Morgunblaðið - 04.09.2020, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2020
„Útlit er fyrir að umferðin dragist
saman um 12 prósent í ár, sem er
gríðarlega mikill samdráttur á milli
ára,“ segir á heimasíðu Vegagerðar-
innar um umferðina það sem af er
ári. Umferðin yfir 16 lykilteljara á
hringveginum dróst saman um tæp
12% í nýliðnum ágúst frá sama
mánuði á síðasta ári. Þetta er lang-
mesti samdráttur sem mælst hefur
á milli ágústmánaða, eða um fjórum
sinnum meiri munur en áður hefur
mælst.
Umferð dróst saman á öllum
landssvæðum og mest yfir mælisnið
á Austurlandi eða um rúmlega 27%
en minnst yfir mælisnið á og í
grennd við höfuðborgarsvæðið eða
um tæp 6%. Öll mælisnið sýndu
samdrátt og rúmlega 46% sam-
dráttur var um mælisnið á Mýrdals-
sandi en minnst dróst umferð sam-
an yfir mælisnið við Úlfarsfell eða
um tæp 4%.
Frá áramótum hefur umferðin
dregist saman um 12% frá sama
tímabili á síðasta ári. Þetta er ríf-
lega tvisvar sinnum meiri samdrátt-
ur en áður hefur mælst á þessum
árstíma, segir á heimasíðunni.
Mest ekið á föstudögum
Umferðin hefur dregist saman á
öllum vikudögum, þegar horft er á
tímabilið frá áramótum og það bor-
ið saman við sama tímabil á síðasta
ári. Hlutfallslega hefur mælst mest-
ur samdráttur á sunnudögum en
minnstur á þriðjudögum. Frá ára-
mótum hefur mest verið ekið á
föstudögum og minnst á laugardög-
um.
Núna þegar þrír umferðarmestu
mánuðir ársins eru liðnir hefur
óvissan um framhaldið á hringvegi
lítið minnkað vegna kórónuveirunn-
ar, segir á heimasíðu Vegagerðar-
innar .
12% samdrátt-
ur í umferðinni
Mestur samdráttur á sunnudögum
Ölfusárbrú Mest hefur verið ekið á föstudögum, minnst á laugardögum.
Stækkun eldisstöðvar Stofnfisks í
Vogum á Vatnsleysuströnd mun
auka lífrænt álag á Vogavík og líf-
ríki hennar. Áhrif á lífríki í fjörunni
og á grunnsævi eru metin nokkuð
neikvæð ef fráveitan frá stöðinni
verður áfram með útrás í fjöru
Vogavíkur en áhrifin eru metin
óveruleg ef fráveitan verður lögð út
í sjó og útrás hennar verður undir
stórstraumsfjöruborði. Báðir þessir
fráveitumöguleikar eru metnir í
frummatsskýrslu.
Matsskýrsla sem Verkís hefur
gert fyrir Stofnfisk hefur verið
kynnt og gefst kostur á athuga-
semdum til 15. október.
Stofnfiskur hyggst hefja seiða-
eldi í Vogastöðinni og með tilkomu
þess verður allur lífsferill eldislax-
ins innan eldisstöðvarinnar. Til-
gangur eldisins er að framleiða
laxahrogn.
Framleidd verða 50 tonn af seið-
um sem fullnægja framleiðslu á allt
að 450 tonnum af klakfiski í eldis-
stöðinni við Vogavík og einnig eldi
Stofnfisks við Kalmanstjörn en
þangað verða seiði flutt.
Byggð verður seiðaeldisstöð og
skrifstofushúsnæði á lóð Stofnfisks.
Samkvæmt gildandi leyfi má nú
framleiða 200 tonn af fiski þannig
að leyfið meira en tvöfaldast og
hægt verður að auka framleiðslu á
hrognum.
Mestu umhverfisáhrifin eru
vegna frárennslis en Stofnfiskur
áformar að leggja nýja frárennsl-
islögn í sjó fram þannig að allt frá-
rennsli fari um útrás undir stór-
straumsfjöruborði. Aukin vinnsla á
fersku vatni er talin hafa óveruleg
áhrif á grunnvatn svæðisins. Áhrif á
fuglalíf eru einnig óveruleg en
nokkuð jákvæð á fuglalíf í Vogavík
vegna aukins fæðuframboðs.
helgi@mbl.is
Stækkun eykur álag á lífríki Vogavíkur
Stofnfiskur metur áhrif stækkunar
eldisstöðvar til hrognaframleiðslu
Vogavík Stofnfiskur rekur nú þeg-
ar myndarlega eldisstöð í Vogum.
B Æ J A R L I N D 1 4 - 1 6 2 0 1 K Ó P AV O G U R S Í M I 5 5 3 7 1 0 0 L I N A N . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
Nýjar sendingar
metal skápur 100x150 cm kr. 145.800
lipp skenkur kr. 127.700
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com,
kajaorganic@gmail.com
Byggmjólk
Eina íslenska
jurtamjólkin
Sölustaðir: Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, Vegan búðin
Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið og Matarbúr Kaju á Akranesi
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU
AÐ LÁTA
GERA VIÐ?