Morgunblaðið - 04.09.2020, Page 14
BAKSVIÐ
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Vísbendingar eru um að of-beldi og vanræksla gagn-vart börnum hafi aukist áþessum Covid-mánuðum,“
segir Heiða Björg Pálmadóttir, for-
stjóri Barnaverndarstofu.
Barnaverndarstofa hefur birt
greiningu á tölulegum upplýsingum
frá barnaverndarnefndum landsins
sem bárust í júní og júlí í sumar og
borið þær saman við fyrri tölur.
Nýju tölurnar eru bornar saman við
tölur frá því í maí 2020 sem áður
voru birtar og samantekt á tíma-
bilinu 1. janúar 2019 til 1. sept-
ember 2020. Niðurstöðurnar ríma
við sambærilegar greiningar frá
tímabilinu mars, apríl og maí á
þessu ári.
Í samantekt Barnaverndar-
stofu kemur fram að tilkynningar til
barnaverndarnefnda í júní voru yfir
meðaltali og 16,9% fleiri en bárust í
júní 2019. Hins vegar voru tilkynn-
ingar í júlí undir meðaltali á saman-
burðartímabili en þó 0,6% fleiri en
bárust í júlí 2019.
„Fjöldi barna sem tilkynnt var
um í júní er nokkuð yfir meðaltali
og ekki hafa áður borist tilkynn-
ingar um jafn mörg börn í einum
mánuði miðað við samanburðar-
tímabil en er undir meðaltali í júlí,“
segir í samantektinni.
Heiða Björg segir í samtali við
Morgunblaðið að sveiflur til og frá á
mánaðartímabili segi ekki mikið en
sterkar vísbendingar séu farnar að
koma fram um þróun mála nú þegar
fimm mánuðir á Covid-tímanum
hafa verið teknir saman.
Hún segir að ljóst sé að ofbeldi
og vanræksla sé að aukast. Þó að
aukningin nemi ekki mörgum pró-
sentum sé hvert þeirra meira en
nóg. „Í rauninni kemur þetta ekki á
óvart. Þetta staðfestir það sem áður
var talið. Niðurstöðurnar sýna að
áhersla barnaverndarnefnda verður
áfram að vera þarna og samfélagið
verður að vera áfram vakandi fyrir
aðstæðum barna. Það hefur komið í
ljós á Covid-tímanum að almenn-
ingur hefur staðið sig mjög vel í til-
kynningarskyldu og ég vil hvetja
fólk til að halda áfram að fylgjast
með börnunum.“
Þegar rýnt er í hvers eðlis til-
kynningar til barnaverndarnefnda
voru á umræddu tímabili kemur í
ljós að tilkynningar um ofbeldi voru
yfir meðaltali tilkynninga á tíma-
bilinu janúar 2019 – febrúar 2020
fjóra mánuði í röð, en fækkaði í júlí
2020. Tilkynningar um vanrækslu
hafa aftur á móti verið yfir meðal-
tali fimm mánuði í röð. Samantekt
Barnaverndarstofu leiðir í ljós að
tilkynningar frá leikskólum og dag-
foreldrum eru hærri en að meðaltali
á samanburðartímabili: „Í júní bár-
ust fleiri tilkynningar frá leik-
skólum en áður hefur borist í
einum mánuði á því tímabili
sem hér er til samanburðar.“
Ofbeldi og vanræksla
gegn börnum aukast
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Saga Sunda-brautarinnarer orðin mikil
svikasaga sem bæt-
ist stöðugt í. Seðla-
bankastjóri minnti
á þetta á fundi um daginn og
lýsti undrun sinni á því að ekkert
hefði gerst í þessu máli, jafn
brýn og brautin væri. Fulltrúar
vinstri meirihlutans í Reykjavík
brugðust ókvæða við enda yf-
irlýstir andstæðingar fjöl-
skyldubílsins og vilja þrengja
vegi en ekki fjölga þeim eða
leggja nýja.
Þetta hefur þó ekki alltaf ver-
ið svona, það er að segja ekki að
nafninu til. Eyþór Arnalds, odd-
viti sjálfstæðismanna í borg-
arstjórn, spurði Dag B. Eggerts-
son borgarstjóra út í
Sundabrautina í fyrsta óund-
irbúna fyrirspurnatíma borg-
arstjórnar, sem fram fór á
þriðjudag. Eyþór benti á að fyrir
lægi að hagstæðasta leið Sunda-
brautar hefði verið gerð ómögu-
leg vegna skipulags borgarinnar
við Vogabyggð, auk þess sem
borgin hefði heimilað mannvirki
við vegstæði Sundabrautar.
Þetta væri þvert á yfirlýsingu
núverandi borgarstjóra sem hafi
árið 2006 sagt: „Lagning Sunda-
brautar er algjört forgangsverk-
efni í okkar augum.“ Þegar þessi
orð féllu var núverandi borg-
arstjóri frambjóðandi Samfylk-
ingar á atkvæðaveiðum og nú,
fjórtán árum síðar, er forgangs-
verkefnið, vegna verka borg-
arstjóra, fjær því að verða að
veruleika en þá var.
