Morgunblaðið - 04.09.2020, Side 1
F Ö S T U D A G U R 4. S E P T E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 208. tölublað 108. árgangur
SPENNANDI
HÓPUR GEGN
ENGLANDI LEITAR Í HÚS Á HAUSTIN
EINFALDAR
MELÓDÍUR EN
MARGT ÓSAGT
KLAUFHALAR Í ÁRBÆNUM 4 MÓR AGNARS MÁS 28ÍÞRÓTTIR 26
„Þetta gekk alveg þokkalega,“ sagði gangnafor-
inginn Sæþór Gunnsteinsson í Aðaldal um smala-
mennsku við Þeistareykjaafrétt í gær en appels-
ínugul viðvörun vegna hríðarveðurs tók gildi á
Norðurlandi eystra og Austurlandi að Glettingi í
gærkvöldi.
„Það var náttúrulega mjög lélegt skyggni og
mikil úrkoma. Við vorum með hörku mannskap
og gerðum það sem við ætluðum okkur sem var
að smala landið þar sem það er hæst sem er í
svona 600 metrum,“ sagði Sæþór þegar blaða-
maður náði tali af honum í gærkvöldi. Hann
sagði að göngumenn hefðu haft skamman tíma
til að reka féð.
„Viðvörunin kom ekki fyrr en seinni partinn á
þriðjudag. Við þurfum þrjá daga þarna í göngur
og við bara komumst það ekki. Þetta var svona
neyðaraðgerð. Við vorum með hjól, hunda, menn
og allt. Við náðum að koma fénu neðar í landið
þar sem veðrið verður kannski skárra. Svo vitum
við ekkert hvað gerist, við verðum bara að bíða.“
Á meðfylgjandi mynd má sjá hvar fé kemur til
Skógarréttar í Reykjahverfi. Sigríður Atladóttir
var á meðal þeirra sem smöluðu fénu þangað. Í
gærkvöldi sagði Sigríður að vel hafi gengið þótt
skyggni hafi verið svolítið leiðinlegt.
„Það var mikið rok og rigning, sérstaklega
þegar líða tók á daginn en þetta gekk vel miðað
við aðstæður og við vorum bara ánægð með okk-
ar dagsverk,“ sagði Sigríður.
„Það var mikil þoka. Það var kannski 100
metra skyggni eða 50 metra sums staðar og þá
sérðu náttúrulega ekkert í kringum þig.“
Smöluðu úr 600 metrum
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Skógarrétt Hér kemur fé til Skógarréttar í Reykjahverfi ásamt Reykhverfingum sem smöluðu í kalsaveðri í gær. Skyggni var lélegt og úrkoma mikil.
Lélegt skyggni og mikil úrkoma í göngum í gær Viðvörun vegna hríðarveðurs
tók gildi í gærkvöldi Hefðu þurft þrjá daga til að reka féð en það náðist ekki
„Niðurstöðurnar sýna að samfélagið
verður að vera áfram vakandi fyrir
aðstæðum barna,“ segir Heiða Björg
Pálmadóttir, forstjóri Barnavernd-
arstofu.
Barnaverndarstofa hefur birt
greiningu á tölulegum upplýsingum
frá barnaverndarnefndum landsins
sem bárust í júní og júlí í sumar. Í
samantekt Barnaverndarstofu kem-
ur fram að tilkynningar til barna-
verndarnefnda í júní voru yfir með-
altali og 16,9% fleiri en bárust í júní
2019.
„Það eru vísbendingar um það að
ofbeldi og vanræksla gagnvart börn-
um hafi aukist á þessum Covid-
mánuðum,“ segir Heiða Björg. »14
Morgunblaðið/Eggert
Barnahús Tilkynningum til barna-
verndarnefnda hefur fjölgað í ár.
Aukið of-
beldi í ár
Ný samantekt
Stórhættulegt
væri að skipta úr
sóttkví yfir í
heimasmitgát
vegna þess að
engin leið væri
að átta sig á
hvort henni væri
framfylgt. Þetta
segir Kári Stef-
ánsson, forstjóri
Íslenskrar erfða-
greiningar, í svari við grein Jóns
Ívars Einarssonar, prófessors við
læknadeild Harvard, í Morgun-
blaðinu gær. Kári segir að Jón Ívar
snúi dæminu á hvolf með því að
gefa í skyn að opna eigi landamæri
því að ástandið á Íslandi sé gott og
herða aðgerðir innanlands. Gott
ástand á Íslandi gefi kost á að
„slaka á sóttvarnarkröfum … svo
lífið færist í nokkuð eðlilegt horf“,
en með því að opna landamærin
yrði því stefnt í stórhættu. »15
Kári
Stefánsson
Stórhættulegt að
skipta í heimasmitgát
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Versnandi efnahagshorfur eru farn-
ar að hafa áhrif á lánskjör til fyrir-
tækja. Skýringin er meðal annars
aukin áhætta í hagkerfinu.
Þetta má ráða af svörum fulltrúa
Landsbankans og Arion banka.
Tilefnið er gagnrýni Ingólfs Bend-
er, aðalhagfræðings Samtaka iðnað-
arins, á bankana fyrir að lækka ekki
vexti á lánum til fyrirtækja. Sú
tregða, ásamt þeirri ákvörðun að
skrúfa fyrir útlán til fyrirtækja, ýki
niðursveifluna í hagkerfinu.
Meginvextir Seðlabankans eru í
sögulegu lágmarki og hafa vaxta-
lækkanir meðal annars verið rök-
studdar með falli í eftirspurn. Þá
hefur Seðlabankinn bent á að mörg
fyrirtæki í ferðaþjónustu hafi lítið
eigið fé og eftir atvikum lítinn við-
námsþrótt ef til áfalla kemur.
Aukin áhætta í atvinnugreinum
Fulltrúi Landsbankans vísaði til
mikillar óvissu í efnahagslífinu.
„Óvissa og versnandi efnahags-
ástand hefur áhrif á lánskjör þar
sem álag á grunnvexti getur hækk-
að, t.d. með aukinni áhættu innan at-
vinnugreinar eða versnandi afkomu
viðkomandi fyrirtækis.“
Þá sagði fulltrúi Arion banka að
óvissan væri „umtalsverð í efnahags-
lífinu og þar með áhætta við lánveit-
ingar, sem þó er misjöfn eftir fyrir-
tækjum og atvinnugreinum“. »12
Bitnar á lánskjörum
Versnandi efnahagshorfur hafa áhrif á lán til fyrirtækja
Samsett mynd/Eggert
Bankarnir Niðursveiflan gæti kall-
að á afskriftir af fyrirtækjalánum.
Stóðhesturinn
Kveikur frá
Stangarlæk hef-
ur verið seldur
til hrossarækt-
enda í Dan-
mörku. Hann
hefur staðist
læknisskoðun og
gengið verður endanlega frá kaup-
unum á næstu vikum. Kaupend-
urnir stefna að því að flytja hann
út í haust. Verðið er ekki gefið
upp. »2
Kveikur seldur
Sýning Aðalheiður
Anna og Kveikur.
A
ct
av
is
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is