Morgunblaðið - 04.09.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2020
marka eða banna fiskeldi eða
ákveðnar eldisaðferðir í Eyjafirði
enda geti þar komið til önnur sjón-
armið sem ekki eru á verksviði stofn-
unarinnar.
Biðja um frekari upplýsingar
Bæjarstjórn Akureyrar mælir
með friðun fjarðarins á grundvelli
bókunar sem samþykkt var af meiri-
hluta bæjarfulltrúa í maí. Þingeyj-
arsveit og Svalbarðsstrandar-
hreppur taka sömu afstöðu. Önnur
sveitarfélög sem skiluðu inn umsögn
vilja ekki að slíkt bann sé sett á núna,
biðja um frekari upplýsingar og svig-
rúm til áframhaldandi umræðna um
málið.
Einna eindregnasta afstaðan gegn
banni kemur fram í ítarlegri umsögn
Fjallabyggðar. Þar kemur fram sú
afstaða að ekki geti komið til álita að
beita lokunarheimild ráðherra nema
sérstakar og vel unnar rannsóknir
hafi farið fram sem styðji við það að
vistfræðileg hætta sé til staðar sem
byggi undir bann eða takmörkun.
„Ákvörðun ráðherra um lokun eða
takmörkun á fiskeldi á tilteknum
svæðum verður því ekki byggð á al-
mennri pólitískri afstöðu ráð-
herrans. Sú ákvörðun verður að
styðjast við niðurstöður rannsókna
til þess að hún teljist lögmæt,“ segir
í umsögninni.
Kallar Fjallabyggð eftir því að
gert verði burðarþolsmat og áhættu-
mat, áður en afstaða verði tekin til
málsins. Þau mál standa þannig að
Hafró hóf rannsóknir til að undirbúa
mat á burðarþoli. Í nýjum fiskeld-
islögum var hins vegar kveðið á um
að ráðherra skuli kalla eftir slíku
mati. Það hefur hann ekki gert.
Hafró gerir síðan áhættumat vegna
erfðablöndunar, eftir að burðarþol
hefur verið metið. Þegar ferlið er
komið þetta langt geta fiskeldisfyr-
irtækin sótt um leyfi til sjókvíaeldis
og viðkomandi stofnanir verða vænt-
anlega að veita þau. Er því nokkuð
ljóst að ráðherrann mun ekki kalla
eftir burðarþolsmati á meðan hug-
myndir eru uppi um að friða fjörð-
inn. Þá vaknar spurningin hvort
hægt sé að fara í aðrar rannsóknir til
að undirbyggja ákvörðun ráð-
herrans.
Óskað eftir strandskipulagi
Grýtubakkahreppur og fleiri sveit-
arfélög kalla eftir því að gert verði
skipulag haf- og strandsvæða fyrir
Eyjafjörð þar sem tekið verði tillit til
sem flestra sjónarmiða og hags-
muna. Svæðisskipulagsnefnd Eyja-
fjarðar hefur óskað eftir slíku mati,
án árangurs til þessa.
Dalvíkurbyggð hvetur til þess að
sveitarfélögunum við Eyjafjörð verði
gefið svigrúm til að vinna málið
áfram en ákveðin vinna hefur þegar
farið fram á vettvangi landshluta-
samtakanna sem þau eiga aðild að.
Ákvörðun um þetta stóra mál verði
ekki tekin í tímapressu, að mati
byggðaráðs, heldur að undangeng-
inni málefnalegri umræðu.
Málið hefur ekki verið tekið upp á
sameiginlegum vettvangi sveitarfé-
laganna frá því í vor enda ef til vill
ekki von til þess að sameiginleg nið-
urstaða fáist þegar litið er til mis-
munandi umsagna sveitarfélaganna
og eindreginnar afstöðu stærsta
sveitarfélagsins, Akureyrarbæjar.
Samkvæmt upplýsingum úr at-
vinnuvegaráðuneytinu er verið að
fara yfir umsagnir stofnana og sveit-
arfélaga.
Stofnanir vilja banna laxeldi
Hafró og Fiskistofa styðja tillögu Akureyrarbæjar um að friða Eyjafjörð fyrir sjókvíaeldi
Nokkrar sveitarstjórnir vilja frekari rannsóknir áður en þær taka afstöðu til hugmyndarinnar
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sjókvíar Stofnanir eru með mismunandi hugmyndir um eldi í Eyjafirði. Sumar vilja banna allt en aðrar halda einhverjum aðferðum opnum.