Eyþór rifjaði líka
upp enn eldri loforð,
en þau komu fram í
riti sem gefið var út
árið 1997 í tíð ann-
ars borgarstjóra
Samfylkingarinnar, Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur. Í þessu
riti, sem kom út fyrir kosningu
um sameiningu Kjalarneshrepps
og Reykjavíkur, var gefið það
loforð að borgarstjórn Reykja-
víkur mundi „beita sér fyrir því,
að lagningu „Sundabrautar“ um
Elliðaárvog, Grafarvog, Geld-
inganes, Álfsnes og Kollafjörð
verði flýtt eins og kostur er.“
Síðan eru liðin 23 ár og borg-
arstjórn undir forystu Samfylk-
ingar hefur allan tímann leynt og
ljóst beitt sér gegn lagningu
brautarinnar.
Það gerist stundum í stjórn-
málum að menn dragi lappirnar
og flýti sér ekki endilega að efna
loforð sín. Það gerist sennilega
líka að menn ætli sér alls ekki að
efna þau og dragi ekki aðeins
lappirnar heldur geri ekki nokk-
uð til að loforðin geti orðið að
veruleika. Það er á hinn bóginn
sjaldgæft að stjórnmálamenn
eða -flokkar gefi loforð ítrekað
og árum saman með svo skýrum
hætti en vinni svo beinlínis gegn
eigin loforðum með því að gera
allt sem hægt er til að reyna að
koma í veg fyrir að þau geti
nokkru sinni orðið að veruleika.
Þessum árangri hafa borg-
arstjóri og flokkur hans náð,
sem verður að teljast mikið af-
rek, þó að ekki sé það að sama
skapi hrósvert.
Svik Samfylkingar
vegna Sundabrautar
eru skýr og alvarleg}
Mikil svikasaga
Ekki eru allirbúnir að
gleyma sýnd-
arleiknum þegar
óvæntir hlaupa-
drengir úr öðrum
flokkum tóku að sér
verk fyrir Jóhönnu
og Steingrím við að
koma Íslandi sem hraðast og sem
hljóðlegast inn í Evrópusam-
bandið. Það var ljót sjón lítil.
Pukur og óheilindi einkenndu
alla þá framgöngu.
Þá var gert lítið úr laumu-
spilinu og látið sem minna en ekk-
ert benti til að „samningar um ís-
lenskan sjávarútveg yrðu snúin
vandamál“.
Edward Heath ríður ekki feit-
um hesti frá tíð sinni sem for-
sætisráðherra Bretlands. Hann
vann að því að koma Bretum inn í
Evrópubandalagið og í þá tíð
þoldi inngangan ekki sannleikann
um breskan sjávarútveg í því
ferli. Edward Heath tók bein-
harða ákvörðun um að sannleik-
urinn um þessi mál skyldi varð-
veitast sem dýrmætt
ríkisleyndarmál í minnst 30 ár.
Og það var ekki fyrr en þá sem
mörgum varð ljóst að Heath hafði
verið enn ómerkilegri stjórn-
málamaður en áður
lá fyrir, og var það
þó nokkuð. Nú þeg-
ar tuðað er um fram-
kvæmdaratriði sem
upp koma eftir
ákvörðun Breta að
yfirgefa loks hinn
ógeðfellda selskap
ESB, gerist það enn og aftur að
reynt er að bregða huliðshjálmi
yfir allt sem snýr að fiskveiðum
og þeim réttindum sem aðrir
komust yfir vegna kaupskapar
Heaths.
Augljóst er að fjölmörg aðild-
arríki ESB telja sig hafa mjög
ríka hagsmuni af því að samning-
arnir sem Heath lét sig hafa að
kyngja í „þágu stærri markmiða“
gangi ekki til baka með breskri
útgöngu sem er þó auðvitað sjálf-
sagt og eðlilegt að gerist.
Vegna pukursins er algengt að
upphlaup verði með ólíkum og
óvæntum formerkjum í breskum
fjölmiðlum og á meginlandinu. Í
þeim síðari gætir hótana í garð
valdamanna tryggi þeir ekki að
allt verði óbreytt. En hitt er jafn-
öruggt að Boris Johnson mundi
kenna á því í kjörkössunum tæki
hann svikabrall Heath til fyr-
irmyndar sem seint verður trúað.
Fiskveiðiréttindi eru
fyrirferðarmikil í
makki um fyrir-
komulag útgöngu
Breta úr ESB}
Glittir í gömul svik
H
vað er að vera Íslendingur?
Þarftu að geta rakið ættir þín-
ar til landnema? Þarftu að
kunna íslensku? Þarftu að búa
á Íslandi eða vera ríkisborgari?
Tárast yfir auglýsingu frá Icelandair?
Þingmenn ákveða í dag hvort nota eigi
fimmtán milljarða af almannafé til að ábyrgj-
ast rekstur Icelandair, sem eru stórtíðindi.
