Morgunblaðið - 04.09.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.09.2020, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2020 Málað yfir Þetta veggjakrot hjá Hegningarhúsinu þótti ekki til prýði. Þá er gott að geta málað yfir með hvítu. Eggert Jón Ívar Einarsson, það yljar mér um hjartarætur að verða vitni að því hversu oft þessum íslenska kven- sjúkdómalækni í Bost- on verður hugsað til fósturjarðarinnar. Það er hins vegar dálítið sérstakt að lesa tvær greinar eftir sama manninn í Morg- unblaðinu með nokkurra daga millibili sem eru efnislega næstum eins. Eini munurinn er að seinni greinin er útbíuð í tölulegum upplýsingum, meðal annars úr grein sem Íslensk erfðagreining birti í New England Journal of Medicine á þriðjudaginn. Þessi tvíbirting sömu hugsunar bendir til þess að þú hafir fall- ið fyrir þeirri fásinnu sem ríkir í Nýja- Englandi, að Boston sé nafli alheimsins, og þess vegna sé allt sem þaðan kemur merkilegt og skuli birta oft, jafnvel rök- leysuna við lok greinar þinnar. En Jón Ívar, ég hef komið til Boston, skoðað svæðið og talað við fólkið. Mín ályktun er sú að Boston sé bara sjáv- arborg í hnignandi stórveldi þar sem menntastofnanir eins og sú sem þú vinnur við markast af upphafinni með- almennsku. Nú skulum við skoða annars vegar forsendur sem þú gefur þér um farald- urinn og ástandið á Íslandi og ályktanir sem þú dregur af þeim: Þú gefur í skyn að ástandið á Íslandi sé gott og þess vegna eigi að slaka á kröfum við landa- mæri en herða aðgerðir innan lands. Þarna ertu að snúa dæminu á hvolf. Ástandið á Íslandi er gott og fer batn- andi þannig að við getum farið að slaka á sóttvarnakröfum innanlands svo lífið færist í nokkuð eðlilegt horf. Ef við hins vegar myndum slaka á kröfum við landamæri er ljóst að smit- um myndi fjölga, gögnin sýna það, og við yrðum að herða tökin innanlands þannig að skólar gætu ekki starfað eðlilega, menning- arlíf legðist að mestu af og atvinnuvegir aðrir en ferðaþjónusta myndu gjalda. Vegna þess að lítið er um smit á Íslandi viljum við koma í veg fyrir að þau berist inn frá öðrum lönd- um. Ef mikið væri um smit í landinu væri engin ástæða til þess að verja landamærin með skimunum og sóttkví. Þú leggur meira að segja til að fimm daga sóttkví verði skipt út fyrir heimasmitgát sem væri stór- hættulegt vegna þess að hún er skil- greind þannig að það er enginn möguleiki að ákvarða hvort fólk framfylgir henni. Jón Ívar, þannig er mál með vexti að þótt þú hefðir rétt fyrir þér og Boston væri nafli alheimsins veitir það þér ekki réttinn til þess að halda því fram að ö sé á undan a í stafróf- inu. Það er nefnilega fyrir löngu búið að sýna fram á að þótt maður hafi heimsótt mikil óperuhús veitir það enga vissu fyrir því að hann kunni að syngja. Eftir Kára Stefánsson » Það er nefnilega fyr- ir löngu búið að sýna fram á að þótt maður hafi heimsótt mikil óperuhús veitir það enga vissu fyrir því að hann kunni að syngja. Kári Stefánsson Höfundur er forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Opið bréf til Garðars Hólm Báðir bandarísku stjórnmálaflokkarnir hafa formlega tilnefnt frambjóðendur sína, tvo hvíta karlmenn á áttræðisaldri, Donald Trump (74 ára) er frambjóðandi repúblik- ana og Joe Biden (77 ára) er frambjóðandi demókrata. Donald Trump varð 45. forseti Bandaríkjanna eftir snarpa prófkjörsbaráttu innan flokks repúblikana. Hann