Afstaða sveitarstjórna til tillögu um friðun
Eyjafjarðar fyrir sjókvíaeldi
Grýtubakka-
hreppur
(Grenivík): Beðið verði
með ákvörðun
Svalbarðsstrandar-
hreppur: JÁ
Hafrannsókna-
stofnun: JÁ
Fiskistofa:
JÁ
Matvæla stofnun:
Tekur ekki afstöðu
Akureyrarbær: JÁ,
afstaða meirihluta
Afstaða stofnana til tillögu um friðun Eyjafjarðar fyrir sjókvíaeldi
Eyjafjarðarsveit: NEI,
vilja meiri upplýsingar
og umræðu
Dalvíkurbyggð:
Vilja svigrúm til
áframhaldandi umræðu
Fjallabyggð:
NEI
Tillaga um
friðun frá Siglunesi
að Bjarnarfjalli
Þingeyjar-
sveit: JÁ
Hörgársveit:
Sendi ekki umsögn
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hafrannsóknastofnun og Fiskistofa
styðja hugmyndir um að friða Eyja-
fjörð fyrir sjókvíaeldi eða takmarka
eldi þar. Matvælastofnun tekur ekki
afstöðu. Nokkrar sveitarstjórnir
styðja eindregið slíkt bann en aðrar
telja ekki tímabært að taka afstöðu
vegna skorts á upplýsingum.
Eftir að meirihluti bæjarstjórnar
Akureyrar, langfjölmennasta sveit-
arfélagsins við Eyjafjörð, skoraði á
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra að friða Eyjafjörð fyrir sjó-
kvíaeldi hóf ráðuneyti hans athugun
á tillögunni. Óskað var eftir umsögn-
um viðkomandi sveitarfélaga og
þriggja stofnana ríkisins, í samræmi
við ákvæði laga. Gengur ferlið út á
það að meta hvort breyta eigi auglýs-
ingu frá árinu 2004 þar sem eldi var
lýst óheimilt á tilteknum svæðum,
þannig að Eyjafirði verði bætt í þann
hóp. Raunar tekur athugunin einnig
til Jökulfjarða og tveggja fjarða í
sunnanverðum Norðfjarðarflóa.
Samkvæmt fiskeldislögum getur
ráðherra takmarkað eða bannað fisk-
eldi eða eldisaðferðir í einstaka fjörð-
um eða flóum eða á svæðum sem telj-
ast sérlega viðkvæm gagnvart
fiskeldi.
Greinir á um lúsina
Málið er umdeilt í Eyjafirði. Allar
sveitarstjórnirnar sem leitað var til
skiluðu umsögn, nema Hörgárbyggð.
Einnig stofnanirnar þrjár sem beðn-
ar voru um mat.
Hafrannsóknastofnun telur tilefni
til þess að banna allt fiskeldi í sjókví-
um í Eyjafirði. Ástæðan er staða
villtra stofna laxfiska, þá sérstaklega
bleikju og hugsanleg neikvæð vist-
fræðileg áhrif á lífríki fjarðarins. Ef
bætt verður við eldi í Eyjafjörð telur
stofnunin hættu á að heildarmörk
eldis fari fram yfir ráðleggingar
Hafró varðandi staðfest áhættumat
vegna hugsanlegrar erfðablöndunar
við náttúrulega stofna.
Fiskistofa gengur ekki eins langt
og Hafró en telur tilefni til að tak-
marka eða banna eldi á frjóum laxi af
norskum uppruna í opnum sjókvíum.
Rökin eru þau að tryggja verndun
náttúrulegra laxfiskastofna og veiði-
hagsmuni. Í umsögninni er bæði vís-
að til áhrifa hugsanlegra slysaslepp-
inga og lúsar.
Matvælastofnun telur hverfandi
líkur á dreifingu smitsjúkdóma úr
eldisfiski í villtan fisk og sömuleiðis
séu áhrif af smiti með laxalús að öllu
jöfnu ekki mikil. Þótt mat Mast sé
annað en Hafró og Fiskistofu telur
stofnunin ekki rétt að hún taki beina
afstöðu til þess hvort rétt sé að tak-
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma