Morgunblaðið - 04.09.2020, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2020
Varðveittu
minningarnar
áður en þær glatast
Bergvík ehf - Nethyl 2D - Sími 577 1777 - www.bergvik.is
BAKSVIÐ
Sighvatur Bjarnason
sighvaturb@mbl.is
Eftir að hafa verið kyrrsettar í hálft
annað ár standa vonir til þess að
737 MAX-flugvélar frá Boeing geti
innan fárra mánaða hafið sig til
lofts á ný. Þau
tímamót geta
reynst gróða-
vænleg fyrir
TRU Flight
Training sem býr
yfir flughermi af
þeirri gerð.
Guðmundur
Örn Gunnarsson
er framkvæmda-
stjóri TRU sem
er dótturfélag
Icelandair og starfrækir þrjá flug-
herma fyrir B737 MAX, B757 og
B767. Hann segir að nú þegar glitti
í að vélin fari að fljúga, og því berist
nú margar fyrirspurnir frá flug-
félögum í Evrópu sem undirbúa
endurkomu MAX. Hermirinn geti
því fengið aukið vægi miðað við
fyrri áætlanir.
Breyttar þjálfunarkröfur
Gunnar útskýrir að þegar vélin
kom fyrst á markaðinn hafi fyrir-
komulag þjálfunar verið á þá leið að
flughermar af annarri kynslóð 737
(Next Generation) voru taldir
nægja. Nú verði gerð sú krafa að
flugmenn sem fljúga MAX verði
skyldaðir til að þjálfa sig á MAX-
hermi a.m.k. að hluta til. Mun
færri hermar af þeirri gerð séu til
taks í Evrópu og búast þeir hjá
TRU við mikilli aðsókn. Hann seg-
ist þegar hafa gert samninga við
nokkur félög, þ.m.t. Boeing, um
þjálfun og viðræður standi yfir við
mörg önnur s.s. Ryanair, Tui og
Norwegian.
Guðmundur á von á aðilum frá
Evrópsku flugöryggisstofnuninni
(EASA) nú í september til að votta
herminn og að því loknu verði ekk-
ert því til fyrirstöðu að „keyra hann
20 stundir á sólahring“.
Tækifæri í faraldri
Þrátt fyrir mikinn samdrátt í
þjálfun Icelandair segir Guðmund-
ur að TRU hafi notið góðs af hlut-
fallslega auknu fragtflugi í heim-
inum af völdum faraldursins. Þetta
hafi skapað tækifæri í þjálfun B757-
flugmanna og nú sé svo komið að
50% af notkun hermisins séu á veg-
um erlendra flugfélaga. Síðari sótt-
varnareglur hafi þar lítið truflað
þar sem flugmenn sem koma að ut-
an geti verið í sóttkví í þjálfunar-
miðstöð TRU sem sé útbúin líkt og
„eyland“ innan þeirra húsakynna.
Tækifæri í þjálfun
Morgunblaðið/Þórður
Þjálfun Flughermar gegna lykilhlutverki við þjálfun flugmanna.
Íslendingar í sterkri stöðu að mæta kröfum um þjálfun á
Boeing 737 MAX Fragtflug eykur nýtingu B757-flugherma
Guðmundur Örn
Gunnarsson
hafa haldist jákvæðir. Fyrirtæki sem
eru í viðskiptum við Landsbankann
hafa því notið góðs af umtalsverðum
vaxtalækkunum.
Halda að sér höndum
Varðandi frekari útlán til fyrir-
tækja er rétt að benda á að það er
mikil óvissa í efnahagslífinu. Fyrir-
tæki hafa haldið að sér höndum í fjár-
festingum og þar af leiðandi er ekki
eins mikil eftirspurn eftir nýjum út-
lánum og áður. Óvissa og versnandi
efnahagsástand hefur áhrif á láns-
kjör þar sem álag á grunnvexti getur
hækkað, til dæmis með aukinni
áhættu innan atvinnugreinar eða
versnandi afkomu viðkomandi fyrir-
tækis.
Þá hefur aukning í íbúðalánum
bankans til einstaklinga skilað sér til
byggingariðnaðarins, þar sem fjöldi
fólks starfar, með góðri sölu á nýjum
eignum. Júlí- og ágústmánuður á
þessu ári hafa verið þeir umfangs-
mestu í íbúðalánum hjá bankanum
hingað til og fjöldi nýrra viðskipta-
vina bæst í hóp ánægðra viðskipta-
vina Landsbankans.“
Ólík þróun vaxtamunar
Fulltrúi Íslandsbanka vísaði til
þróunar á vaxtamun hjá bankanum.