tók and- stæðinga sína þar hörðum og óvenjulegum tökum. Hann sigraði síðan demókratann Hillary Clinton árið 2016. Hún fékk fleiri atkvæði en Trump fleiri kjörmenn og þar með embættið. Eftirleikur kosningabaráttunnar 2016 setur enn svip á forsetatíð Trumps. Miklum tíma, mannafla og fjármunum var varið til að kanna hvort útsendarar Vladimirs Pútins Rússlandsforseta stuðluðu að sigri Trumps. Tilraunir til að sanna ásakanir um Rússatengslin runnu út í sandinn en veiktu trú margra á óhlutdrægni al- ríkislögreglunnar (FBI) og starfs- hætti innan dómsmálaráðuneytisins. Donald Trump hikar ekki við að setja allt á annan endann sjálfum sér til framdráttar. Þetta einkennir stjórnarhætti hans innan lands og gagnvart öðrum ríkjum. Kosninga- baráttan nú ber einnig þetta yf- irbragð. Efnahagslega vegnar Bandaríkja- mönnum vel undir stjórn Trumps. Hann leggur sig hins vegar ekki fram um að sameina þjóðina. Ágreiningur milli repúblikana og demókrata hefur magnast. COVID-19- faraldurinn skilur eftir sig djúp sár í Banda- ríkjunum. Hann dró mjög úr trausti í garð Trumps. Forsetanum yrði til framdráttar tækist Bandaríkja- mönnum fyrir kjördag, 3. nóvember, að kynna bóluefni gegn faraldr- inum. Að öðrum kosti verður Trump kapps- mál að beina athygli kjósenda að allt öðru en faraldrinum. Á stafrænu flokksþingi repúblik- ana sagði Mike Pence varaforseti að kosið yrði um lög og reglu. Repú- blikanar vilja beina athygli og um- ræðum að óöldinni sem ríkir víða í bandarískum borgum. Þeir telja sig ná undirtökum í baráttu um atkvæð- in með því. Skoðanakannanir sýna að sigur Trumps sé í spilunum verði rétt á málum haldið. Biden í vörn Forskotið sem Joe Biden hefur á Donald Trump í könnunum er rakið til gagnrýni á forsetann vegna CO- VID-19. Takist Trump að hrekja demókrata í varnarstöðu með ásök- unum um að þeir styðji upplausnar- og róttæka aðgerðasinna kann hann að sigra í úrslita-ríkjunum sex: Flórída, Norður-Karólínu, Arizona, Wisconsin, Michigan og Pennsylv- aniu. Joe Biden snerist gegn fyrr- greindum ásökunum Trumps í ræðu í Pittsburgh í Pennsylvaniu mánu- daginn 31. ágúst. Biden sakaði Trump um að kynda undir loga of- beldis, hann magnaði þá í stað þess að slökkva eins og honum bæri. Með Trump eitraði forsetaembættið bandarískt þjóðlíf. Forsetinn segði ekkert satt, hann þyldi ekki stað- reyndir og legði ekki líknandi hönd á neitt. Ræðan sýndi að Trump tókst á fá- einum dögum að breyta umræðu- efninu. Nú sæta fjölmiðar hollir Biden ámæli fyrir villandi fréttir af óeirð- unum í bandarískum borgum. Til marks um það er nefnt að fréttamaður CNN-sjónvarpsstöðv- arinnar stóð úti á götu í bænum Ke- nosha í Wisconsin og sagði mótmæl- in „eldheit en almennt friðsamleg“ – á bak við hann virtist borgin í ljós- um logum og fólk bar gasgrímur til að verjast táragasi. Eftir þunga gagnrýni viðurkenndi stöðin mistök við flutning fréttarinnar. Dagana fyrir ræðu Bidens hamr- aði Trump á því við kjósendur að þeir yrðu „ekki öruggir“ undir Bi- den sem forseta. Biden gagnrýndi ekki nægilega fast ofbeldisaðgerðir vinstrisinna. Í ræðunni bar Biden þetta af sér, mótmæli fælust hvorki í þjófnaði né íkveikju, þar væri um að ræða lögbrot. Kannanir sýna að fylgi við hreyf- inguna Black Lives Matter, sem er andstæð Trump, hefur minnkað um 10 til 15 stig undanfarið. Biden segir Trump um megn að hemja ofbeldismenn eftir að hafa ár- um saman ýtt undir þá. Forsetinn haldi það styrkja sig að tala um lög og rétt en veikleiki hans birtist í vopnaburði stuðningsmanna hans. Hálfvelgja hjá Biden, segir Trump, hann skelli skuldinni meira á lögregluna en vinstrisinnaða rót- tæklinga. „Dökkir skuggar“ Donald Trump herti á ásökunum gegn Joe Biden í samtali við Fox News-sjónvarpsstöðina mánudaginn 31. ágúst. Stjórnandinn, Laura Ingraham, spurði Trump: „Hver heldur þú að togi í þræðina hjá Biden? Fyrrver- andi menn Obama?