Morgunblaðið - 04.09.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2020
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það skapaðist ákveðin bjartsýni í
sumar enda varð sumarið betra en
margur þorði að vona. Núna virðist
aftur gæta svartsýni. Það er komið
þyngra hljóð í allan veitingageirann
og það er aðallega óvissa um hvern-
ig sóttvarnaaðgerðum verður háttað
sem skapar það,“ segir Óskar Hafn-
fjörð Gunnarsson, formaður Matvís,
Matvæla- og veitingafélags Íslands.
Hann segir að margir í veitinga-
geiranum hafi verið á uppsagnar-
fresti í sumar og vonast eftir áfram-
haldandi ráðningu í haust. Það hafi
gengið upp í einhverjum tilvikum
en alls ekki öllum. Ekki liggja þó
fyrir tölur um uppsagnir og at-
vinnuleysi.
„Það segir sig sjálft að ef veit-
ingastaðir geta bara tekið á móti
jafnvel helmingi færri gestum nú en
venjulega hefur það áhrif á rekst-
urinn,“ segir Óskar um stöðu mála.
Hann segir jafnframt að í eðlilegu
árferði væru stórar veislur fram
undan, svo sem jólahlaðborð og
veislur sem frestað var vegna kór-
ónuveirunnar fyrr á árinu.
„Það styttist í vertíð og margir
bíða spenntir eftir því hvað verður
enda jólahlaðborðin gríðarstór
tekjulind. Margir eru að spá í út-
færslu ef við höldum áfram með
þessar takmarkanir. Það segir sig
sjálft að þessi stóru jólahlaðborð
verða ekki haldin með óbreyttu
sniði ef það eru 100 manna tak-
markanir og tveggja metra regla.
Sem er synd því við erum vanaföst
þegar kemur að svona hátíðum og
mörgum finnst þeir ekki geta haldið
jól án þess að fara á jólahlaðborð.“
Hafa áhyggjur af
jólahlaðborðunum
Óvissa í veitinga-
geiranum Stórar
veislur í uppnámi
Morgunblaðið/Golli
Jólahlaðborð Veitingamenn vona
að slakað verði á 100 manna reglu.
Garðaklaufhalar berast stundum til
landsins með ávöxtum og grænmeti
og eru auk þess orðnir landlægir
hérlendis. Einn slíkur barst Nátt-
úrufræðistofnun um miðjan júlí og
hafði hann grafið um sig inni í nekt-
arínu sem keypt var í matvöru-
verslun í Mosfellsbæ.
Frá þessu greinir Erling Ólafs-
son, skordýrafræðingur á facebook-
síðunni Heimur smádýranna. Þar
segir að klaufhalar finnist einna
helst í Árbæjarhverfi, en þegar
haustar leiti þeir stundum inn í hús.
„Sem sagt, búið ykkur undir haust-
ið! En engar áhyggjur, klaufhalinn
gerir okkur engan miska,“ skrifar
Erling.
Á pödduvef Náttúrufræðistofn-
unar segir að garðaklaufhali berist
reglulega til landsins með ýmsum
varningi, ekki síst grænmeti. Hann
berist í mismiklum mæli eftir því
hvernig honum vegni úti í Evrópu,
en áraskipti séu að honum þar.
Hann fannst fyrst í Reykjavík
1902. Stundum hafi verið vísbend-
ingar um að hann væri að stinga sér
niður á landinu, t.d. í gróðurhúsum.
Slíkum tilfellum fór svo fjölgandi
þegar leið að aldamótunum síðustu
og hafa garðaklaufhalar fundist víða
um land.
Mæður étnar af afkvæmum
Klaufhalinn nærist einkum á rotn-
andi plöntu- og dýraleifum og er
einkar sólginn í skemmda ávexti.
Dýrin athafna sig einkum að næt-
urlagi og safnast þá gjarnan mörg
saman í æti.
Á veturna koma kvendýrin sér
fyrir í holu í jörðu og verpa þar á
tímabilinu nóvember til mars. Þau
annast eggin og sjá til þess að þau
þroskist eðlilega og verði ekki sýk-
ingum að bráð. Þegar eggin klekjast
drepast mæðurnar og eru étnar upp
af afkvæmum sínum.
aij@mbl.is
Garðaklaufhali
fannst í nektarínu
Ljósmynd/Erling Ólafsson
Skordýr Myndarlegur garðaklaufhali sem fannst í sumar. Klaufhalar þekkj-
ast auðveldlega á tveimur hörðum sterklegum stöfum aftur úr bolnum.
Landlægur en finnst helst í Árbænum
KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS
NÝJAR
vörur frá
POP loftþétt geymslubox
frá 2.690,-
POP morgunverðarbox
frá 3.990,-
RIFJÁRN frá 2.990,-
ÁHÖLD 1.990,-stk
GLERSKAFA 3.990,-
OLÍUKARAFLA
frá 2.990,-
Stefnt er að því að byrja borun vegna
endurnýjunar borholu við Bolholt eftir
helgi. Borinn Nasi, í eigu Ræktunar-
sambands Flóa og Skeiða, er kominn á
staðinn og síðustu daga hefur verið unn-
ið að undirbúningi á staðnum. Fram-
kvæmdin mun hafa töluvert rask og há-
vaða í för með sér og hjólastíg meðfram
Kringlumýrarbraut, milli Háaleit-
isbrautar og Laugavegar, hefur verið
lokað tímabundið
Borholan er frá 1963 og er ein sú gjöf-
ulasta sem Veitur hafa til umráða, en
holan hefur varmaafl sem getur hitað
upp um 2.000 hús á ári sem er svipaður
fjöldi og er í Vestmannaeyjabæ. Nú er
svo komið að þrenging er í holunni og
hrun sem veldur því að dregið hefur úr
afköstum. Því er nauðsynlegt að fara í
framkvæmdina til að rýma, hreinsa og
fóðra holuna áður en hún verður end-
urvirkjuð fyrir næsta vetur, segir á
heimasíðu Veitna. Borholan er 764 metr-
ar á dýpt, sem er á við tíu Hallgríms-
kirkjur.
Holan er ein af tíu borholum á Laugar-
nessvæðinu, sem er lághitasvæði, og ein
af átján borholum í Reykjavík.
Með varmaafl sem getur hitað upp um 2.000 hús á ári
Öflug hola
við Bolholt
endurnýjuð
Morgunblaðið/Árni Sæberg