Morgunblaðið - 04.09.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
lilja@mbl.is
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
hefur lagt til við heilbrigðisráðherra
breytingar á sóttvarnatakmörkun-
um innanlands. Þórólfur leggur til að
samkomutakmörk verði færð úr 100
í 200 manna hámarksfjölda. Þá legg-
ur hann til að eins metra reglan eigi
við alla í stað tveggja metra regl-
unnar. Eins metra reglan hefur verið
í gildi fyrir skólastarf undanfarnar
vikur. Á upplýsingafundi almanna-
varna í gær kom fram að Þórólfur
hefði lagt til að nýjar reglur tækju
gildi 7. september og yrðu endur-
skoðaðar að tveimur til þremur vik-
um liðnum. Á meðal annarra tillaga
Þórólfs er að skemmti- og veitinga-
staðir fái áfram að hafa opið til
klukkan 23 á kvöldin, að fjöldatak-
markanir í sundlaugum færist úr
50% getufjölda í 75% og að íþrótta-
viðburðir verði áfram leyfðir með
200 manna sótthólfum.
220 greinst frá 15. júní
Frá 15. júní hafa um 220 einstak-
lingar greinst með kórónuveiruna
innanlands. Fimm hafa þurft á spít-
alavist að halda en enginn er nú inni-
liggjandi. Flestir þeirra sem hafa
greinst voru í sóttkví við greiningu.
Að sögn Þórólfs fer fjöldi þeirra sem
greinast með virkt smit á landamær-
um vaxandi, þrátt fyrir samdrátt í
komu ferðamanna. Alls hafa um 100
greinst með virkt smit á landamær-
unum. Þar af eru 16 einstaklingar
sem fengu neikvæða niðurstöðu úr
fyrri sýnatöku en greindust jákvæð-
ir í þeirri síðari. Um 60% þeirra sem
greinst hafa á landamærum eiga lög-
heimili hérlendis. Alls hefur fjöldi
greindra smita á landamærum tí-
faldast hlutfallslega síðan reglur um
tvöfalda skimun með fimm daga
sóttkví á milli tóku gildi 19. ágúst síð-
astliðinn.
Þórólfur segir það „óvarlegt“ að
segja til um hvenær hægt verður að
slaka á aðgerðum á landamærum.
„Það er ekki ráðlegt að slaka á á
hvorum tveggja vígstöðvum, bæði
innanlands og á landamærum, sam-
tímis. Ef maður á að velja á milli held
ég að það sé skynsamlegra að byrja
að slaka á hér innanlands, síðan
verðum við bara að feta okkur áfram.
Þetta er bara eins og að fara yfir
stórfljót, við verðum að fara rólega
og sjá hvert hvert skref leiðir okkur í
raun og veru,“ segir Þórólfur. Þór-
ólfur var á upplýsingafundinum
spurður út í gagnrýni þeirra sem
telja aðgerðirnar umfram tilefni,
enda smit ekki jafn útbreidd hér-
lendis og víða annars staðar. „Við er-
um með lítið smit og lítið vandamál
hér út af þessum aðgerðum sem við
höfum verið að grípa til. Það er
ástæðan,“ sagði Þórólfur þá.
Greiningum gæti fækkað
Óskar Reykdalsson, forstjóri
Heilsugæslunnar á höfuðborgar-
svæðinu, var gestur fundarins í gær.
Óskar sagði að vísbendingar væru
um breytingar á tíðni krabbameins-
greininga hérlendis. Hann hvetur
fólk til að veigra sér ekki við að leita
sér heilbrigðisþjónustu á tímum
heimsfaraldurs. Óskar segir það
ekki staðfest að breytingar hafi orðið
hérlendis en í Skandinavíu hefur til
að mynda dregið úr greiningu
lungnakrabbameins. „Og það er
væntanlega ekki vegna þess að það
sé minna um það. Það er frekar að
það muni greinast síðar,“ sagði Ósk-
ar. Að sögn Óskars gæta allar heil-
brigðisstofnanir ýtrustu sóttvarna
og það sé öruggt fyrir fólk að leita
sér læknisaðstoðar þrátt fyrir far-
aldurinn. Hann segir mikilvægt að
halda starfseminni eins eðlilegri og
mögulegt er. „Þess vegna þurfum við
að sinna þessum sóttvörnum.“
Hefur lagt til nýjar
sóttvarnareglur
200 manna hámarksfjöldi Eins metra regla fyrir alla
Ljósmynd/Almannavarnir
Kórónuveirufaraldurinn Rögnvaldur Ólafsson, Þórólfur Guðnason og Ósk-
ar Reykdalsson sátu fyrir svörum á upplýsingafundi almannavarna í gær.
Innanlands
Landamæraskimun:
Virk smit Með mótefni
Beðið eftir
mótefnamælingu
Kórónuveirusmit á Íslandi
Fjöldi jákvæðra sýna frá 15. júní til 2. sept.
612 einstaklingar eru í sóttkví
2.128 staðfest smit
96 eru með virkt smit
Heimild: covid.is
17,7 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
220.898 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
129.572 sýni
20
15
10
5
0
Nýgengi smita
innanlands:
júní júlí ágúst
Stóðhesturinn og gæðingurinn Kveikur frá Stangarlæk
hefur verið seldur til hrossaræktenda í Danmörku. Hann
hefur staðist læknisskoðun og gengið verður endanlega
frá kaupunum á næstu vikum. Kaupendurnir stefna að
því að flytja hann út í haust.
