Morgunblaðið - 04.09.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2020
Heiðrún Lind Marteinsdóttir,framkvæmdastjóri Samtaka
fyrirtækja í sjávarútvegi, skrifaði
pistil í Viðskiptablaðið í vikunni og
benti á að töluverður samdráttur
hefði „orðið í sölu á
sjávarafurðum frá
því að kór-
ónuveirufarald-
urinn skall á“. Þá
minnti hún á að
miklar sveiflur
væru þekktar í
sjávarútvegi og að
íslenskur sjávar-
útvegur mundi standa af sér
storminn og það væri „ekki síst
vegna sveigjanleika hins íslenska
fiskveiðistjórnunarkerfis og fjár-
hagslegra sterkra og vel rekinna
fyrirtækja“.
Hún bætti við að þetta væri fá-heyrt í sjávarútvegi á al-
þjóðavísu: „Beggja vegna Atlants-
hafs er nú keppst við að dæla
fjármunum skattgreiðenda inn í
sjávarútveg. Vegna áhrifa kór-
ónuveirufaraldursins fá aðildarríki
ESB alls 160,3 milljónir evra, jafn-
virði um 26,4 milljarða íslenskra
króna, til þess að styrkja sjávar-
útveg og fiskeldi. Fjármunirnir
koma úr evrópska sjávarútvegs-
sjóðnum (The European Maritime
and Fisheries Fund). Sjóðurinn
hefur á tímabilinu 2014-2020 út-
hlutað 6,4 milljörðum evra, jafn-
virði um 1.050 milljarða íslenskra
króna, til sjávarútvegs í ríkjum
ESB. Í Bandaríkjunum var 300
milljónum Bandaríkjadala, jafn-
virði um 41 milljarðs íslenskra
króna, ráðstafað í sjóð til aðstoðar
aðilum í sjávarútvegi sem orðið
hafa fyrir áhrifum af COVID.“
Ísland býr vel að hafa skyn-samlegt stjórnkerfi fiskveiða
og öflugan sjávarútveg. En í um-
ræðum um þessi mál má aldrei
gleyma því að hann keppir við nið-
urgreiddan sjávarútveg í öðrum
löndum.
Heiðrún Lind
Marteinsdóttir
Í samkeppni
við ríkisstyrki
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
ÞG verk átti lægsta tilboðið í fram-
kvæmdir við uppsteypu og fullnað-
arfrágang skrifstofubyggingar Al-
þingis, en tilboðin fjögur sem bárust
voru opnuð hjá Framkvæmdasýslu
ríksins í gær. Tilboð ÞG verks var
upp á 3.047 milljarða króna eða 93%
af kostnaðaráætlun sem var 3.327
ma. kr. Tilboð Ístaks í verkið var
3.066 ma. kr., Eyktar 3.897 ma. kr. og
ítalska fyrirtækið Rizzani de Eccher
S.p.A bauðst til að taka verkið að sér
fyrir 4.423 ma. kr. Gera má ráð fyrir
að gengið verði að tilboði Eyktar.
Útboðið tók til framkvæmda við
jarðvinnu, uppsteypu og fullnaðar-
og lóðarfrágangs hússins. Hönnun
þess byggir á samkeppnistillögu
Studio Granda sem hlaut 1. verðlaun
í samkeppni um hönnun hússins.
Byggingin verður skrifstofu- og
þjónustuhús Alþingis og mun standa
við horn Tjarnargötu og Vonarstræt-
is, beint fyrir norðan Ráðhúsið. Í
byggingunni verða meðal annars
skrifstofur alþingismanna og funda-
aðstaða sem í dag er í hinum ýmsu
húsum í Kvosinni í Reykjavík sem
Alþingi hefur leigt fyrir starfsemi
sína.
Fyrirhuguð nýbygging, grunnhús
á 4 hæðum ásamt 5. hæð og kjallara,
er um 6.362 m2 að stærð. Þar af er
bílakjallari um 1.300 m2.
ÞG bauð lægst í byggingu Alþingis
93% af áætlun Stórhýsi við
Vonarstrætið Fjögur tilboð bárust
Tölvumynd/Studio Grandi
Alþingi Svona mun nýbygging
löggjafarsamkomunnar líta út.
„Hið stóra verkefni stjórnvalda er að
brúa bilið, taka utan um fólkið okkar
og fyrirtæki á þessum tíma – ekki
fram í tímann heldur núna, til að
kreppan verði ekki langvarandi,“
sagði Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, formaður Viðreisnar, á
blaðamannafundi í gær.
Þar lýstu hún og Jón Steindór
Valdimarsson þeim verkefnum og
aðgerðum sem brýnt er að stjórn-
völd ráðist strax í til að mæta vanda
fólks og fyrirtækja í landinu.
Þau sögðu ljóst að ríkisstjórnin
hefði enga áætlun til að mæta sam-
drættinum í landinu vegna kórónu-
veirufaraldursins og á þessum tíma-
punkti væri það þjóðinni afar
dýrkeypt að draga lappirnar, að því
er segir í tilkynningu.
Bregðast þurfi við yfirstandandi
samdrætti með afgerandi og mark-
vissum aðgerðum. Útlit er fyrir að
niðursveiflan verði tímabundin og
skammvinn, miðað við grunnspá
Seðlabanka Íslands.
Því verður meginþungi aðgerða
stjórnvalda að miðast við þann veru-
leika að ráðist verði í afgerandi að-
gerðir strax til að brúa bilið fyrir
fólk og fyrirtæki í landinu sem
ástandið bitnar mest á.
Þorgerður og Jón Steindór bentu
á að það dygði lítið að dreifa aðgerð-
um á árin 2022 eða 2023. Tillögur
Viðreisnar eru sjö talsins og miða að
því að draga úr neikvæðum áhrifum
samdráttarins á líf og lífsviðurværi
almennings. Meðal tillagna er að
flýta og auka opinberar fram-
kvæmdir, auka hvata í loftslags-
málum, bregðast við auknu atvinnu-
leysi með tímabundnum úrræðum
fyrir fólk í atvinnuleit, fjárfesta í lýð-
heilsu, efla nýsköpun og létta álögur
á fyrirtæki.
Segja stjórnvöld
ekki vera með áætlun
Viðreisn með sjö
tillögur til aðgerða
í efnahagsmálum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Efnahagsmál Viðreisn kynnti
tillögur sínar í gær í sjö liðum.