1
5
2
5
1
6
9
2
10
13
1
3
1
2
2
2
1
3 3 3
2 2
5
4
2
1
2
1
1
3
1
3
2
6
1
8
1
7
1
11
2
1
4
Kórónuveirusmit á Íslandi
Fjöldi jákvæðra sýna
frá 15. júní til 5. ágúst
149.693 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
73.465 sýni795 einstaklingar eru í sóttkví
1.932 staðfest smit
97 er með virkt smit
Heimild: covid.is
Innanlands
Landamæraskimun:
Virk smit Með mótefni
Beðið eftir mótefnamælingu
22,4 ný smit sl. 14 daga á
100.000 íbúa
Nýgengi smita
innanlands:
júní júlí ágúst
9
11
2
4
Jóhann Ólafsson
Ragnhildur Þrastardóttir
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
telur líklegt að sóttvarnareglur
vegna kórónuveirunnar muni gilda
næstu mánuði þótt líkur séu á því að
slakað verði á þeim og þær hertar á
víxl.
Þetta kom fram í svari Þórólfs við
fyrirspurn blaðamanns á upplýs-
ingafundi almannavarna í gær.
„Ég held að það sé algjörlega ljóst
að ef við ætlum að halda veirunni hér
í lágmarki munum við sjá svona hóp-
sýkingaaukningu sem við þurfum að
eiga við og við þurfum sífellt að vera
að slaka og herða á þessum reglum
ef við ætlum að koma í veg fyrir út-
breiddan faraldur hér innanlands.
Ég held að við verðum að vera undir
það búin að horfa upp á þetta næstu
mánuði alla vega,“ segir Þórólfur.
Alma D. Möller landlæknir sagði
þá að nú væri tækifæri til að kveða
niður smit í samfélaginu.
„Við verðum að taka okkur á í ein-
staklingsbundnum smitvörnum,
tveggja metra reglu og þessum að-
gerðum sem við höfum sett á.“
Þórólfur sendi heilbrigðisráðherra
minnisblað í gærmorgun þar sem
hann lagði til að aðgerðum á landa-
mærum og innanlands vegna
kórónuveirufaraldursins yrði haldið
áfram. Þórólfur lagði til að áfram
yrði skimað á landamærunum en Ís-
lensk erfðagreining (ÍE) hefur boð-
ist til að aðstoða sýkla- og veiru-
fræðideild Landspítalans við það.
Þetta kom fram í máli Þórólfs á
upplýsingafundi almannavarna í
gær.
Þórólfur sagði að ekki væri ástæða
til að slaka á skimunum á landamær-
um og það ætti að halda þeim áfram
til að lágmarka áhættuna á því að
veiran bærist hingað til lands. Far-
þegar frá Færeyjum, Grænlandi,
Danmörku, Noregi, Finnlandi og
Þýskalandi sleppa við skimun við
landamærin eins og staðan er núna
en aðrir eru skimaðir.
Fjögur ný innanlandssmit kórónu-
veirunnar greindust síðastliðinn
miðvikudag, tvö hjá sýkla- og veiru-
fræðideild Landspítalans og tvö hjá
Íslenskri erfðagreiningu. Þá greind-
ust tvö smit við landamærin en nið-
urstöðu mótefnamælingar er beðið.
Alls eru virk smit 97 talsins.
Mikið álag hefur verið á sýkla- og
veirufræðideild Landspítalans
vegna sýnatöku undanfarna daga en
sýnafjöldi á landamærum hefur fjór-
um sinnum farið yfir 2.000 sýna
mörkin.
„Íslensk erfðagreining hefur boð-
ist til að taka hluta þessara sýna til
að létta á Landspítalanum og ég býst
við að þessu boði verði tekið,“ sagði
Þórólfur.
ÍE setti ekki fram nein skilyrði
vegna aðkomu sinnar að skimun á
landamærum en eins og frægt er
orðið ákvað Kári Stefánsson, for-
stjóri fyrirtækisins, að draga sig út
úr skimuninni í júlímánuði.
„Þeir eru bara tilbúnir til að létta
undir með veirufræðideildinni vegna
þess að það stefnir í það að annað-
hvort þurfi að auka afkastagetuna
eða takmarka aðgengi að landinu. Ef
farið verður eftir tilmælum sótt-
varnalæknis þá held ég að þetta sé
vænlegri kostur og það eru engin
skilyrði frá þeim sem fylgja því,“
sagði Þórólfur.
Ungt fólk mikilvægur hlekkur
Smit á meðal ungs fólks hafa verið
áberandi í annarri bylgju faraldurs-
ins hérlendis. Alma sagði á upplýs-
ingafundi gærdagsins að unga fólkið
væri mikilvægur hlekkur í varnar-
keðjunni. Þá biðlaði hún til foreldra
um að aðstoða við að koma upplýs-
ingum til þeirra sem yngri eru.
