Morgunblaðið - 04.09.2020, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2020
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Róbert Spanó, hinn íslenski forseti
Mannréttindadómstóls Evrópu, átti
í gær fund með Erdogan forseta
Tyrklands, á skrifstofu hans í Ank-
ara. Fréttir um að Róbert muni í
ferðinni þiggja heiðursdoktors-
nafnbót við háskólann í Istanbúl
hafa vakið gagnrýni vegna þess
hvernig tyrknesk stjórnvöld hafa
komið fram við fjölda kennara og
fræðimanna við skólann. Hafa á
annað hundrað þeirra verið reknir
eftir að tilraun var gerð til valda-
ráns í landinu fyrir fjórum árum.
Gagnrýnendum þykir skjóta
skökku við gagnvart gildum og nið-
urstöðum dómstólsins að forseti
hans taki við heiðursnafnbót frá
ríkisreknum háskóla í Tyrklandi.
Mehmet Altan, hagfræðiprófessor
sem var fangelsaður í kjölfar valda-
ránstilraunarinnar, benti á að
dómsmál sem hann og fleiri hafa
höfðað gegn háskólanum færu lík-
lega fyrir Mannréttindadómstólinn
og Róbert yrði þá með heiðurs-
nafnbót frá varnaraðilanum.
Umdeild heimsókn forseta Mannréttindadómstóls Evrópu til Tyrklands
Róbert
Spanó hitti
Erdogan
AFP
Fundur Róbert Spanó, forseti Mannréttindadómstóls Evrópu, og Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, á forsetaskrifstofunni í Ankara.
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Angela Merkel, kanslari Þýskalands,
sætir nú auknum þrýstingi frá flokks-
bræðrum sínum í Kristilega demó-
krataflokknum um að sýna Rússum í
tvo heimana, eftir að í ljós kom að
rússneska stjórnarandstöðuleiðtog-
anum Alexei Navalní var byrlað
taugaeitrið novichok. Notkun þessa
hættulega efnis þykir skýr vísbend-
ing um að Pútín, forseti Rússlands,
hafi sjálfur veitt samþykki sitt fyrir
banatilræðinu. Navalní liggur þungt
haldinn á sjúkrahúsi í Þýskalandi en
þangað var hann fluttur frá Síberíu
með sérstakri sjúkraflugvél þýskra
stjórnvalda.
Í hópi þeirra sem kveðið hafa fast
að orði um nauðsyn harðra viðbragða
er Norbert Röttgen, formaður utan-
ríkismálanefndar þýska sam-
bandsþingsins. Hvatti hann í gær til
þess að ESB-ríkin kæmu sér saman
um að stöðva lagningu Nord Stream
2-jarðgasleiðslunnar milli Rússlands
og Þýskalands. Gasleiðslan er ákaf-
lega umdeild og hefur því verið haldið
fram að hún veiti Rússum kverkatak
á þýskum efnahag. Gífurlegir efna-
hagslegir hagsmunir eru tengdir
þessari framkvæmd.
Merkel hefur verið þeirrar skoðun-
ar að ekki eigi að blanda gasleiðslunni
saman við deilur við Rússa. Hún hef-
ur verið harðorð í garð rússneskra
stjórnvalda og krafist tafarlausra
skýringa eftir að upplýst varð um
raunverulegt eðli veikinda Navalnís.
Utanríkisráðherrann Heiko Mass,
sem kemur úr flokki jafnaðarmanna,
segir að nauðsynlegt sé að ríkis-
stjórnin hafi náið samráð við forystu-
menn ESB og NATO áður en ákvarð-
anir eru teknar um viðbrögð.
Erindrekar rússnesku leyniþjón-
ustunnar hafa áður notað eiturefnið
novichok gegn rússneskum andstæð-
ingum sínum á Vesturlöndum. Það
var þegar reynt var að ráða gagn-
njósnarann Sergei Skrípal af dögum á
Englandi fyrir tveimur árum.
Í grein í The Guardian í gær segir
að enginn vafi leiki á því að með því að
nota novichok gegn andstæðingum
sínum séu stjórnvöld að senda skýr
ógnvekjandi skilaboð um það hvernig
farið verði með alla þá sem sýna and-
stöðu og mótþróa sem ógni hagsmun-
um rússneska ríkisins.
Pútín kann að vera að leika sér að
eldi, beri hann ábyrgð á tilræðinu, því
kröfur um refsiaðgerðir vestrænna
ríkja eru þegar farnar að valda vand-
ræðum í rússnesku efnahagslífi.
Krefjast harðra viðbragða
AFP
Moskva Gengi rúblunnar fellur vegna ótta um refsiaðgerðir gegn Rússum.
Þrýst á Merkel að sýna Rússum enga linkind eftir tilræðið við Alexei Navalní
Áhrifamenn vilja hætta samstarfinu við Rússa um Nord Stream 2-gasleiðsluna
Netverslunarrisinn bandaríski
Amazon tilkynnti í gær að starfs-
mönnum fyrirtækisins í Bretlandi
yrði fjölgað til frambúðar um sjö
þúsund í fimmtíu borgum víðs veg-
ar í landinu fyrir áramót.
Fyrr á þessu ári var starfs-
mönnum Amazon í Bretlandi fjölg-
að um þrjú þúsund. Fastir starfs-
menn fyrirtækisins þar í landi
verða þá orðnir fjörutíu þúsund.
Tilkynningunni hefur verið mjög
fagnað enda hefur breskt efna-
hagslíf orðið fyrir miklum skakka-
föllum vegna kórónuveirufarald-
ursins. Fjöldi fyrirtækja hefur
fækkað starfsfólki verulega og at-
vinnuleysi stóraukist. Störfum hjá
ýmsum netverslunum hefur hins
vegar fjölgað verulega en það hef-
ur ekki vegið upp á móti atvinnu-
leysinu.
Til viðbótar við hin nýju fram-
búðarstörf ætlar Amazon að bæta
við sig um tuttugu þúsund starfs-
mönnum í tímabundin störf víðs
vegar í Bretlandi á næstu vikum.
Alok Sharma, viðskiptaráðherra
Bretlands, segir að ákvörðun Ama-
zon sé traustsyfirlýsing á framtíð-
arhorfur efnahags í landinu.
BRETLAND
Sjö þúsund ný störf
verða til hjá Amazon
Landlæknir Kan-
ada, dr. Theresa
Tam, mælist til
þess að fólk noti
andlitsgrímur við
kynlíf til þess að
minnka líkurnar
á kórónuveiru-
smiti. Hún
minnti þó á að
öruggasta kyn-
lífið á dögum farsóttar fælist í því
að hver og einn sinnti sjálfum sér.
Í tilkynningu landlæknisins sagði
að smithætta vegna kynmaka væri
hverfandi, en hins vegar gætu
kossar og ámóta atlot aukið hana
verulega. Því færi best á því að
fólk léti kossana vera, notaði grím-
ur og forðaðist að snúa andlitum
saman.
Í Kanada búa 38 milljónir
manna, þar hafa greinst um 130
þúsund smit og 9.132 látist af völd-
um veirunnar.
Notið grím-
ur við kynlíf
Dr. Theresa Tam