“ Forsetinn svar- aði: „Fólk sem þú hefur aldrei heyrt um, fólk sem heldur sig í dökkum skuggum. Fólk sem –“. Stjórnand- inn: „Hvað þýðir þetta? Hljómar eins og samsæriskenning. Dökkir skuggar. Hvað er það?“ Trump: „Það er fólk sem er á götum úti, það er fólk sem stjórnar því sem gerist á götunum.“ Forsetinn sagði síðan frá ein- staklingi sem hefði um helgina farið um borð í flugvél í borg nokkurri og vélin hefði verið næstum full af bóf- um í svörtum einkennisbúningum með alls kyns búnað. Trump sagðist mundu skýra þetta nánar síðar, málið væri í rannsókn. Undanfarin ár hefur Donald Trump látið sér lynda stuðning sam- særishóps sem kallar sig QAnon. Með orðum sínum um „dökku skuggana“ að baki Biden vill Trump ef til vill jafna metin þegar rætt er um samsærishópa. Þegar Trump telur sér til fram- dráttar að beina umræðunum að „lögum og rétti“ er minnt á að repú- blikaninn Richard Nixon vann for- setakosningarnar árið 1968 undir þeim formerkjum. Á flokksþingi repúblikana nú var lögð áhersla á stöðugleika í samfélaginu í krafti laga og réttar en áhersla á þingi demókrata sneri meiri að ójöfnuði og baráttu gegn honum. Afstaðan til lögreglu Forystumenn demókrata eins og Bill De Basio, borgarstjóri í New York, boða niðurskurð útgjalda til löggæslu til að auka félagslega þjón- ustu. Rök vinstrisinna eru að harka lögreglunnar ýti undir ófrið í sam- félaginu. Félagsleg smyrsl rói og græði sár. Á YouTube má sjá myndband frá Ami Horowitz sem kannaði hug New York-búa til að leggja niður lögregluna. Hvítir borgarbúar í East Village lýstu óvild í garð lög- reglunnar og vildu skera niður út- gjöld til hennar. Það yrðu einkum bandarískir blökkumenn sem nytu góðs af brotthvarfi lögreglumanna. Þegar Horowitz leitaði álits blökkumanna á Malcolm X- breiðgötunni í Harlem voru svörin allt önnur. Talið var brjálæði að vera án lögreglu, ástandið myndi stórversna vegna rána, nauðgana og morða. Sumir töldu það jafngilda sjálfsmorði. Það yrði engum til gagns. Þegar tveir mánuðir eru til kjör- dags mælist Joe Biden með meira fylgi en Donald Trump. Þannig hef- ur staðan verið um nokkurt skeið. Hún segir þó ekki alla söguna því að úrslitin ráðast ekki endilega af því hvor fær flest atkvæði upp úr kjör- kössunum. Hillary Clinton væri for- seti núna réði fjöldi atkvæða. Það er fjöldi kjörmanna sem skiptir sköp- um. Sé rýnt í niðurstöður kannana um þessar mundir fengi Biden 337 kjör- menn en Trump 201. Biden fengi 67 kjörmenn umfram nauðsynlegan lágmarksfjölda þeirra (270). Þegar tölurnar eru skoðaðar ber að minn- ast óvissunnar vegna úrslitaríkj- anna sex. Ekkert er fast í hendi. Eftir Björn Bjarnason » Takist Trump að hrekja demókrata í varnarstöðu af því að þeir styðji upp- lausnar- og róttæka aðgerðasinna kann hann að sigra. Björn Bjarnason Höfundur er fyrrv. ráðherra Trump setur Biden í vörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.