Ekki hefur verið til umræðu að
takmarka með einhverjum hætti
samkomur þar sem ungt fólk kemur
saman.
Ljósmynd/Lögreglan
Upplýsingafundur almannavarna Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn var ekki viðstaddur fundinn en hann fór í sýnatöku í gær og reyndist ekki smitaður.
Reglur gildi næstu mánuði
Reglur vegna faraldursins verða væntanlega hertar og á þeim slakað á víxl að
sögn sóttvarnalæknis ÍE kemur aftur að skimun á landamærum eftir hlé
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 2020
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Þórólfur Guðna-
son sótt-
varnalæknir seg-
ir að Strætó bs.
sjái um sínar
reglur þegar
kemur að sótt-
varnaráðstöf-
unum um borð í
strætisvögnum.
Reglur um
grímuskyldu í
strætisvögnum hafa verið á reiki en
nýlega mælti heilbrigðisráðherra
fyrir „30 mínútna reglu“ í almenn-
ingssamgöngum, með auglýsingu
um breytingu á auglýsingu um tak-
mörkun á samkomum, sem tók
gildi 3. júlí. Þar með er einungis
skylda að bera grímu í almennings-
samgöngum ef ferðast er lengur en
í 30 mínútur.
Alls staðar er smithætta
þar sem fólk þyrpist saman
Aðspurður hvort smithættan sé
aukin þegar vagnarnir eru þétt
setnir segir Þórólfur að alls staðar
sé smithætta þar sem fólk þyrpist
saman og gætir ekki að sér.
Ákveðna nánd og ákveðinn tíma í
nándinni þurfi til þess að smit-
hætta verði.
„Við höfum talað um það að þar
sem fólk geti ekki virt tveggja
metra regluna lengur en í um 15 til
30 mínútur, mælum við með grím-
um,“ segir hann.
Þegar sóttvarnaaðgerðir voru
hertar 30. júlí tilkynnti Strætó að
farþegar yrðu skyldugir til að bera
grímu um borð í vögnunum. Ákveð-
ið var að standa við ákvörðunina
þrátt fyrir ummæli Ölmu D. Möller
og Víðis Reynissonar um að grímu-
skylda yrði ekki um borð í Strætó,
þar til niðurstaðan varð sú að
skyldan varðaði einungis þá sem
ferðuðust með vögnunum í yfir 30
mínútur. veronika@mbl.is
„Strætó
sér um sín-
ar reglur“
Smithætta skapist
eftir ákveðinn tíma
Þórólfur
Guðnason
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Strætó Skylt er að bera grímu á
ferðum lengri en 30 mínútur.
Opnun landamæranna breytti lands-
laginu fyrir rekstur hjúkrunarheim-
ila, að sögn Önnu Birnu Jensdóttur,
framkvæmdastjóra hjúkrunarheim-
ilisins Sóltúns.
„Það er ekki þannig að íbúar
hjúkrunarheimila séu að ferðast
þannig að þeir eru ekki að koma með
smit inn á heimilin vegna þessa en
hins vegar […] eru bæði ættingjar,
vinir og starfsfólk á ferðalögum.
Ákveðin hætta er á því að einhverjir
þeirra smitist og geti smitað áfram
inn á þessa viðkvæmu staði,“ sagði
Anna á upplýsingafundi almanna-
varna í gær.
Nú þegar hafa heimsóknir á
hjúkrunarheimili verið takmarkaðar
en markmiðið með takmörkununum
er að minnka smithættu.
Anna sagði að lagt væri til að ekki
fleiri en einn ættingi heimsækti íbúa
hjúkrunarheimilis á degi hverjum.
Hjá sumum heimilum er reglan sú að
aðeins einn má heimsækja íbúa.
Anna sagði að þegar í heimsókn
kæmi yrði að fara rakleitt inn í her-
bergi íbúa og þegar þangað kæmi
yrði að gera allt sem hægt væri til að
halda tveggja metra reglunni þótt
stundum væri það erfitt.
Þá ítrekaði Anna að fólk ætti ekki
að koma í heimsókn ef það væri í
sóttkví, einangrun eða biði niður-
stöðu úr sýnatöku. Þá þurfa allir að
bíða í tvær vikur með að koma á
hjúkrunarheimili eftir dvöl erlendis.
Breytt landslag hjá hjúkr-
unarheimilum eftir opnun
Heimsóknir takmarkaðar og sóttkví við heimkomu að utan
Ljósmynd/lögreglan
Hjúkrun Anna Birna Jensdóttir
ræddi um mál hjúkrunarheimila.