Ræktendur Kveiks eru hjónin Birgir Leó Ólafsson og
Ragna Björnsdóttir á Stangarlæk. „Landsmótið í sumar
átti að vera hans síðasta mót. Þegar landsmótinu var
frestað vegna kórónuveirunnar breyttust okkar áform
og við fórum að íhuga að selja hann á þessu ári,“ segir
Birgir Leó. Þau voru með ákveðið verð í huga og kaup-
andi hafði samband og gekk að því. Verðið er trúnaðar-
mál, að sögn Birgis.
Kveikur kemur úr ræktun Birgis og Rögnu, fædd
2012. „Við sáum frekar snemma hvað hann var sérstakur
og efnilegur hestur,“ segir Birgir en Kveikur er undan
Rakettu frá Kjarnholtum og Sjóði frá Kirkjubæ. Hann
fór í tamningu og þjálfun til Aðalheiðar Önnu Guðjóns-
dóttur og Reynis Arnar Pálmasonar í Margrétarhofi og
hefur Aðalheiður Anna sýnt Kveik í þau skipti sem hann
hefur verið sýndur. Hafa þau fengið góða dóma í sýn-
ingum og keppni. Kaupendur Kveiks eru Gitte og
Flemming Fast sem stunda ræktun á íslenska hestinum.
helgi@mbl.is
Ljósmynd/Eiðfaxi
Gæði Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir sýnir Kveik.
Áform eigendanna breytt-
ust við frestun landsmótsins
Kveikur til Danmerkur
t í næsta
óteki
Kemur sem hentugur úði en honum er spreyjað yfir augnlokin þ.e. á lokuð augun.
Úðann má nota með farða og augnlinsum.
Fæs
Ap
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
45 sýni af þeim 1.800 sem Krabba-
meinsfélagið hefur lokið endurskoð-
un á hafa gefið tilefni til þess að kalla
viðkomandi konur aftur til frekari
rannsókna vegna gruns um frumu-
breytingar. Í tilkynningu félagsins
vegna málsins kemur fram að ekkert
af þeim 45 sýnum sé talið jafn alvar-
legt og mál konunnar sem nú er með
ólæknandi krabbamein í leghálsi
vegna mistaka við skoðun á sýni
hennar árið 2018.
Í tilkynningu Krabbameinsfélags-
ins segir að um leið og mál konunnar
hafi komið upp í lok júní hafi víðtæk
endurskoðun farið af stað á þeim
sýnum sem viðkomandi starfsmaður
frumurannsóknarstofu Leitarstöðv-
ar Krabbameinsfélagsins hafði rann-
sakað. Um er að ræða rúmlega 6.000
sýni frá árunum 2017-2019 og hefur
nú þegar verið lokið endurskoðun á
um 1.800 sýnum líkt og fyrr sagði.
Hafði verið í veikindaleyfi
Starfsmaðurinn sem málið snertir
hafði verið í veikindaleyfi um nokk-
urt skeið en í tilkynningunni segir að
ekki sé hægt að fullyrða að heilsu-
brestur starfsmannsins hafi stuðlað
að því sem gerðist. Hann lét af störf-
um hjá leitarstöðinni að eigin ósk í
febrúar 2020. Hann hefur verið upp-
lýstur um málið og fengið aðgang að
áfallahjálp.
Í tilkynningu félagsins segir að
hafin sé ítarleg rannsókn á atvikinu,
og verða niðurstöður hennar sendar
embætti landlæknis jafnóðum, en
embættið hefur hafið sína eigin sjálf-
stæðu rannsókn á málinu.
Telur félagið bótaskylt
Sævar Þór Jónsson, lögmaður
konunnar sem greindist með
krabbameinið, staðfesti í gær í sam-
tali við mbl.is að sér hefðu borist sjö
fyrirspurnir eftir að málið komst í
hámæli. Í tveimur þeirra er um að
ræða aðstandendur kvenna sem lét-
ust úr krabbameini.
Sævar telur að Krabbameins-
félagið sé sannarlega bótaskylt í máli
konunnar sem hyggst sækja skaða-
bótamál. Ekkert liggur fyrir um það
hversu háar skaðabætur í málunum
gætu orðið en Sævar segir að skaða-
bótaskylda liggi fyrir í fyrsta málinu.
„Það er algjörlega á frumstigi eins
og staðan er í dag. Við getum ekkert
tjáð okkur um það. Við erum að hefja
einhvers konar samningaviðræður
við Krabbameinsfélagið. Við sjáum
bara hvernig því vindur fram. Í
þessu upphaflega máli, fyrsta málinu
sem kom, þá eru þeir náttúrulega
búnir að viðurkenna mistök svo það
liggur fyrir að það er bótaskylda
þar.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Krabbameinsfélagið Skoða þarf rúmlega 6.000 sýni aftur vegna málsins.
Starfsmaður
sem greindi
sýnin hættur
Lögmaður konunnar fengið sjö
fyrirspurnir vegna gruns um mistök