Ekki bara vegna afskipta ríkisins af einkafyr-
irtæki á markaði heldur líka vegna þessa að
um er að ræða háa fjárhæð, ársframlög rík-
isins til nýsköpunar eða menningar- og æsku-
lýðsmála.
Krókar og kimar þessa máls eru ansi marg-
ir. Því er gagnlegt að skoða hvers vegna rík-
isstjórnin segist vera að skipta sér af mál-
efnum Icelandair. Þau vilji viðhalda traustum
og samfelldum samgöngum til og frá Íslandi og minna á
mikilvægi flugsamgangna fyrir ferðaþjónustuna. Þrátt
fyrir að þetta séu veigamikil rök þarfnast þau ekki Ice-
landair. Það er hægt að tryggja samgöngur til og frá Ís-
landi án Icelandair og ef sá hluti er tryggður uppfyllir
það sjálfkrafa seinni ástæðuna. Stjórnarþingmenn halda
því fram að ríkissjóður sé í raun og veru að taka mjög
litla áhættu, að lánið sé dýrt og ólíklegt að Icelandair vilji
í raun nota ríkisábyrgðina. Á móti má spyrja: Til hvers
þarf þá ríkisábyrgð?
Icelandair er rótgróið fyrirtæki í íslensku samfélagi.
Ef Icelandair verður fyrir skaða hefur það ansi víðtæk
áhrif, ekki síst vegna þess að lífeyrissjóðir og bankar í
ríkiseigu eiga stóran hlut í Icelandair. Ef
ríkisbankarnir tapa þá tapar ríkið líka. Á
þann hátt er ríkisábyrgð á láni Icelandair í
gegnum bankana óháð ákvörðun Alþingis.
Þegar við spyrjum okkur hvort hjálpa eigi
Icelandair eða lífeyrissjóðunum, sem eiga
stærstan hluta félagsins, þá skiptir máli að
skoða hvort staða Icelandair haldi áfram að
versna eða ekki. Gloppurnar í sviðs-
myndagreiningunni eru svo stórar að það er
ekki hægt að sjá hvort skuldahola Icelandair
minnki nokkuð með þessari innspýtingu. Ef
staðan versnar verður skaðinn fyrir lífeyr-
issjóðina og almannatryggingakerfið meiri í
framtíðinni.
Það fylgir því líka skaði að hjálpa Ice-
landair. Það er samkeppnisskaði, eins og
fram kemur í umsögn Samkeppniseftirlitsins.
Einokunarstaða Icelandair myndi skilja eftir sig eyði-
leggingarslóð keppinauta og sá skaði bitnar á öllum í
formi verri þjónustu og hærra verðs.
Hvernig sem mál Icelandair þróast, hvort við grátum
yfir auglýsingum þess eða falli, þá verðum við áfram Ís-
lendingar. Við horfumst í augu við það að allir valmögu-
leikar í stöðunni eru skaðlegir á einn eða annan hátt til
skemmri tíma. Erfiða spurningin lýtur að því sem gerist
til lengri tíma og aðgerðanna sem gripið verður til í kjöl-
far ríkisábyrgðar. Hvað sem gerist í dag er verkefnið í
framhaldinu að tryggja heilbrigða samkeppni í flugi.
Björn Leví
Gunnarsson
Pistill
Ertu Icelandairingur?
Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Heiða Björg Pálmadóttir, for-
stjóri Barnaverndarstofu, hrósar
frammistöðu almennings við til-
kynningar til barnaverndar-
nefnda. Ekki veitti enda af í vor
þegar skólastarf var víða hálf-
lamað, rétt eins og þjóðfélagið
allt. Tilkynningar frá nágrönnum
voru yfir meðaltali bæði í júní og
júlí og fleiri en áður bárust á
samanburðartímabili. Þær eru
þó færri en í mars til maí í ár.
Ekki hafa fyrr borist fleiri til-
kynningar frá ættingjum í einum
mánuði miðað við samanburðar-
tímabil en í júlí.
Í skýrslunni er lýst áhyggjum
af tölum um ofbeldi en þær voru
yfir meðaltali fjóra mánuði í röð í
vor en fækkaði svo í júlímánuði.
„Eru þessar tölur sér-
stakt áhyggjuefni og
mikilvægt er að
fylgjast með því á
næstu vikum og
mánuðum hver
þróunin verður,“
segir í skýrslu
Barnavernd-
arstofu.
Almenningur
á varðbergi
HRÓSAR TILKYNNINGUM
Heiða Björg
Pálmadóttir
454
1.243
1.088
902
373
551
440
421
231
290
324
320
444
317
234
351
Fjöldi tilkynninga til barnaverndarnefnda í maí til júlí 2020
Tilkynningar eftir landsvæðum
1.500
1.200
900
600
300
0
600
500
400
300
200
100
maí júní júlí
Heimild: Barna-
verndarstofa
Tilkynningar um ofbeldi og vanrækslu
maí júní júlí
499
Reykjavík
Höfuðborgarsv. utan Rvík
Landsbyggðin
Tilkynningar um vanrækslu
Tilkynningar um ofbeldi
341