„Í umhverfi lækkandi vaxta hefur
vaxtamunur minnkað innlánamegin
en aukist á móti útlánamegin. Ís-
landsbanki er mjög vel í stakk búinn
til að sinna viðskiptavinum sínum
með útlán og lánaði bankinn um 105
milljarða króna í nýjum útlánum á
fyrri helmingi ársins.“
Í svari Arion banka sagði að hafa
þyrfti margt í huga þegar vextir út-
lána eru ákvarðaðir, t.d. áhættu,
kostnað, þ.m.t. fjármagnskostnað, og
arðsemi. „Arion banki er almenn-
ingshlutafélag skráð í kauphöll og
starfar samkvæmt opinberu arðsem-
ismarkmiði upp á 10%. Þótt stýri-
vextir Seðlabanka Íslands hafi lækk-
að undanfarna mánuði er ljóst að
aðrir þættir sem hafa áhrif á vexti
hafa færst til verri vegar. Óvissa er
umtalsverð í efnahagslífinu og þar
með áhætta við lánveitingar, sem þó
er misjöfn eftir fyrirtækjum og at-
vinnugreinum.
Arion banki lánar meira
Þó eftirspurn sé minni en oft áður
hefur bankinn undanfarnar vikur og
mánuði lánað til fyrirtækja og mun
gera það áfram. Og samkvæmt frétt-
um síðustu daga hefur bankinn lánað
umtalsvert meira en aðrir bankar
þegar kemur að úrræðum stjórn-
valda, svokölluðum viðbótar- og
stuðningslánum, eða hátt í þrjá millj-
arða króna.“
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fulltrúar stóru bankanna bregðast
misjafnlega við gagnrýni á vaxta-
stefnuna í fyrirtækjalánum.
Rætt var við Ingólf Bender, aðal-
hagfræðing Samtaka iðnaðarins, í
ViðskiptaMogganum í fyrradag.
Hélt Ingólfur því fram að bankarn-
ir hefðu ekki skilað vaxtalækkunum
til fyrirtækja. Jafnframt hefðu þeir
skellt í lás í útlánum til fyrirtækja.
Voru þessi ummæli borin undir
upplýsingafulltrúa bankanna.
Svar Landsbankans var svohljóð-
andi: „Landsbankinn hefur lækkað
breytilega kjörvexti sína, sem eru al-
gengustu grunnvextir í lánum til
fyrirtækja, um 2,15 prósentustig frá
því í ársbyrjun 2019. Vaxtamunur
bankans hefur minnkað talsvert á
sama tíma þar sem innlánavextir
Dekkri horfur hafa áhrif á útlán
Landsbankinn svarar gagnrýni Arion banki bendir á aukna áhættu í útlánum
4. september 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 138.67
Sterlingspund 185.15
Kanadadalur 106.15
Dönsk króna 22.104
Norsk króna 15.797
Sænsk króna 15.955
Svissn. franki 152.28
Japanskt jen 1.3062
SDR 196.51
Evra 164.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 193.4392
Hrávöruverð
Gull 1969.0 ($/únsa)
Ál 1778.5 ($/tonn) LME
Hráolía 45.83 ($/fatið) Brent
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Nær öll verkefnastaða ferðaþjón-
ustufyrirtækisins Snælands-Gríms-
sonar hefur þurrkast upp fram að
áramótum, að sögn Hallgríms Lárus-
sonar, framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins. Snæland-Grímsson er samstarfs-
aðili bresk-þýsku ferðaskrifstofunnar
TUI á Íslandi.
Í júní sl. var sagt frá því í Morgun-
blaðinu að TUI hefði bókað þúsundir
ferðamanna hingað til lands í vetur í
gegnum Snæland-Grímsson og mikill
áhugi væri fyrir hendi. Eftir að síð-
ustu takmarkanir á ferðum til Íslands
tóku gildi hinn 19. ágúst sl., þar sem
kveðið er á um tvær sýnatökur á
landamærum með fimm daga sóttkví
á milli, eða sleppa sýnatöku og sitja í
14 daga sóttkví frá komunni til lands-
ins, er staðan orðin gjörbreytt að
sögn Hallgríms. „Við vorum búin að
stilla upp alls konar hópum og verk-
efnum á haustmánuðum, en það fór
allt í uppnám við þessar ráðstafanir
og dó nær allt út. Það kemur ekki aft-
ur þó að opnað sé á ný. Það er svo
mikið undir með svona hópa, hótel-
pantanir og önnur þjónusta, og ekki
hægt að hringla endalaust með þetta.
Svo fór öll flugáætlun í uppnám. Nú
sér maður ekki fram á neitt fyrr en
eftir áramót í fyrsta lagi. Skaðinn er
skeður.“
Unnið langt fram í tímann
Ferðaþjónustufyrirtæki eins og
Snæland-Grímsson vinna yfirleitt
langt fram í tímann, og nú er unnið að
ferðabókunum næsta vor og sumar
upp á von og óvon. „Það er bullandi
áhugi. Maður vonar bara það besta.“
Snæland-Grímsson hefur sagt upp
nær öllu sínu starfsfólki. Kallar Hall-
grímur eftir frekari aðgerðum stjórn-
valda til að hjálpa ferðaskrifstofum í
gegnum mestu erfiðleikana.
Hallgrímur segir að eðlilega sé lítið
að gera hjá fyrirtækinu sem stendur.
Í sumar hafi einhverjir hópar komið
til landsins á vegum ferðaskrifstof-
unnar, en þó bara brot af því sem vant
er.
Morgunblaðið/Ómar
Foss Hópar vilja skoða Gullfoss.
Verkefnastaðan
þurrkaðist upp
Hætt við pakkaferðir til áramóta